Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 16

Morgunblaðið - 01.04.2021, Page 16
Þ að er gott að elska“ söng þjóð- popp- arinn Bubbi. „All you need is love“ sungu Bítlarnir. „Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi“ söng Páll postuli. Ástin er alls staðar og margvísleg. Ást til maka, barna, foreldra, eigin sjálfs og náttúrunn- ar. En hvað um Guð? Hallgrímur Pétursson var of- urpoppari þjóðarinnar, ekki bara í nokkur ár heldur um aldir. En líka hann klúðraði málum sínum herfi- lega á unglingsárum en var bjarg- að. Saga Guðríðar Símonardóttur og Hallgríms er hríf- andi ástarsaga fólks, sem hafði lent í rosa- legum aðstæðum en þorði að elska og lifa. Þau misstu mikið, sáu á eftir börnum sínum en töpuðu aldrei ástinni. Þau unnu úr áföllum og vissu að lífið er til að elska og njóta. Þeirra smellur er eins heillandi og ástardrama getur orðið. Saga um konu, sem var rænt, herleidd, flekkuð, en varðveitti í sér undur lífs. Og svo sveinninn, sem hafði týnst í járn- smiðju í Evrópu, en var settur til að kenna íslenskum leysingjum frá N-Afríku kristinn sið að nýju. Ást- in blómstraði. Þessi mikla ást- arsaga varð jarðteinasaga á eftir- kaþólskum tíma. Hún er saga um hvernig hægt væri að elska þrátt fyrir hatur, lifa í reisn þrátt fyrir mótlæti, þroskast þrátt fyrir hræðileg veikindi og sækja í andlegan styrk þrátt fyrir holds- veiki. Ástarsaga, al- vöru klassík fyrir allt ástarfólk. Ástarsaga Guð- ríðar og Hallgríms er líka gluggi að safaríkum lífsvísdómi Passíusálma. Þar er sögð saga Guðs. Þar er uppteiknuð mynd af Guði um- hyggjunnar, en ekki reiðum guði. Guð, sem kemur, en er ekki bara fastur á tróni fjarlægs himins. Guð, sem líknar og er vinur en ekki óvinur. Passíusálmarnir urðu umst í augu við sorg, sjúkleika, einsemd, þarfir eða áföll. Í Biblí- unni og öðrum klassískum kristn- um bókmenntum eins og Pass- íusálmum er sagt frá lífi fólks. Þar er sagt frá farsóttum og rosaleg- um kreppum. Með ýmsum til- brigðum er svo sögð mikil saga um hvernig má mæta farsóttum heimsins og öðrum áföllum. Það er erki-ástarsagan, um Guð, um heiminn og saga um fólk. Kristnin kennir að lífið er ekki aðkreppt heldur ástarsaga möguleikanna. Líf okkar er svo sannarlega stund- um furðulegt, gleðilegt og sorg- legt. En saga okkar og Guðs er þó ástarsaga. Kærleikurinn – ástin fellur aldrei úr gildi. Og ástarsaga Guðs er um okkur öll. Það er gott að elska. Gleðilega páska á Covid- tíma. guðspjall Íslands. Sálmarnir upp- fylltu andlegar þarfir og svo var bókin lögð á brjóst látinna eins og vegabréf fyrir himinhlið. Á bak við Passíusálma er merkileg ástarsaga um Hallgrím og Guðríði. En á bak við þau og okkur öll er ástarsaga Guðs. Með því að skoða vel ást- arsögur getum við komist að mörgu um Guð. Við get- um líka skilið líf okkar sjálfra betur með því að hugsa um ástarsögu Guðs. Covid-tíminn er tími þrenginga og endurskoðunar. Í öllum krepp- um er hægt að bregðast við með því að flýja eða mæta. Annaðhvort leggjum við á flótta og látum kreppuna fara illa með okkur. Töpum. Eða við mætum og horf- Kirkjan til fólksins Hugvekja Höfundur er