Fréttablaðið - 15.07.2021, Qupperneq 10
Það er fyrirhafnarinnar virði að
heimsækja Hveragil og kynnast
óspjallaðri auðn Kverkfjallarana.
Ólafur Már
Björnsson,
augnlæknir og
ljósmyndari.
Tómas
Guðbjartsson,
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi.
15. júlí 2021 FIMMTUDAGURFÓKUS Á HJARTA LANDSINS
Á Íslandi er víða að finna náttúrulaugar sem frá örófi
alda hafa verið nýttar til þvotta og baða. Yfirleitt er
þær að finna á einhverju af 250 lághitasvæðum lands-
ins sem f lest eru á láglendi og hafa ávallt talist hin
mesta búbót. Reykholtslaugar er getið í Landnámu en
þar náði Snorri Sturluson að slaka á milli skrifa og í
Reykjalaug á Ströndum á Grettir sterki að hafa skellt
sér ískaldur eftir Drangeyjarsund og baðið orðið
til þess að hann treysti sér til að njóta ásta síðar um
kvöldið. Flestir nota þó náttúrulaugar til að slaka á og
ná úr sér þreytu, til dæmis eftir gönguferðir. Laugarnar
í Landmannalaugum og á Hveravöllum eru vinsælar
hjá göngufólki, en sömuleiðis Strútslaug að Fjallabaki
og Stóragjá við Mývatn. Aðrar náttúrulaugar eru enn
afskekktari og því lítt þekktar. Eina slíka er að finna
í Hveragili í Kverkfjöllum, skammt frá norðurbrún
Vatnajökuls við vestanverðan Brúarárjökul. Nafn sitt
dregur Hveragil af allt að 60 gráðu heitum uppsprett-
um sem leynast á nokkrum stöðum í botni jökulár,
sem rennur eftir þröngu en tignarlegu gilinu. Þarna
hefur jarðhitinn myndað fallegar kalkútfellingar í ánni
og á bökkum hennar sést fallegur gróður sem stingur í
stúf við svarta auðnina í kring. Þessi afskekkta gróður-
vin liggur í næstum 1.200 m hæð og á líf sitt að þakka
jarðvarmanum, sem einnig gerir jökulána baðhæfa. Á
það ekki síður við um vetrarböð, þegar leysingavatn er
minna og áin því heitari.
Það er fyrirhafnarinnar virði að heimsækja Hveragil
og kynnast óspjallaðri auðn Kverkfjallarana. Frá Sig-
urðarskála er 15 km ganga vestur í Hveragil og liggur
leiðin inn á milli eldfjalla og gilja, um dali og svarta
sanda. Þarna er auðvelt að villast og því skynsamlegt
að fá GPS-hnit gönguleiðarinnar hjá landvörðum.
Þetta er löng ganga í anda Grettis sterka, en sprækt
göngufólk getur bætt við Biskupsfelli (1.240 m) á heim-
leiðinni, sem er frábært útsýnisfjall. Þægilegri valkost-
ur er að keyra áleiðis að Hveragili eftir torfærum slóða
skammt sunnan Hvannalinda sem liggur inn að Brúar-
jökli og aðalupptökum Kreppu. Þaðan er stutt ganga
að Hveragili með upphitaðri ánni og hægt að slaka á
eins og Snorri Sturluson gerði forðum í Reykholti. n
Upphituð jökulá
utan alfaraleiða
Það er engu líkt að baða sig í Hveragili í upphitaðri jökulá, óralangt frá mannabyggðum. MYND/ÓMB
Umhverfi Hveragils er af dýrari gerðinni. Í baksýn sést í Austurfjöll Kverkfjalla og hæsta tind þeirra, Skarphéðinstind (1.920 m). MYND/TG
Hveragil er ekki
aðeins nátt-
úrulaug heldur
einnig gróður-
vin í næstum
1.200 m hæð.
MYND/ÓMB