Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Í samtali við vin minn sem lærði
orkuverkfræði eins og ég, áttuðum
við okkur á því að það var lítil sem
engin samkeppni á raforkumarkaði
fyrir heimilin. Við þurftum ekki að
skoða þetta lengi til að sjá að þarna
var mikið tækifæri.“ Þetta segir
Símon Einarsson orkuverkfræð-
ingur en hann stofnaði fyrr á árinu, í
félagi við Alexander Moses verk-
fræðing og systkini sín, Ólöfu Emblu
Einarsdóttur lögfræðing og Gunnar
Einarsson tölvunarfræðing, orku-
sölufyrirtækið Straumlind. Það sér-
hæfir sig í smásölu á rafmagni.
„Við komum inn á markaðinn og
buðum 6,98 kr. á kWst. sem var 14%
lægra verð en hjá ON og HS Orku.
Það var líka 2,4% lægra en hjá Ís-
lenskri orkumiðlun (ÍOM) sem er í
eigu N1 en þeir höfðu boðið lægsta
verðið á markaðnum fram að þessu.“
Segir Símon að í kjölfarið hafi haf-
ist eins konar verðstríð milli
Straumlindar og ÍOM.
„Sama dag og við hófum starfsemi
lækkaði ÍOM úr 8,15 kr. á kWst í 6,9
kr. Við lækkuðum þá í 6,88 kr. og
næsta dag lækkaði ÍOM niður fyrir
okkur í 6,8 kr. Við svöruðum innan
dagsins og lækkuðum í 6,78 kr. og
ÍOM lækkaði þá enn á ný í 6,7 kr.“
Nú hefur Straumlind stigið enn
eitt skrefið til lækkunar og er verðið
nú það lægsta á markaðnum eða 6,68
kr. á hverja kWst. Það er 17,5%
lægra en hjá HS Orku og ON sem
hafa hvorki hreyft legg né lið þrátt
fyrir lækkunarhrinuna hjá ÍOM og
Straumlind.
„Það er mjög skrítið að þeir lækki
ekkert verðið. Þeir gerðu það reynd-
ar heldur ekki í desember þegar
heldsöluverð á markaðnum lækkaði.
Það sýnir að það hefur ekki verið
nein samkeppni á markaðnum.“
Símon segir mikilvægt að hrista
upp í markaðnum og taka þurfi
kyrrstöðuna á honum til skoðunar.
„Við beindum þann 4. mars síðast-
liðinn erindi til Samkeppniseftirlits-
ins og fórum fram á að kannað yrði
hvort háttsemi ÍOM sé til þess fallin
að hindra virka samkeppni í við-
skiptum, takmarka aðgang nýs sam-
keppnisaðila að markaðnum eða
hindra heilbrigt samkeppn-
isumhverfi til hagsbóta fyrir neyt-
endur,“ segir Símon. Hann bendir á
að heimilin í landinu geti sparað sér
talsverða fjármuni með því að beina
viðskiptum til þeirra raforkusölufyr-
irtækja sem bjóða besta verðið. Mun
auðveldara sé að skipta um þjón-
ustufyrirtæki í þeim efnum.
„Þetta er allt sama varan, ná-
kvæmlega sama raforkan sem er
framleidd með sjálfbærum hætti.
Eini munurinn er verðið.“
Samkeppni á smásölumarkaði
Meðalraforkukostnaður (kr.)*
Heimild: Aurbjörg.is
Straumlind Íslensk
orkumiðlun
Orkubú
Vestfjarða
Orka
heimilanna
Orkusalan Fallorka Orka
náttúrunnar
HS Orka
2.783 2.792
3.125 3.155
3.367 3.367 3.375 3.379
*M.v. 5.000 kWst á ári (meðal-
heimili) auk annars kostnaðar
(seðil- og tilkynningargjöld)
Boða verðstríð á
raforkumarkaði
- Straumlind býður rafmagn í smásölu
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert
samkomulag við Fjarðabyggð og
Vestmannaeyjabæ um að öllu starfs-
fólki hjúkrunarheimilanna sem
sveitarfélögin hafa rekið verði boðin
áframhaldandi störf og á sömu kjör-
um og gilt hafa. Starfsfólkið mun
jafnframt halda áunnum réttindum
sínum.
Sveitarfélögin kröfðust þess að
lög um réttarstöðu starfsmanna við
aðilaskipti að fyrirtækjum giltu við
yfirtöku heilbrigðisstofnana á
rekstri hjúkrunarheimilanna. Taldi
ráðuneytið það ekki heimilt. Var því
útlit fyrir að sveitarfélögin þyrftu að
segja starfsfólkinu upp störfum og
heilbrigðisstofnanirnar að ráða það
á sínum kjörum, hugsanlega lakari.
Ráðuneytið stóð fast á sínu en sveit-
arfélögin féllust á þá lausn sem sam-
komulag varð um til þess að eyða
óvissu starfsfólks og heimilismanna.
Í bókun bæjarráðs Vestmanna-
eyja kom fram að með samkomulag-
inu væri starfsfólki tryggð áfram-
haldandi störf á sömu mánaðar-
launum og áunnin réttindi færist á
milli aðila. Taldi ráðið að þessi atriði
skiptu meginmáli fyrir starfsfólkið
og væru sambærileg ákvæðum að-
ilaskiptalaganna. Bæjarstjórn
Fjarðabyggðar samþykkti sam-
komulagið í gær. Fram kemur í til-
kynningu sveitarfélagsins að það
gildi um alla starfsmenn, utan fram-
kvæmdastjóra.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
mun taka við rekstri Hulduhlíðar á
Eskifirði og Uppsala á Fáskrúðsfirði
1. maí næstkomandi og á sama tíma
tekur Heilbrigðisstofnun Suður-
lands við rekstri Hraunbúða í Vest-
mannaeyjum. helgi@mbl.is
Starfsfólkið ráðið
á sömu kjörum
Morgunblaðið/Albert Kemp
Uppsalir Heilbrigðisstofnun tekur við rekstrinum á Fáskrúðsfirði 1. maí.
