Morgunblaðið - 01.04.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Sérhæfð þjónusta fyrir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Þjónustuaðilar IB Selfossi
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Pétur Pétursson og áhöfn hans á Bárði SH-81
halda áfram að mokfiska í netin. Í gær lönduðu
þeir tvívegis, alls um 60 tonnum, sem fengust um
hálftíma frá bryggjunni á Rifi. Þeim var vel
fagnað með páskaeggjum er þeir komu að landi
síðdegis, eins og sjá má á myndinni. Yngsti Pétur
Pétursson er á milli pabba síns og afa.
Í mars kom Bárður með um 1.150 tonn af
óslægðu að landi og frá áramótum er aflinn um
2.250 tonn, 99% þorskur. Í mars í fyrra var aflinn
tæp 1.100 tonn og á vertíðinni í fyrravetur, frá
áramótum til 11. maí, var aflinn alls 2.311 tonn.
Líklegt er að það met verði slegið fyrr en síðar.
Bárður SH-81 kom nýr til landsins frá Dan-
mörku í lok árs 2019 og er 23,6 metra plastbátur.
Pétur skipstjóri sagði í samtali í gær að mars
hefði verið einstakur, yfirleitt gott tíðarfar og
góður afli. „Það hefur verið meiri þorskur hér
fyrir utan heldur en ég man eftir áður, enda höf-
um við verndað þorskinn í mörg ár og byggt upp
risastóran stofn. Hér hefur verið rosaleg fisk-
gengd og við erum með meiri afla en í fyrra þó
svo að við séum með færri net og stærri riðil.
Mikið hefur verið af loðnu í fiskinum og hann oft
verið úttroðinn. Hrygningarloðna hefur meira
að segja verið að koma inn á svæðið síðustu
daga, sennilega einhverjar restar af göngun-
um,“ sagði Pétur, en sonur hans og nafni hefur
verið skipstjóri á móti honum.
Pétur eldri sagði að fram undan væri kær-
komið páskafrí. „Þetta er hörkuvinna, en það er
gaman þegar vel gengur,“ sagði skipstjórinn.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
„Hörkuvinna en gaman þegar vel gengur“
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra telur ekki að embættismenn,
hvorki landlæknir né sóttvarna-
læknir, hafi verið að grafa undan
ákvörðunum stjórnvalda með um-
mælum sínum í fjölmiðlum undan-
farið, eins og Jóhannes Þór Skúla-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, gaf til kynna í
viðtali í fyrradag. Jóhannes Þór hélt
þessu fram vegna þeirra efasemda
sem landlæknir og sóttvarnalæknir
hafa lýst um að taka upp litakóð-
unarkerfi á landamærunum 1. maí,
eins og ríkisstjórnin hefur boðað.
„Embættismenn mega segja sína
skoðun, það er bara þannig sam-
félag sem við búum í. Ég lít ekki á
það sem neina árás á mig eða mína
ríkisstjórn,“ segir Katrín. Hún segir
að þar með sé ekki grafið undan
ákvörðunum stjórnvalda. „Ég er
bara svo ánægð með að búa í landi
þar sem fólk bara tjáir sínar skoð-
anir hvort sem það heitir Jóhannes
Þór eða Þórólfur Guðnason. Ég er
bara mjög ánægð með þá báða og
finnst þeir báðir góðir í sínum hlut-
verkum,“ segir Katrín. Þórólfur hef-
ur sagst telja ótímabært að boða að-
gerðir nú sem eiga að taka gildi 1.
maí. Sóttvarnalæknir vísaði því þó
til föðurhúsanna í beinni útsendingu
í gær að með því að tjá þá skoðun
væri hann að grafa undan ákvörð-
unum stjórnvalda.
Ríkisstjórnin ber ábyrgð
Katrín ítrekaði í viðtali við mbl.is
í gær að ríkisstjórnin bæri ábyrgð
á sóttvarnaaðgerðum hér á landi,
en Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir ferðamálaráðherra
gagnrýndi í viðtali fyrr í vikunni að
„svolítill snúningur“ hefði verið
tekinn frá einni stefnu í aðra. Katr-
ín var ósammála því og sagði stefnu
ríkisstjórnarinnar hafa verið þá
sömu frá upphafi. Enginn hafi
nokkru sinni lofað veirufríu landi.
