Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 16
Eyjafólk hefur ekki beinlínis borið harm sinn í hljóði eftir að Þjóðhátíð var blásin af en þótt pirringur hafi nú vikið fyrir sorg er auðheyrt á Eyja- pæjunum Svövu Kristínu Grétarsdóttur og Söru Sjöfn Grettisdóttur að í Eyjum sé einhugur um að gera sem best úr grautfúlum aðstæðum. thorarinn@frettabladid.is svavamarin@frettabladid.is Verslunarmannahelgin verður miklum mun viðburðasnauðari en vonir stóðu til og áætl-anir gerðu ráð fyrir. Hertar samkomutakmarkanir hafa gert út af við allar fyrirhugaðar fjöldasamkomur og útihátíðir þar sem Þjóðhátíð í Eyjum skilur vita- skuld eftir sig stærsta skarðið annað árið í röð. Í fyrra var með öllu óhjákvæmi- legt að slá hátíðina af en í ár var útlitið miklu bjartara og allt var tilbúið fyrir fyrirhugaða og mögu- lega stærstu Þjóðhátíð sögunnar 2021 þegar Delta-afbrigðið laumaði sér inn í landið og gerði út um allar vonir og fögur fyrirheit. Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Sýn, hefur ekki farið leynt með vonbrigði sín á sam- félagsmiðlum en var þó að komast í vægt þjóðhátíðarskap þegar Frétta- blaðið heyrði í henni hljóðið í gær. „Þetta er alveg öðruvísi núna,“ segir hún þegar hún er spurð hvort vonbrigðin í ár séu ekki enn meiri en í fyrra. „Þegar við byrjuðum í fyrra að ferðast innandyra, í mars-apríl, þá bjóst maður samt ekki við því að það yrði ekki Þjóðhátíð. Maður var bara þvílíkt bjartsýnn.“ Pirringur víkur fyrir sorg Raunin hafi þó orðið önnur og ósköp lítið við því að segja. „En ég hefði getað sett milljón á að það yrði Þjóðhátíð í ár. Að þetta yrði ekki ennþá í gangi ári seinna. Það var alveg hræðilegt í fyrra að hugsa: Guð minn góður! Það er bara ár í að við fáum Þjóðhátíð.“ Nú stendur Eyjafólk hins vegar frammi fyrir því að það verður engin Þjóðhátíð tvö ár í röð og til- finningarnar eru blendnar. „Í fyrra var svona pirringur en núna er bara rosalega mikill leiði einhvern veginn á eyjunni. Það er rosa sorg bara,“ segir Svava Kristín og hlær nú samt. „Það er eiginlega bara þannig. En það er samt bara eins og í fyrra að allir eru að reyna að gera sitt besta. Við tæklum þetta bara eins og Þjóð- hátíð. Við tölum eins og það sé Þjóð- hátíð. Eini munurinn er sá að við förum ekki inn í Dal.“ Hvítum tjöldum slegið upp Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Þjóðhátíðarblaðs Vestmannaeyja í ár, tekur í sama kassagítarstreng. „Svona er þetta bara og þessu verður ekki breytt. Auðvitað er þetta graut- fúlt en maður skilur þetta alveg. Vonbrigðin eru mikil hjá f lestum en fólk er að reyna að gíra sig upp og reyna að gera gott úr þessu,“ segir Sara Sjöfn sem fær ekki betur séð en að fólk reyni almennt að hafa gaman með vinum og fjölskyldu. „Já, já. Ég er búin að skreyta allan garðinn hérna heima hjá mömmu og pabba og það eru hvít tjöld í mörgum görðum hérna. Hér og þar er verið að plana alls konar garð- og tjaldpartí alla helgina,“ segir Svava Kristín og tekur undir að í raun megi tala um lítil Þjóðhátíðarútibú víða um bæinn. „Það er fullt af hvítum tjöldum í görðunum úti um allan bæ og fólk er að halda í fjölskylduhefðirnar með En ég hefði getað sett milljón á að það yrði Þjóðhátíð í ár. Svava Kristín. Mér heyrist á öllum að þeir ætli að gera eitt- hvað en þetta verður ekki svona þriggja daga dæmi eins