Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.12.1981, Blaðsíða 12
Verndaðir vinnustaðir
Fjallað hefur verið um ýmsa hópa fatl-
aðra i Ásgarði á þessu ári. Nú er ætlunin að
reyna að gera grein fyrir atvinnumöguleik-
um nokkurra hópa.
*
Sumir af þeim sem hér um ræðir hafa
misst starfsgetuna á fullorðinsárum, en
flestir hafa verið fatlaðir frá barnsaldri.
Samkvæmt lögum eiga allir fatlaðir eins
og aðrir landsmenn kost á skólavist á
grunnskólastigi, en þegar því skólastigi lýk-
ur tekur óvissan við hjá mörgum. Örfáir
hafa aðstöðu til að stunda framhaldsnám
við skóla landsins, aðrir fá einhverskonar
verkþjálfun við sitt hæfi. flestir standa þó 17
ára andspænis heimi hinna fullorðnu með
skerta starfsgetu.
*
íslenskur vinnumarkaður verður að telj-
ast þessu fólki andsnúinn. Fæstar byggingar
eru hannaðar með tilliti til þess að fatlaðir
venji þangað komur sínar, og í umferðarT
málum er allt of lítið gert til þess að auð-
velda t.d. hreyfihömluðum og sjónskertum
að komast leiðar sinnar. Afskaplega lítill
skilningur ríkir meðal atvinnurekenda og
fólks almennt á því, að með tilhliðrun og
velvilja á vinnustað megi opna fólki leið til
margvíslegra starfa. því sjálfu til lífsfylling-
ar og þjóðfélaginu til gagns. Samtök fatl-
aðra hafa í nokkrum tilvikum mætt vanda-
málum félaga sinna með stofnun verndaðra
vinnustaða.
*
Grundvallarhugmyndin með vernduðum
vinnustað er að brúa bilið fyrir þá öryrkja
sem eru með það skerta starfsgetu, að þeir
geta ekki verið úti á vinnumarkaðnum. Til-
gangurinn er að gera þá helst hæfa til þess
með þjálfun í störfum við sitt hæfi. Marga
verndaða vinnustaði er ógerningur að reka
með hagnaði, ef þarfir einstaklingsins eiga
að vera í fyrirrúmi. Nýtt stjórnarfrumvarp
til laga um málefni fatlaðra er nú á döfinni.
I því er gert ráð fyrir að fjármálaráðuneytið
greiði hallann á rekstri þessara vinnustaða.
*
Enda þótt hér hafi aðeins verið fjallað um
lítinn hóp fatlaðra á vernduðum vinnu-
Réttur fatlaðra til vi
Plastiðjan Bjarg á Akureyri ■ Blindravinnustofan
Ásgarður hafði samband í síma við Friðgeir Guðmunds-
son, framkvæmdastjóra Plastiðjunnar Bjargs, sem Sjálfs-
björg, félag fatlaðra á Akureyri rekur í nýju og rúmgóðu
húsnæði að Bugðusíðu 1. Endurhæfingarstöð fatlaðra er í
sama húsi og að lokinni meðferð þar kemur fólk til starfa í
Plastiðjunni.
Verksmiðjan sem hefur starfað í 13 ár framleiðir raf-
magnsvörur úr plasti fyrir raflagnir, Ijósaskilti o.fl. Hér starfa
18 manns, aðsóknin er gífurleg og húsnæðið gæti tekið
30—40 í vinnu.
Friðgeir vill, að fólk sé í verkalýðsfélagi. Ef opinber
starfsmaður fer í vinnu hér fer hann í Félag verksmiðjufólks,
sagði Friðgeir.
Rekstrargrundvöllurinn er ekki í nægilega góðu lagi, segir
Friðgeir. Atvinnuleysistryggingarsjóður og Lífeyrisdeild
Tryggingarstofnunar ríkisins greiöa tvo þriðju hluta af halla
fyrirtækisins. Akureyrarbær hefur hlaupið undir bagga með
verksmiðjunni með ríflegum fjárframlögum og á þessu ári
hefur bærinn staðið undir 25% launagreiðslna til öryrkja.
Laun eru eftir Iðjutaxta og starfsfólk nýtur allra réttinda.
Friðgeir telur hagstæðara að fá greiddan hluta launa-
greiðslna heldur en hallann af rekstrinum. Ef ríkissjóður
greiddi 25% launanna og verkalýðsfélögin 10% úr sínum
Reksturirm ekkert einkamál
öryrkjafélaga
% Tengsl við verkalýðsfélagið haldist
% Rekstrargrundvöll þarf að tryggja
0 Greiðið launahlutfall, en ekki hallann
sjóðum, þá væri afkoma okkur önnur í dag, sagði Friðgeir.
Friðgeir sagði að lítið væri um það að starfsfólkið hyrfi aftur
út á vinnumarkaðinn. Til þess að svo geti orðið verða
vinnustaðirnir að koma til móts við okkur, og svo vantar öll
tengsl við ykkur (verkalýðshreyfinguna). Hringnum er ekki
lokað fyrr en þeir sem óska þess eru komnir aftur í svipuð
störf svo framarlega sem heilsan leyfir.
Rekstur verndaðra vinnustaða er ekkert einkamál ör-
yrkjafélaganna.
er til húsa í stórhýsi Blindraf*
sjónskertra á fslandi að Hamri
félaginu skrúðgarð við húsið,
fyrir komið að sjónskertir eiga I
gangbrautum í næsta nágren
greiðir það aðgang sjónskertr;
fyrir Óskar Guðnason, frkstj. E
Stórhýsi í smíði
breyttari þjálfui
• Umhverfið miðað
% Burstagerðin hefu
• Rekið með hagnaí
Á Blindravinnustofunni vinr
Vinnustofan vélvæddist fyrir 1
einvörðungu handídregnir. í
stofunnar er nú von á nýjum v<
Ásamt burstagerð hefur vinr
innflutning á skyldum vörutf
klemmur o.fl.) og selur ásamt i
Óskar Guðnason taldi afkor
þiggur enga styrki, og síðust
verið rekið með hagnaði. Sta
taxta verkalýðsfélaganna og 1
vinnumarkaði. Óskar taldi me
að reka vinnustað sem stendu
Nú er hafin smíði á 700 m2 b
stórhýsisins að Hamrahlíð 17-
við það opnuðust fleiri atvinm
skerta þannig að fólk gæti átt
Að svo stöddu óskar hann e
opinbera. Óbein aðstoð við fy1
aftur á móti verið fólgin í því
við önnur, t.d. innflutningi á fr
Markmið Blindravinnustofut
aður vinnustaður með afmörk
skerta undir störf á almennum