Lifi Þróttur : félagsblað Knattspyrnufélagsins Þróttar - 01.05.2003, Qupperneq 23
Strákar með Þróttarhúfur sem
vöktu athygli á Akureyri..
Sagan af svörtu
húfunum
Fyrir þremur árum fengu tveir ungir Þróttarar, bræður,
jólagjöf frá frænku sinni á Sauðárkróki. Þetta voru flís-
húfur, svartar flíshúfur. Húfubolurinn sjálfur var ósköp
venjulegur, en upp úr húfunum stóðu angar í allar áttir.
Húfumar vöktu kátínu hjá drengjunum og voru mikið not-
aðar.
En húfurnar voru ekki allar þar sem þær voru séðar, það
bjó eitthvað innra með þeim. Eitthvað sem vildi brjótast út.
Eftir að húfurnar voru búnar að fara á höfði strákanna á
margar Þróttaræfingar og vera á höfðum þeirra í Þróttara-
hverfinu uppgötvaði mamma bræðranna hvað það var sem
bjó innra með húfunum. Hún þekkti þetta svo vel sjálf,
uppalin í Vesturbænum þar sem veröldin er svolítið svört
og hvít. Það bjuggu litir innra með þessum húfum, litir eins
og hún hafði uppgötvað í sjálfri sér þegar hún fór að fara
með strákunum sínum á æfingar í Þrótti. Rauður og hvítur.
Eftir þessa uppgötvun var hringt í frænkuna sem hafði
saumað húfumar, var hægt að sauma alveg eins húfur, bara
í lit, rauðum og hvítum? Skömmu síðar höfðu húfurnar náð
að sína sitt innsta eðli, rauðar og hvítar voru þær, skræp-
óttar og skemmtilegar. Sannir Þróttarar, ef ekki bara örlitlir
Köttarar líka. Næsta sumar sat frænkan á Króknum löngum
stundum og saumaði Þróttarahúfur sem nú sjást um allt
Þróttarahverfið og þótt víðar væri leitað.
Þetta var sagan af svörtu húfunum sem uppgötvuðu
Þróttarann í sér, hefur þú uppgötvað hann líka?
Agúst Tómasson
TIL ATHUGUNAR:
Að fá laun sín
greidd í gleði
Ert þú eldri borgari, kannski nýlega hætt(ur) að stunda reglu-
bundna vinnu, en þó ennþá í fullu fjöri? Finnst þér kannski
líka stundum hálf tómlegt að „þurfa“ ekki lengur að mæta í
vinnuna? Ef svo er, gætir þú kannski átt samleið með Þrótti
og ungu kynslóðinni í hverfinu okkar allra.
Það þurfa margir að leggja hönd á plóginn til að halda heilu
íþróttafélagi starfandi. Það kann að koma mörgum á óvart hve
stór hluti allra þeirra vinnustunda sem halda Þrótti gangandi,
er unninn af sjálfboðaliðum. Þetta gildir t.d. um fjölmarga
foreldra þeirra barna sem æfa með félaginu og leggja í
mörgum tilvikum á sig mikla vinnu í þágu bæði sinna barna
og annarra og um leið í þágu félagsins í heild. Það er þó
fjöldamargt sem okkur hjá Þrótti tekst ekki að koma í verk
eða ekki er unnt að sinna jafn vel og við vildum.
Sums staðar erlendis tíðkast að fólk sem komið er á eftir-
launaaldur, taki að sér sjálfboðaliðastörf, oftast aðeins fáeinar
stundir á viku. Með slíku sjálfboðastarfi öðlast margt fólk á
vissan hátt nýjan tilgang með lífinu. Það finnur sig enn geta
orðið til nokkurs gagns í þessum heimi og nýtur jafnframt
ánægjunnar af því að vera samvistum við samstarfsfólk sitt á
vinnustaðum. Þannig má segja að sjálfboðaliðamir fái laun
sín greidd í aukinni lífsgleði og meiri lífsfyllingu.
Okkur hjá Þrótti hefur flogið í hug að það væri ómaksins
vert að athuga hvort hér í hverfinu okkar kunni að leynast fólk
sem telji sig geta haft gott af að koma í Félagshús Þróttar til
dæmis 2 - 4 tíma í senn einu sinni eða tvisvar í viku og sinna
þar léttu starfi við sitt hæfi. Við höfum úr ýmsum störfum að
spila og verkin fara einfaldlega eftir áhuga, kunnáttu og getu
hvers og eins. Sem dæmi má nefna að við vildum gjarna geta
mannað afgreiðslu í kaffistofunni og haldið þar úti fastri þjón-
ustu. Símavörslu og upplýsingagjöf má líka nefna, jafnvel
ýmis konar skipulags- og pappírsvinnu og margt fleira sem
við gætum svo sannarlega þegið aðstoð við að sinna.
Ef þú hefur áhuga á að hjálpa okkur í Þrótti og getur
hugsað þér að taka launin þín út í þeirri gleði sem fylgir því
að hafa eitthvað fyrir stafni og gera gagn, hafðu þá samband
við okkur í síma 580 5900 eða komdu í Félagshús Þróttar í
Laugardalnum og hafðu tal af Guðmundi Vigni eða Þóreyju.
Og ef þú notar tölvu og hefur aðgang að netinu er ekkert auð-
veldara en að senda framkvæmdastjóranum tölvupóst á net-
fangið gvo@trottur.is.
Við hlökkum til að kynnast þér.
Jón Daníelsson
OJtM*
'/V thf
Hallvardur S. Oskarsson
N/lálsrameisCart
Sími 898-4801
Sigurdur H. Hallvardsson
IVtólarameiscari
Sími 898-4803
Langholtavagi 103 104 Reykjavík Sími: 568-6653
JOHAN
RÖNNING HF
23