Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Side 20

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Side 20
HANDKNATTLEIKSDEILD ÁRMANNA - ÞRÓTTUR Allt byggt á yngsta fólkinu í tengslum við flutning Þróttar í Laugardalinn varð að sam- komulagi milli Armanns og Þróttar að félögin rækju saman handknattleiksdeild. I reynd var hún þó fyrst og fremst rekin af einum áhugasömum þjálfara, Þórði Sigurðssyni, án verulegs stuðnings félaganna og óvíst hvort félagið bæri ábyrgð á rekstri deildarinnar.. Vorið 2002 var ljóst að þetta fyrirkomulag hafði gengið sér til húðar og ef að félögin kæmu ekki að meiri krafti að rekstrinum væri honum sjálfhætt. A fundum forráðamanna félaganna sumarið 2002 var ákveðið að reka handsnattsleiksdeildina áfram undir merkjum beggja félaganna en á ábyrgð Þróttar. Astæðan er fyrst og fremst að bjóða börnum/unglingum á félagssvæðunum tækifæri til fjölbreyttara tómstundastarfs og koma þannig til móts við mis- munandi þarfir og áhugamál þeirra. Haustið 2002 setti deildin sér eftirfarandi markmið: 1. Byggja starf deildarinnar á þeim grunni sem fyrir var, þ.e. byrja á yngstu flokkunum og leiða starfið síðan upp eftir aldursstiganum. 2. Lögð áhersla á að báðum kynjum verði gert jafnhátt undir höfði. 3. Allir iðkendur fái þjálfun og keppni við hæfi. 4. Ráða eingöngu þjálfara með uppeldisfræðimenntun og/eða verulega reynslu af þjálfun barna/unglinga. 5. Reka öflugt foreldrastarf, þar sem foreldraráð hvers flokks beri ábyrgð á innra starfi hans. 6. Öllum æfingum verði lokið innan þeirra tímamarka sem reglum um útivistartíma kveða á um. 7. Deildin verði fjárhagslega sjálfbær innan 3 ára. 8. Öll aðstaða og aðföng verði eins og best verði á kosið. 9. Kynna íþróttina á félagssvæðunum. 10. Spyrða betur saman og auka samstarf milli þeirra hóp- íþrótta sem eru reknar af Þrótti eða eru reknar í samstarfi við Armann. A nýliðnum vetri var boðið er uppá æfingar frá 7. flokki, til Þrótturum fjölgar og fjölgar Það varð mikil breyting á högum Þróttar þegar félagið flutti í Laugardalinn og ekki síst má sjá merki um þetta í tölum um fjölda þeirra barna og unglinga sem æfa með félaginu. A síðustu tveimur árum hefur fjöldi iðkenda í knattspyrnu tvöfaldast. Á undanfömum árum hefur líka verið unnið markvisst að því að auka jafnréttið og byggja upp kvennaboltann og Þróttur hefur nú þegar náð allgóðum árangri á þessu sviði. Fyrir tveimur árum æfðu ríflega 30 stelpur knattspyrnu hjá félaginu en nú er fjöldinn kominn yfir 100 og stelpurnar nálgast óðum að verða fjórðungur af heildartölu iðkenda í yngri flokkunum. Við hjá Þrótti reiknum hiklaust með því að þessi fjölgun haldi áfram, enda er aðstaða til íþróttaiðkana í Laugardalnum eins og best verður á kosið. Og það er full ástæða til að hvetja foreldra í hverfinu okkar til að senda börn sín á æfingar hjá Þrótti. Félagið leggur metnað sinn í að ráða hæfa þjálfara sem hafa menntun bæði á sviði uppeldis og íþrótta, en auk þess má Komu heim með bikar. og með 5. flokki. Virkir iðkendur er 75 og fór fjöldi þeirra vax- andi, sérstaklega í yngri flokkum drengja. Þó mjög skammur tími væri til stefnu síðasta haust tókst að ráða mjög góða og hæfa þjálfara og var gaman að sjá hversu góður andi ríkti á æfingum í öllum flokkum og hversu mikið þeim hefur farið fram í vetur. Árangur flokkanna í mótum var góður og m.a. vann 5. flokkur kvenna fyrsta bikar deildarinnar þegar þær unnu 3. deildina í sínum flokki. Næsta vetur er stefnt að því að hefja starfið í byrjun sept- ember og bæta við 4. flokki karla. Ágætt samstarf hefur tekist við knattspyrnudeildina, bæði þjálfara hennar og unglingaráð. Hluti bamanna æfir báðar greinarnar og ekki hægt að koma í veg fyrir einhverja skörun á æfingum, engin vandamál hafa þó risið af því enda hefur þess verið gætt að keppnir og æfingaleikir rekist ekki á.. segja að Þróttur ali upp þjálfara. Aðstoðarþjálfarar okkar og sumir aðalþjálfarar eru upprunnir í okkar eigin röðum. Foreldrastarf Þróttar er geysivel heppnað. Hér eru nokkrir góðir grillarar á Bónusmótinu sem haldið var á dögunum. 20

x

Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar
https://timarit.is/publication/1576

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.