Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.12.1981, Blaðsíða 11
11
Starfshópur að fjalla um vandamálin.
eins og þær eru á hverjum tíma þegar
greiðsla fer fram. Þannig verður lífeyririnn
hlutfall af meðaltali dagvinnutekna við-
komandi á starfstímanum en gildir ekki
fyrir það starf, sem starfsmaðurinn gegndi
síðast.
Nú á að greiða 1,0% vegna 30 hagstæð-
ustu áranna fyrir sjóðfélagann en 0,9%
vegna þeirra ára sem umfram eru (enginn
hefur náð þessum rétti í dag, þar sem
SAL-sjóðirnir voru ekki stofnaðir fyrr en
1970).
Sjóðfélagar í SAL-sjóðunum greiða sín
4% þar til þeir fara á lífeyri en hætta ekki
greiðslu eftir 32 ár eins og í LSR-sjóðum.
Samanburður milli sjóðanna sýnir einnig
minni eftirlaunarétt hjá lífeyrissjóðum inn-
an ASÍ. Eftirfarandi tafla gefur til kynna
greiðslu og hámarksréttindi í þessum
tveimur sjóðum, miðað við 50 ára starf á
aldrinum frá tvítugu til sjötugs.
flytja tekjur milli tímabila á æfi sama ein-
staklings. Hver og einn þarf því að gera það
upp við sig, hvað hann vill. Vill hann hærra
kaup á starfstímanum eða aukinn lífeyri á
gamalsaldri. Hér þarf að vega og meta.
Aldurslækkun hœkkar
iðgjaldsþörfina
Þá ræddi Asmundur talsvert um ávöxtun
fjár lífeyrissjóðanna og um þau lífeyris-
sjóðaáform sem helst hafa verið á dagskrá,
þ.e.a.s. gegnumstreymissjóði eða uppsöfn-
unarsjóði. Taldi hann að miðað við ávöxt-
unarmöguleika þá, sem eru I dag og óbreytt
kostnaðariðgjöld hjá SAL-sjóðnum mætti
áætla 11% iðgjaldsþörf miðað við að lífeyr-
isréttur sé 70 ár. Verði hann hinsvegar
lækkaður niður í 67 ár þyrftu kostnaðarið-
gjöldin að hækka upp í 13% og upp í 14—
15% ef hann yrði lækkaður í 65 ár.
Starf 50 ár (20 ára til 70 ára)
Réttur:
Greiðsla í sjóðinn:
ASf
30 X 1,9 + 20X0,9 = 72%
50 ár X 0,1% = 5 árslaun
BSRB
32X2+ 13X 1 +5X2 = 87%
32 ár X 0,1%. = 3,2 árslaun
Að framansögðu er ljóst, að mikið mis-
rétti er á milli þessara tveggja kerfa bæði
hvað snertir tekjugrundvöll sjóðanna, rétt-
indamyndun og greiðslur sjóðfélaganna.
Ekkert er gamla fólkinu ofgott, en það má
ekki gleymast að það er vinnandi fólk sem
hlýtur að borga brúsann og vinnandi fólk
vill líka fá sitt. Raunar er rangt að tala hér
um tvo hópa, þá öldruðu og þá á starfsaldri.
Lífeyriskerfið er fyrst og fremst kerfi til að
Lífeyrir sá, sem fólk nýtur hjá almanna-
tryggingunum hefur hækkað mjög mikið
undanfarin ár og mun meira en kaupið.
Mikil umskipti urðu 1971 þegar tekjutrygg-
ingin var tekin upp en þá stóróx kaupmáttur
þeirra lágmarkstekna sem lífeyrisþegum er
tryggður. Af hálfu ASI hafa á undanförnum
árum verið knúðar fram yfirlýsingar um
meðferð greiðslna frá almannatryggingum
og megináhersla lögð á hækkun tekju-
tryggingar enda hefur kaupmáttur lág-
markstekna mjög aukist. Það er ASÍ-fólk,
sem einkurn nýtur tekjutryggingar þar sem
1 ífeyrissjóðir þess eru ungir.
f dag er grundvallarlífeyririnn frá al-
mannatryggingum sá sami til allra en síðan
koma viðbótargreiðslur, sem eru háðar
tekjum manna fyrr á árum frá hinum ýmsu
lífeyrissjóðum og loks bætist við tekju-
trygging frá almannatryggingum og lækkar
hún eftir því sem lífeyrissjóðagreiðslur eða
Ásmundur Stefánsson forseti ASI flytur
ræðu sína.
aðrar tekjur eru hærri. Þessa þrjá þætti þarf
að skoða í samhengi.
Nýjar hugmyndir um greiðslujöfnun
hjóna o. fi
f lok málsins setti Ásmundur fram hug-
myndir sínar um fyrirkomulag lífeyrismála.
Taldi hann að greiða ætti af öllum laun-
um, jafnt dagvinnu sem eftirvinnu og afla-
hlut sem bónus. Greiðslur hjóna eða fólks í
sambýli ætti að bókast til helminga á hvort
fyrir sig. Iðgjaldagreiðslur verði af allri
vinnu, en um endurgreiðslu til launamanna
væri að ræða eftir 75 ára aldur.
Við ákvörðun bótaréttar og iðgjalds verði
reynt að samtvinna eftirtalin markmið:
a) Ellilífeyrir greiðist frá 65 ára aldri. Því
marki verður hinsvegar ekki náð nema
á lengri tíma og 67 ár gæti verið áfangi.
b) Örorkulífeyrir greiðist með svipuðum
hætti og nú er í almennu sjóðunum. þ.e.
réttindi framreiknist miðað við áunninn
árafjölda til 70 ára aldurs.
c) Makalífeyrir verði þrengdur og breytt í
samræmi við bókun stiga á bæði hjón.
d) Barnalífeyrir færist alfarið yfir á al-
mannatryggingar.
e) Réttindi verði miðuð við iðgjald alfarið
og með tilteknu hámarki.
Framhald um lífeyrissjóði bls. 14
Lífeyrismál