Fréttablaðið - 31.07.2021, Page 14
Simone Biles á stökki í liðakeppninni rétt áður en hún
opnaði heilli skrúfu fyrr en hún ætlaði sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Allir stóðu upp og klöppuðu er hin 46 ára Oksana kvaddi
eftir að hafa keppt á sínum áttundu Ólympíuleikum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Björn Magnús Tómasson dæmdi keppni á tvíslá í undan-
keppninni, hringi í liðaúrslitum og svifrá í fjölþrautarúr-
slitum. MYND/AÐSEND
Hlín Bjarnadótt-
ir dæmdi keppni
á jafnvægisslá
í undan- og
liðakeppni
kvenna og tvíslá
í fjölþrautar-
úrslitum.
MYND/AÐSEND
14 Íþróttir 31. júlí 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ
Ólympíuleikarnir í Tókýó
eru sögulegir af mörgum
ástæðum en ekki síst vegna
ótrúlegra atvika í áhalda-
fimleikunum. Björn Magnús
Tómasson og Hlín Bjarna-
dóttir eru með bestu sætin
í höllinni meðan þau dæma
fremsta fimleikafólk heims.
mhj@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR Alþjóðlegu fim-
leikadómararnir Hlín Bjarnadóttir
og Björn Magnús Tómasson dæma
áhaldafimleika kvenna og karla á
Ólympíuleikunum í Tókýó.
Hlín og Björn eru bæði dóm-
arar á heimsmælikvarða en það
er alls ekki sjálfsagt að vera valinn
sem dómari á Ólympíuleikunum.
Einungis 38 dómarar komast að
í kvennaf lokki og 58 dómarar í
karlaflokki. „Það er mikil vinna sem
liggur að baki og mikill heiður að fá
að dæma Ólympíuleika,“ segir Hlín.
Þegar Ólympíuleikar klárast hvert
ár eru gerðar breytingar á alþjóð-
legu fimleikareglunum. Alþjóðlegir
dómarar þurfa í kjölfarið að þreyta
próf og er valið úr 200 til 300 efstu
úr dómaraprófinu í byrjun hvers
Ólympíuhrings.
„Síðan þurfum við að dæma
ákveðinn fjölda af stórmótum í
hringnum, aðallega heimsmeistara-
og heimsbikarmót, til að eiga mögu-
leika á að komast inn á Ólympíu-
leika,“ segir Hlín. Það er hins vegar
ekki nóg eitt og sér að mæta og
dæma heldur eru störf þeirra yfir-
farin af yfirdómurum hverju sinni.
„Það eru tvö tölvukerfi annars
vegar fyrir keppendur og svo eru
dómararnir með sérstakt matskerfi
allan tímann á stórmótum,“ segir
Hlín. „Það sama á við á Ólympíu-
leikunum, við erum í stöðugu mati
allt mótið.“
Hlín er að dæma á sínum fyrstu
Ólympíuleikum en Björn Magnús er
í algjörum sérflokki þegar kemur að
dómgæslu í áhaldafimleikum karla.
Þetta eru fjórðu Ólympíuleikarnir
sem Björn dæmir á en hann fór á
sína fyrstu Ólympíuleika í Sydney
árið 2000, þá einungis 31 árs gamall.
„Ég man í Sydney hvað öllum dóm-
urunum fannst ég ungur. Þeir töldu
mig örugglega vera þann yngsta
sem hefði dæmt Ólympíuleika á
þeim tíma,“ segir Björn Magnús.
Björn dæmdi síðan á Ólympíu-
leikunum í Aþenu 2004, London
2012 og er nú úti í Tókýó. Spurður
um hvort það séu margir dóm-
arar á leikunum með sambærilega
reynslu segir Björn þá afar fáa. „Það
eru nokkrir sem eru komnir með
þrenna til ferna leika, en þeir eru
ekki margir.
Kórónaveiran hefur sett svip sinn
á Ólympíuleikana í ár en Hlín segir
að mikil undirbúningsvinna hafi
fylgt því bara að komast út. Það tók
allt að sjö tíma að komast í gegnum
flugvöllinn en reglurnar eru mjög
strangar. „Það fór enginn keppandi
eða dómari upp í f lugvél án þess að
vera með neikvætt Covid-próf sem
japönsk yfirvöld voru búin að sam-
þykkja. Þeir eru með sérreglur.“
Dómararnir eru síðan í „hálf-
sóttkví“ eins og Hlín orðar það og
mega þeir ekki yfirgefa hótelið nema
til að fara á keppnisstað fyrstu fjór-
tán dagana. „Það eru margir byrjaðir
að eiga erfitt með það núna þegar
líður á mótið. Þú mátt bara vera á
hótelinu, veitingastöðum á hótelinu
eða fara í kjörbúð sem er upp við
hótelið. Síðan þarftu að labba eftir
ákveðnum leiðum innan hótelsins
í þína rútu og svo ertu á ákveðnum
starfsmannasvæðum í keppnis-
höllinni,“ segir Hlín en dómararnir
þurfa að gefa munnvatnssýni fyrir
PCR-próf í hvert skipti.