sóknarprestur Hallgrímskirkju. s@hallgrimskirkja.is Með því að skoða vel ástarsögur get- um við komist að mörgu um Guð. Við getum líka skilið líf okkar sjálfra betur með því að hugsa um ástarsögu Guðs. Sigurður Árni Þórðarson Sigurður Arni Þórðarson Ástarsagan 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2021 Við erum að upplifa undarlega tíma. Það er næstum eins og heimurinn hafi stöðv- ast um stund. Við er- um svolítið eins og Lísa í Undralandi, vit- um varla hvar við er- um og því síður hvert við eigum að fara. Það eina sem við vitum er að heimurinn verður öðruvísi. Markmið eftir Covid Það liggur fyrir að endurræsa samfélagið þegar upp styttir eftir Covid, trúlega eitthvað í breyttri mynd. Þetta gefur okkur tilefni til að endurmeta meginmarkmið þjóð- félagsins, skilgreina í hvernig sam- félagi við viljum búa. Ef við erum sammála um markmiðið, þá er auð- veldara að verða sammála um leið- irnar. Ég þarf raunar ekki að eyða í það löngu máli fyrir mitt leyti. Ég mundi vilja lifa í öflugu menningar- samfélagi í fögru landi. Menningin er dýrmæt fyrir andlega vellíðan og lífsfyllingu fólksins. En menningin er dýr, góðir skólar og auðugt lista- líf. Þróttmikil menning verður því einungis byggð á öflugu atvinnulífi og þá er ég kominn að efninu. Atvinnulífið Við Íslendingar höfum til skamms tíma einkum byggt á helstu nátt- úruauðlindum okkar, moldinni, fiskimiðunum og orkulindum lands- ins. Moldin hefur brauðfætt okkur en hinar síðarnefndu einkum staðið undir gjaldeyrisöfluninni og þeirri velferð sem við höfum notið. Nú eru þessar auðlindir nánast fullnýttar. Ferðamennirnir opnuðu augu okkar nýlega fyrir fegurð landsins sem sjálfstæðri auðlind. Þeir reyndust okkur mikil lyftistöng en ferðamenn eru hvikir og ferðamannaiðnaður skapar fá hálaunastörf. Við stöndum á þreskildi fjórðu iðnbyltingarinnar þar sem sjáf- virkni og hvers kyns hátækni mun ráða ríkjum. Það er því full ástæða til að ætla, að vaxtarmöguleikar okkar í náinni framtíð muni einkum vera fólgnir í hvers kyns þekking- ariðnaði, hugbúnaðargerð, líftækni o.s.frv. Allar þessar greinar byggjast á raungreinum, stærð- fræði og náttúruvís- indum. Sú spurning er því brennandi, hvernig skólakerfið sé undir þessa framtíð búið. Skólakerfið Tveir langreyndir skólastjórar í Garðabæ, Þorsteinn Þorsteinsson og Gunnlaugur Sig- urðsson, hafa að und- anförnu birt nokkrar greinar um skólakerfið. Þeir kvarta m.a. um viðvarandi naumhyggju kerfisins og þeir vitna um langvarandi þrauta- göngu raungreinakennslu í skól- unum. Þetta er raunar vel þekkt vandamál, einkum í grunnskól- unum. Ástandið er vissulega betra í framhaldsskólunum enda eru þeir færri og hefur reynst auðveldara að ráða sérmenntaða raungreinakenn- ara og sérfræðinga til starfa. Fyrir nokkrum árum tóku stjórn- völd ákvörðun um að lækka stúd- entsprófsaldur og stytta nám til stúdentsprófs um eitt ár. Ákveðið var að framhaldsskólinn yrði þriggja ára nám í stað fjögurra áður en grunnskólinn héldist óbreyttur. Undirritaður var einn þeirra sem hafði efasemdir um þessa ráðstöfun bæði af faglegum og félagslegum ástæðum. Í fyrsta