Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.12.1981, Blaðsíða 24
©
1981
BANDALAG STARFSMANNA RÍKIS OG BÆJA
Útí>efandi: Bandalag starfsmanna ríkis og bæja • Rit-
stjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Steinþórsson 0 Rit-
nefnd: Jón ívarsson, Óli Vestmann Einarsson. Helga
Ólafsdóttir og Þorsteinn Óskarsson 0 Ritstjórnarfull-
trúi og blaðamaður: Guðni Björn Kjærbo • Ritstjórn,
afgreiðsla og tilkynning heimilisfangabreylinga: Skrif-
stofa BSRB, Grettisgötu 89— 105 Reykjavík. Sími 26688
• Prentun og bókband: Prentstofa G. Benediktssonar,
Bolholti 6 • Innpökkun: Plastpökkun s.f. 0 Eintaka-
fjöldi: 18000 0 Blaðið er sent öllum félagsmönnum innan
BSRB og eftirlaunafólki er þess óskar 0 Áskriftargjald til
annarra: Árgjald (1981) 75 kr. 0 Hvert blað (1981) 12 kr.
Baksíðan
Ávöxtun lífeyrissjóða
Starf lífeyrissjóða byggist á
greiðslu iðgjalda frá starfsmönnum
og vinnuveitendum þeirra. Sjóði sem
þannig myndast til að standa undir
eftirlaunagreiðslum og öðrum trygg-
ingabótum þarf að ávaxta.
Ávöxtun fjármuna lífeyrissjóðanna
er í stórum dráttum þannig nú, að
60% af ráðstöfunarfé til útlána er lán-
að starfsmönnum, sem iðgjöld greiða,
til íbúðabygginga. Fyrir 40% af ráð-
stöfunarfé til útlána eru síðan keypt
verðtryggð ríkisskuldabréf. Þessi
kaup á ríkisskuldabréfum eru sam-
kvæmt lögum.
Kaupa ekki allir ríkis-
skuldabréf
Lögin um kaupskyldu lífeyrissjóða
á ríkisskuldabréfum ná til allra líf-
eyrissjóða í landinu.
í framkvæmd hefur þetta þó orðið
þannig, að sumir lífeyrissjóðirnir fara
alveg eftir lögunum og kaupa ríkis-
skuldabréf fyrir 40% af ráðstöfunarfé
sínu eða því sem næst. Aðrir lífeyris-
sjóðir hafa ekki farið eftir landslögum
að þessu leyti. Þannig hafa sumir
engin ríkisskuldabréf keypt og margir
aðeins hluta af því sem lögin ákveða.
í hvað fara ríkislánin?
Því fé sem ríkið tekur að láni hjá
lífeyrissjóðunum er varið til útlána
vegna íbúðabygginga og til lána
vegna uppbyggingar atvinnuvega
landsmanna.
Það er því síður en svo neitt at-
hugavert við þessi bréfakaup. Jafn-
framt verður þó að leggja áherslu á þá
stefnu, sem B.S.R.B. hefur haft, að
eðlilegt og sjálfsagt sé að útlánafé líf-
eyrissjóðanna gangi til íbúðabygg-
inga. Með þeim hætti skapar lánsféð
einnig atvinnu fyrir landsmenn.
Ekki hækkun kaup-
skyldu ríkisskuldabréfa
Opinberir starfsmenn hafa sætt sig
við skyldu lífeyrissjóða sinna til kaupa
á ríkisskuldabréfum, 40% af ráðstöf-
unarfé til útlána. En það eru takmörk
fyrir því hvað hækka má þessa kaup-
skyldu.
Hér skal alvarlega varað við að
hækka hana meira en orðið er.
íbúðarbyggingar
og íbúðarlán
Þjóðinni er það höfuðnauðsyn að
nægilegt íbúðarhúsnæði sé jafnan til
fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Húsnæðismálin á tvímælalaust og í
auknum mæli að leysa á félagslegum
grundvelli. Fyrir fjöldann allan af fólki
er það hreinlega eina leiðin til að
komast yfir íbúð.
Jafnframt verður að tryggja lánsfé
fyrir þá sem reisa íbúðarhúsnæði á
eigin vegum.
Hugmyndir um
hækkun kaupskyldu
Stjórnvöld hafa kynnt lífeyrissjóð-
unum hugmyndir sínar um hækkun á
kauþskyldu sjóðanna á ríkisskulda-
bréfum úr 40% í 45% af ráðstöfunarfé.
Slík hækkun á kaupskyldunni
mundi minnka möguleika á hækkun
lána til starfsmanna. Því er þeim hug-
myndum eindregið andmælt.
Á meðan sumir lífeyrissjóðir koma
sér hjá að hlíta lögunum, væri rangt af
stjórnvöldum að refsa þeim sjóðum,
sem fylgt hafa lagaákvæðum og keypt
ríkisskuldabréf að sínum hluta.
Hér skulu stjórnvöld alvarlega vör-
uð við að ganga lengra í lagasetningu
um kaupskyldu lífeyrissjóðanna en
þegar er orðið.
Kristján Thorlacius