Fréttablaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 8
Stytting vinnuvikunnar hjá hinu opinbera hefur haft meiri áhrif á launavísitöluna en á almenna vinnumarkað- inum og áhrifin eiga eftir að brjótast fram enn frekar. Stytting vinnuvikunnar á almenn- um vinnumarkaði og hjá hinu opin- bera hefur hækkað launavísitölu Hagstofu Íslands um 1,36 prósent frá janúar 2020. Hækkun launa- vísitölu opinberra starfsmanna er meiri, eða um 1,67 prósent í saman- burði við 1,22 prósenta hækkun launavísitölu almenna vinnu- markaðarins, vegna vinnutíma- styttingarinnar. Áhrif vinnutíma- styttingar hjá hinu opinbera eiga eftir að koma betur fram og munu þau líklega auka enn muninn milli opinbera og almenna markaðarins. „Það liggur fyrir að stytting vinnuvikunnar verður kostn- aðarsamari hjá hinu opinbera en á almennum vinnumarkaði,“ segir Hannes G. Sigurðsson, ráðgjafi stjórnar og framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins. Á almenna vinnumarkaðinum er heimilt að gera samkomulag um styttingu vinnutíma á hverjum vinnustað, samhliða niðurfellingu kaffitíma á grundvelli svonefnds fyrirtækjaþáttar kjarasamnings. Gengið er út frá því að slíkt sam- komulag skili báðum aðilum ávinn- ingi. Umfang slíks samkomulags liggur ekki fyrir, það er í hve mörg- um fyrirtækjum hefur verið samið um styttingu, en hjá Samtökum atvinnulífsins er áformað að gera kannanir meðal félagsmanna svo að unnt sé að átta sig á umfanginu. Bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði er unnt að stytta vinnuvikuna niður í allt að 36 vinnustundir. Styttingin er tvíþætt. Annars vegar er vinnuvikan stytt um 1 klukkustund og 5 mínútur á viku, og hins vegar er hægt að semja um niðurfellingu kaffitíma gegn styttingu um 2 klukkustundir og 55 mínútur. „Í gögnum Hagstofunnar eru 65 mínúturnar teknar með í reikn- inginn en ekki þessar tæpu þrjár klukkustundir sem viðveran getur styst um vegna niðurfellingar form- legra kaffitíma,“ segir Hannes. Þá hefur Hagstofan enn sem komið er einungis lagt bráðabirgða- mat á áhrif styttingar vinnutíma vaktavinnufólks hjá hinu opinbera, sem tók gildi í maí. Bráðabirgða- matið er að styttingin hækki launa- vísitölu opinberra starfsmanna um 0,3 prósent en hækkunin verður líklega meiri þegar upp er staðið, að sögn Hannesar. Niður- staðan sem stendur, er því í mörg- um, ef ekki flestum, tilfellum hærri launa- kostnaður, sem ekki var gert ráð fyrir þegar þessar breytingar voru lagðar fram. Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmda- stjóri Viðskipta- ráðs. 5,5% var veltuaukning gámafélagsins milli ára. Það liggur fyrir að stytting vinnuvikunn- ar verður kostnaðar- samari hjá hinu opin- bera en á almennum vinnumarkaði. Hannes G. Sigurðsson, ráð- gjafi stjórnar og framkvæmda- stjórnar Sam- taka atvinnu- lífsins. thg@frettabladid.is Rekstrarhagnaður Íslenska gáma- félagsins jókst um 13 prósent á síðasta ári og nam rúmum 339 milljónum króna, samanborið við tæplega 300 milljónir á árinu 2019. Hagnaður eftir skatta meira en tvö- faldaðist og var 86,5 milljónir, sam- anborið við 35 milljónir 2019. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár. Tekjur gámafélagsins jukust um 5,5 prósent milli ára og námu alls ríf lega 5,3 milljörðum króna. Í skýrslu stjórnar vegna síðasta rekstrarárs kom fram að heims- faraldurinn hefði umsvifalaust haft áhrif á reksturinn og því hafi verið gripið til þeirra opinberu úrræðna sem í boði voru, svo sem hlutabóta- leiðar og seinkunar greiðslna til hins opinbera. Úrræði hins opinbera voru hins vegar nýtt í aðeins tvo mánuði, segir einnig í skýrslunni. Þar segir einn- ig að hratt hafi tekist að snúa við blaðinu í maí og veltumet hafi verið sett í október síðastliðnum. „Með öf lun nýrra verkefna og miklum dugnaði starfsmanna og sveigjan- leika, þá tókst okkur að byggja upp enn sterkara og öflugra fyrirtæki,“ segir í umfjöllun stjórnar um síðasta rekstrarár. Eigendur Íslenska gámafélagsins eru félögin Gufunes og