Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Page 8

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Page 8
 KÖTTARAR ÞRÓTTAR - HVAÐAN KOMA ÞEIR? - HVERJIR ERU ÞEIR? - H Köttarar Þróttar eru besti stuðingsmannahópur landsins, - skapgóður, umtalsgóður, raddgóður og svo er hópurinn líka Fríður hópur misfríðra ungra manna Það er misjafnt hvemig menn og konur undirbúa sig fyrir leiki. Margir huga að matarræðinu og passa upp á það að fá nægan og góðan svefn. Til eru þeir sem að fara alltaf í gegnum sömu „rútínuna“, sokkurinn settur fyrst á hægri, klæða sig í buxurnar síðast og svo framvegis. Ein- hverjir leggja áherslu á útlitið, fara í klipp- ingu og jafnvel stelast í ljósatíma þvert ofan á tilmæli heilbrigðisstéttarinnar. Dæmi eru um það að menn loki sig af og hlusti á tónlist til að koma sér í gírinn og ekki má gleyma þeim sem að geta ekki hugsað sér leik án þess að koma við á Ölver. Það eru ótal leiðir sem að Köttarar nota til að koma sér í gírinn en allar bein- ast þær að því að menn komist óhultir á völlinn til að skemmta sér saman með fólki með eitt sameiginlegt áhugamál, Knattspymufélagið Þróttur. Stuðningsmannahópur Þróttar, Kött- arar, er oft nefndur í sömu andrá og talað er um knattspyrnulið félagsins. Þessi ótrú- lega litríki hópur á upphaf sitt að rekja til ársins 1990 þegar að Þróttur lék í gömlu 3. deildinni (2. deildinni í dag) og öttu þar kappi við lið eins og TBA og Reyni Arskógsströnd. Var það fríður hópur mis- fríðra ungra manna sem að mættu grimmt á leiki og hófu að stilla raddböndin saman með góðum árangri. Það er þama sem að sagnfræðingar telja að hið kunna ákall „Lifi Þróttur“ hafi fyrst verið notað með skipulegum hætti. Hápunkturinn þetta ár var svo þegar að þessir ungu menn þustu inn á völlinn og báru fyrirliða Þróttar í gullstól út af vellinum eftir að hann hafði tekið við 3. deildarmeistaratitlinum. Þessi fyrirliði Þróttar var þá enginn annar en Köttari nr. 1 í dag, Haukur Magnússon. Það var svo árið 1996 að formlegur stofnfundur Köttara var haldinn á veit- ingastaðnum Ölver að viðstöddu fjöl- menni. Eftir það hafa Köttarar ekki litið til baka enda sumir ekki vissir í hvaða átt það er. Árið 1998 stóðu Köttarar ásamt fleirum, fyrir útgáfu geisladisksins „Þróttamammi". Þessi diskur rann út eins og heitt hafrakex með fitulausu viðbiti og er nánast ófáanlegur í dag enda mikið meistaraverk. Það er svo núna, réttum 5 árum seinna, sem að annar geisladiskur kemur út. Ber hann nafnið „Orkan í Þrótti“ og er fjallað um hann á öðrum stað hér í blaðinu. Hitt er þó ljóst að þessi diskur er einstakur og á örugglega eftir að verða jafn vinsæll og forveri hans. Því er vissara að tryggja sér eintak, helst fleiri en eitt, í tíma. í sumar eins og áður er skipulagi haldið í lágmarki hvað Köttara varðar. Skipulag á ekki vel við um hinn almenna köttara og vilja þeir frekar ganga óbundnir til leiks. Margar hugmyndir eiga eftir að skjóta upp kollinum og verður hlustað þær allar og einhverjar framkvæmdar. Hugmyndin þarf ekki að vera góð svo fremi að hún sé skemmtileg. Eins og kom fram í upphafi hefur hver sinn hátt á því að gera sig kláran fyrir völlinn. Mestu skiptir þó að fólk komi á völlinn og komi með því hug- arfari að láta gott af sér leiða á einn eða annan hátt, helst með raddböndunum. 8

x

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1576

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.