Fréttablaðið - 15.07.2021, Síða 6
Mikil misskipting hefur verið
eftir landshlutum í strand-
veiði sumarsins. Strandveiði-
menn binda vonir við auknar
veiðiheimildir frá sjávarút-
vegsráðherra.
thorgrimur@frettabladid.is
STRANDVEIÐI „Bestu dagar sumars-
ins hafa verið að líða hver á fætur
öðrum,“ segir Arthur Bogason, for-
maður Landssambands smábátaeig-
enda, um horfur í strandveiði í ár.
„Ef fram heldur sem horfir stefnir
í það að veiðiheimildirnar í potti
strandveiðimanna muni jafnvel
klárast fyrir miðjan ágúst. Við bind-
um miklar vonir við að ráðherra
bæti við heimildirnar. Hann hefur
öll tök á því ef hann hefur áhuga
á. Þá endist þetta kannski aðeins
lengur, nær mánaðamótunum.“
Arthur segir strandveiðitíma-
bilið hafa einkennst af meiri mis-
skiptingu milli svæða en oft áður.
Verulegur samdráttur hafi orðið í
veiði á B-svæðinu svokallaða, sem
nær frá Strandabyggð til Grýtu-
bakkahrepps. Svæði A, sem nær frá
Eyja- og Miklaholtshreppi til Súða-
víkurhrepps, hélt hins vegar sínum
hlut og ríflega það og á Norðurlandi
gekk ágætlega.
Kristmundur Kristmundsson,
strandveiðimaður á bátnum Lunda,
segir að veiðin hafi gengið sérlega vel
í maí. Kristmundur veiðir norður á
Ströndum og landar á Norðurfirði í
Árneshreppi, en hann segir að mun
verr hafi gengið fyrir Suðurströndum.
„Það eru búin að vera vond veður
hjá þeim og svo virðist ekki hafa
verið eins mikið af stórum þorski
snemma í vor og var venjulega,“
segir Kristmundur.
Að sögn Kristmundar gekk veiðin
á A-svæðinu það vel að landssam-
bandið bað veiðimenn að róa ekki
Strandveiðimönnum finnst blóðugt
að vera stopp eftir örfáa daga í ágúst thorvaldur@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTAN Íslandsstofa segir
aukna bjartsýni meðal erlendra
ferðaheildsala sem bjóða upp á
ferðir til Íslands, samkvæmt nýrri
könnun sem gerð var í júní. 31
prósent svarenda segja bókanir á
ferðum til Íslands þegar byrjaðar
að aukast og önnur 39 prósent telja
að bókanir aukist í sumar eða haust.
Þá telja 58 prósent að bókanir á
ferðum til Íslands verði sambæri-
legar árið 2022 og fyrir Covid-far-
aldurinn.
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir,
fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslands-
stofu, segir niðurstöður könnunar-
innar gefa tilefni til bjartsýni, en
þær beri þess þó merki að ferða-
þjónustan hér á landi muni glíma
við afleiðingar faraldursins í nán-
ustu framtíð.
Sigríður segir ljóst að samkeppni
milli áfangastaða muni fara ört
harðnandi þegar ferðavilji eykst og
að ferðaþjónustan muni þurfa að
hafa fyrir hlutunum. „Við þurfum
að vera raunsæ og stilla væntingum
í hóf,“ segir hún. n
Ferðaþjónustan
hóflega bjartsýn
Kristmundur
Kristmundsson.Arthur Bogason.
Strandveiði útgerð er frá Norðurfirði, þar sem Kristmundur Kristmundsson landar sínum afla.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
til fiskjar á rauðum dögum í júní.
„Við fengum að róa þessa daga í
fyrra en núna virðast þeir hræddir
við að potturinn klárist snemma
því ráðherra virðist ekki vilja bæta
neinu við þennan pott,“ segir Krist-
mundur, sem kveðst hafa á tilfinn-
ingunni að sjávarútvegsráðherra
vinni eingöngu fyrir stórútgerðina.
„Þegar maður ræðir við einstaka
þingmenn segjast þeir allir styðja
við strandveiðina. En það virðist
ekki nóg, því að það hefur ansi lítið
þokast áfram og okkur finnst það í
sjálfu sér alveg galið að fá ekki að
róa tólf daga í hverjum mánuði,“
segir Kristmundur. Mönnum finn-
ist ansi blóðugt að vera stoppaðir
eftir örfáa daga í ágúst.
„Það setur þetta svolítið niður
að geta ekki gengið að tólf dögum
vísum. Best væri auðvitað að fá
alveg frjálsar handfæraveiðar. Það
er ekki eins og þetta séu einhver
tortímingartæki – þetta eru pínu-
litlir krókar úti í sjónum.“ n
urduryrr@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL „Þetta mun ekki
bitna á neytendum í formi hærra
vöruverðs,“ segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, um nýjar tillögur
Evrópusambandsins um bann við
sölu nýrra dísil- og bensínbíla.
Um er að ræða eina af tillögum
ESB til að berjast gegn hnattrænni
hlýnun og ná markmiðum um kol-
efnishlutleysi fyrir árið 2050.
Meðal tillagnanna er að þrengja
útblástursleyfi bíla fyrir árið 2035
og þannig binda endi á sölu nýrra
dísil- og bensínbíla.
