Fréttablaðið - 15.07.2021, Qupperneq 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Hlaðvarpið hans Malcolm Glad-
well kemur út á sumrin. Það er
uppáhaldshlaðvarpið mitt. Sjötta
sería byrjaði í síðasta mánuði,
fyrsta byrjaði 2016 – það eru fimm
sumur frá því að ég hlustaði á
fyrsta þátt. Fimm ár. Það þýðir að
það eru tæplega fimm ár frá því
að ég varð edrú og kynntist Hófí,
kærustunni minni. Fimm ár frá
því að ég var í Listaháskólanum
og vissi nákvæmlega hvert líf mitt
stefndi og hvernig ég átti að lifa
því, vissi það svo vel að ég vissi
líka hvernig fólkið í kringum mig
átti að lifa sínu. Það þýðir að ég
hafi þótt klár í matarboðum í
fimm ár.
Fimm ár. Það þýðir að ég þurfi
að ákveða hvort ég vilji fara út
í mastersnám fyrir þrítugt eða
ekki. Að fólk geri til mín rétt-
mætar kröfur og að ég verði aldrei
framúrskarandi í neinu miðað við
aldur, að mínar glæstustu vonir
séu að teljast hæfur. Að næst þegar
heimilislæknirinn minn segir
mér að borða betur og hreyfa mig
meira þurfi ég kannski að hlusta.
Það þýðir að það sé ekki lengur
sjarmerandi þegar ég orðinn
blankur um miðjan mánuð, að ég
þurfi að hrista af mér þá breysk-
leika sem há mér eða heilsa þeim,
þeir eru ófrávíkjanlegur hluti af
skapgerðinni minni. Fimm ár. Það
þýðir að ég þurfi að ákveða hvort
ég vilji vera pabbi unglings þegar
ég er að slaga í fimmtugt, löngu
aftengdur samfélagsmiðlum,
stefnum og straumum í tónlist og
tísku, þreyttur á hringrásinni.
Fimm ár. Það þýðir að ég hef
byggt mér líf, ræktað sambönd,
horft á eftir draumum og vinum,
markað mér stefnu og vikið frá
henni, bitið eitthvað í mig og skipt
um skoðun. Fimm ár. n
Fimm ár MatarKlipp
Nova
Skoraðu hungrið á hólm!
Nældu þér í MatarKlipp í Nova Appinu. Þú færð
fjórar máltíðir á 5.990 kr. og getur hámað í þig
alls konar hamborgara, pizzur, pítur, bökur og
vefjur af matseðli á ótal veitingastöðum!
Verði þér að bragðgóðu!
Fjórar
máltíðir á
5.990 kr.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut