Fréttablaðið - 31.07.2021, Qupperneq 48
Jónas Sen skrifar um stuttan
leikferil sinn og söngæfingar
sem hann stundar af kappi.
Jónas Sen
Leikaraferill minn er misheppn
aður.
Dag einn hringdi Grímur Hákon
arson kvikmyndagerðarmaður í
mig og bauð mér hlutverk í mynd
sem hann var að gera og nefndist
Hrútar. Hann hafði séð mig spila
á tölvu á raftónlistarhátíðinni Ex
treme Chill og fannst ég tilvalinn í
hlutverk nokkuð undarlegs prests.
Um var að ræða tvær senur; jarð
arför og jólamessu. Í þeirri síðar
nefndu voru aðeins tveir viðstadd
ir, presturinn og bóndi. Presturinn
– ég – átti að tóna „Drottinn mis
kunna þú oss, Kristur miskunna þú
oss“ við undirleik tölvu, sem var á
altarinu.
Jarðarförin heppnaðist ágæt
lega, en jólamessan ekki. Fyrir það
fyrsta leið mér ekki vel í hvítum
hátíðarprestsskrúða sem gerði mig
óþarflega feitan. Svo var söngurinn
herfilegur, enda hef ég aldrei farið
í söngtíma.
Kórsöngur í barnaskóla gerði
mig fráhverfan því að syngja á full
orðinsárunum. Sjálfstraustið út af
prestsskrúðanum var heldur ekki
mikið. Mér leið eins og risastórri,
syngjandi kókosbollu.
Grímur leikstjóri var f lótta
legur á svipinn eftir tökurnar, sem
voru allt of margar. Ekki kom mér
á óvart, einhverjum vikum síðar,
þegar hann tilkynnti mér að senan
hefði verið klippt út úr myndinni.
Loksins farinn að æfa mig
Mörgum finnst það skrýtið þegar
ég viðurkenni að ég sé lélegur
söngvari. Er ég ekki tónlistarmað
ur? Og er ég ekki gagnrýnandi? Ég
bendi þá á að það er einmitt út af
því að ég er gagnrýnandi að ég veit
að ég er skelfilegur söngvari. Ég hef
vit á svona málum.
Nema það að upp á síðkastið hef
ég verið að æfa mig í að syngja. Mér
finnst ferlega aumt að mæma alltaf
þegar aðrir eru að syngja í kringum
mig. Ég nenni ekki lengur að láta
mér líða illa yfir því. Svo núna syng
ég eitthvað á hverjum degi.
Ég er ekki frá því að mér hafi
aðeins farið fram. Röddin mín er
farin að hljóma öðruvísi. Og hið
undarlega hefur gerst að ég er far
inn að hrjóta minna. Ég nefnilega
hrýt ógurlega, en það virðist vera
að lagast.
Söngæfingar gegn hrotum
Þegar betur er að gáð er það þó
ekkert undarlegt. Kórstjóri nokkur
að nafni Alise Ojay átti við svona
vandamál að stríða, en maðurinn
hennar hraut hátt, og ekki bara það,
hann öskraði. Næturnar voru eins
og ópera eftir Wagner. Alise fékk
hann til að hefja raddþjálfun, sem
fólst í söngæfingum. Æfingarnar
þjálfuðu hálsvöðvana, sem í venju
legu fólki eru slappir og máttlausir.
Hjá mörgum slakna þeir of mikið í
svefni, og geta valdið hrotum.
Vissulega er margt annað sem
spilar inn í og orsakar hrotur og/
eða kæfisvefn. Meðal annars er það
offita, það er feitur háls, sem þrýstir
of mikið á öndunarveginn í liggj
andi stöðu. Þannig hindrast, eða
lokast alveg fyrir loftflæðið. Áfengi
og róandi lyf gera svo ástandið enn
verra.
Tilraun sem heppnaðist
Alise vissi hvað hún söng. Hún
hafði þegar rannsakað mátt söng
æfinganna, hafði mótað þær ásamt
prófessor við háskólann í Exeter.
Saman gerðu þau tilraun. Hún var
þannig að tuttugu sjálf boðaliðum
sem allir hrutu mikið var gert að æfa
söngæfingarnar í tuttugu mínútur
daglega. Hroturnar voru teknar upp
í sjö nætur á undan tilrauninni, og
í sjö nætur að þremur mánuðum
liðnum. Skemmst er frá því að segja
að æfingarnar höfðu góð áhrif, en
mest reyndar hjá þeim sem ekki
voru í yfirþyngd.
Í dag er aðalmeðferðin við kæfi
svefni svokallað svefnöndunartæki,
sem getur verið töluverð áskorun.
Einnig er bitgómur talinn hjálpa.
Hann er líka býsna óþægilegur. Hin
leiðin er að grenna sig og það gengur
sjaldnast vel. Af hverju þá ekki að
gera sársaukalausar söngæfingar til
að styrkja hálsvöðvana sem í þokka
bót hjálpa manni að syngja betur?
Ráðið virkaði að minnsta kosti hjá
eiginmanninum hennar Alise, og
hún fékk loksins svefnfrið.
Hvað mig varðar, þá ætla ég að
halda áfram söngæfingunum. Hægt
er að kaupa geisladiskasett ásamt
leiðbeiningarbæklingi á vefsvæðinu
singingforsnorers.com. Nú er bara að
skella sér í almennilega raddþjálfun,
hrjóta minna og syngja betur. Hver
veit nema að ég fái hlutverk hjá
Íslensku óperunni í framtíðinni. ■
Söngur og kæfisvefn
Svo núna syng ég eitthvað á hverjum degi, segir Jónas Sen sem hér er í söngham. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Presturinn
Jónas Sen
og bóndinn í
jólamessunni,
Sigurður Sigur-
jónsson.
Mér leið eins og risa-
stórri, syngjandi
kókos bollu.
stod2.is
32 Menning 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR