Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við fyrstu sýn virðist lagastoðin
undir reglugerðardrögunum vera
mjög hæpin, en auðvitað bera ráð-
herra og ráðgjafar ráðuneytisins
fulla ábyrgð á þeim,“ segir Þórarinn
Guðnason, formaður Læknafélags
Reykjavíkur.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kynnti
fyrir helgi breyt-
ingu á reglugerð
um endurgreiðslu
kostnaðar vegna
þjónustu sjálf-
stætt starfandi
sérgreinalækna
sem starfa án
samnings við
Sjúkratryggingar
Íslands. Felur
breytingin meðal
annars í sér að þeir læknar sem
rukka aukakostnað samkvæmt
gjaldskrá muni ekki njóta kostnað-
arþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.
Standa kerfinu fyrir þrifum
Sem kunnugt er rann samningur
sjálfstætt starfandi sérgreinalækna
út árið 2018 og síðan þá hafa ekki
náðst samningar við ríkið. Hefur því
verið stuðst við tímabundnar reglu-
gerðir ráðherra um endurgreiðslu á
útlögðum kostnaði vegna heilbrigð-
isþjónustu.
Í kynningu á fyrirhuguðum breyt-
ingum Svandísar á reglugerðinni er
rakið að í sumum tilvikum hafi sjálf-
stætt starfandi sérgreinalæknar sett
gjaldskrár til hliðar við opinbera
kerfið sem valdi því að sjúklingar
þurfi að greiða tvo reikninga. „Ann-
an þeirra fá þeir endurgreiddan í
hlutfalli við heildarútgjöld sín til
heilbrigðisþjónustu. Hinn reikning-
inn þurfa þeir að greiða að fullu til
sérgreinalæknisins, sjúklingar fá
þann kostnað ekki endurgreiddan og
hann reiknast ekki til afsláttar af
heildarútgjöldum sjúklingsins.
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki
upplýsingar um umfang þessara
gjalda og þau standa fyrir þrifum því
kerfi sem sett hefur verið upp af hinu
opinbera með hagsmuni sjúklinga að
leiðarljósi.“
Læknar skili ársreikningum
Þessar breytingar hugnast sér-
greinalæknum ekki og komu sjónar-
mið þeirra skýrt fram í grein Stefáns
E. Matthíassonar í Morgunblaðinu í
gær. Stefán bendir á að í endur-
greiðslureglugerðum hafi ráðherra
einhliða ákveðið einingaverð og hafi
það ekki fylgst verðlagsþróun. Því
hafi læknar og fyrirtæki þeirra
neyðst til að bæta upp þennan mun
með komugjöldum.
„Þetta gæti nú ráðherrann auð-
veldlega lagað með því að uppfæra
einingaverð sitt til raunkostnaðar!
Annað er enn kostulegra sem er að
læknum sem sinna sjúklingum og
eru ekki í neinu samningssambandi
við SÍ beri að skila inn árlega endur-
skoðuðum ársreikningum til stofn-
unarinnar. Eitthvað sem ég verð að
segja er alger nýlunda í opinberri
stjórnsýslu á Íslandi og auðvitað lög-
leysa,“ skrifar Stefán.
Stefán furðar sig í greininni á
litlum samningsvilja ríkisins. Hann
segir að komur til sérfræðilækna séu
á pari við komur á Landspítala og
heilsugæsluna. „Að auki eru þar allt
að 20 þúsund skurðaðgerðir, þús-
undir speglana, myndgreininga-
rannsókna, blóðrannsókna auk ým-
issa annarra,“ segir hann.
