Fréttablaðið - 15.07.2021, Qupperneq 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ég hef ekki næga
innsýn í mannseðlið til
að átta mig á hvers
vegna ég er aðdáandi
sannra glæpasagna.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
hefur ekki slíka innsýn í
mannlegt eðli að hann geti
útskýrt áhuga sinn á sönnum
sakamálum, en hann hefur
loks látið eftir sér að safna
nokkrum slíkum saman á bók
þar sem líkið á hótelherbergi
348 ber einna hæst.
toti@frettabladid.is
Morð, fjárkúgun, mannrán, fjársvik
og hneyksli innan kaþólsku kirkj-
unnar, koma við sögu í bókinni Sönn
erlend sakamál – Líkið í herbergi 348
og fimm aðrar sögur.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson safn-
aði sögunum saman, drifinn áfram
af djúpstæðum áhuga á sönnum
sakamálum. Flestir glæpirnir í bók-
inni voru framdir í Bandaríkjunum,
þar sem Sigurgeir býr, en sum málin
rötuðu í fréttir á Íslandi á meðan
önnur voru leyst í kyrrþey.
„Löngunin til að taka saman og
gefa út sannar, erlendar glæpasögur
á Íslandi hefur lengi blundað í mér,“
segir Sigurgeir, sem hófst handa fyrir
nokkrum árum og fékk í framhald-
inu Jónas, bróður sinn og útgefanda
hjá Bókafélaginu, til liðs við sig.
„Fyrir nokkrum árum las ég
einkar áhugaverðar greinar um ráð-
gátur sem einkaspæjara tókst að
leysa á snjallan hátt. Ég skrifaði þær
upp á íslensku eftir lögmálum sem
ég tel miklu skipta í framsetningu á
slíkum sögum og sendi Jónasi með
þeim ummælum að við ættum ef
til vill að gefa út bók með sögum af
þessu tagi.“
Margbrotið, mannlegt eðli
Sigurgeir bætir við að bróðir hans
og aðrir sem lásu hafi hrifist af
sögunum. „Annir og annað slugs
kom þó í veg fyrir að nokkuð yrði
úr útgáfunni og það var ekki fyrr
en í byrjun þessa árs að við gáfum
okkur loks tíma til að koma þessu
á koppinn.“
Sigurgeir segist aðspurður ekki
kunna skýringar á því hvað það er
sem laðar hann að sögum af raun-
verulegum glæpum. „Ég hef ekki
næga innsýn í mannseðlið til að átta
mig á hvers vegna ég er aðdáandi
sannra glæpasagna.“ Hann viti þó
að slíkar sögur veiti innsýn í þætti
í fari fólks sem eru í senn framandi
og kunnuglegir.
„Framandi vegna þess að sögu-
hetjurnar taka upp á hlutum sem
eru svo furðulegir að undrun
vekur að nokkur skuli láta sér detta
slíkt í hug, hvað þá hrinda í fram-
kvæmd. Það sem gerir þetta kunn-
uglegt er að hvatirnar sem liggja að
baki eru að sumu leyti sammann-
legar og skiljanlegar,“ heldur Sigur-
geir áfram og nefnir til dæmis ást og
afbrýðisemi, ágirnd, ofbeldishneigð
og dramb.
Raunveruleikinn lýgur ekki
„Réttlætiskennd er enn fremur snar
þáttur í áhuga mínum á sönnum
glæpasögum. Glæpur, sem setur
samfélagið í uppnám, er framinn.
Lögreglan rannsakar málið og hefur
eftir ýmsar vendingar hendur í hári
vargsins. Réttlætið nær fram að
ganga.“
Sigurgeir nefnir í þessu sambandi
söguna Hlífiskjöldur kirkjunnar,
sem hverfist um kaþólskan prest og
fegurðardrottningu frá Texas. „Þessi
saga í bókinni er einmitt um þrauta-
göngu réttlætisins uns það nær loks
fram að ganga, áratugum eftir að
glæpurinn var framinn. Sannar
sögur eru stundum svo skringilegar
að ef glæpasagnaskáld nýttu slíka
atburðarás í verkum sínum yrði
hún dæmd ótrúverðug og langsótt.
En raunveruleikinn lýgur ekki.“
Sigurgeir segir aðspurður að ráð-
gátur séu eftirlæti hans, ekki síst ef
klókur einkaspæjari leysir þær með
eftirminnilegum hætti. „Tvær sögur
í bókinni eru um sama heillandi,
en þó óhef laða, einkaspæjarann:
Stúlkan sem hvarf af hótelinu og
Líkið í herbergi 348.
Hótelráðgátur
Síðarnefnda sagan er um mál þar
sem lík manns fannst á hótelher-
bergi án nokkurra ummerkja um
átök eða annað. Engu að síður leiddi
krufning í ljós að honum hefði verið
misþyrmt svo illilega að bani hlaust
af.“
Rannsókn málsins hefði ekkert
miðað áfram fyrr en ekkja hins
myrta hafði samband við einka-
spæjarann. „Þá fyrst fóru hjólin að
rúlla. Hin sagan er af sama meiði.
Ung kona finnst nær dauða en lífi í
vegarkanti eftir að hafa verið nauðg-
að og misþyrmt.
Spurningin var: Hvernig í ósköp-
unum endaði hún þarna í vegar-
kantinum? Fullkomnar öryggis-
myndavélar hótelsins sem hún bjó
á námu hana aldrei yfirgefa hótelið.
Málið vakti margar spurningar, ekki
síst þar sem minni fórnarlambsins
um hvað gerst hafði var brotakennt
í meira lagi.“
Draumur Ponzis
Sigurgeir segir ráðgátur, þar sem
glæpamaðurinn er nátengdur rann-
sókninni, einnig í miklu uppáhaldi
hjá sér. „Ein saga í bókinni er þess
eðlis, en ég ætla ekki að gefa upp
hvaða saga það er, vegna þess að ég
vil ekki skemma fyrir væntanlegum
lesendum.
Ævintýramennska er einnig
fremur heillandi, sérstaklega ef
hún fer langt út af sporinu. Sagan af
Charles Ponzi er þannig saga. Hann
er frægur að endemum fyrir svindl
sem gekk út á að lofa himinháum
vöxtum af fjárfestingum og borga
svo Pétri með fjárfestingu Páls og
svo framvegis uns í óefni var komið.
Charles Ponzi var í raun besta
skinn inn við beinið, en var drifinn
áfram af löngun til skapa sér og
eiginkonunni ríkidæmi og stytti
sér leið að því markmiði með fjár-
málavafstri sem var ekki svo galið
í upphafi.“ n
Sigurgeir rýnir í líkfundinn
á hótelherbergi númer 348
Sigurgeir Orri
með dóttur
sína, Freydísi
Heiði, í sólinni
á Laguna Beach
heima í Banda-
ríkjunum, þar
sem hann
verður seint
þjakaður af
skorti á sönnum
og hryllilegum
sakamálum.
MYND/AÐSEND
Frásögnin af líkinu í herbergi 348 er
ein sex sannra sakamála í bókinni.
MYND/BÓKAFÉLAGIÐ
STÆRRI
PIZZUR
LÆGRA
VERÐ
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
30 Lífið 15. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