Morgunblaðið - 01.04.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
Það hefur ýmislegt verið rætt
og ritað um íslensku karlalands-
liðin í knattspyrnu undanfarna
daga, misgáfulegt að sjálfsögðu,
eins og alltaf þegar rætt er um
fótbolta á kaffistofum landsins.
Margir fóru mikinn á Twitter
yfir ákvörðuninni að kalla Willum
Þór Willumsson upp í A-
landsliðið úr U21 árs landsliðinu
og hafa hann svo utan hóps í
sigurleiknum gegn Liechtenstein
í Vaduz í gær. Eftir tapleikinn
gegn Armeníu í Jerevan var óvíst
hvort bæði Aron Einar Gunn-
arsson og Birkir Bjarnason gætu
tekið þátt í leiknum gegn Liech-
tenstein og því fullkomlega eðli-
legt að Willum væri til taks fyrir
A-liðið.
Sveinn Aron Guðjohnsen
fékk tækifæri í byrjunarliðinu,
væntanlega vegna þess að þjálf-
arateymið treysti ekki Hólmbert
Aroni Friðjónssyni í heilan leik
enda hefur framherjinn ekki spil-
að heilan knattspyrnuleik síðan
á síðustu leiktíð. Einn sigur í
fyrstu þremur leikjunum hefur
ekki beint hjálpað íslenska þjálf-
arateyminu að öðlast traust hjá
íslenskum knattspyrnu-
áhugamönnum en Armenar eru
samt sem áður í efsta sæti rið-
ilsins eins og staðan er í dag.
Þá hafa margir kallað eftir
endurnýjun á liðinu en við hefð-
um eflaust séð ansi mikla end-
urnýjun í þessum tiltekna lands-
leikjaglugga ef U21 árs landsliðið
hefði ekki verið að taka þátt í
lokakeppni EM, í annað sinn í
sögu U21 árs landsliðsins. Kröf-
urnar í dag eru hins vegar mun
meiri en árið 2011 þótt það hefði
eflaust heyrst hressilega í ein-
hverjum ef þeir Gylfi Þór Sig-
urðsson, Kolbeinn Sigþórsson,
Aron Einar Gunnarsson og Jó-
hann Berg Guðmundsson hefðu
verið kallaðir upp í A-landsliðið
þegar U21 árs landsliðið tók þátt
í lokakeppninni í Danmörku.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
HM 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þrjú stig af níu mögulegum er nið-
urstaðan eftir tiltölulega auðveldan
sigur á Liechtenstein í Vaduz í gær-
kvöld. Ekki alveg sú byrjun sem
flestir vonuðust eftir úr fyrsta hluta
undankeppni heimsmeistaramótsins
í fótbolta þegar horft er yfir leikina
þrjá en íslenska landsliðið gerði í
það minnsta það sem þurfti í gær-
kvöld og vann leikinn á sannfærandi
hátt, 4:1.
Nú verður ekki leikið aftur í
keppninni fyrr en í september. Arn-
ar Þór Viðarsson og þjálfarateymi
hans hafa í mörg horn að líta næstu
mánuðina og eru með fullt af efni til
að vinna úr áður en undirbúningur
haustleikjanna fer af stað fyrir al-
vöru. Verkefni sem blasir við Arnari
er skilgreina hvernig þarf að vinna
með liðið í framhaldinu og mæta til
leiks í september með lið og leik-
skipulag sem virkar til að ná því tak-
marki sem stefnt er að. Berjast um
annað sætið í riðlinum og komast í
umspilið fyrir HM. Hann fær tvo
vináttuleiki í júní sem ættu að nýtast
til að taka einhver skref í rétta átt.
Vonbrigðin úr þessari fyrstu törn
snúast fyrst og fremst að tapinu í
Armeníu. Þar fuku dýrmæt stig.
Hinir tveir leikirnir fóru eins og bú-
ast mátti við. Tap í Þýskalandi og
sigur í Liechtenstein.
Óvænt úrslit hafa einkennt þessar
fyrstu umferðir riðilsins. Fáir sáu
fyrir sér að Armenía yrði í efsta sæt-
inu með fullt hús stiga að þeim lokn-
um, og hvað þá að Þýskaland myndi
tapa á heimavelli fyrir Norður-
Makedóníu. Það eru eiginlega verstu
úrslitin fyrir Ísland til þessa, miðað
við að þægilegast hefði verið að
Þjóðverjar einfaldlega ynnu alla og
létu hinum liðunum eftir að slást um
stigin sem gefa að lokum annað sæt-
ið.
