Fréttablaðið - 13.08.2021, Page 18

Fréttablaðið - 13.08.2021, Page 18
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@ frettabladid.is Samtök Hjartaheilla hafa unnið samfleytt að bættri fræðslu um hjartaheilsu frá árinu 1983. „Okkar helsta áherslumál í dag er hjarta- stoppið og hvað er hægt að gera til að lágmarka skaða af völdum þess,“ segir Sveinn Guðmundsson, formaður Hjartaheilla. Hjartastopp er alvarlegt mál sem snertir stóran hóp fólks og marga aldurshópa. „Hérlendis fara um tvö hundruð manns í hjartastopp á hverju ári og mikill meirihluti fólks er utan spítala og því ekki í návígi við sérfræðinga. Skýrasta dæmið um hversu skyndilega og óvænt hjartastopp getur orðið, var þegar fótboltakappinn Christian Eriksen fór í hjartastopp á vell- inum á meðan leik Dana og Finna stóð á Evrópumeistaramótinu 2020,“ segir Sveinn. Hársbreidd á milli lífs og dauða Stór hluti af starfi Hjartaheilla er að miðla upplýsingum og fræðslu um málefni hjartasjúklinga. „Okkar markmið með komandi hausti er að halda áfram með kynningar á endurlífgunum sem og hamra á mikilvægi og notkun hjartastuðtækja. Það er gríðarlega áríðandi að kenna fyrstu handtök- in ef einhver í nærumhverfinu fer í hjartastopp til að tryggja öllum öryggi í leik og starfi. Það tekur ekki nema 3-5 mínútur að viðkom- andi verði fyrir skaða af völdum hjartastopps og því skipta fyrstu mínúturnar sköpum. Hjartastuð- tæki í dag eru einföld í notkun og það ættu allir að geta lært á þau til að bjarga mannslífum.“ Þegar hjartastopp verður er sjaldnast sérfræðingur á staðnum og oftar en ekki eru nokkrar mínútur í að sjúkrabíll geti mætt á svæðið. „Það að almenn- ingur kunni handtökin og kunni á hjartastuðtæki getur bjargað mannslífum. En það skiptir líka máli að þeir sem eru viðstaddir þegar hjartastopp á sér stað hafi aðgang að upplýsingum og við- eigandi búnaði. Því er gríðarlega mikilvægt að til sé miðlægur gagnagrunnur um það hvar næstu hjartastuðtæki eru staðsett. Það eru nú þegar komin upp hjarta- stuðtæki á ýmsum stöðum, í sundi, líkamsræktarstöðvum og víðar. Það er áríðandi að þessi tæki séu öllum sýnileg þannig að allir geti notað þau ef þörf krefur. Í Danmörku er þessu hagað svo að í þéttbýli eru hjartastuðtæki á hverju 100 metra millibili. Ef neyðarlínunni berst tilkynning um að einhver fari í hjartastopp er haft samband við fimm til sex aðila í nærumhverfi sem allir mæta á staðinn með hjartastuð- tæki. Við sjáum fyrir okkur að svona net og miðlægur gagna- grunnur gæti bjargað mörgum mannslífum. Sérstaklega eru erfiðar aðstæður hérlendis til snöggra viðbragða til endurlífg- unar, vegna dreifingar á byggð, jafnvel innan sveitarfélaga. Það mun kalla á auknar aðgerðir. Enn sem komið er, þá er ekki til neinn gagnagrunnur um þessi tæki á Íslandi. En við erum komin í samstarf við aðila sem getur lagt til tæknibúnað sem má nota til að kortleggja staðsetningu hjarta- stuðtækja.“ Að almenningur skilji neyðina Hjartaheill hefur rekið áróður fyrir lausnum af völdum hjartastopps undanfarin ár og hafa ýmis stór skref verið tekin á þessum tíma. „Hjartastopp er eitt af fjölmörgum brýnum verkefnum sem við hjá Hjartaheill vinnum markvisst að. Þetta er nú þriðja árið í röð sem við rekum þennan áróður og í dag er áherslan sérstaklega á fræðslu og samstarf með fyrirtækjum, stofn- unum, félögum og einstaklingum sem og samvinnu með Neyðar- línunni. Nú síðast lögðum við, ásamt fleiri félögum, til fjármuni svo að hægt væri að kaupa endurlífgunar- brúður í alla skóla landsins. Þannig er hægt að kenna öllum grunn- skólabörnum að bjarga mannslífi með endurlífgunaraðferðum. Við viljum að almenningur skilji neyðina á bak við þetta málefni, því án undankominnar fræðslu gerir það enginn nema það brenni á eigin skinni.