lagi taldi ég vegna erfiðleika raungreinakennsl- unnar í grunnskólunum að æskilegt væri að koma nemendunum sem fyrst upp í framhaldsskólann undir handleiðslu sérmenntaðra raun- greinakennara. Í öðru lagi taldi ég óheppilegt að þjappa kennslu í stærðfræði og náttúruvísindum saman í þrjú ár. Þessi fög byggjast einkum á skilningi og henta ekki til hraðlesturs. Í þriðja lagi óttaðist ég að þessi breyting kæmi niður á tungumálanáminu sem okkur er mikilvægara en flestum öðrum þjóð- um. Í fjórða lagi taldi ég þessa breytingu vera félagslega afturför. Unglingar milli tektar og tvítugs eru miklar félagsverur, njóta þess að halda hópinn. Á þessum árum myndast gjarnan félagstengsl sem vara jafnvel alla ævi. Verkfræðingafélag Íslands varaði við þessari breytingu á sínum tíma, taldi hættu á að stúdentar kæmu verr búnir undir nám í tækni og raunvísindum í háskóla. Nú er nokkuð um liðið og allmikil reynsla fengin af þessu fyr- irkomulagi. Svo virðist sem varn- aðarorð Verkfræðingafélagsins hafi ekki verið að ófyrirsynju. Í grein í Morgunblaðinu 18. mars sl. segir Svana Helen Björnsdóttir formaður Verkfræðingafélagsins m.a.: „Verkfræðingafélagið hefur kom- ið þeirri skoðun á framfæri að stytt- ing framhaldsskólans hafi verið mis- tök sem vinda þurfi ofan af. Mikil hætta er á því að að nemendur komi nú verr undirbúnir en áður fyrir krefjandi nám í háskóla og ýmis merki eru um að áhrifanna sé nú þegar farið að gæta.“ Ég hef raunar ekki enn heyrt sannfærandi rök fyrir því að stytta ekki frekar grunnskólann, ekki síst vegna undangenginnar lengingar skólaárins og þess hve kennsla hef- ur sífellt verðið að færast neðar í kerfinu. Hugsanlega voru það hug- myndir um sparnað sem voru kveikjan að þessu fyrirkomulagi. Það er vissulega dyggð að fara vel með almannafé en það er mikill vandi að spara á réttum stöðum. Ég þekki t.d. engan verkfræðing sem sparar í undirstöðunum. Stjórnmálamönnum getur að sjálfsögðu orðið á eins og öðrum. Verkefnið er þá að leiðrétta mistök- in strax og þau eru orðin ljós. Ef rétt er ályktað, að við munum á komandi árum einkum byggja vöxt og velferð þjóðfélagsins á þekking- ariðnaði og hugviti fólksins, þarf að sníða menntakerfið að framtíðinni. Ella er hætta á að við verðum fyrir vonbrigðum. Raungreinar og tungumál Eftir Pétur Stefánsson Pétur Stefánsson » Fyrir nokkrum árum tóku stjórnvöld ákvörðun um að lækka stúdentsprófsaldur og stytta nám til stúdents- prófs um eitt ár. Und- irritaður var einn þeirra sem hafði efasemdir um þessa ráðstöfun. Höfundur er verkfræðingur. pshs@internet.is Ísland er sann- arlega norð- urslóðaríki og við sem hér búum getum því talist til íbúa norð- urslóða en það eru ekki nema um fjórar milljónir manna sem búa á því svæði. Norðurskautsráðið er án efa mikilvægasti vettvangur samstarfs og samráðs um málefni norð- urslóða. Ríkin sem eiga aðild að því eru auk Íslands Bandaríkin, Kanada, Rússland, Noregur, Sví- þjóð, Finnland og já konungsveldið Danmörk þar sem Grænland er á norðurslóðum. Öll þessi lönd hafa íbúa sem búa á svæðinu en í öllum tilfellum er það lítið hlutfall íbúa þjóðarinnar, nema