Hvalur með 50 prósent hvort. Hvalur, sem Krist- ján Loftsson veitir forystu, keypti sig inn í rekstur Íslenska gámafélagsins í fyrra. Í lok árs 2018 keypti félag í eigu stofnenda Íslenska gámafélags- ins, Jóns Þóris og Ólafs, meirihluta hlutafjár í félaginu og dótturfélagi þess, Vélamiðstöðinni. Það sölu- ferli hófst um sumarið þegar boðnir voru til sölu allir hlutir í félaginu í eigu eignarhaldsfélagsins Gufuness og framtakssjóðsins Auðar I. Fyrir- tækjaráðgjöf Kviku hafði umsjón með söluferlinu. Niðurstaðan varð sú að stofnendurnir keyptu hluti framtakssjóðsins. Þeir seldu svo hluta sinnar eignar til Hvals síðasta sumar. n Betri afkoma Íslenska gámafélagsins Þorsteinn Friðrik Halldórsson thorsteinn @frettabladid.is Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag Alls Almennur markaður, 70% Opinber markaður, 30% Janúar 2020 0,6% 0,86% 0% Janúar 2021 0,4% 0% 1,3% Aðra mánuði ‘19-’21 0,25% 0,36% 0% Maí 2021 0,1% 0% 0,3% Samtals 1,36% 1,22% 1,67% ✿ Mat Hagstofu á hækkun launavísitölu vegna vinnutímastyttingar Mat fyrir maí 2021 er bráðabirgðamat á áhrifum styttingar vinnutíma vakta- vinnufólks hjá hinu opinbera. 1452 ✿ Meðal ársvinnutími á Norðurlöndum 2019 1381 1539 1480 1381 n Danmörk n Finnland n Ísland n Noregur n Svíþjóð Dagvinnutími óvíða styttri en hér Lengi vel samræmdust mælingar vinnutíma hér ekki mælingum í öðrum löndum og með röng gögn að leiðarljósi töldu sumir að á Íslandi þekktist einhver lengsti vinnutími í Evrópu. Staðreyndin er hins vegar sú að umsaminn dagvinnutími er óvíða styttri en hér á landi, eins og kom í ljós þegar gögnin höfðu verið leiðrétt til sam- ræmis við önnur lönd. Meðal ársvinnutími er á pari við hin Norður- löndin, samkvæmt gögnum frá OECD. Óljóst um endanleg áhrif af styttri vinnuviku Áætlaður kostn- aður við stytt- ingu á vinnuviku vaktavinnufólks hjá ríkinu er um 4,2 milljarðar króna á árs- grundvelli. Þá er áætlaður kostnaður Reykja- víkurborgar vegna styttingar vinnu- vikunnar á árinu 2021 samtals 520 milljónir króna. Viðskiptaráð benti á það í umsögn um vinnustyttingarfrumvarpið fyrir tæpum þremur árum að grunn- forsenda mikillar vinnutímastytt- ingar væri framleiðniaukning. Skyn- samlegra væri að auka framleiðni til að skapa hægt og bítandi svigrúm til styttri vinnutíma. Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir markmiðið með stytt- ingu vinnuvikunnar göfugt en of snemmt sé að dæma um endanlegan árangur breytingarinnar. „Við fyrstu sýn virðist þetta svo- kallaða mönnunargat sem nú er talað um, einfaldlega verða leyst með hærri launakostnaði, annað- hvort vegna hærri launa þeirra sem taka á sig vinnu sem nemur stytt- ingunni, eða vegna þess að ráða þarf f leiri til að fylla upp í þær stundir sem vantar,“ segir Svanhildur. „Niðurstaðan sem stendur, er því í mörgum, ef ekki flestum, tilfellum hærri launakostnaður, sem ekki var gert ráð fyrir þegar þessar breyting- ar voru lagðar fram.“ Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur gefið út að áætlaður kostnaður við styttingu á vinnuviku vaktavinnufólks hjá ríkinu sé um 4,2 milljarðar króna á ársgrundvelli. „Við erum með endurskoðunar- ákvæði 2023 þar sem á að fara yfir árangurinn af þessu. Það mun reyna á það í millitíðinni, hvernig allir þeir sem að málinu koma eru tilbúnir til að láta dæmið ganga upp. Því ef útfærslan mun leiða til mun meiri kostnaðar fyrir ríkið heldur en að var stefnt, þá eru í sjálfu sér forsendurnar sjálfar brostnar og það mun kalla á ein- hvers konar breytingu þegar þar að kemur,“ sagði Bjarni Benediktsson á Alþingi í lok apríl. Vinnutímastyttingin getur leitt af sér allt að 780 stöðugilda mönnunar- gat hjá ríkinu. Stærsti hópurinn er á Landspítalanum, sem metur fjárþörf vegna styttingar vinnuviku í kring- um tvo milljarða króna. Ráða þarf meira en 200 starfsmenn til þess að bregðast við breytingunum. n 8 Fréttir 15. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 15. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.