Fréttablaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Aðalsýning Hönnunarsafns Íslands um þessar mundir hefur vakið mikla athygli, en þar má sjá gott yfirlit yfir verk Kristínar Þorkelsdóttur hönnuðar. „Kristín er einn af frumkvöðlum í grafískri hönnun hérlendis og stofnandi auglýsingastofunnar AUK. Verk hennar eru fyrir löngu orðin hluti af okkar daglega lífi. Við erum með þau í höndunum svo að segja á hverjum degi, því Kristín er hönnuður fjölmargra umbúða utan um matvæli og höfundur núgildandi peningaseðlaraðar, sem hún vann ásamt hönnuð- inum Stephen Fairbairn,“ segir Sigríður, en Kristín hefur einnig hannað urmul auglýsinga og þjóð- þekkt merki, sem mörg hafa verið í notkun í áratugi. Má þar nefna merki Byko, MS og Osta- og smjör- sölunnar. „Það eru miklar og skemmti- legar pælingar á bak við allt sem Kristín hannar, hvort sem það eru peningaseðlar eða bókahönnun. Hún vinnur mikið í höndunum, teiknar og stimplar og gerir mikið af tilraunum. Þetta má allt sjá á sýningunni,“ segir Sigríður. Sýningarstjórar eru Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinns- dóttir og Bryndís Björgvinsdóttir, en þau völdu að fara mjög litríka og ef til vill óhefðbundna leið í framsetningu á ævistarfi Krist- ínar. Litun með íslenskum jurtum Í Hönnunarsafninu er rannsókna- rými, en þar fá hönnuðir og fræðimenn tækifæri til að sinna sérstökum rannsóknarverkefnum sem tengjast hönnun á einhvern hátt. „Sigmundur Freysteinsson fatahönnuður hefur undanfarið unnið markvisst að rannsóknum á litun á textíl með íslenskum jurtum og kallast verkefnið Nátt- úrulitun í nútíma samhengi,“ segir Sigríður. Sem dæmi notar Sigmundur lit úr blómi lúpínunnar og litar ull, bómull, hör og bómullarblöndu og þannig sést hvernig jurtalitur- inn kemur út í hverju efni fyrir sig. „Hann er búinn að byggja upp safn af alls konar jurtalitatónum, en 450 litaprufur eru komnar upp á vegg og eru þar til sýnis. Frábært er að fylgjast með þessum unga hönnuði sem er á leið í meistara- nám til Kýótó,“ segir Sigríður. Vert er að benda á að í safnbúð Hönnunarsafnsins eru til sölu vörur eftir íslenska hönnuði, sem á einhvern hátt tengjast sýningum eða safneign safnsins. Í anddyri safnsins er einnig gestavinnustofa en þar dvelja hönnuðir og hand- verksfólk í nokkrar vikur í senn og vinna fyrir framan gesti, en þeirra verk eru oft til sölu í búðinni, að sögn Sigríðar. Smiðjur fyrir grunnskólanema Stutt er síðan Hönnunarsafnið fékk stórt aukarými, sem Sigríður segir hafa verið algjöra byltingu. „Þessi stækkun hefur gjörbreytt allri okkar starfsemi. Með henni fengum við kærkomið tækifæri til að taka á móti grunnskólanemum yfir vetrartímann. Í fyrra komu um 300 nemendur til okkar og heimsóttu sýningar og tóku þátt í smiðjum. Þar vinna þau verkefni sem starfsfólk Hönnunarsafnsins og utanaðkomandi sérfræð- ingar, listamenn og hönnuðir hafa umsjón með og þetta hefur gengið frábærlega vel,“ segir hún, en í ár má búast við að 1.200 nemendur komi í heimsókn á Hönnunar- safnið. „Um er að ræða mjög áhugavert prógramm, því það þarf að vanda vel til verka til að kveikja áhuga hjá börnunum. Í vetur vorum við meðal annars með sýningu á ull og nemendur fengu kynningu á ullinni og hvernig hún er unnin, og rætt var um nýsköpun og endurvinnslu. Þau fengu að koma við efnið og vinna með það á sínum forsendum,“ segir Sigríður. Inni í smiðjunni eru einn- ig skemmtileg leikborð fyrir börn jafnt sem fullorðna, sem eru tileinkuð Einari Þorsteini Ásgeirssyni heitnum, arkitekt og stærðfræðingi. „Hönnunarsafnið á fjölda verka eftir Einar og í smiðjunni geta börn og fullorðnir leikið sér með alls konar verkefni sem tengjast stærðfræði,“ greinir Sigríður frá og bætir við: „Við munum halda ótrauð áfram að bjóða skólahópum að taka þátt í verkefnum sem tengjast sýning- um hverju sinni, en í haust verður hönnun Kristínar Þorkelsdóttur í brennidepli og spennandi að sjá hvað kemur út úr því.