og ef þetta væri inni í Dal. Sara Sjöfn Svava Kristín segir fólk gera það besta úr leiðinlegri stöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þjóðhátíð eins og fólk þekkir hana best en Dalurinn verður heldur tómlegur annað árið í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM Sara Sjöfn segir fjölskyldurnar halda í hefðirnar óháð öllu öðru. MYND/AÐSEND Sara Sjöfn segir ekkert jafnast á við stuðið inni í Dal. MYND/AÐSEND Þjóðhátíðarútibú úti um allar Eyjar um það í Eyjum. Það munu eflaust margir horfa eftir á. Á mánudeg- inum, en á sunnudeginum reynum við að gera eitthvað gott saman. Eitthvað sem kæmi í staðinn fyrir Þjóðhátíð. Ég veit það eru margir sem eiga rauð blys og það verður eitthvað gert.“ sínu fólki,“ heldur Sara Sjöfn áfram. „Fjölskyldur halda í sínar hefðir og eru þær margar eins og fólkið er margt,“ segir Sara Sjöfn sem veit ekki betur en að Dalnum verði lokað frá og með deginum í dag. „Mér heyrist á öllum að þeir ætli að gera eitthvað en þetta verður ekki svona þriggja daga dæmi eins og ef þetta væri inni í Dal.“ Grátt ofan á svart Svava Kristín segir að ekki hafi held- ur bætt úr skák að ofan í 200 manna samkomutakmörkunina, sem gerði út af við Þjóðhátíðina, hafi börum og skemmtistöðum verið gert að loka klukkan 23. „Það er búið að stoppa allt. Bærinn var bara kjaftfullur á fimmtudags- kvöld og verið að henda öllum út klukkan ellefu. En það er bara eins og það er og þá bara strunsa allir í halarófu í næstu garða.“ Engin sófabrekka Og þar eru kassagítararnir oftar en ekki með í för og víða á lofti. „Já, já. Nóg af kassagítörum. Það er bara þannig og allir bara með drykki í bakpoka. Það er bara eins og það er og við reynum bara að gera sem best út úr þessu,“ segir Svava Kristín en heldur því vandlega til haga að tilhugsunin um tveggja ára Þjóð- hátíðarhlé sé erfið og ágeng. Þrátt fyrir messufallið í Dalnum verður Brekkusöngurinn sendur út í beinu vefstreymi en Svava Kristín segist aðspurð ekki sjá fyrir sér að eyjarskeggjar muni ryðjast upp í sófa til þess að syngja með. „Nei, ég held það verði mjög lítið Bætt upp fyrir geðveikina Svava Kristín segir blóðið einnig renna mannskapnum til skyldunnar og að fólk megi ekki gleyma þeim sem taka á sig þung efnahagslegt högg annað árið í röð. „Við verðum bara að vera dugleg að ganga á milli og styðja við fyrir- tækin sem voru búin að undirbúa sig fyrir Þjóðhátíð og eru náttúrlega að tapa gríðarlegum fjárhæðum. Þetta er náttúrlega til dæmis rosa- legt fyrir veitingastaðina sem voru búnir að kaupa rosalega mikið inn fyrir geðveikina sem Þjóðhátíð er. Og þetta er sko bara hráefni sem verið er að kasta. Þannig að mér heyrist svona á f lestum að þeir ætli allir að vera duglegir að sækja staðina og reyna að styðja þá eins og hægt er.“ Þegar Fréttablaðið ræddi við Svövu Kristínu var hún enn að reyna að átta sig á hversu þungur straumur fólks lægi í Eyjar um helgina. „Ég tók rosa mikið eftir því í fyrradag að þetta væri fólk sem hefur tengingu í Eyjar. Ég sá ekki andlit sem ég hef ekki séð áður. Það var náttúrlega bara fimmtudagskvöld þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta verður og ég vona innilega að aðkomufólk hafi ákveðið að taka bara helgi í Eyjum þrátt fyrir að það verði ekki Þjóðhátíð.“ n HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.