hér á Íslandi og svo hjá nágrönnum okkar á Græn- landi. Þessi staðreynd veitir okkur ákveðna sérstöðu í umfjöllun um norðurslóðamál. Áherslur okkar eiga að vera á samfélögin á norð- urslóðum, þ.e. hvernig er að búa á þessu svæði sem er það svæði á jarðarkringlunni sem er að um- breytast hvað mest. Ísinn á norðurskautinu hefur aldrei mælst minni og á aðeins ör- fáum árum hefur íshellan minnkað um flatarmál sem nemur Frakk- landi, Spáni, Þýskalandi, Póllandi og Ítalíu samanlagt! Það er ekkert smáræði. Grænlandsjökull bráðnar nú sem aldrei fyrr og snjókoma dagsins í dag og til framtíðar veg- ur ekki lengur upp á móti bráðn- uninni, jafnvel þótt hlýnun jarðar stöðvaðist í dag. Ný norðurslóðastefna Það er því eðlilegt að við leggj- um áherslu á norðurslóðamál í ut- anríkisstefnu okkar og það var mikilvægt skref hjá utanrík- isráðherra að skipa þverpólitíska þingmannanefnd um endurskoðun norðurslóðastefnunnar. Það fór vel á því að gera það núna í for- mennskutíð Íslands í norð- urskautsráðinu en tíu ár eru liðin síðan Alþingi samþykkti núgildandi norðurslóðastefnu. Ég fékk það hlutverk að leiða þá vinnu en ásamt mér voru í nefndinni: Njáll Trausti Friðbertsson fyrir Sjálf- stæðisflokk, Karl Gauti Hjaltason fyrir Miðflokkinn, Guðjón S. Brjánsson fyrir Samfylkingu, Ari Trausti Guðmundsson fyrir Vinstri-græna, Líneik Anna Sævars- dóttir fyrir Framsókn- arflokk, Björn Leví Gunnarsson fyrir Pí- rata, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrir Viðreisn og Inga Sæ- land fyrir Flokk fólks- ins. Með nefndinni starfaði Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir, deildarstjóri norð- urslóðamála í utanríkisráðuneyt- inu. Hlutverk nefndarinnar var að fjalla um og gera tillögur að end- urskoðaðri stefnu í málefnum norð- urslóða út frá víðu sjónarhorni, s.s. vistfræðilegu, efnahagslegu, póli- tísku og öryggislegu. Nefndinni var falið að skilgreina meginfor- sendur stefnunnar og setja fram tillögur sem leggja myndu grunn að þingsályktunartillögu utanrík- isráðherra um nýja norður- slóðastefnu. Nefndin tók á móti fjölda gesta á fundum sínum og heimsótti Akureyri þar sem haldn- ir voru fjölmennir fundir með bæði atvinnulífinu og akademíunni. Nefndin hefur nú skilað tillögum sínum til ráðherra og væntir þess að utanríkisráðherra leggi fljótlega fram þingsályktun á grunni þeirra tillagna. Tillögurnar eru nítján talsins og snúa að umhverfismálum og sjálfbærni, öryggismálum, leit og björgun, efnahagstækifærum og innviðauppbyggingu, vísindum og nýsköpun og atvinnuuppbyggingu og svo mætti lengi telja en allar miða þær að því að gæta hags- muna Íslands og tryggja velferð íbúanna. Ég mun á næstu dögum birta greinar byggðar á þessum tillögum nefndarinnar. Norðurslóðaríkið Ísland Eftir Bryndísi Haraldsdóttur Bryndís Haraldsdóttir » Áherslur okkar eru á það hvernig er að búa á norðurslóðum, en það er það svæði á jarð- arkringlunni sem er að umbreytast hvað mest. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður þingmannanefndar um endurskoðun norðurslóðastefnu. bryndish@althingi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.