Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.12.1981, Blaðsíða 20
2 0/ Félagafréttir
Starfsmannafélag
ríkisútvarpsms
Aðalfundur Starfsmannafélags Ríkisút-
varpsins var haldinn 19. nóvember s.l. Á
fundinum var kosin ný stjórn, hana skipa:
Dóra Ingvadóttir, formaður, Stefán Jón
Hafstein, varaformaður, Ævar Kjartansson,
ritari, Óskar Ingimarsson, gjaldkeri, Mar-
grét Guðmundsdóttir og Sigrún Sigurðar-
dóttir, varastjórn.
Lögð var fram skýrsla stjórnar. Þar kom
fram að aðalstörf félagsins á árinu voru í
sambandi við kjaramál og „Nordfag '81 “,
ráðstefnu norrænna útvarps- og sjónvarps-
starfsmanna, sem starfsmannafélög útvarps
og sjónvarps héldu á Laugarvatni. 27.—31.
ágúst s.l.
Mest af fundartímanum fór í lagabreyt-
ingar. Til helztu nýmæla í lögunum má
telja: að lausráðið starfsfólk hjá stofnuninni
getursótt um aukaaðild að félaginu. Einnig
er ný grein í lögunum um trúnaðarmanna-
ráð, sem hver deild er telur fimm eða fleiri
starfsmenn skal tilnefna einn fulltrúa í og
annan til vara.
Fjórar ályktanir voru samþykktar. Tvær
voru til menntamálaráðherra, þar sem farið
var þess á leit að: a) félagið fengi fulltrúa í
nefnd þá er vinnur að endurskoðun út-
varpslaga, b) ef áfram verði útvarpsráð yfir
stofnuninni með svipuðum hætti og nú er,
fái starfsmenn fulltrúa í ráðinu.
Aðrar tvær voru sendar útvarpsstjóra
þess efnis, að teknar verði upp viðræður: a)
um möguleika á því, að starfsmenn fái, á
kostnað útvarpsins, að sækja námskeið á
sínu sérsviði innan lands eða utan, sem
koma mættu viðkomandi starfsmönnum að
notum í starfi og um leið stofnuninni, b) um
möguleika á því að formaður félagsins, eða
annar sem til þess yrði kjörinn, fái að sinna
málefnum félagsins ákveðinn tíma í viku
hverri í vinnutíma og að útvarpið láti hon-
um í té starfsaðstöðu.
Starfsmannafélag
ríkisstofnana
Með lækkandi sól, vaknar það líf sem að
meira eða minna leyti hefur blundað sum-
armánuðina. Ekki svo að skilja að um ein-
hver mykraverk sé að ræða, sem ekki þoli
dagsbirtu, heldur liggur í hlutarins eðli að
hið skamma sumar okkar er svo krefjandi,
að því verður ekki sinnt af neinum hálf-
kæringi.
Trúnaðarmannakosningar
Lokið er kosningu trúnaðarmanna fyrir
félagið og eru skráðir 217 aðaltrúnaðar-
menn og 172 til vara. Mikill meirihluti
trúnaðarmanna eru kosnir eða tilnefndir af
. starfsfélögum sínum, en í stöku tilfellum
hefur félagsstjórn orðið að skipa. Á einstaka
vinnustað eru færri en fimnt, og er brugðið
til þess ráðs að setja umboðsmann skv.
heimild. Á hann sæti í trúnaðarmannaráði
og gegnir að mestu hlutverki trúnaðar-
manns.
Trúnaðarmenn félagsins hafa löngum
sannað gildi sitt sem meðalgöngumenn fyrir
starfsfélaga sína, stjórnendur og stéttarfé-
lagið. Umræður um stöðu þeirra og réttindi
heyra því að mestu sögunni til. Þó eru það
stöku ákvæði er virðast vefjast fyrir stjórn-
endum, hvort og þá hvernig þeir eigi að
Námskeið trúnaðarmanna SFR.
skilja viðkomandi ákv. laga er skilgreina
rétt trúnaðarmannsins.
Dæmigert ákvæði að þessu leyti er virðist
fara fyrir brjóstið á einstaka stjórnenda er
44. gr. laga nr. 29/1976 um réttindi trúnað-
armanns. Það er svohljóðandi:
„44. gr. Gefa skal trúnaðarmanni upp-
lýsingar um, ef staða losnar á vinnustað
hans eða í ráði er að bæta við starfsmanni.
Jafnframt skal láta honum í té upplýsingar
um ráðningarkjör og um það hverjir sækja
um starfann".
Viðurlög við broti á þessum lögum eru
áréttuð í 45. gr. sama kafla laganna er segir:
„Brot á lögum þessum varða stöðumissi,
sektum eða varðhaldi". Stutt en skorinort.
Forstöðumönnum er á hverju hausti til-
kynnt um val trúnaðarmannafélagsins með
bréfi.
Að gefnu tilefni hefur félagið ítrekað
vakið athygli forráðamanna á áðurgreind-
um ákvæðum. Satt best að segja, án merkj-
anlegs árangurs. Hlýtur því að vakna
spurning um tilganginn með setningu slíkra
ákvæða, er ræðst síðan af geðþótta hvort
farið er eftir eður ei.
Boðunarkerfi fyrir trúnaðarmannaráð
félagsins hefur að venju verið endurnýjað
og sent trúnaðarmönnum. Með því er á ör-
skotsstund hægt að kalla saman til fundar
alla trúnaðarmenn, ef svo ber undir.
Vinnustaðafundir
Trúnaðarmannaráð hefur haldið tvo
fundi á sl. hausti auk funda launamálaráðs.
Á þess vegum og stjórnar SFR voru haldnir
32 vinnustaðafundir hér á Reykjavíkur-
svæðinu, dagana 26. okt.—2. nóv. til kynn-
ingar á samþykkt formannaráðstefnu BSRB
og skoðanakönnun samninganefndar
bandalagsins. Þátttaka félagsmanna var
mjög góð og tóku þátt í henni u.þ.b. 1000
manns, auk þeirra er mættu á fundum
bandalagsins, er haldnir voru úti á lands-
byggðinni.
Leikhúsferðir
Að venju hefur félagið gengist fyrir leik-
húsferðum. Hefur áhugi virst heldur 1
dræmara lagi, hvað sem veldur. Aðeins
hefur verið boðið til einnar sýningar „Hótel
Paradís“ eftir Georges Friday, er Þjóðleik-
húsið bauð til.
Námskeið
Dagana 11.—13. nóv. var haldið þriggja
daga námskeið á vegum félagsins fyrir
trúnaðarmenn. Er það lengsta og jafnframt
ítarlegasta námskeið er félagið hefur haldið.
Voru fengnir til þess fjórtán fyrirlesarar, er
gerst þekktu til viðkomandi efnis, til að
miðla trúnaðarmönnum af þekkingu sinni
og reynslu.
Flutt voru erindi um: Heildarsamtökin
BSRB—ASÍ. Erindi um almennan vinnu-
markað og vinnumarkað hins opinbera. —
Fræðslustarf BSRB. — Hlutverk trúnaðar-
mannsins. — Aðalkjarasamning BSRB. —
Sérkjarasamningsgerð og störf samstarfs-
nefndar SFR. — Samningsrétt opinberra
starfsmanna. — Réttindi og skyldur ríkis-
starfsmanna, almenn hegningarlög, áfeng-
islög, veikindaréttindi, fæðingarorlof. —
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, lög nr.
29/1963. — Starfsemi lífeyrissjóðsins. —
Vinnueftirlit ríkisins og lög um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. —