Fréttablaðið - 15.07.2021, Síða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 3 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 5 . J Ú L Í 2 0 2 1
Dingding
Krónuhjólið
í sumar!
Kíktu á
Nánar á
kronan.is/
kronuhjolid
Hafnarverkamenn voru önnum kafnir við að háþrýstiþvo nóta- og togveiðiskipið Hring SH-153 við höfnina á Slippnum í Reykjavík í gær. Skipið var smíðað í Skotlandi árið 1997. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Stytting vinnuvikunnar hjá
hinu opinbera hefur haft
meiri áhrif á launavísitöluna
en á almenna vinnumarkað-
inum og áhrifin eiga eftir að
brjótast fram enn frekar.
thg@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR „Það liggur fyrir
að stytting vinnuvikunnar verður
kostnaðarsamari hjá hinu opinbera
en á almennum vinnumarkaði,“
segir Hannes G. Sigurðsson, ráðgjafi
stjórnar og framkvæmdastjórnar
Samtaka atvinnulífsins.
St y t t ing v innuv ik u nna r á
almennum vinnumarkaði og hjá
hinu opinbera hefur hækkað launa-
vísitölu Hagstofu Íslands um 1,36
prósent frá janúar 2020. Hækkun
launavísitölu opinberra starfs-
manna er meiri, eða um 1,67 pró-
sent í samanburði við 1,22 prósenta
hækkun launavísitölu almenna
vinnumarkaðarins, vegna vinnu-
tímastyttingarinnar. Áhrif vinnu-
tímastyttingar hjá hinu opinbera
eiga eftir að koma betur fram og
munu þau líklega auka enn mun-
inn milli opinbera og almenna
markaðarins.
Þá hefur Hagstofan enn sem
komið er einungis lagt bráðabirgða-
mat á áhrif styttingar vinnutíma
vaktavinnufólks hjá hinu opinbera,
sem tók gildi í maí. Bráðabirgða-
matið er að styttingin hækki launa-
vísitölu opinberra starfsmanna um
0,3 prósent en hækkunin verður
líklega meiri þegar upp er staðið,
að sögn Hannesar.
Svanhildur Hólm Valsdóttir,
f ramk væmdastjór i Viðsk ipta-
ráðs Íslands, segir markmiðið með
styttingu vinnuvikunnar göfugt en
of snemmt sé að dæma um endan-
legan árangur breytingarinnar.
„Við fyrstu sýn virðist þetta svo-
kallaða mönnunargat sem nú er
talað um, einfaldlega verða leyst
með hærri launakostnaði, annað-
hvort vegna hærri launa þeirra sem
taka á sig vinnu sem nemur stytt-
ingunni, eða vegna þess að ráða þarf
f leiri til að fylla upp í þær stundir
sem vantar,“ segir Svanhildur.
Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra hefur gefið út að
áætlaður kostnaður við styttingu
á vinnuviku vaktavinnufólks hjá
ríkinu sé um 4,2 milljarðar króna á
ársgrundvelli.
„Ef útfærslan mun leiða til mun
meiri kostnaðar fyrir ríkið heldur
en að var stefnt, þá eru í sjálfu sér
forsendurnar sjálfar brostnar og
það mun kalla á einhvers konar
breytingu þegar þar að kemur,“
sagði Bjarni Benediktsson á Alþingi
í lok apríl. n
Áhrif vinnustyttingar óljós
Svanhildur
Hólm Valsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Viðskipta-
ráðs Íslands.
birnadrofn@frettabladid.is
COVID -19 „1. júlí var tekin með-
vituð ákvörðun sem byggði á því
að meta annars vegar sóttvarnir og
hins vegar aðrar þarfir samfélagsins,
og ég held að það hafi ekkert verið
neitt annað í spilunum en að gera
þetta,“ segir Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
um tilslakanir á landamærum sem
nú virðast hafa leitt af sér fjölgun
kórónuveirusmita.
Kári segir að stórt hópsmit sé
ólíklegt því svo hátt hlutfall þjóðar-
innar sé fullbólusett. „Ég held að við
eigum öll að vera tiltölulega varkár
þangað til heimurinn hefur verið
meira bólusettur en hann er í dag,“
segir hann þó.
Sóttvarnalæknir hefur sagst
íhuga hertar aðgerðir en heilbrigðis-
ráðherra segist aðspurð hvorki hafa
fengið nýtt minnisblað frá honum
né eiga von á því. SJÁ SÍÐU 6
Ráðherra á ekki
von á minnisblaði
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Nú er leitað að
sjálf boðaliðum í rannsóknarverk-
efnið Svefnbyltinguna sem beinist
að kæfisvefni.
Þátttakendur eiga að sofa eina
nótt heima hjá sér með mælibúnað.
Segir Lára Jónasdóttir, verkefna-
stjóri Svefnbyltingarinnar, leitina
ganga nokkuð vel. Um er að ræða
fjögurra ára rannsóknarverkefni
sem leitt er af Ernu Sif Arnardóttur,
lektor við HR. SJÁ SÍÐU 4
Leita að fólki til
að sofa eina nótt
Lára Jónasdóttir og Erna Sif Arnar-
dóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR