Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Page 13

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Page 13
deildinni í sumar Fjölmiðlar spá Þróttarliðinu ýmsu í sumar. Þeim er spáð falli, eða sæti rétt undir miðju. DV spáir Þrótti 6. sætinu sem okkur hugnast ekki illa. Það er staðreynd að um margt hefur Þróttarliðið verið að gera vel í leikjum vetrarins, sem menn líta á sem upphitun 0£ undirbúning fyrir stóru mótin í sumar, Urvalsdeildina og Bikar- keppnina. DV gengur svo langt að tala um Þrótt sem „Hugsanlegt spúttniklið", enda þótt íþróttablaðamenn fari varlega þegar þeir gefa félaginu einkunnir. En auðvitað felst í þessu viss sannleikur, nefnilega sá að enginn veit hvað býr í raun í þessu liði okkar í Þrótti. Það verður bara að koma í ljós. Trúlega munu önnur lið í deildinni eiga í vandræðum með Þrótt, vonandi veru- legum vandræðum. Liðið spilar áferðar- fallega knattspyrnu og kann að láta bolt- ann ganga. Liðið hefur verið að skora mikið, en fengið mörg mörk á sig. Auð- vitað verður erfiðara að sýna fínleikann í roki og rigningu í sumar, en við sjáum bara til. Hópurinn okkar í Þrótti er tilbúinn til atlögu. Þetta eru ákveðnir strákar og við trúum því að þeir eigi eftir að blómstra í sumar í keppninni við bestu lið landsins. En skoðum á þessari síðu og næstu hverjir okkar menn á vellinum eru. Erlingur Þór Guðmundsson Björgólfur Hideaki Takefusa Vignir Þór Sverrisson Halldór Hilmisson Sören Hermansen Daníel Karlsson 13

x

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1576

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.