Fréttablaðið - 13.08.2021, Page 24
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@
frettabladid.is
Nú er Reykjavíkurmara-
þonið á næsta leiti og stór
hópur skráður til leiks. Fólk
hleypur mismunandi vega-
lengdir og mishratt, sumir í
félagsskap og aðrir taka þátt
sem einstaklingar.
Það getur verið gríðarleg hvatning
að hlaupa með eitthvað skemmti-
legt í eyrunum og skiptir jafnvel
sköpum fyrir marga hlaupara.
Íþróttafræðingurinn Nanna
Kaaber þekkir jafnt til hindrana
og hvatningar hlauparans, en hún
byrjaði ekki að hlaupa af alvöru
fyrr en 2010. „Mér fannst alltaf
leiðinlegt að hlaupa og var alltaf
að erfiða við það en var samt alltaf
að reyna. Það var ekki fyrr en í
fæðingarorlofi með annað barn
og aftur eftir skurðaðgerð á kálfa
árið 2016 að ég neyddist til að
byrja hægt og rólega, mikið hægar
en mig langaði til, og passa að fara
ekki of geyst af stað. Þá allt í einu
small eitthvað og ég fór að geta
hlaupið meira og meira og virki-
lega naut þess,“ segir Nanna sem er
menntaður íþróttafræðingur.
Hleypur alltaf úti
„Í dag hleyp ég mikið. Mér finnst
engin hreyfing jafn frelsandi og
hlaupin. Það er eitthvað alveg
sérstakt við það að geta reimað á
sig skóna og hlaupið út og vera allt
í einu komin í annað bæjarfélag
eða upp á fjall og ferðast tiltölu-
lega hratt yfir. Svo er svo þægi-
Helst eitthvað sem ég get dillað mér við
Íþróttafræðingurinn Nanna Kaaber birtir uppáhalds hlaupalagalistann fyrir maraþonhlauparana
í september. Er uppáhalds hlaupalagið þitt á listanum hennar? MYND/AÐSEND
Nanna nýtur þess að hlaupa úti í
náttúrunni og hlusta á fuglasönginn.
Þegar hún sprettir á malbikinu finnst
henni best að hlusta á eitthvað
hresst sem hún getur sönglað með.
legt hvað það felst lítil fyrirhöfn í
hlaupunum. Það er hægt að taka
hlaupa skóna með hvert sem er. Ég
hef fjórum sinnum hlaupið hálf-
maraþon og svo hljóp ég Laugaveg-
inn tvisvar í sumar, í hvort skiptið
á tveimur dögum.
Ég hleyp alltaf úti og finnst fátt
betra en að fá súrefnið beint í æð.
Ég hleyp hvort tveggja á malbikinu
og í náttúrunni, bæði hægt og
rólega en tek líka styttri sprettæf-
ingar. Þegar ég er að hlaupa róleg
löng hlaup finnst mér skemmti-
legast að hlusta á hlaðvörp eða
mjúka þægilega tónlist. Þá finnst
mér mjög hvetjandi að hlusta á
heilsutengd hlaðvörp og mæli sér-
staklega með Hlaupalífi hlaðvarpi
fyrir hlaupara. Svo hef ég gaman af
viðtölum Snorra Björns hlaupara,
hann er alltaf skemmtilegur.
Í interval-hlaupunum, sérstak-
lega þegar ég er að spretta, finnst
mér gott að hafa einhverja hressa
tónlist sem ýtir mér aðeins áfram,
helst eitthvað sem ég get dillað mér
við og sönglað með. Ég er alæta
á tónlist og get hlustað á allt frá
gömlum íslenskum dægurlögum
og yfir í Spice Girls, Aron Can,
Harry Styles og Eurovision, sem
er enn mjög vinsælt á heimilinu,
þremur mánuðum eftir að
keppnin var haldin. Skrillex var til
dæmis vinsælt hjá mér á tímabili í
sprettinum.
