Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Síða 20

Þróttur. Knattspyrnudeild - 01.09.1999, Síða 20
■ Knattspyrtnyf&lagið ÍXZSIMip 50ára Kjarnakarlar ur -þaðan kom hálfur meistaraflokkur og tveir formenn! ! Héðinsliðið íknattspymu var annálað og gjörsamlega ósigrandi á 6. áratugnum. Hér er liðið íDanmörku eftir að keppa við lið Burmeister & Wain. Á myndinni má sjá að liðið er mörgum Þrótturum prýtt. I efstu röð eru Hörður Guðmundsson, Gylfi Jónsson síðar lögregluforingi, Gunnar Pétursson. 1 miðröð má sjá Amarjörg- ensson, Halldór Bachmann og Böðvar Guðmundsson. Og ífremstu röð lengst til hægri er Ólafur Olafsson, einnfyrstu Þróttaranna. Fyrsti meistaraflokkur Þróttar kom að stórum hluta úr starfsmannahópnum í Vélsmiðjunni Héðni, sem var stærsta smiðja landsins á þeim tíma með um 300 manna starfslið og átti ósigrandi firmalið. Gunnar Pétursson, sá ágæti félagi sem í næstum þrjátíu ár tók mjög virkan þátt sem handknattleiks- og knattspyrnumað- ur, í stjórnum, ráðum og nefndum Þróttar og knattspyrnuhreyfingarinnar og þjálfari margra flokka, segir að meðal annars hafi komið frá Héðni og leikið með meistar- aflokki Þróttar kappar eins og Hörður Guðmundsson, Gunnar Aðalsteinsson, Steinn Guðmundsson, Kristinn Gunnars- son, Arnar Jörgensen, Sigurgeir Bjarna- son, Böðvar Guðmundsson, að ekki sé tah að um Halldór Bachmann. Sjálfur kom Gunnar Pétursson frá Héðni, en hann kom líka frá Fram, félaginu sem mest mis- sti við stofnun Þróttar. Gular og svartar rendur Fyrsti búningur meistaraflokks var með gulum og svörtum röndum og svörtum buxum við. Margir kölluðu þetta býflugnabúningana. Eins og kunnugt er var útilokað fyrir félagið að fá gjaldeyrisyf- irfærslu fyrir búningum. Búningum fyrir fjórða flokk hafði verið komið bakdyram- egin með Gullfossi. Mun Rögnvaldur Gunnlaugsson glímukappi og búrmeistari á Gullfossi, hafa staðið fyrir því að bún- ingarnir fengust á land. Hann var mikill KR-ingur en var kaupmaður í Ragnarsbúð í miðju Þróttarhverfinu og var félaginu ævinlega hliðhollur. Varðandi bíflugnabúninginn, sem er vel að merkja skráður varabúningur Þrót- tar, þá voru það þrír rausnarpiltar, Gunnar Pétursson, Arnar Jörgensen og Böðvar Guðmundsson, sem gáfu félaginu þennan búning. Gunnar segir að þeir þremenningarnir, allir Þróttarar, hafi verið á ferðalagi með hinu ósigrandi knattspyrnuliði Héðins í Danmörku og þar gátu þeir keypt búning- ana hindrunarlaust í búð, tvö sett. Framan af var þessi búningur aðalbúningur elsta flokks félagsins. Gunnar Pétursson var efnilegur leik- maður 1949 hjá Fram, bæði í fótbolta og handbolta. Strákar á Holtinu og Skerj- afirðinum voru almennt Framarar í þá tíð og margir úrvals íþróttamenn. I fyrsta meistaraflokksliði Þróttar voru 9 leik- menn úr 2. flokki í Fram að sögn Gunnars. Þegar ljóst var að Fram yrði fyrir mikilli blóðtöku urðu nokkur sárindi milli félag- anna tveggja. Gunnar segir að almennt hafi menn ekki talið að Þróttur færi alla leið, gengi í ISÍ og yrði alvöru íþróttafélag með öllum réttindum. En fljótlega var sótt um aðild sem fékkst. ...og tveir formenn líka Frá Vélsmiðjunni Héðni komu ekki bara leikmenn. Þaðan komu líka stjórnar' menn og dyggir stuðningsmenn. For- mennirnir Haraldur Snorrason og Oskar Pétursson störfuðu báðir í Héðni. 20

x

Þróttur. Knattspyrnudeild

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur. Knattspyrnudeild
https://timarit.is/publication/1575

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.