Fréttablaðið - 15.07.2021, Side 15
Flokkur fólksins vill
að öllu fólki líði vel í
borginni og á landinu
öllu. Við höfum efni á
því.
Nýr 9 kg þurrkari með íslensku stjórnborði. Sjálfhreinsandi
rakaþéttir. Rafeindastýrð rakaskynjun. Sérkerfi: Blandaður
þvottur, ull, útifatnaður, handklæði, tímastillt kerfi,
hraðkerfi 40 mín., undirfatnaður og skyrtur.
Gildir til og með 31. júlí 2021 eða á meðan birgðir endast.
Ný þvottavél og
nýr þurrkari frá
Siemens
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
Þvottavél, iQ500
WU 14UTL9DN
Fullt verð: 149.900 kr.
Kynningarverð:
114.900 kr.
Ný 9 kg þvottavél með íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín.
Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð.
15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið
leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta.
Þurrkari, iQ500
WT 45WTA8DN
Fullt verð: 149.900 kr.
Kynningarverð:
114.900 kr.
Tekur mest
9
Tekur mest
9
10 ára
ábyrgð á
iQdrive
mótornum.
hraðkerfi
40 mín.
hraðkerfi
15 mín.
Á kynningarverði í júlí:
Nú á miðju sumri hef ég verið að
líta um öxl, horfa yfir þau þrjú ár
sem liðin eru af þessu kjörtímabili
í borginni. Eftir tæpt ár verða borg-
arstjórnarkosningar. Fram undan
er krefjandi vetur og reikna má með
að f ljótlega muni borgarstjórn ein-
kennast af kosningatitringi. Það var
mögnuð upplifun að verða kosin
sem fulltrúi Flokks fólksins í borg-
arstjórn, enda þótt kannanir gæfu
iðulega ekki tilefni til bjartsýni. Ég
einsetti mér að berjast ötullega að
málefnum Flokks fólksins. Flokkur
fólksins berst gegn fátækt og mis-
rétti og við berjumst fyrir bættum
kjörum og aðstæðum þeirra verst
settu. Mörgum eldri borgurum og
öryrkjum líður illa í ríku samfélagi
okkar. Enginn ætti að þurfa að hafa
áhyggjur af grunnþörfum. Hópur
hinna lakast settu er oft falinn.
Margar barnafjölskyldur berjast í
bökkum og því miður virðist vera
allnokkur hópur sem glímir við
vanlíðan sem má í sumum tilfellum
rekja til námstengdra og/eða sál-
félagslegra vandamála.
Foreldrar sem eru aðþrengdir
fjárhagslega þurfa að forgangsraða
ef endar ná ekki saman og þá koma
grunnþarfir fyrst. Börn fátækra
foreldra sitja ekki við sama borð og
börn efnameiri foreldra. Í mörgum
tilfellum fer stærsti hluti launa lág-
launafólks í húsaleigu, allt að 80%.
Það er ómögulegt að ná endum
saman þegar 20% launa þurfa að
duga fyrir öllu öðru. Mikill skortur
er á hagkvæmu húsnæði og er leigu-
verð íþyngjandi.
Biðlistameinið í borginni hefur
hvílt einna sárast á mér. Nú bíða
1.547 börn eftir aðstoð fagfólks
skólanna, f lestir til sálfræðinga og
talmeinafræðinga. Strax við upp-
haf kjörtímabilsins lagði Flokkur
fólksins fram tillögur sem lúta að
styttingu biðlista. Lagt var meðal
annars til að fjölga fagfólki, færa
aðsetur sálfræðinga út í skólana og
auka samstarf skóla- og frístunda-
sviðs við Þroska- og hegðunarstöð
og heilsugæsluna. Öllum tillögum
var hafnað.
Þótt börn eigi skýlausan rétt á
nauðsynlegri þjónustu er biðlista-
vandinn líka vandamál á ríkis-
stofnunum. Geðheilsa barna og
ungmenna á að vera forgangsmál.
Okkur hefur ekki tekist að tryggja
börnum vernd og umönnun sem
velferð þeirra krefst, þrátt fyrir að
eiga aðild að Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna.
En nú virðist meirihlutinn í borg-
arstjórn ætla að taka við sér. Á dög-
unum voru lagðar fram tillögur um
að taka á biðlistum barna til fag-
fólks skólaþjónustu. Sálfræðingar
eiga þó ekki að hafa fullt aðsetur
Nú á að gyrða sig í brók enda kosningar á næsta leiti
Kolbrún
Baldursdóttir
oddviti Flokks
fólksins í
borgarstjórn
Reykjavíkur
innan skólanna, eins og fulltrúi
Flokks fólksins hefði viljað sjá og
hefur ítrekað lagt til.
Allt kjörtímabilið hefur ekkert
gerst í þessum málum. Á meðan
börnin hafa beðið hefur hins vegar
ekki f lækst fyrir meirihluta borgar-
stjórnar að ákveða að ráðstafa 10
milljörðum í stafræna breytingu.
Fyrir brot af þessum tíu milljörð-
um mætti gera mikið fyrir börnin
í borginni og aðra viðkvæma hópa.
Því er ekki mótmælt að taka þarf til
í stafrænum veruleika borgarinnar.
En meðhöndla þarf fjármuni borg-
arinnar af skynsemi og ábyrgð og
forgangsraða rétt.
Hugsanlega má reikna með að
einhverjar umbótatillögur meiri-
hlutans á skóla- og velferðarsviði
verði að veruleika rétt fyrir kosn-
ingar. Segja má „betra seint en
aldrei“. Allt sem er gott fyrir börn,
þótt skrefin séu lítil, styður fulltrúi
Flokks fólksins í borgarstjórn.
Hins vegar hefur dý rmætur
tími tapast. Fyrir börn sem hafa
verið á biðlistum er seint í rassinn
gripið. Þau hafa mátt bíða mán-
uðum saman og jafnvel árum með
vandamál sín óleyst, í þeirri von að
brátt komi nú röðin að þeim og þau
fái fullnægjandi þjónustu í formi
einstaklingsmiðaðrar, faglegrar
aðstoðar. Mörg hafa útskrifast úr
grunnskóla án þess að hafa fengið
aðstoð, ýmist að hluta til eða öllu
leyti.
Flokkur fólksins vill að öllu fólki,
líði vel í borginni og á landinu öllu.
Við höfum efni á því. Fólk þarf að
finna til öryggis, að stjórnvöld láti
það sig varða og að það þurfi ekki
að kvíða morgundeginum. Að það
hafi fæði, klæði og húsnæði. Við
eigum að gera kröfu um að allt sé
gert til að öllum börnum geti liðið
vel og þau upplifað sig örugg í sínu
nærumhverfi. Ef þessir þættir eru
ekki í lagi skiptir annað oft minna
og jafnvel engu máli. Fólkið fyrst og
svo allt hitt! n
FIMMTUDAGUR 15. júlí 2021 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