Fréttablaðið - 13.08.2021, Síða 22

Fréttablaðið - 13.08.2021, Síða 22
Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Það er ekki nóg að vera góður hlaupari. Fólk sem hleypur mikið þarf að gæta að fæðinu. Heilsusamlegur matur skiptir miklu máli fyrir orku og styrk á hlaupum. Hér eru nokkrar fæðutegundir sem þykja sérlega góðar fyrir hlaupara og aðra sem hreyfa sig mikið. Þetta eru allt matvörur sem gefa mikla orku og eru bráðhollar. Hlauparar ættu að reyna að borða eitthvað af þessum matvörum til að auka kraft sinn og þol. 1) Bláber eru full af andoxunar- efnum með antósýranefni (náttúrulegt litarefni). Þau eru C-vítamínrík sem hjálpar líkamanum að vinna úr járni og styður við ónæmiskerfið. Þá eru berin með góðum trefjum og kolvetnum sem hentar vel fyrir þá sem eru mikið á hlaupum. Borðið handfylli af ferskum bláberjum, setjið í salat, út á hafragraut eða jógúrt. 2) Egg eru prótínrík og innihalda nauðsynlegar amínósýrur sem líkaminn þarf til að byggja upp og viðhalda vöðvamassa. Egg eru góð fyrir þá sem stunda þrek- og styrktarþjálfun. Þau innihalda bæði vítamín og steinefni. Hlauparar ættu að borða allt að þremur eggjum á dag. 3) Vætukarsi. Mjög vítamínríkur og inniheldur beta-karótín og alfa-tókóferól sem eru öflug Hollar fæðutegundir fyrir hlaupara Það er mjög mikilvægt að borða hollan og góðan mat þegar maður hreyfir sig mikið. Maturinn þarf að inni- halda góð víta- mín til að auka styrk og þol. Það er hægt að slá margar flugur í einu höggi með því að búa til heilsudrykk úr lárperu, grænkáli, bláberjum og möndlum eða hverju því sem hugurinn girnist. Að setja sítrónu og mintu í vatnið gerir það bragðgott. andoxunarefni. Rannsókn sem gerð var við háskólann í Edin- borg sýndi að vætukarsi getur takmarkað frumuskemmdir sem verða við miklar og erfiðar æfingar. Stráið vætukarsa yfir salatið eða borðið sem meðlæti. 4) Sítrónur. Setjið sítrónusafa og sítrónusneið í vatnið. Það gefur C-vítamín, natríum og kalk. Sítrónudrykkur er líka bragð- góður. 5) Kefir. Þetta er heilsufæða sem var mikið notuð fyrr á árum en hefur nú komið aftur á markað sem heilsueflandi vara og ekki að ástæðulausu. Kefir inni- heldur mikið af góðgerlum sem gera þarmaflóruna og melting- arveginn heilbrigðari. Borðið eins og jógúrt með berjum og möndlum. 6) Rauðrófur. Rauðrófusafi getur aukið afköst við æfingar. Nítrat- innihald í rauðrófu gerir líkam- anum kleift að nýta súrefni betur inn í virku vöðvana. Mælt er með að drekka hálfan lítra af rauðrófusafa eða sterku skoti 2-3 tímum fyrir hlaup. Ekki láta þér bregða þó þú pissir rauðu. Rauðrófur hafa sterkan lit. 7) Chili-pipar. Piparinn getur dregið úr verkjum og hann er C-vítamínríkur sem hjálpar líkamanum að byggja upp liði og sinar eftir miklar æfingar. Notið sem krydd í matinn. 8) Hunang. Talið er að hunang veiti orku án þess að hafa áhrif á insúlínmagn í blóði. Gott er að bæta smávegis út í gríska jógúrt. 9) Grænkál. Það er talið vera súperfæða enda inniheldur það mikið af A-, B6-, C- og K-víta- míni ásamt járni, kalki, prótíni og trefjum. Mælt er með að borða mikið af grænkáli. Hægt er að borða það ferskt í salati, bakað, djúpsteikt eða gera grænkálsjafning. 10) Bananar. Hátt kolvetnisinni- hald gefur kraft og orku til jafns við orkudrykk. Bananar eru kalkríkir og því góðir fyrir beinin. Fínt er að fá sér einn banana fyrir hlaup eða eftir. 11) Kaffi. Það er allt í góðu að fá sér einn bolla af kaffi einni klukkustund áður en farið er út að hlaupa. Háskóli í Kali- forníu segir að koffín geti gert hlaupara mun röskari. 12) Haframjöl. Hafragrautur er góður fyrir hlaupara. Hafra- mjöl hefur góð, hæg kolvetni ásamt því að innihalda fitu- sýrur, vítamín og steinefni. Gott að borða með mjólk. Haframjöl má líka setja út í jógúrt. 13) Chiafræ. Þau eru ofurfræ og eru rík af kalki, omega-3 og trefjum. Tvær skeiðar eru með meira af omega-3 en laxaflak. Hægt er að nota chiafræ á margan hátt, í grauta, bakstur eða orkustangir. 14) Lárpera. Hlauparar þurfa fitu og lárperur eru einmitt ríkar af henni. Hálf lárpera dugar sem dagskammtur af trefjum og steinefnum, járni og kalki ásamt B-vítamíni. Blandið í salat, álegg, með eggjum eða borðið beint. 15) Tómatar. Í tómötum er lyk- open sem styrkir ónæmis- kerfið. Tómatar eru ríkir af C- og E-vítamíni auk Beta- karótíns. Það er hægt að nota tómata á margan hátt eins og f lestir vita. 16) Lax. Hann er feitur og inni- heldur mikið prótín og omega-3 fitusýrur. Að auki er hann D-vítamínríkur. Gott er að borða lax að minnsta kosti einu sinni í viku. 17) Kínóafræ. Þau eru góður kostur til að blóðsykurinn haldist í jafnvægi. Fræin eru rík af prótíni og omega-3. 18) Dökkt súkkulaði. Kakó inni- heldur andoxunarefni sem eiga að geta verndað gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Það inniheldur líka mikið af kaloríum svo mælt er með 20-30 grömmum á dag þegar stíft er æft og á hvíldardögum. 19) Baunir. Það er mikið prótín í baunum. Baunir eru ein prótínríkasta fæða úr plöntu- ríkinu. Þær hafa einnig nauð- synlegar amínósýrur, kolvetni, trefjar og C-vítamín. Gott að borða sem meðlæti. n Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is VERTU KLÁR Í HLAUPIN Resorb og Resorb Sport bæta upp vökva- og saltatap í líkamanum við hlaup og áreynslu HENTAR MJÖG VEL TIL AÐ BÆTA UPP VÖKVATAP EFTIR: • Hlaup • Hjólreiðar • Fjallgöngu • Skíðamennsku • Og aðra íþróttaiðkun Minnkar líkur á vöðvakrömpum og þreytu, eykur endurheimt eftir mikil átök. 10 kynningarblað 13. ágúst 2021 FÖSTUDAGURMAR AÞON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.