„Þetta er aðeins farið að reyna á
fólk svona á miðju móti. Það reynir
á að geta ekki farið út í göngutúra
og verið frjáls í borginni. Við Björn
höfum verið rosalega dugleg að
spjalla saman, fara eitthvað aðeins
að labba, sest niður í kaffi og farið
yfir daginn og svona,“ segir Hlín.
„Til skemmtunar er alls konar
sjónvarpsefni og svona. Við erum
að fylgjast með Ólympíuleikunum
á RÚV,“ segir Hlín en þau eru með
VPN-tengingu í Japan til að ná RÚV.
„Það er smá heimilislegt að hafa
RÚV-útsendinguna á hérna í Japan
þegar maður er í svona einangrun,“
segir Hlín. Í hennar tilfelli ætti það
nú að vera heimilislegra en fyrir
marga þar sem maðurinn hennar,
Guðmundur Brynjólfsson, lýsir fim-
leikunum á RÚV.
Ekki er margt annað í boði og
sundlaugin og líkamsræktarstöðin
á hótelinu eru lokuð. Hlín segir
dómarana hins vegar ekki deyja
ráðalausa. „Aðalæfingatækið hérna
eru brunastigarnir. Fólk er eitthvað
að æfa á göngunum eða inni á her-
bergi en erfiðastar eru fjallgöng-
urnar í brunastiganum. Að labba
upp kannski tuttugu, þrjátíu hæðir.
Það eru margir með harðsperrur
eftir það,“ segir Hlín og hlær. „Við
reynum bara að gera gott úr þessu.“
Hún segir alla japönsku sjálf-
boðaliðana vera mjög vinalega og
skipulagið upp á tíu. „Þeir gera þetta
mjög vel og eru að reyna að gera
þetta bærilegt fyrir starfsfólkið.“
Spurð um hvort það gefst tími til
að skoða sig um þegar fjórtán daga
sóttkvínni er lokið segir Hlín það
hæpið. „Það eru margir sem eiga
síðustu þrjá daga leikanna lausa í
sinni ferð, þegar þessari sóttkví er
lokið, en við höfum bara ekki fengið
upplýsingar um hvort við megum
fara út á meðal almennings.“
Það er ætlast til þess að kepp-
endur og starfsmenn yfirgefi Japan
48 tímum eftir að keppni þeirra eða
störfum lýkur. Úrslit á einstökum
áhöldum í áhaldafimleikunum
fara fram á sunnudaginn og mánu-
daginn. Hlín og Björn muni dæma
annan daginn að minnsta kosti en
líkur eru á því að þau dæmi báða
dagana.
„En við höfum fengið að sjá
borgina í gegnum bílrúðuna þegar
við förum á keppnisstað. Við höfum
séð ýmislegt á leiðinni en þetta er
svona 30-40 mínútna akstur,“ segir
Hlín létt.
Hlín dæmdi keppni á jafnvægisslá
í undan- og liðakeppni kvenna. Hún
dæmdi síðan tvíslána í fjölþrautar-
úrslitunum er Sunisa Lee frá Banda-
ríkjunum tryggði sér gullið en virki-
lega öflug tvísláræfing hennar átti
stóran þátt í að skila gullinu heim.
Sáu að ekki var allt með felldu
Einn af merkilegustu atburðum
Ólympíuleikanna í ár er án nokk-
urs vafa þegar Simone Biles, sigur-
sælasta fimleikakona frá upphafi,
ákvað að draga sig úr liðakeppni
kvenna eftir eitt stökk. Biles, sem
er fjórfaldur gullverðlaunahafi á
Ólympíuleikunum, ákvað einnig að
draga sig úr fjölþrautarúrslitunum
til að einbeita sér að andlegri heilsu
sinni.
„Ég var að dæma á slánni og
stökkið er svolítið nálægt. Þannig
að ég hafði heyrt bara svona „vó!“
þegar hún gerði bara eina og hálfa
skrúfu í upphitun,“ segir Hlín.
Bandaríska stórstjarnan skráði
inn stökk sem heitir Amanar sem er
Yurchenko-stökk inn á stökkhest-
inn með tveimur og hálfri skrúfu.
Þegar hún gerði upphitunar-
stökkið sitt, sem Hlín lýsir hér að
framan, hætti hún við seinni skrúf-
una í loftinu og lenti afar illa. Það
sama gerðist í keppni og tók Biles
ákvörðun um að hætta keppni áður
en hún myndi slasa sig.
