Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Side 7

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Side 7
Sflli mm V k 'Í...Ý* 'srr. : |tíH§|ɧp ® kkUiLÍLl 'j^k, v ,w<«iw«332 ..^US (TO^ii' P« iii- ’ T-í -f V „Láta þig detta, öskra svolrtið...“ varð fyrir miklum vonbrigðum þegar Magnús áminnti hann fyrir að vera með „skuespil". Dómara vantar í Þrótt Þar til fyrir nokkrum árum þótti það trygging fyrir því að dómari og línuverðir mættu til leiks ef Þróttur átti að útvega þá. Síðustu árin hefur þessu verið öfugt farið og hafa margir leikir verið illa mannaðir eða ómannaðir og hreinlega fallið niður. Þorsteinn Þórsteinsson barðist hetjulegri báráttu, oft einn, og hefur hreinlega gefist upp. Tvö síðustu árin hefur fjölgað mikið í dómarahópnum eftir að hópur pilta úr 2. og 3. flokki hafa tekið dómarapróf, auk nokkurra eldri félaga og einnar stúlku. í fyrrasumar var undirritaður fenginn til að taka að sér umsjón dómaramálanna og fékk með sér þá Eystein B. Guðmunds- son, Gunnar R. Ingvarsson, Hjálmar Baldursson og Stefán Jón Sigurðsson sem allir voru hættir að dæma fyrir KSÍ. Með þeirra hjálp og annarra góðra manna tókst að manna allflesta leiki með tríóum, þar sem það þurfti, og enginn leikur féll niður vegna vöntunar á dómara frá Þrótti. Betur má þó ef duga skal. Stór hluti þeirra sem eru að dæma fyrir félagið eru leikmenn í 2. flokki og þurfa að leggja sig fram af fullum krafti þar til að ná árangri. Það er því ekki sanngjarnt að þeir séu jafnvel rifnir frá æfingum til að dæma. Nauðsynlegt er því að fjölga þeim, sem hættir eru að æfa og keppa, í dómgæsl- _ unni og hafa hina til að grípa í þegar þarf. A komandi leiktíð verður mikið að gera hjá dómurum og ber þar hæst Visa-Rey Cup sem haldið verður í annað sinn, dagana 23.-27. júlí, og er , stefna stjómenda mótsins að i tvöfalda þátttökufjölda liða frá sl. ári. Það mun því verða leitað til leikmanna meistaraflokkanna og 2. og 3. flokks að taka að sér dómarastörf til að dæmið gangi upp. Það er því gott að leggja þessar dagsetningar á minnið og fara ekki í frí um þessa helgi. ífSsÖíi Magnús Pétursson, sá litríki dómari ásamt tveim góðum, Baldri Þórðarsyni sem gekk á sínum tíma til liðs við Þrótt þar sem það var skemmtilegasta félagið (sem er rétt), og Þorvarður Björnsson. Eysteinn Guðmundsson, milliríkjadómari. Gunnar Ingvason, duglegur dómari og fínn Þróttari. Óli P. Olsen, - milliríkjadómari. HJÁLMAR BALDURSSON, - varla er á nokkurn hallað þótt fullyrt sé að Hjálmar er duglegasti dómari Þróttar, líka einhver sá sanngjarnasti. Hér er Hjálmar i fullum skrúða, hann er hættur, en dæmir engu að síður meira en nokkru sinni að sagt er. Ungur Þróttardómari 2002 Á haustdögum var Halldór Halldórs- son leikmaður í 3. flokki útnefndur Þróttardómari árið 2002, en þann titil hlýtur sá dómari sem starfar mest og best fyrir félagið. Halldór var alltaf boðinn og búinn að grípa til flautunnar þegar hann var ekki að æfa eða keppa sjálfur eða þá að þjálfa, en hann var aðstoðarþjálfari í yngstu flokkunum og að auki starfsmaður sumarskólans. Halldóri, svo og öllum öðrum sem komu að dómgæslu hjá Þrótti í sumar er hér með þakkað þeirra framlag með ósk um að þeir verði jafn viljugir á því næsta. Helgi Þorvaldsson, umsjónarmaður dómaramála. 7

x

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1576

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.