Þegar kemur að náttúru-
hlaupunum er ekkert sem toppar
Heiðmörkina og slóðana þar. Þar
er hægt að finna fullt af fallegum
leiðum, allt frá 3 km upp í uppá-
halds ríkishringinn sem er 12,5
km. Maður fer aldrei í vondu skapi
úr Heiðmörk. Þá vil ég þó helst
ekki hlusta á neitt, heldur finna
fyrir andardrættinum og hlusta á
fuglasönginn. En þetta fer þó allt
eftir því hvernig skapi ég er í þann
daginn, stundum nenni ég alls ekki
að hlusta á neitt og vil vera laus við
áreiti en stundum finnst mér ég
þurfa tónlistina.“
Skotheldur hlustunarlisti
fyrir maraþonið
Nanna setti saman hlustunarlista
með uppáhalds hlaupalögunum
fyrir þá sem ætla að taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu og er
hann að finna á Spotify undir
nafninu Uppáhalds hlaupalögin.
Á listanum er fjölbreytt lagaúrval
eins og Can‘t feel my face með
The Weekend, Stick‘Em Up með
Quarashi, This One's For You með
David Guetta, Holding Out for a
Hero með Bonnie Tyler, Bootyl-
icious með Destiny‘s Child, Gefðu
allt sem þú átt með Jóni Jónssyni,
framlag Svía til Eurovision, Can‘t
Go On með Robin Bengtsson,
Cheap Thrills með Sia, Kickstart
My Heart með Mötley Crüe, Proud
Mary með Tinu Turner og margt
fleira.
Þjálfar hlaupara
Nanna er íþróttafræðingur og
hefur unnið sem þjálfari síðustu
sjö ár. „Síðasta eina og hálfa árið
hef ég aðallega unnið sem fjarþjálf-
ari og hef haldið utan um samfélag
kvenna sem stunda heimaþjálfun,
hlaupa og fara í ræktina, undir
nafninu Kaaber - Heilsa,“ segir
Nanna.
Nanna hefur þjálfað fólk í ýmsu
formi og með alls konar getustig,
meðal annars fólk sem er að stíga
sín fyrstu skref í hlaupum sem
og langhlaupara. „Ég hef þjálfað
fólk sem er að byrja að hlaupa og
vill geta hlaupið 5-10 km og haft
gaman af því. Ég hef líka þjálfað
fólk sem vill auka hraðann sinn
eða komast upp í hálfmaraþons
vegalengdina. Ég hef þá boðið upp
á hlaupaprógrömm fyrir byrjend-
ur og lengra komna og verið með
náttúruhlaupahóp sem gengur líka
á fjöll hjá Ferðafélagi Íslands.“
Hefurðu einhver góð ráð fyrir
fólk sem er til dæmis að hlaupa 10
km í fyrsta skipti í Reykjavíkur-
maraþoninu?
„Fyrir það fyrsta þá er það að
byrja ekki of hratt. Það er ótrúlega
freistandi að byrja og gefa allt í,
en það er betra að byrja rólega og
gefa svo hægt og rólega í og taka
svo góðan endasprett ef maður
á inni fyrir honum. Það er mikil-
vægt að drekka nóg af vatni daginn
fyrir hlaup og borða næringar-
ríkan mat. Á keppnisdegi er það
svo að borða það sem maður er
vanur í morgunmat. Ef maður fer
mikið að breyta út af vananum
þá er hætt við því að maður fái
í magann í miðju hlaupi sem er
minna skemmtilegt. Svo er það
bara að njóta hlaupsins og pæla
minna í því á hvaða tíma maður
er að hlaupa og meira í því hvað
það er stórkostlegt að geta hlaupið
svona.“ n
Anti Leg Cramps
Samanstendur af magnesíum ásamt
B6 vítamíni sem eykur upptöku þess
og E vítamíni sem hefur góð samverkandi
áhrif með magnesíum.
Anti Leg Cramps kemur þér á leiðarenda.
Fæst í apótekum, Fjarðarkaup og Heimkaup.is
HLAUPTU
ALLA LEIÐ Í MARK!
12 kynningarblað 13. ágúst 2021 FÖSTUDAGURMAR AÞON