„Ég er síðan bara að dæma slána
og það fer að koma að því að banda-
rísku stúlkurnar koma yfir á slá en
þær eiga eftir að fara á tvíslá fyrst. Þá
kemur eftirlitsmaður í tölvukerfinu
og segir: She will not compete more,
she is not competing,“ segir Hlín
sem vissi ekki um hvern var verið
að tala á þessum tímapunkti.
„Þeir voru bara að segja þetta fyrir
aftan mig því eftirlitsdómarinn sat
við hliðina á mér. Ég hélt þá fyrst
að það væri einhver í liðinu sem
væri á leiðinni á jafnvægisslána. En
síðan bara kemur í ljós í umferð-
inni þar á eftir að Jordan Chiles er
á keppnisbolnum að hita upp með
bandaríska liðinu. Þá fékk ég alveg í
magann því hún hafði dottið tvisvar
á slánni í undankeppninni og hugs-
aði: Guð, hvað er í gangi, ætla þeir að
láta hana keppa, eftir þessi tvö föll.
En hún hafði að vísu staðið sig rosa-
lega vel á lokaæfingunni,“ segir Hlín.
„Simone Biles fylgdi liðinu allan
hringinn sem er aðdáunarvert en
við vissum ekkert á þessum tíma
hvað hafði gerst eða hvort hún væri
meidd,“ bætir Hlín við.
„Við fréttum það síðan bara strax
frá dómurunum á stökkinu að hún
hefði ekki meitt sig. Hún hefði bara
gert eina og hálfa skrúfu í upphitun
og þá fóru þjálfararnir hennar að
spyrja hana „er allt í lagi, er allt í
lagi?“ og hún segir bara „já, já“ en
svo kemur að keppninni. Hún til-
kynnir sitt stökk en gerir síðan
bara aftur eina og hálfa skrúfu,“
segir Hlín og bætir við að þjálfar-
arnir hennar hefðu séð að ekki væri
allt í lagi.
„Hún er síðan bara spurð hvort
það sé nú ekki best að hvíla,“ segir
Hlín en fram að þessu hafði Biles
verið í toppformi á leikunum,
„Þetta eru auðvitað fyrst og
fremst mikil vonbrigði fyrir hana
en það sem veldur okkur sem
störfum á bak við tjöldin kannski
mikilli furðu er að hún stóð sig svo
svakalega vel á lokaæfingunni. Það
gekk allt upp hjá henni. Hún gerði
nýja stökkið sitt (Yurchenko, tvö-
falt heljarstökk, vinklað) og hún
hefur aldrei gert tvöfalda heljar-
stökkið með þreföldu skrúfunni
jafn vel. Hún var í rosalegu líkam-
legu formi og það var klappað fyrir
henni á lokaæfingunni. Þannig það
eru vonbrigði að hún lendir í þessu
á þessum tímapunkti á ferlinum,“
segir Hlín.
Allir klökkir er Oksana kvaddi
Önnur söguleg stund átti sér einn-
ig stað í f imleikasalnum þegar
Oksana Chusovitina kvaddi eftir
að hafa keppt á Ólympíuleikunum
í áttunda sinn. Oksana, sem er frá
Úsbekistan, hefur keppt á Ólymp-
íuleikunum frá árinu 1992 þegar
leikarnir voru haldnir í Barselóna.
„Það var stórkostleg stund í höll-
inni. Hún var í síðasta hópnum sem
klárar einmitt á stökkinu þegar það
líður á kvöldið,“ segir Hlín. Eftir að
Oksana hafði lokið við sínar æfing-
ar fór hún aftur upp á keppnispall-
inn til þess að veifa og þakka fyrir
sig í síðasta sinn á Ólympíuleikum.
„Þá standa bara allir upp, bæði
þjálfarar, keppendur og allir dóm-
arar og klappa fyrir henni. Í alvör-
unni, það voru allir klökkir. Þetta
var ótrúleg stund. Maður getur rétt
svo ímyndað sér hvað þetta hefði
verið stórkostleg kveðjustund fyrir
hana, íþróttina og Ólympíuleikana
ef höllin hefði verið full af áhorf-
endum,“ segir Hlín.
Hlín og Björn verða aftur í eld-
línunni þegar úrslit á einstökum
áhöldum fara fram á sunnudags- og
mánudagsmorgun kl. 7.55 á RÚV. ■
31. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Íslenskir dómarar meðal þeirra bestu í Tókýó
Ég var að dæma á
slánni og stökkið er
svolítið nálægt. Þannig
að ég hafði heyrt bara
svona „vó!“ þegar hún
[Simone Biles] gerði
bara eina og hálfa
skrúfa, í upphitun.
Hlín Bjarnadóttir.