Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Side 17
Sören Hermansen hefur verið líkt
við gullmola sem Þróttur fékk í
hendumar. Það er nokkuð til í því,
Sören er einstaklega útsjónar-
samur sóknarleikmaður, sem
skorar mörg mörk. Þróttarar gera
sér miklar væntingar um leik hans
og félaga hans í sumar.
Við heimsóttun Sören í síðustu viku,
örfáir dagar voru þá í fyrsta úrvalsdeildar-
leikinn gegn KR. Hann og Trine kona
hans búa á sunnanverðu miðborgarsvæð-
inu ásamt tveim börnum sínum, Noah
eins árs ljóshærðum víkingi, og Mille sem
er þriggja ára og var á leikskólanum þegar
blaðamaður heimsótti fjölskylduna.
Úr stórum stofuglugga í íbúðinni
þeirra í reisulegu húsi við Bergstaðastræti
er útsýni yfir Vatnsmýrina og Háskóla-
svæðið þar sem Háskólavöllurinn var
forðum, - og gamla Þróttarhverfið í Skerj-
afirði og Grímsstaðaholti. Handan fjarð-
arins sést til Bessastaða og lengst í suðri
trónir eldfjallið Keilir..
Atvinnufélagið varð gjald-
þrota
Sören er ánægður með glæsilegt
útsýnið, sem er þó allt annað en danskt.
Og þau hjónin eru ánægð með allt á
íslandi. Hingað komu þau til að upplifa
ævintýri. Sören hefur verið atvinnumaður
og hálfatvinnumaður í knattspyrnu í ára-
tug. Hann kemur hingað frá Belgíu en þar
lék hann tvö ár með Mechelen, en það
félag varð gjaldþrota. Áður lék Sören með
knattspymuliðum í sínum heimabæ,
Árhus, AGF og FC Árhus.
„Mér og konu minni þótt það spenn-
andi þegar Ronnie Petersen sem lék með
Fram sagði okkur frá Islandi og mælti
með verunni hér á landi. Allt hefur gengið
eftir sem hann sagði. Hér er og verður
gott að vera,“ segir Sören. Hann segir að
þetta sé ekki í fyrsta sinn sent hann kemur
til Islands. Hann stoppaði einn dag á
Islandi í nóvember 1994 þegar hann var á
leið til New York og fór þá meðal annars
í Bláa lónið.
Feðgarnir Noah og Sören Hermansen
með gott útsýni yfir Vatnsmýrina og
gamla Þróttarhverfið.
hefur verið líkt
við gullmola, -
og rétt er það
hann skorar
mikið
Pabbinn var í landsliðinu
Sören er innfæddur Árósabúi, og faðir
hans, Werner Hermansen, var knatt-
spyrnumaður í úrvalsdeildarliði AGF og
var varamaður með danska landsliðinu á
7. áratugnum í leik gegn Islandi og var
skipt inn á í leiknum. Faðirinn ætlar að
rifja upp Islandsdagana í sumar þegar
hann kemur til að sjá soninn í leik með
Þrótti. Sören hefur ekki aflað sér sér-
stakrar menntunar eftir stúdentspróf og
hóf að starfa sem knattspymumaður, en
hann hefur mikinn áhuga á að gerast
knattspymuþjálfari.
Fellur vel í hópinn hjá Þrótti
„Mér hefur verið afar vel tekið í Þrótti,
þetta er allt annað líf en að vera með
belgíska liðinu, þar voru stór vandamál á
ferðinni, en hjá Þrótti er allt svo afslappað
og vingjamlegt. Gagnvart okkur fjöl-
skyldunni er sama að segja, okkur hefur
alls staðar verið vel tekið. Varðandi
Þróttarliðið þá eru þarna ungir og efni-
legir leikmenn og við reynum eins og við
getum að spila góðan fótbolta sem er mik-
ilvægt. Við munum fyrst og fremst spila
Sören undrast kraftinn í
íslenskum íþróttum.
„Með tilliti til þess að á íslandi búa
bara um 280 þúsund manns, álíka og í
minni heimaborg og næsta nágrenni, þá er
það alveg merkilegt að til skuli verða 10
liða úrvalsdeild í knattspyrnu, handbolta-
lið á heimsmælikvarða og svo framvegis.
Þetta tækist okkur seint að leika eftir í
Árhus,“ sagði Sören.
I leikjum í vetur hefur Sören skorað
mikið. „Þetta hefur gengið prýðilega í
æfingaleikjum undanfarnar vikur. En nú
er alvara lífsins framundan, leikir í úrvals-
deildinni og bikamum, þá má búast við
meiri hörku og það verður erfiðara að
skora. En ég get lofað því að ég mun gera
mitt besta,“ segir Sören.
Sören Hermansen er rúmlega þrítugur.
Hann er fremur lágvaxinn, mjög grannur,
en engu að síður sterkur leikmaður, hefur
ágætan hraða og skothörku, prýðilega
boltameðferð, og sérstaka tilfinningu fyrir
staðsetningum. Oftar en ekki er Sören
mættur fyrir framan markið þar sem
markaskorari á að vera. Hann hefur fallið
einstaklega vel inn í hópinn hjá Þrótti.
Hann er léttur í lund eins og Danir em
sagðir frægir fyrir. Hann talar mest ensku
við félaga sína, einn og einn spreytir sig á
skóladönskunni og það gengur bærilega.
I sumar ætla þau Sören og Trine kona
hans að ferðast um landið þegar tími gefst
til.
til að komast hjá því að fara niður í 1.
deild. Eg held reyndar að við ættum að
eiga möguleika á að verða í miðri deild,“
sagði Sören.
EGMUN
MIH BES
£
Jón Birgir Pétursson
17