Áhugaverð septembertörn
Septembertörnin er heldur betur
áhugaverð. Á sjö dögum mæta Rúm-
enía, Norður-Makedónía og Þýska-
land á Laugardalsvöllinn. Í tveimur
fyrri leikjunum ræðst hvort Ísland
verði með í baráttunni eða ekki. Svo
einfalt er það. Liðið leikur alla fimm
heimaleikina í röð í september og
október og þarf úr þeim um það bil
tólf stig til að eiga möguleika á loka-
sprettinum.
Leikurinn í Liechtenstein var
engin flugeldasýning en það var gott
fyrir liðið að ná að skora fjögur mörk
og losa aðeins um þá spennu.
Birkir Már Sævarsson skoraði
fyrst með skalla eftir fyrirgjöf Harð-
ar Björgvin Magnússonar frá vinstri
og á lokasekúndum fyrri hálfleiks
skoraði Birkir Bjarnason af stuttu
færi eftir að Arnór Ingvi Traustason
skallaði boltann til hans. Afar mik-
ilvægt að ná að komast í 2:0 fyrir hlé
og gera þar með eftirleikinn auð-
veldari.
Guðlaugur Victor Pálsson gerði
þriðja markið með skalla eftir auka-
spyrnu Jóns Dags Þorsteinssonar og
Rúnar Már Sigurjónsson það síðasta
úr vítaspyrnu sem hann krækti í
sjálfur.
Ódýrt mark úr hornspyrnu
En mark Liechtenstein var ódýrt,
Yanik Frick skoraði beint úr horn-
spyrnu, og Rúnar Alex Rúnarsson
markvörður verður að taka á sig
ábyrgðina á því. Einhvern tíma hefði
reyndar verið sagt að bakvörður á
stönginni fjær ætti að skalla svona
bolta í burtu.
Miðjumennirnir og bakverðirnir
voru í aðalhlutverkum í leiknum og
voru með boltann stærstan hluta
hans þó enginn stæði beint upp úr í
íslenska liðinu. Það var áhugavert að
sjá yngri leikmennina, Jón Dag,
Arnór og Ísak koma inn á, þeir kom-
ust allir ágætlega inn í leikinn, og
Hólmbert var ógnandi í framlínunni
síðasta hálftímann. Lítið skref í
rétta átt.
AFAP
Drjúgur Arnór Ingvi Traustason lék sinn fertugasta landsleik og lagði upp annað markið fyrir Birki Bjarnason.
Gerðu það sem þurfti
- Fjögur mörk í Liechtenstein og fyrstu stigin í undankeppninni í höfn
- Þrjú stig úr þremur leikjum en örlögin ráðast í fimm heimaleikjum í röð
Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður
í knattspyrnu er á leið til Svíþjóðar
á ný en Norrköping tilkynnti í gær
að félagið hefði samið við hann. Ari
er að ljúka sínu öðru tímabili með
Oostende í Belgíu en liðið er þar í
toppbaráttu. Hann lék áður í Sví-
þjóð á árunum 2006 til 2013, með
Häcken og Sundsvall, en síðan með
OB í Danmörku og Lokeren í Belg-
íu áður en hann fór til Oostende.
Ari er einn reyndasti knatt-
spyrnumaður landsins með 79
landsleiki og rúmlega 400 deilda-
leiki á ferlinum.
Ari Freyr til
Norrköping
Morgunblaðið/Eggert
Flytur Ari Freyr Skúlason er á leið-
inni aftur til Svíþjóðar.
Norður-Makedónía setti J-riðilinn í
undankeppni HM í knattspyrnu,
riðil Íslands, heldur betur upp í loft
í gærkvöld með því að skella stór-
liði Þjóðverja 2:1 í Duisburg. Gríð-
arlega óvænt úrslit en Eljif Elmas
skoraði sigurmarkið á 85. mínútu
eftir að Ilkay Gündogan hafði jafn-
að fyrir Þjóðverja á 63. mínútu.
Þá eru Armenar óvænt á toppn-
um með fullt hús stiga eftir sigur á
Rúmenum, 3:2, í Jerevan. Þeir skor-
uðu tvö mörk undir lokin, Tigran
Barseghjan sigurmarkið úr víta-
spyrnu á 89. mínútu.
Óvæntur ósigur
Þjóðverjanna
AFP
Kátir Norður-Makedóníumenn
fögnuðu vel í Duisburg.
