Morgunblaðið - 01.04.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
STOFNAÐ 1953
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is
www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380
Úrskurður siðanefndar Rík-isútvarpsins um að Helgi
Seljan hafi gerst sekur um alvar-
leg brot á siðareglum með
færslum sínum á samfélags-
miðlum um
Samherja og
stjórnendur
hans hefur vak-
ið verðskuldaða
athygli. Enn
frekar kannski
vegna við-
bragðanna úr Efstaleiti, sem eru
öll á þá leið að þetta sé nú allt ein-
hvern veginn ómark og siðaregl-
urnar gallaðar. Ekki er ómögu-
legt að þannig sé það, en
merkilegt samt að starfsmenn
Rúv. skuli ekki hafa kvartað und-
an þessum vondu siðareglum fyrr
en eftir að úrskurður fellur gegn
einum þeirra, og því verði að
breyta þeim, ekki seinna en strax.
- - -
Týr í Viðskiptablaðinu drepur áþetta og rifjar upp viðbrögðin
þegar Þórhildur Sunna Ævars-
dóttir var fyrst þingmanna fundin
sek um brot á siðareglum Alþings:
„Nú hefur siðanefnd RÚV kom-
ist að þeirri niðurstöðu að starfs-
maður ríkisfjölmiðilsins hafi gerst
brotlegur við siðareglur RÚV með
skrifum sínum á samfélags-
miðlum. Viðbrögðin nú ríma við
viðbrögð Pírata, það er ekkert að
hegðun viðkomandi heldur eru
reglurnar gallaðar.“
- - -
Það er erfitt að verjast þeirrihugsun, að þar ráði réttlæt-
istilfinningin úr Dýrabæ, að siða-
reglurnar eigi aðeins við um aðra,
en ekki þau, góða fólkið með góðu
skoðanirnar.
- - -
Þessi viðbrögð, bæði í þinginuog innan múra Ríkisútvarps-
ins, sýna hversu lítið gagn er að
siðareglum þegar siðapostularnir
sjálfir hafa ekki hugsað sér að
fara eftir þeim.
Hræsni
siðapostula
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Ríkisútvarpið ætlar ekki að verða við
kröfu Samherja um að Helga Seljan
fréttamanni verði ekki falið að fjalla
um félagið og málefni þess í Rúv.
Samherji gerði kröfu um það eftir
að siðanefnd Rúv. úrskurðaði að
Helgi hefði gerst sekur um alvarleg
brot á siðareglum með færslum á fé-
lagsmiðlum um fyrirtækið og stjórn-
endur þess, en hann hafði jafnframt
fjallað töluvert um málefni þess.
Niðurstaða stjórnarinnar er sú að
hún muni ekki aðhafast frekar í mál-
inu, enda séu málefni einstakra
starfsmanna ekki á borði stjórnar og
hún hafi ekki heldur afskipti af
fréttaflutningi eða dagskrárgerð.
Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri
sendi einnig frá sér yfirlýsingu í gær,
þar sem hún áréttaði að fréttaflutn-
ingur Kveiks og fréttastofunnar
hefði ekki verið til umfjöllunar hjá
siðanefndinni frekar en störf Helga.
Því hefðu stjórnendur ákveðið að úr-
skurðurinn hefði engar afleiðingar
fyrir störf hans. Þá átaldi hún Sam-
herja fyrir gagnrýni á fréttmenn
Rúv., sem birst hefði á myndbönd-
um, og sagði hana ofbeldi og aðför.
Rúv. hafnar kröfu Samherja
- Helgi Seljan má áfram fjalla um
Samherja - Úrskurður hefur ekki áhrif
Skjámynd/Rúv.
Rúv. Helgi Seljan má eftir sem áður
fjalla um Samherja að vild.
Margrét Jóna Ísleifs-
dóttir, fv. tryggingar-
fulltrúi hjá sýslu-
mannsembættinu í
Rangárvallasýslu, lést
á Hvolsvelli 30. mars
síðastliðinn, á 97. ald-
ursári.
Margrét fæddist í
Miðkoti í Fljótshlíð 8.
október 1924, eitt sjö
barna foreldra sinna,
Ingibjargar Kristjáns-
dóttur og Ísleifs
Sveinssonar.
Margrét stundaði
nám við Barnaskóla
Fljótshlíðar og Flensborgarskóla í
Hafnarfirði. Hún flutti á Hvolsvöll
sautján ára gömul og bjó þar óslitið
síðan. Hún var einn af frum-
byggjum Hvolsvallar og hafði búið í
húsi sínu við Hvolsveg í 75 ár.
Margrét sagði í viðtali við Morg-
unblaðið árið 2019 að Hvolsvöllur
hefði ekki heillað í fyrstu enda að-
eins þrjú íbúðarhús þar. En eftir því
sem störfum fjölgaði hefðu æ fleiri
íbúðarhús verið byggð og eitt leitt
af öðru.
„Nýtt ungt fólk bættist í hópinn
og íbúarnir voru eins og ein góð fjöl-
skylda lengi fram eftir. Ef eitthvað
skemmtilegt átti sér stað voru allir
glaðir og ef eitthvað
dapurlegt gerðist tóku
allir þátt í því,“ sagði
Margrét í viðtalinu
Margrét var mikil
félagsmálakona. Hún
var um tíma formaður
Kvenfélagsins Ein-
ingar á Hvolsvelli og
heiðursfélagi þess.
Hún sat í fyrstu stjórn
félagsheimilisins
Hvols og stýrði ung-
mennastarfi barna-
stúkunnar Njálu.
Margrét söng með
kirkjukór Stórólfs-
hvolskirkju og sá um kirkjuna um
árabil. Hún tók með einum eða öðr-
um hætti þátt í uppbyggingu þorps-
ins og samfélagsins á Hvolsvelli.
Hennar helsta áhugamál var lestur
góðra bóka og hannyrðir auk þess
sem hún sinnti fjölskyldu sinni af al-
úð alla tíð.
Margrét var gift Pálma Eyjólfs-
syni sýslufulltrúa og eru börn
þeirra Guðríður Björk, fv. versl-
unar- og skrifstofumaður, Ingi-
björg, fv. alþingismaður og ráð-
herra, og Ísólfur Gylfi, fv.
sveitarstjóri og alþingismaður. Mar-
grét lætur eftir sig fjölda afkom-
enda.
Andlát
Margrét Jóna
Ísleifsdóttir