Runólfur segir framleiðendur
vera að ná betri árangri varðandi
endingu og drægni rafmagnsbíla.
Kostnaður við framleiðsluna nálgist
óðum bíla með sprengihreyfla.
Að sögn Runólfs er þetta hluti af
óhjákvæmilegri þróun. „Það virðist
vera að markaðurinn sé allur að fara
í þessa átt hvort eð er,“ segir hann.
Meðal annarra tillagna ESB
er skattlagning á flugvélabensín og
skattfrelsi til tíu ára fyrir annað elds-
neyti með minna kolefnisfótspor.
Tillögurnar þurfa að fá samþykki
frá öllum 27 meðlimum sambands-
ins og búist er við að samningavið-
ræður muni taka einhverja mánuði.
Einhverjir evrópskir bílafram-
leiðendur hafa tilkynnt að þeir
muni skipta alfarið yfir í rafmagns-
bílaframleiðslu áður en bannið
tekur gildi, samkvæmt fréttastof-
unni Forbes.
Í áætlun ríkisstjórnar Íslands í
loftslagsmálum er stefnt að því að
gera nýskráningu bensín- og dísil-
bíla óheimila hér á landi eftir árið
2030. n
Telur að bann á bensín- og dísilbíla bitni ekki á neytendum
Runólfur Ólafsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það eru alls konar
ástæður fyrir því að
fara sjaldnar á barinn
og þær hafa ekki allar
með Covid-19 að gera.
Kári Stefáns-
son, forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar.
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Að mati almannavarna-
deildar ríkislögreglustjóra er staða
faraldursins hér á landi varhuga-
verð og boðað er til fundar í dag.
Fimm Covid-19 smit greindust
hér á landi í fyrradag. Öll voru
smitin utan sóttkvíar og þrír þeirra
smituðu voru fullbólusettir. Hluta
smitanna mátti rekja til skemmt-
analífsins í borginni líkt og í upp-
hafi þriðju bylgju faraldursins.
K á r i St e f á n s s on , for st jór i
Íslenskrar erfðagreiningar, segir að
tekin hafi verið áhætta er ákveðið
var að hætta að skima bólusetta
fyrir veirunni á landamærunum.
„Meðan við vorum að skima
bólusetta þegar þeir komu inn í
landið voru 0,1 prósent af þeim
smitaðir, það þýðir að ef þú færð
inn í landið upp undir tíu þúsund
bólusetta, þá myndir þú reikna
með því að fá svona tíu manns bæði
bólusetta og smitaða,“ segir Kári.
„1. júlí var tek in meðvituð
ákvörðun sem byggði á því að meta
annars vegar sóttvarnir og hins
vegar aðrar þarfir samfélagsins,
og ég held að það hafi ekkert verið
neitt annað í spilunum en að gera
þetta,“ segir Kári. Hann sé viss um
að sóttvarnayfirvöld séu á tánum
varðandi skimanir á landamærum
og grípi til hertra aðgerða ef þurfi.
Stórt hópsmit sé ólíklegt enda stór
hluti þjóðarinnar fullbólusettur.
„Ég held að við eigum öll að vera
tiltölulega varkár þangað til heim-
urinn hefur verið meira bólusettur
en hann er í dag,“ segir Kári. Með
bólusetningu minnki bæði líkur á
að fólk smitist og á því að það verði
mikið veikt ef það smitist.
„Það eru alls konar ástæður fyrir
því að fara sjaldnar á barinn og
þær hafa ekki allar með Covid-19
að gera, þetta er spurning um það
hvernig maður hagar sér í stórum
hópi í litlu plássi,“ svarar Kári,
spurður hvort að með varkárni
hann eigi til dæmis við færri ferðir
á barinn eða örari handþvott.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir kvaðst í gær íhuga hertar
aðgerðir. Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra segist hvorki
hafa fengið nýtt minnisblað frá
sóttvarnalækni né eiga von á því. n
Tekin var meðvituð áhætta á landamærunum
thorgrimur@frettabladid.is
SPÁNN Dómstóll á Kanaríeyjum
neitaði í gær að heimila útgöngu-
bann þar. Stjórnvöld eyjanna vildu
útgöngubann frá hálfeitt eftir mið-
nætti til sex að morgni á svæðum
sem metin væru á þriðja og fjórða
hættustigi á smiti af Covid-19. Heil-
brigðisráðherra eyjanna, Blas Tru-
jillo, sagði niðurstöðu dómstólsins
gríðarlegt bakslag í baráttunni gegn
kórónuveirunni. Forseti eyjanna,
Ángel Víctor Torres, sagðist gáttaður
yfir því að dómur sem þessi skuli
falla sama dag og f lest smit hafa
greinst á Kanaríeyjum frá upphafi
faraldursins.
Hæstiréttur Spánar sagði síðan
í gær að ríkisstjórninni hafi verið
óheimilt að setja útgöngubann í
fyrra án þess að lýsa yfir neyðar-
ástandi. Er bannið var sett var
aðeins viðvörunarástand en sam-
þykki neðri deildar þingsins hefði
þurft til að lýsa yfir neyðarástandi.
Mikill fjöldi Íslendinga stefnir í frí
til Spánar í sumar. n
Dómstólar fella
sóttvarnaaðgerðir
Heldur hefur sigið á ógæfuhliðina á
Tenerife. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 Fréttir 15. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