Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.12.1981, Síða 13
13
%
nnu
^algsins, samtaka blindra og
shlíð 17. Reykjavíkurborg gaf
hann er fallegur og þannig
aar greiðan aðgang að. Ljós á
ni gefa frá sér hljóðmerki, og
3 að Hamrahlíð 17. Við hittum
!|indrafélagsins.
um skapar fjöl-
i
Við blinda
rbreyst
íi
Ía 20 man^^víTTu^tage^
? árum, en áður voru burstar
jiiefni 40 ára afmælis vinnu-
i'lakosti.
nustofan með höndum ýmsan
59undum (kústsköft, þvotta-
eigin framleiðslu.
■auna þolanlega. Vinnustofan
u 6—7 árin hefur fyrirtækið
rfsmenn fá greitt eftir launa-
nafa sömu réttindi og aðrir á
iri ánægju íþví fyrir alla aðila
r undir eigin rekstri.
y9gingu ofan á aðalbyggingu
Öskar gerði sér vonir um að
Jtaskifaeri fyrir blinda og sjón-
kost á fjölbreyttari þjálfun.
eftir fjárframlögum frá því
rirtæki sem öryrkjar reka gæti
> vernda þau gegn samkeppni
aaileiðsluvörunni.
1nar er fremur aö vera vernd-
uöu verksviði en að þúa sjón-
vinnumarkaði.
Ás — vinnustofa Styrktarfélags vangefinjia
í Reykjavík____________________________° ,
Niðri í kvosinni við Stjörnugróf getur að líta tvær myndar-
legar og bjartar byggingar, þar sem næsta umhverfi er
ósnortin náttúra. Hér eru Bjarkarás og Lækjarás byggð fyrir
framtak Styrktarfélags vangefinna, og með drjúgri aðstoð
opinberra sjóða. Hið fyrra 10 ára og þar fer fram verkþjálfun
fyrir vangefna einstaklinga 16 ára og eldri.
Við ætlum að heimsækja Lækjarás í bráðabirgðahúsnæði
í sþlunkunýrri og fallegri byggingu. Við tökum tali Hafliða
Hjartarson;.frkstj. vinnustofunnar.
12 einstaklingar starfa nú að Ási, sem er til húsa í einni
álmu Lækjaráss. Ás hóf starfsemi 23. okt. sl. Til áramóta er
reynslutími vinnustofunnar, en síðan er ætlunin að reka
staðinn eins og fyrirtæki með ríkisstyrk. Þá fær starfsfólk
laun sem miðast viö afköst undangenginna þriggja mánaða.
Stefnt er að því að öllu sem inn kemur fyrir selda vöru að
frádregnum hráefniskostnaði verði varið til launagreiðslna
og allir beri jafnt úr býtum.
Hafliði sagði að vegna aðstoðuleysis ynnu allir við smð-
ingar, saumaskap og frágang á klútum, en stefnt væri að því
að Ás yrði 25—30 manna vinnustaður með margþreytileg
verkefni á sínum snærum.
Vinnutíminn er frá 9 til 5 en getur verið breytilegur fyrir
hvern og einn, því að innan vinnutímans er starfsfólki gefinn
Aðlögun þarfað taka
með hægð
# Framtak styrktarfélags með opinberri
aðstoð
# Starf og nám hlið við hlið
# Sambýlin eru góð lausn
kostur á námskeiðum í líkamsrækt, heimilisfræðum og
samfélagsfræði á staðnum. Eftir vinnutíma er hægt að velja
um fleiri námsgreinar í fullorðinsfræðslu.
í Ási er stefnt að því að koma fólki út á vinnumarkaðinn.
Nokkrir hafa farið út á almennan vinnumarkað á okkar veg-
um, og þeim hefur vegnað uþp og ofan. Félagslegi þátturinn
er erfiðastur og mikil viðbrigði fyrir fólk, ef það einangrast á
nýja vinnustaðnum, og ráði það illa við starfið hlýtur það
ekki sömu verndun og hér. Þessa aðlögun þarf að taka með
hægð. Styrktarfélag vangefinna rekur tvö sambýli, á hvoru
um sig búa 7—10 konur og karlar undir forsjá einnar konu.
Sambýlin hafa tekist með ágætum.
stöðum liggur það líklega ljóst fyrir að að-
eins örfáir fara út á almennan vinnumarkað
að loknum störfum á vernduðum vinnu-
stöðum.
*
í atvinnulífinu eru fatlaðir eins og gestir
sem koma og fara. Þeir eiga ekki heima í
umhverfinu bæði vegna þess að ekki eru
gerðar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að
starfskraftar þeirra geti notið sín og vegna
þess að vinnufélagarnir vita ekki hvernig á
að koma fram við fatlaða, forðast þá
kannske.
*
Ýrnsir segja að þjóðfélag okkar sé fyrir
alla. En það er þó ótrúlega mikill fjöldi
manna, sem það er ekki sniðið fyrir. Sumir
eru niðurbrotnir á miðjum aldri vegna of
mikils vinnuálags, aðrir fá aldrei að reyna
starfskrafta sína vegna þess að hjól at-
vinnulífsins snýst ekki með sama hraða og
þeirra hjól.
*
Fram hefur komið hjá þeim sem rætt var
við hér að framan, að mikil orka fer í það
eitt að halda vinnustofunum gangandi og
því ekki tími eða ráðrúm til að leita uppi
nógu hentuga vinnustaði fyrir starfsmenn.
Kannske gætu öryrkjafélögin starfrækt
sameiginlega vinnumiðlunarskrifstofu fyrir
félaga sína. Hún hefði ekki aðeins það
hlutverk að finna vinnustaði þar sem vilji er
fyrir að ráða fatlaðan til starfa og að ganga
úr skugga um að vinnuaðstöðunni sé breytt
í þágu hins fatlaða heldur einnig að fylgjast
með honum fyrst í stað ekki síst hvernig
honum reiðir af félagslega á nýjum vinnu-
stað. Hó
• Á vernduðum vinnustað á að vera vinnu-
aðstaða fyrir fólk með skerta starfsgetu,
verkefni og vinnutími þar verða að vera
sniðin við þarfir þess og getu.
• Markmið verndaðrar vinnustofu er að
viðhalda starfshæfni einstaklingsins eða
auka hana. helst það mikið að hann verði
fær um að fara út á almennan vinnu-
markað.
• Fyrir öryrkjann gæti þetta stuðlað að
meira sjálfsöryggi, betri fjárhag og þá
um leið aukinni lifshamingju.