“ Spennandi vetrardagskrá Þegar er búið að leggja drög að dagskrá næsta vetrar og þar kenn- ir ýmissa grasa. „Í rannsóknarým- inu verða arkitektateikningar eftir Högnu Sigurðardóttur í brenni- depli. Fyrir ári síðan fengum við kassa með teikningunum hennar og við ætlum að taka þær upp, skoða þær og skrá og gestum Hönnunarsafnsins gefst tækifæri til að fylgjast með þeirri vinnu,“ segir Sigríður. Sveinbjörn Gunnarsson módel- smiður er í vinnustofudvöl í safninu til 19. september. Í stóra sýningar- salnum verður sýning sem snýr að sundlaugamenningu á Íslandi. „Hún er unnin í samstarfi við þjóð- fræðideild Háskóla Íslands,“ segir Sigríður að lokum. n Hönnunarsafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Nán- ari upplýsingar: honnunarsafn.is Mikill áhugi er á listasmiðjum fyrir börn sem tveir öflugir sumar- starfsmenn hafa séð um í sumar. Þetta er fyrsta sumarið sem smiðj- urnar eru starfræktar, og aðsóknin hefur farið fram úr öllum björtustu vonum. Guðný Sara Birgisdóttir, hönnuður og verðandi nemi í list- kennslufræði, hefur umsjón með starfinu og henni til aðstoðar er Birna Berg, tónlistarkona og fram- haldsskólanemi. „Við erum með listasmiðjur tvisvar í viku, þriðju- daga og miðvikudaga frá klukkan 14-16. Ekki þarf að skrá sig til leiks, heldur eru smiðjurnar opnar öllum og eru ókeypis, en þær verða haldnar út júlí,“ segir Guðný. Yngri börn eru einnig velkomin í fylgd með fullorðnum. „Í smiðjunum leggjum við áherslu á að horfa til sköpunarferlis frekar en endilega lokaútkomu, sem er liður í því að styðja við skapandi uppeldi og sjálfsöryggi í sköpun. Þegar krakkar verða eldri er hætt við að þeir hætti að geta bullað og leikið sér og verði óöruggir, finnst þeir kannski ekki nógu flinkir að teikna eða búa til skapandi verk. Í smiðjunum viljum við sporna við þessu, því það er engin rétt eða röng leið í listsköpun,“ bendir Guðný á. Hún sækir í reynslubanka frá því hún vann við smiðjur í öðru bæjarfélagi og segir þetta starf gott framhald af því. „Við einblínum á hvað það er gaman að skapa og það þarf ekki að vera eitthvað flókið,“ segir hún. Hugað er að umhverfismálum, enda eru börn í dag vön endur- vinnslu og sjálfbærni. „Við notum því gjarnan óhefðbundinn efnivið, sem finnst jafnvel heima við, því það þarf ekki alltaf að fara út í búð og kaupa eitthvað nýtt. Við notum til dæmis plastrusl og grænmetisaf- skurð til að búa til form, eða sækj- um lauf og greinar og leikum okkur með það,“ segir Guðný með bros á vör. Hún nefnir að yfirlitssýning á verkum Kristínar Þorkelsdóttur, sem nú stendur yfir í Hönnunar- safninu, veiti bæði börnunum og þeim Birnu mikinn innblástur. „Við horfum til þess sem Kristín hefur gert, og notum til dæmis kartöflur til að búa til stimpla, en þá er skorin út mynd í kartöflu og hún máluð og síðan notuð sem stimpill. Þetta hvetur börnin líka til að skoða sýninguna og spá í verk Kristínar,“ segir Guðný. Þegar hún er spurð hvort smiðjurnar hafi verið eftirsóttar í sumar kemur í ljós að svo hefur verið. „Já, það er búið að vera mikið að gera í sumar. Smiðj- urnar hafa spurst vel út og vakið mikla lukku á meðal barnanna. Það er svo gaman fyrir þau að láta sköpunargáfuna njóta sín og mörg þeirra koma með vini sína í næsta sinn sem þau mæta. Markmiðið er að sýna börnunum hvað hægt er að gera úr hinum ýmsu hlutum og gefa þeim verkfæri til að nýta sér þá þekkingu áfram í lífinu,“ segir Guðný. n Á vegum Hönnunarsafnsins í sumar er starfrækt listasmiðja fyrir börn. Lögð er áhersla á sköpunarferlið og hvað hægt er að gera úr ótrúlegustu hlutum. Sveinbjörn Gunnarsson módelsmiður er í vinnustofudvöl í Hönnunarsafninu til 19. september. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Krókur á Garðaholti er gamall burstabær sem hægt er að heimsækja á sunnudögum yfir sumartímann. MYND/AÐSEND Krókur á Garðaholti er bursta- bær sem hægt er að heimsækja á sunnudögum yfir sumartímann. Það er sérlega ánægjulegt að sjá aukningu gesta með tilkomu samstarfs kirkjunnar og menn- ingarmála í Garðabæ, en í allt sumar eru haldnar sumarmessur í Garðakirkju og í kjölfarið messu- kaffi í hlöðunni við Krók. Í sumar bættist svo við sumarsunnu- dagaskóli sem fer fram í gamla bænum eða utandyra þegar veður leyfir. Þegar ljósmyndara bar að garði var sumarsunnudagaskóla nýlokið og messugestir fengu sér kaffisopa og hlýddu á tónlist í hlöðunni. Krókur er opinn frá 12-17 alla sunnudaga og aðgangur ókeypis, en sumarmessur og sumarsunnudagaskóli hefjast klukkan 11. Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi hjá Garðabæ, segir þetta sérlega gott samstarf og að gaman sé að upplifa óvænta ánægju kirkjugesta þegar þeir uppgötva leyndan fjársjóð sem Krókur er sannarlega. n Leyndur fjársjóður Listasmiðjur fyrir börn Það eru miklar og skemmtilegar pælingar á bak við allt sem Kristín hannar, hvort sem það eru pen- ingaseðlar eða bóka- hönnun. Sigríður Sigurjónsdóttir. 2 kynningarblað A L LT 15. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.