„Ég hef litið svo á að ríkisstjórnin
sé samstíga og beri ábyrgð á þess-
um ráðstöfunum,“ sagði forsætis-
ráðherra.
Engin árás á stjórnmálamenn
- Katrín ánægð með bæði Jóhannes Þór og Þórólf Guðnason - Embættismenn
mega segja sína skoðun - Ósammála ferðamálaráðherra um stefnubreytingu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sóttvarnir Sífellt harðar er deilt
um ákvarðanir ríkisstjórnarinnar.
Beinni útsendingu morgunþáttar
K100, Ísland vaknar, frá eldgosinu í
Geldingadölum var vel tekið í gær-
morgun. Jón Axel, Kristín Sif og Ás-
geir Páll voru í loftinu frá kl. 7 til 9,
bæði í hljóð og mynd, með glóandi
hraunið og gígana í bakgrunni.
Þetta mun hafa verið í fyrsta sinn
hér á landi, og þótt víðar væri leitað,
sem heill útvarpsþáttur er sendur út
í beinni frá gosstöðvum.
Á meðan þátturinn var í loftinu
eldaði Völundur Snær morgunverð
ofan í mannskapinn og Ellý Ár-
manns málaði á striga myndir af
gosinu fyrir framan hana. Mynd-
irnar seldi hún svo til stuðnings
björgunarsveitunum.
Bein útsending frá gosinu
- Morgunþáttur
K100 sló í gegn í
gærmorgun
Morgunblaðið/Eggert
Gosstöðvar Jón Axel, Kristín Sif og Ásgeir Páll í beinni frá Geldingadölum
í gær. Á meðan eldaði Völundur Snær og Ellý Ármanns málaði eldgosið.
Félag framhaldsskólakennara
(FF) og Félag stjórnenda í fram-
haldsskólum skrifuðu í gær undir
samkomulag við ríkið um breyt-
ingar og framlengingu á kjara-
samningi.
Skrifað var undir samkomu-
lagið í húsnæði ríkissáttasemjara
með fyrirvara um samþykki fé-
lagsmanna FF og FS.
Fyrirkomulag kynninga og at-
kvæðagreiðslu verður kynnt fé-
lagsmönnum strax eftir páska.
Gildistími nýja samningsins er frá
1. janúar 2021 til 31. mars 2023.
Samið við fram-
haldsskólakennara
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 3. apríl. Frétta-
þjónusta verður um páskana á
mbl.is. Hægt er að koma
ábendingum um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Áskrifendaþjónusta er opin
í dag, skírdag, kl. 8-12. Lokað
verður föstudaginn langa en
opið á laugardag kl. 8-12. Net-
fang áskriftardeildar er
askrift@mbl.is. Auglýs-
ingadeildin er lokuð en net-
fang hennar er augl@mbl.is.
Hægt er að bóka dán-
artilkynningar á mbl.is. Síð-
ustu skil minningargreina til
birtingar 6. og 7. apríl eru kl.
12 á páskadag.
Fréttaþjónusta
mbl.is um páskana
Kristján Þór Júlíusson, landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðherra,
hefur skipað Þorstein Sigurðsson
í embætti forstjóra Hafrann-
sóknastofnunar til næstu fimm
ára.
Sigurður Guðjónsson, sem hef-
ur gegnt stöðu forstjóra und-
anfarin fimm ár, sóttist eftir því
að halda áfram en fékk ekki stöð-
una að nýju.
Starfið var auglýst og skiluðu
sex inn umsókn áður en frestur
rann út 19. janúar. Skipuð var
nefnd til að meta hæfni umsækj-
enda og að þeirri vinnu lokinni
boðaði ráðherra þá þrjá sem
metnir voru hæfastir í viðtal.
„Var það mat ráðherra, að Þor-
steinn væri hæfastur umsækjenda
til að stýra Hafrannsóknastofnun
til næstu fimm ára,“ segir í til-
kynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þorsteinn Sigurðs-
son ráðinn forstjóri