Fréttablaðið - 31.07.2021, Qupperneq 28
Starfsmaður óskast
Fullt starf Ferðaþjónusta
Starfsmaður óskast sem fyrst í fullt starf
við ferðaþjónustu á Hala í Suðursveit.
Sjá nánar á Job
Sérfræðingur á skrifstofu
sjúkrahúsa og sérþjónustu
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf
sérfræðings, til eins árs, á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu.
Verksvið skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu er annars og þriðja stigs
heilbrigðisþjónusta auk eftirmeðferðar og endurhæfingar, þjónustu
hjúkrunarheimila, dagdvalar aldraðra og sjúkraflutninga. Skipulag
skrifstofunnar byggir á þjónustuflokkum og snýr auglýst starf að
lyflækninga- og endurhæfingaþjónustu innan sem utan stofnana.
Helstu verkefni:
• Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð á sviði heilbrigðisþjónustu.
• Eftirfylgni aðgerðaáætlana á sviði heilbrigðisþjónustu.
• Samskipti við stofnanir heilbrigðisráðuneytis og þjónustuveitendur.
• Svörun stjórnsýsluerinda.
Hæfni- og menntunarkröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu og stefnumótunar er æskileg.
• Þekking og reynsla af starfssviði endurhæfingar.
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Góð tölvukunnátta.
• Metnaður og vilji til að ná árangri.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í
verkefnastjórnun.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku nauðsynleg og kunnátta í a.m.k. einu
Norðurlandamáli æskileg.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar
sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahags-
ráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins hafa
gert. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir
einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn
skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi
uppfyllir hæfniskröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2021 og umsókn óskast fyllt út á
www.starfatorg.is. Starfshlutfall er 100%
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur
fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á
lausum störfum með síðari breytingum.
Upplýsingar um starfið veitir
Guðlaug Einarsdóttir, skrifstofustjóri
gudlaug.einarsdottir@hrn.is
og í síma 545 8700.
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Verkefnastjóri
TextílLabs
Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir öflugum aðila í nýtt og
spennandi starf við uppbyggingu TextílLabs á Blönduósi.
Um er að ræða einstakt tækifæri til að móta og þróa nýtt
starf þar sem fléttast saman aldagömul textílhefð okkar
Íslendinga og fjórða iðnbyltingin.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Tekur á móti einstaklingum og hópum og kynnir möguleika
smiðjunnar
• Leiðbeinir notendum og veitir tæknilega leiðsögn
• Tekur virkan þátt í að aðstoða frumkvöðla og sprota-
fyrirtæki í textíl nýsköpun
• Heldur utan um og framfylgir viðhaldi og hreinlæti
á tækjabúnaði
• Heldur utan um skráningar, heimsóknir og önnur töluleg
gögn
• Annast kennslu á tækjabúnað og heldur reglulega
námskeið
• Tekur þátt í gerð og þróun námsefnis og námskeiða
• Tekur þátt í öðrum tilfallandi verkefnum hjá Textíl-
miðstöðinni.
Hæfniskröfur
• Brennandi áhugi á því að móta sitt starf með tilliti til
fjórðu iðnbyltingar í tengslum við textíl
• Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
• Þekking á hönnunarforritum tengd stafrænni tækni kostur
• 2D og 3D hönnunar forrit, myndvinnsla ofl.
• Þekking á framleiðsluferlum textíls kostur
• Reynsla af notkun FabLab kostur
• Lipurð í samskiptum og þjónustulund
• Starfið kemur til með að gera mikla kröfu á sjálfstæði
og frumkvæði
Frekari upplýsingar um starfið
Textílmiðstöð Íslands sem staðsett er á Blönduósi hefur
nýlega sett upp stafræna smiðju sem er sérhæfð í rannsók-
num og framleiðslu á ýmiskonar textíl tengdum verkefnum.
Uppbygging smiðjunnar hlaut styrk úr Innviðasjóði og
verkefnið er unnið í samstarfi við Evrópuverkefnið
Centrinno, samstarfsverkefni 9 evrópskra borga með það
markmið að endurvekja textíliðnað í Evrópu. Jafnframt hlaut
uppbygging TextílLabs og TextílKlasa nýverið styrk úr
Lóu - Nýsköpunarstyrk á landsbyggðinni.
Mikil áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun til fullvinnslu
á innlendu hráefni.
Um er að ræða 50-100% stöðugildi. Verkefnisstjórinn mun
halda utan um daglega starfsemi, svo sem opinn tíma fyrir
almenning, viðhald og þrif á tæknibúnaði, umsjón með
húsnæði, skipulag á námskeiðum og móttöku hópa og
einstaklinga.
Um mjög fjölbreytt starf er að ræða þar sem skipulag og
sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvæg, í bland við frjóa hugsun
og útsjónarsemi við úrlausn verkefna.
Umsóknarfrestur er til 10 ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Elsa Arnardóttir í síma 694 1881,
netfang;elsa@textilmidstod.is
Rekstrarstjóri
á Spáni
Nýr rekstraraðili íslendingastaðarins Smiðjan á Torreviejasvæðinu á
Spáni óskar eftir að ráða rekstrarstjóra.
Um er ræða áhugavert og fjölbreytt lifandi starf í nýju landi á suðrænum
slóðum. Viðkomandi þarf að vera þjónustulundaður einstaklingur,
reglusamur, skipulagður og eiga auðvelt með að umgangast fólk ásamt
því að vera snyrtilegur og heiðarlegur. Vera hugmyndaríkur í starfi og að
vera reiðubúinn að vinna mikið á álagstímum.
Enskukunnátta skilyrði og spænska kostur.
Reynsla úr veitinga- eða skemmtistaðageiranum á Íslandi er kostur.
www.facebook.com/smidjanskybar
4 ATVINNUBLAÐIÐ 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR