Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Page 3
ð fallegt I Laugardalnum,
Þ ttar, sem er einskonar fé
bygt
fnt úti sem inni i félagshúsi
gsheimili Þróttarhverfanna,
akragans í kringum Dalinn.
^NW&ÁftÖST
er orðið að hásumri
Þróttur er að hefja sitt fjórða sumar í
Laugardalnum og okkur þykir það öllum
sjálfsagt. Húsið okkar er fullt af fólki frá
morgni til kvölds. Iðkendafjöldi í yngri
flokkunum hefur nærri tvöfaldast, reyndar
hefur fjöldi stúlkna sem æfa með Þrótti
þrefaldast, eftir að flutt var í Dalinn. í
sumar teflir Þróttur fram liðum í efstu
deild í fótbolta bæði karla og kvenna.
Sólin skín í heiði og það er hásumar í
Þrótti.
Flutningamir úr Sæviðarsundinu
gengu þó alls ekki þrautalaust fyrir sig.
Mest öll starfsorka félagsins hafði að
sjálfsögðu farið í flutningana og undir-
búning þeirra um nokkra hríð, enda verk-
efnið risavaxið í litlu félagi. Innra starfið
bar þessa nokkur merki þegar komið var í
Dalinn. Með harðfylgi hafði tekist að
hasla félaginu nýjan völl, reyndar velli.
Trúlega bestu aðstöðu sem nokkurt knatt-
spyrnufélag hefur yfir að ráða utanhúss á
íslandi. Ekki voru allir á eitt sáttir um að
félagið myndi valda því verkefni að glæða
þessi mannvirki því lífi sem ætlast var til.
Hér tók við nýtt verkefni, það þurfti að
efla Þrótt verulega, skipuleggja allt innra
starf og fá fleira fólk til starfa. Þegar
félagið flutti var allt starf unglingaráðs
endurskipulagt. Stofnuð voru tlokksráð í
öllum flokkum og nýtt unglingaráð tók til
starfa. Ráðinn var yfirþjálfari alls starfs
yngri flokkanna. Unglingaráðið fundaði
reglulega og foreldraráðin sendu fulltrúa
sína á fundi ráðsins. Með þessu móti tókst
að virkja fjöldamarga foreldra til starfa og
segja má að fjölgun iðkenda í yngri flokk-
unum og knattspyrnuhátíðin Visa Rey Cup
sé kórónan á því starfi til þessa.
Langþráður draumur allra Þróttara náð-
ist síðasta haust þegar meistaraflokkur
karla vann sér keppnisrétt í efstu deild. Sá
árangur er ekki „keyptur", hann er
afrakstur vinnu félagsins um langa hríð.
Uppistaðan í liðinu eru strákar sem ólust
upp í Þrótti við Sæviðarsund. Það er
markviss stefna Þróttar að tefla fram eins
mörgum heimamönnum og kostur er.
Keppni meðal hinna bestu krefst þess þó
að utanaðkomandi leikmenn séu fengnir
til að styrkja hópinn. Lið Þróttar er ungt
og því er það fyrirsjáanlegt að með mark-
vissu starfi í yngri flokkunum hér í
Dalnum tekst okkur að endurnýja það inn-
anfrá.
Meistaraflokkur kvenna er, öfugt við
strákana, nær allur aðfluttur. Iðjagrænir
vellir Laugardalsins freistuðu stúlkna sem
höfðu flestar leikið knattspyrnu með
öðrum liðum en „voru í fríi frá keppni“ af
ýmsum ástæðum. Þær óskuðu eftir því að
fá að keppa undir merkjum Þróttar og æfa
í Dalnum. Þessar hugmyndir féllu vel að
stefnu Þróttar um uppbyggingu kvenna-
boltans, því það er erfitt að byggja upp
yngri flokka þegar enginn meistar-
aflokkur er til að stefna að. Á þessum tíma
hafði Þróttur þurft að horfa á eftir efni-
legum stelpum til annarra félaga þar sem
þeirra biðu meiri tækifæri í framtíðinni.
Þótt vorið í Þrótti sé nú orðið að hás-
umri er uppskerutíminn eftir. Leikmenn
yngri flokka standa frammi fyrir mörgum
krefjandi verkefnum í sumar. Önnur Visa
Rey Cup hátíðin er framundan og keppni
í efstu deild í meistaraflokkum karla og
kvenna er hörð. Þróttur þarfnast allra
verkfærra handa í heyskapinn. Við eigum
enn eftir að koma uppskerunni í hús.
En þannig er verk ræktunarmannsins,
eilíf hringrás og aldrei má slaka á. í Þrótti
ræktum við fólk og í því ræktunarstarfi er
hver jurt mikilvæg. Laugardalurinn er í
blóma og Þróttarar hafa sýnt fram á að
þeim er vel trúandi fyrir Dalnum.
Ágúst Tómasson
stjórnarmaður í Þrótti
Lifi Þróttur - félagsblað
Knattspyrnufélagsins Þróttar
Ritnefnd:
Jón Birgir Pétursson, ritstjóri,
Jón Daníelsson, Agúst Tómasson,
Helgi Þorvaldsson
Fmmkvœmdastjórn:
Guðmundur Vignir Óskarsson
Prentun: Gutenberg
3