Fréttablaðið - 15.07.2021, Page 26
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Kristinn Kristinsson
húsasmíðameistari,
Álfhólsvegi 104, Kópavogi,
lést sunnudaginn 11. júlí
á hjúkrunarheimilinu Mörk.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtu-
daginn 22. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Hollvini Grensásdeildar.
Ásdís Þórarinsdóttir
Sigrún Kristinsdóttir Hinrik Már Ásgeirsson
Kristinn Gunnar Kristinsson Margrét Jóna Gestsdóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Árnadóttir
þýðandi,
sem lést 9. júlí, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. júlí kl. 15.
Árni Óskarsson
Jóna Dóra Óskarsdóttir
Völundur Óskarsson
Aagot Vigdís Óskarsdóttir
Svanhildur Óskarsdóttir
Hrafnkell Óskarsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
Inda Dan Benjamínsdóttir
Miðleiti 7, Reykjavík,
lést 2. júlí á líknardeild Landspítalans.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Katrín Axelsdóttir
Kristín Axelsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásdís Jónasdóttir
Suðurlandsbraut 58,
lést 24. júní á Landspítalanum
í Fossvogi. Hún verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í Reykjavík,
mánudaginn 19. júlí kl. 15.
Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir
Jónas Gauti Friðþjófsson Ragnhildur Georgsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurður Kristjánsson
vélstjóri,
Kópavogstúni 9,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
í Kópavogi, þann 13. júlí.
Útför verður auglýst síðar.
Laufey Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Sigurðsson Sigrún Agnes Rúnarsdóttir
Andri Dagur, Úlfur Ingi, Helga Karen
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar
Rannveigar G.
Kristjánsdóttur
frá Bolungarvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Hjúkrunarheimilisins Eirar, 3n.
Rannveig K. Stefánsdóttir Ögmundur Gunnarsson
Tryggvi Stefánsson
Sirrý Halla Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Guðjónsdóttir
Greniteig 9, Keflavík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, mánudaginn 5. júlí,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju,
mánudaginn 19. júlí kl. 13.
Guðjón Sigurðsson Steinunn Njálsdóttir
Bjarni Ásgrímur Sigurðsson Hansborg Þorkelsdóttir
Sigurður Sigurðsson Árný Þorsteinsdóttir
Sveinbjörg Sigurðardóttir Guðsveinn Ólafur Gestsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
Vilhjálms Óskarssonar
Elínborg Proppé
Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé Magnús Orri M. Schram
Gunnar Þór Vilhjálmsson
Villi, Mía og Ragnheiður.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Beck
frá Reyðarfirði,
Lækjasmára 6, Kópavogi,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. júní
síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Reyðarfjarðarkirkju, miðvikudaginn 21. júlí kl. 14.00.
Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu mánudaginn
19. júlí kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarfélög.
Bjarni Steingrímsson Ellen Rósa Jones
Páll Grétar Steingrímsson Kristjana Erlen Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra og yndislega móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Rannveig Filippusdóttir
Hlíðarvegi 32, Reykjanesbæ,
áður Austurvegi 2, Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 28. júní 2021.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ástvinir þakka starfsfólki HSS umhyggju og hlýhug.
Rannveig Þorvarðardóttir Þórarinn Arnórsson
Nína Brá, Styrmir Snær, Íris Hrund
Gunnar Þorvarðarson Hrafnhildur Hilmarsdóttir
Ægir Örn, Logi, Harpa
makar og langömmubörn.
Voces Thules láta að sér kveða á
Norðurlandi um næstu helgi í
Þjóðlagasetrinu á Siglufirði og
Hólum í Hjaltadal, þar sem spilað
verður í messu og svo tónleikar.
arnartomas@frettabladid.is
„Titill tónleikanna er Þessi karl á þingið
reið, og vísar til skemmtilegs brags
Jóns Arasonar, biskups á Hólum, sem
við f lytjum,“ segir Einar Jóhannesson
í miðaldasönghópnum Voces Thules
sem kemur fram á tvennum tónleikum
næstu helgi. Á laugardagskvöld spilar
hópurinn á sumartónleikum Þjóðlaga-
setursins á Siglufirði kl. 20.30 og svo á
sunnudaginn í Hólum í Hjaltadal, þar
sem spilað verður í messu kl. 14 og svo
á tónleikum kl. 16.
Hópurinn mun þar flytja dagskrá með
íslensku efni aftan úr öldum og leikið
verður á hljóðfæri sem tíðkuðust hér
áður fyrr. Þegar blaðamaður nær í Einar
símleiðis situr hann sveittur við æfingar
norður í Hörgárdal, vopnaður keltneskri
hörpu.
„Hún er eitt af þessum gömlu hljóð-
færum sem hentar tónlistinni okkar
svo vel og ákaflega fallegur gripur þótt
hún sé ekki jafnstór og sinfónísk harpa,“
segir Einar um hörpuna góðu. Hann er
þó kominn utan sérsviðs síns, þar sem
hann er lærður blásari og spilar helst
á klarinett. „Þetta er glíma sem er ansi
skemmtileg. Strengjahljóðfæri eiga sér
alltaf stað í mínu hjarta, þar sem ég spil-
aði á fiðlu sem barn, svo nú er ég sestur
að slá á hjartans hörpustrengi.“
Aðspurður um hvert hópurinn sæki
lög sín segir Einar að af nógu sé að taka.
„Stóra verkefnið okkar eftir stofnun
hópsins árið 1992 var flutningur á öllum
Þorlákstíðum,“ segir hann. „Svo höfum
við sótt talsvert í Sturlungu og notað
efni þaðan. Við reynum að finna gömul
þjóðleg stef til að syngja við textana og
höfum mikið notað þjóðlagasafn séra
Bjarna Þorsteinssonar frá Siglufirði. Svo
er einn félaganna, Eggert Pálsson, magn-
aður með að draga upp úr hatti sínum
sterkar og sannfærandi laglínur! Vinnan
gengur svo mikið út á að vera skapandi
og aðlaga og bæta við eftir þörfum.“
Voces Thules standa svo frammi fyrir
tímamótum á næsta ári þegar hópurinn
fagnar þrjátíu ára starfsafmæli. „Við
munum halda veglega upp á það í apríl-
byrjun í Salnum í Kópavogi, með leik,
söng og jafnvel dansi,“ segir Einar. n
Slegið á hjartans hörpustrengi
Miðaldasönghópurinn Voces Thules fagnar þrjátíu ára afmæli á næsta ári. MYND/AÐSEND
Strengjahljóðfæri eiga sér
alltaf stað í mínu hjarta
þar sem ég spilaði á fiðlu
sem barn, svo nú er ég
sestur að slá á hjartans
hörpustrengi.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 15. júlí 2021 FIMMTUDAGUR