- Sátt um yfirfærslu hjúkrunarheimila
20% afsláttur
AF TAXTA. GILDIR 1.-5. APRÍL
Páskatilboð!
ÁR
1921-2021
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Domino’s er langstærsta pizzakeðja
Íslands og hefur verið um langt ára-
bil. Grunnurinn að fyrirtækinu var
lagður af nokkrum ungum eldhugum
sem stofnuðu til rekstursins hér á
landi árið 1993.
Tæpum þremur áratugum síðar er
einn þeirra enn á ný kominn við
stjórnvölinn en þar hefur hann verið
tvívegis áður.
Birgir Þór Bieltvedt er gjörkunn-
ugur öllum hnútum hjá Domino’s
hér heima og erlendis en hann er
einnig eigandi starfseminnar í Nor-
egi og Svíþjóð.
Hann segir að þótt staðirnir hér á
landi séu 23 talsins sé enn tækifæri
til að stækka.
Staðirnir gætu orðið 30 talsins
„[...] Ísland hefur verið leiðandi í
[...] að gera Domino’s að hverfisfyr-
irtæki. Við erum búin að opna 23
staði á Íslandi sem er ótrúlega mikið
miðað við höfðatölu. En því fleiri
búðir sem þú ert með, því betri þjón-
ustu áttu að geta veitt og að sama
skapi áttu að geta verið með lægri
launakostnað. Þannig að ég held að
það sé hægt að koma Domino’s á Ís-
landi í að minnsta kosti 30 staði.“
Spurður hvort það sé ekki of mikið
í ljósi þess að staðirnir eru orðnir
mjög margir nú þegar segir Birgir
að kröfurnar séu að breytast.
„Nú er umhverfið að breytast og
ég held að heimsendingin skipti
miklu máli. Ekki bara heimsending
heldur sú sem kemur á kannski 20
mínútum. Þú vilt hraða og örugga
heimsendingu og þú vilt hafa hana
ábyggilega og geta treyst viðkom-
andi fyrirtæki.
Ég held að það sé betra að hafa
fleiri staði og minni heimsending-
arsvæði heldur en að hafa færri staði
og stærri svæði.“
Nýtt tækifæri í spilunum
Hann segir að kórónuveiran hafi
breytt veitingamarkaðnum til fram-
búðar og að þar hafi opnast nýtt
tækifæri fyrir Domino’s sem hann
vilji nýta til hins ýtrasta.
„Ég hef lýst því yfir að þetta
ástand með Covid hefur fengið mann
til að hugsa aðeins um framtíðina.
Árið 2017 var ég kominn á þann stað
að Domino’s væri komið á ákveðna
endastöð en svo þegar maður upp-
lifir núna alla þessa þróun og breyt-
ingar í þessum geira, hvernig menn
panta og afhendingar- og sending-
arferlið þá sér maður náttúrulega að
Domino’s stendur gríðarlega sterkt
að vígi.“
Bendir Birgir á að líta megi til
sögunnar í þeim efnum en einnig
þeirrar forystu sem fyrirtækið hefur
tekið í snjalllausnum.
„Domino’s er byggt upp í kringum
heimsendingu. Ef þú ferð til baka til
stofnunar þess í Bandaríkjunum þá
var það Domino’s sem var með heim-
sendinguna, Pizza Hut sem var með
veitingastaðina og Little Caesars
sem var með take-away. Þannig að
Domino’s hefur verið leiðandi í heim-
sendingu öll þessi ár og þeir hafa
líka verið leiðandi í netpöntunum og
veflausnum. Ég sé fyrir mér að veit-
ingabransinn sé að taka breytingum,
m.a. vegna Covid og að Domino’s sé
að fá nýtt tækifæri til að blómstra.“
Fleiri járn í eldinum
Þótt Birgir hafi selt Domino’s á Ís-
landi fyrir hálfum áratug fyrir rúma
8 milljarða króna hvarf hann síður
en svo af veitingamarkaðnum hér á
landi. Fjárfesti hann í stöðum á borð
við Jómfrúna, Snaps, Hard Rock,
Gló, Brauð & Co., Café Paris og þá
hafði hann einnig byggt upp umsvif
Joe & the Juice hér á landi. Hann
segir að hann hafi fyrst og fremst
fjárfest í stöðum sem voru í uppá-
haldi hjá honum sjálfum. Hann hefur
að nokkru leyti dregið úr umsvifum
sínum á þessu sviði á síðustu miss-
erum en hann segir að til framtíðar
vilji hann halda áfram rekstrinum á
Joe & the Juice og Snaps. Síð-
arnefndi staðurinn opnaði að nýju
dyr sínar í gær eftir að hafa farið í
„vetrarfrí“ í byrjun janúar síðastlið-
ins.
Tækifæri í að fjölga
stöðunum á Íslandi
- Domino’s fékk nýtt tækifæri þegar kórónuveiran skall á
Athafnamaður Birgir Þór Bieltvedt hefur komið víða við á veitingamarkaði.
Hann hefur komið starfsemi Domino’s-staðanna á legg á fimm mörkuðum.