“ Dýrmætt söfnunarfé Undanfarin ár hefur fjöldi fólks hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu Hjartaheillum til stuðnings og gefið dýrmætt söfnunarfé. „Við fögnum því að fólk taki þátt í hlaupinu og styðji við bakið á okkur í leiðinni. Þarna er líka samankominn hópur af fólki sem ætti að vita af því hvað átakið Hjartastopp er þýðingarmikið í dag og hversu mikið þjóðþrifa- mál það er að klára það og koma í farveg,“ segir Sveinn. n Hjartastopp – ég eða þú? Sveinn Guðmundsson er formaður Hjartaheilla. Hann segir lykilatriði að hjartastuðtæki séu aðgengileg. Hjartastopp sé mál sem snertir stóran og ólíkan hóp fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON 6 kynningarblað 13. ágúst 2021 FÖSTUDAGURMAR AÞON Til að ná árangri í íþróttum er mikilvægt að hafa and- legu hliðina í lagi. Lang- hlaup eins og maraþon krefjast þrautseigju og mikilvægt er að geta tekist á við hindranir af yfirvegun. Hafrún Kristjánsdóttir íþróttasál- fræðingur segir að þessa dagana sé mikið rætt um mental toughness í íþróttaheiminum sem mætti þýða sem andlega seiglu. Hún segir and- lega seiglu vera mikilvæga til að ná góðum árangri í íþróttum. „Skilgreiningin á henni er í raun geta einstaklinga að ná persónu- legum markmiðum sínum þrátt fyrir hindranir og streituvaldandi aðstæður,“ útskýrir hún. Hafrún segir að í grunninn samanstandi andleg seigla af fjórum þáttum. Áhuga, getu til að takast á við streitu, sjálfstrausti og einbeitingu. „Maður verður að hafa áhuga til að ná markmiðum sínum. Það dugir ekki bara að skrifa þau niður. Maður verður að hafa vilja til að ná þeim og gera það sem þarf til þess,“ segir hún. „Í þeim efnum hjálpar að búa til skammtímamarkmið að langtíma- markmiðunum. Það hjálpar líka að sjá fyrir sér að maður sé að ná markmiðum sínum og árangri.“ Hún segir einnig mikilvægt að geta tekist á við streituvaldandi aðstæður í maraþonhlaupi til að ná að þrauka í gegnum erfiðu og leiðinlegu partana af hlaupinu. „Því stundum verður þetta hel- víti erfitt. Það þarf líka að byggja upp sjálfstraust en það eru til margar leiðir til þess,“ segir hún. „Svo er það fjórði þátturinn sem er að vera með einbeitinguna á réttum stað. Það er mikilvægt að láta ekki utanaðkomandi þætti sem skipta ekki máli fyrir frammi- stöðuna trufla sig. Það þarf að fókusa á það sem maður hefur stjórn á og láta það sem maður hefur ekki stjórn á lönd og leið.“ Gott að skipta hlaupinu í kafla Hafrún segir að í raun eigi þetta við um allt sem maður vill ná árangri í, en að andleg seigla sé sérstaklega mikilvæg fyrir mara- þonhlaupara sem þurfa að halda út lengi. „Það er gott fyrir maraþonhlaup- ara að vera tilbúnir með sjálfstal. Að vera búnir að ákveða fyrirfram hvað þeir ætla að segja við sjálfa sig þegar erfiðleikarnir koma. Eins og ef þeir finna fyrir verkjum í fótum, eru þreyttir eða þegar erfið brekka er fram undan og þeir þurfa að peppa sig áfram,“ segir hún. „Það er gott að ákveða fyrirfram hvernig tækla á aðstæður sem koma upp þar sem þig langar helst að stoppa. Það er líka gott að skipta hlaupinu í huganum í litla kafla. Þetta er eins og að borða fíl. Það þarf að gera það í litlum bitum.“ Hafrún segir líka að gott sé að loka augunum og sjá sig fyrir sér sigrast á ákveðnum köflum hlaupsins. „Þetta er sniðugt ef þú veist fyrir- fram hvaða kaflar eru erfiðir. Ef þú sérð þig fyrir þér sigrast á þeim köflum þá ertu tilbúnari andlega til að koma inn í þá kafla,“ segir hún. „Kári Steinn Karlsson hefur sagt frá því að þegar hann var að keppa í London og þegar hann náði Ólympíulágmarkinu, þá hafi hann verið búinn að skrifa skilaboð til sín á vatnsbrúsana. Það eru allir með sína vatnsbrúsa og hann sendi sjálfum sér hvetjandi skilaboð sem hann skrifaði á þá. Þegar hann kom á hverja stöð þá sá hann skila- boðin. Ég man að hann sagði að þegar hann náði ólympíulágmark- inu fyrir London þá voru skila- boðin á síðasta brúsanum: London 2012. Þessi skilaboð hvöttu hann áfram síðustu metrana.“ n Gott að loka augunum og sjá fyrir sér árangur Hafrún Krist- jánsdóttir íþróttasál- fræðingur segir andlega seiglu mikilvæga fyrir mara- þonhlaupara. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Að skrifa hvetj- andi skilaboð á vatnsflöskur er gott ráð. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.