Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Page 9
/ERS VEGNA LÁTA ÞEIR SVONA? - HVAÐ VERÐUR ÚR SVONA MÖNNUM?
„Nú verða ein-
hverjir aðrir að fara
úr að ofan...“
„Það er innbyggt í skipulagið að skipuleggja
ekkert, það hefur aldrei verið gert hjá Kötturum,
þetta hefur alltaf verið svona, einhvern veginn
komið af sjálfu sér,“ segir Haukur Magnússon
Köttari númer eitt. Hann átti ásamt félögum
sínum hvað stærstan þátt í að stemmningin sum-
arið 1998 var mögnuð, sú besta sem sést hefur
til íslenskra stuðningsmanna. Köttarar urðu
landsfrægir fyrir fjörug og kátleg hróp og köll,
lúðraþyt og bumbuslátt, en þeir voru líka menn-
ingarlegir og elskulegir og þekktu vel sín mörk.
Gagnstætt knattspyrnubullum vorum þeir knatt-
spymuenglar. Margir fóru á völlinn til að skoða
Köttarara, aðsóknin var þvílík að Þróttur kom
næst stóra vesturbæjarliðinu í aðsókn það
sumar.
„Nú er að koma ný kynslóð Þróttara, við
þessir eldri getum ekki endalaust verið að fara
úr að ofan, nú verða aðrir að þjálfa sig í því, það
er lykilatriðið,“ sagði Haukur sem starfar sem
markaðsráðgjafi og mun áreiðanlega ekkert
spara sig við hvatninguna í sumar frekar en aðrir
Þróttarar. En nú vantar forkólfa í Köttarasveit-
ina sem ævinlega er á við 12. manninn í liði
Þróttar.
Haukur ieyfir sér ekkert of mikla bjartsýni á
árangur Þróttar í sumar. „Ég er pínulítið
hræddur við þetta sumar, finnst að félagið hefði
þurft að styrkja sig aðeins betur, það er ekki
vantraust á þessa ungu stráka sem hafa verið að
standa sig vel. Mér líst líka illa á þjóðarvöllinn,
við höfum brennt okkur á honum, þar höfum við
steinlegið, þetta hefur ekki verið okkar heima-
völlur nema að nafninu til,“ sagði Haukur
Magnússon og bætti við að vonandi tækist að
leysa verkefnin vel í sumar.
9