LIECHTENST. – ÍSLAND 1:4
0:1 Birkir Már Sævarsson 12.
0:2 Birkir Bjarnason 45.
0:3 Guðlaugur Victor Pálsson 77.
1:3 Yanik Frick 79.(v)
1:4 Rúnar Már Sigurjónsson 90.(v)
M
Birkir Bjarnason
Aron Einar Gunnarsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Hörður Björgvin Magnússon
Birkir Már Sævarsson
Arnór Ingvi Traustason
Rúnar Már Sigurjónsson
Gul spjöld: Engin.
Dómari: Mohammed Al-Hakim, Sví-
þjóð.
Áhorfendur: Engir.
_ Lið Íslands: (4-5-1) Mark: Rúnar Alex
Rúnarsson. Vörn: Birkir Már Sævars-
son, Sverrir Ingi Ingason, Hjörtur Her-
mannsson, Hörður Björgvin Magnússon.
Miðja: Jóhann Berg Guðmundsson (Arn-
ór Sigurðsson 63), Birkir Bjarnason (Jón
Dagur Þorsteinsson 72), Aron Einar
Gunnarsson (Rúnar Már Sigurjónsson
46), Guðlaugur Victor Pálsson, Arnór
Ingvi Traustason (Ísak Bergmann Jó-
hannesson 80). Sókn: Sveinn Aron Guð-
johnsen (Hólmbert Aron Friðjónsson
63).
_ Sveinn Aron Guðjohnsen fór beint í
byrjunarlið Íslands og lék sinn fyrsta A-
landsleik. Þar með er hann þriðji ættlið-
urinn til að leika með A-landsliðinu, á eft-
ir föður sínum Eiði Smára Guðjohnsen
og afa sínum Arnóri Guðjohnsen.
_ Birkir Bjarnason skoraði sitt 14. mark
fyrir landsliðið og er kominn í 6.-8. sætið
yfir þá markahæstu frá upphafi, jafn Rík-
harði Daðasyni og Arnóri Guðjohnsen.
_ Birkir Már Sævarsson lék sinn 97.
landsleik og náði Ragnari Sigurðssyni í
öðru til þriðja sæti yfir leikjahæstu
landsliðsmenn Íslands frá upphafi. Birkir
skoraði sitt þriðja mark en það fyrsta
gerði hann líka gegn Liechtenstein.
_ Guðlaugur Victor Pálsson skoraði sitt
fyrsta mark í 26 landsleikjum.
_ Rúnar Már Sigurjónsson skoraði sitt
annað mark í 32 landsleikjum. Það fyrsta
kom í fyrsta landsleiknum hans árið
2012, gegn Andorra.
_ Sverrir Ingi Ingason var eini leikmað-
ur Íslands sem lék allar 270 mínúturnar í
leikjunum þremur í þessari törn. Birkir
Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson
voru einnig í byrjunarliði í öllum þremur
leikjunum.
_ Anton Rúnarsson, markahæsti leik-
maður karlaliðs Vals í handknattleik í
vetur, er á leið til Þýskalands í sumar.
Handbolti.is skýrði frá því í gær að
hann hefði þegar gert þriggja ára
samning við B-deildarfélagið Ems-
detten sem hann lék með á árunum
2014 til 2016.
_ Harry Maguire tryggði Englandi
sigur á Pólverjum, 2:1, í undankeppni
HM í fótbolta með sigurmarki á 85.
mínútu í leik liðanna á Wembley í gær-
kvöld. Harry Kane hafði komið Eng-
landi yfir snemma leiks úr vítaspyrnu
en Jakub Moder jafnaði. England hef-
ur unnið alla þrjá leiki sína.
_ Antoine Griezmann skoraði sig-
urmark Frakka sem sigruðu Bosníu 1:0
á útivelli og eru efstir í D-riðli.
_ Stefano Sensi og Ciro Immobile
skoruðu fyrir Ítali í seinni hálfleik þeg-
ar þeir unnu 2:0 útisigur og hafa unnið
alla sína leiki í C-riðli.
_ Danir unnu magnaðan útisigur í
Austurríki, 4:0, þar sem Andreas Skov
Olsen skoraði tvö mörk, Joakim
Mæhle og Pierre-Emile Höjbjerg eitt
hvor en öll mörkin komu í seinni hálf-
leik.
_ Daniel Olmo, Ferran Torres og Ger-
ard Moreno skoruðu fyrir Spánverja
sem sigruðu Kósóvó 3:1.
Eitt
ogannað