„Núverandi ríkisstjórn hefur auk-
ið framlög til heilbrigðismála um-
talsvert en undir forystu sitjandi
heilbrigðisráðherra hefur þess verið
gætt að þessir fjármunir renni að
meginhluta til þjónustu sem rekin er
af opinberum aðilum. Fyrir nokkr-
um árum voru heildarframlög til sér-
fræðilæknisþjónustu um 6-7% af
heilbrigðisútgjöldum en árið 2019
einungis 4,7% og margt bendir til að
sama tala fyrir 2020 sé 4%.“
Telur lagastoð fyrir
breytingum hæpna
- Ráðherra vill uppræta komugjöld hjá sérfræðilæknum
Morgunblaðið/Eggert
Aðgerð Styr hefur staðið um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálf-
stætt starfandi sérgreinalækna. Ráðherra hefur kynnt nýja reglugerð.Þórarinn
Guðnason
Liðlega átta þúsund einstaklingar
verða bólusettir með bóluefni frá
Pfizer í þessari viku, 12.-18. apríl,
samkvæmt frétt frá embætti land-
læknis. Byrjað verður að bólusetja
einstaklinga með undirliggjandi
áhættuþætti.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins mun bólusetja yfir fimm þús-
und manns í dag, að sögn Ragnheið-
ar Óskar Erlendsdóttur,
framkvæmdastjóra hjúkrunar. Um
er að ræða heilbrigðisstarfsfólk utan
stofnana og reiknaði Ragnheiður
með að það tækist að bólusetja
stærstan hluta þess hóps í dag.
Einnig verður byrjað að bólusetja
60 ára og eldri sem eru með áhættu-
þætti eins og undirliggjandi sjúk-
dóma. Byrjað er á þeim elstu og svo
koll af kolli. Farið er eftir listum frá
Embætti landlæknis sem eru teknir
út úr sjúkraskrá.
Ragnheiður sagði í gær að ekki
væri komið á hreint hvort meira yrði
bólusett í þessari viku. Ekki var von
á bóluefni frá Moderna, en það kem-
ur í annarri hverri viku og er von á
því í næstu viku. Ekki lá heldur fyrir
hverjir munu fá bóluefni frá Astra-
Zeneca næst en búið er að bólusetja
megnið af 70 ára og eldri.
Hvorki má frysta eða geyma bólu-
efni sem hefur verið blandað heldur
verður að nota það strax. Yfirleitt
hefur verið vel mætt í bólusetning-
arnar og þess gætt að ekkert bólu-
efni fari til spillis.
Fimm smit á landamærunum
Fimm greindust smitaðir af Cov-
id-19 á landamærunum í fyrradag.
Tveir biðu niðurstöðu mótefnamæl-
ingar í gær. Eitt smit greindist inn-
anlands og var sá smitaði í sóttkví.
Liðlega átta þús-
und verða bólusett
- Fólk yfir sextugu
með áhættuþætti
boðað í bólusetningu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardalshöll Heilbrigðisstarfs-
fólk utan stofnana sprautað í dag.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Svandís Svavarsdóttir kynnti reglu-
gerðardrög í samráðsgátt stjórnvalda
fyrir helgi um samninga hins opin-
bera við sérgreinalækna. Hún segist
áforma að setja fram reglugerð þar
sem þeim verði ekki endurgreitt sem
rukka umfram gjaldskrá Sjúkra-
trygginga Íslands. Samningar við
sérgreinalækna hafa staðið lausir frá
árinu 2018 og vakti Birgir Ármanns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks, at-
hygli á þessu á Alþingi í gær. Hann
beindi fyrirspurn til Svandísar og
leitaði meðal annars svara við því
hvers vegna ekki hafi náðst samn-
ingar við sérgreinalækna eins lengi
og raun ber vitni.
Ekki lengur tímabundið ástand
Svandís svaraði á þá leið að þjón-
usta sérgreinalækna væri mikilvæg-
ur þáttur heilbrigðisþjónustu á Ís-
landi. Með vísan til laga um
sjúkratryggingar sagði Svandís að
skýrt væri kveðið á um að ríkið greiði
hlutdeild í kostnaði við heilbrigðis-
þjónustu, að því gefnu að samningar
lægju fyrir um veitingu þjónustunn-
ar. Vegna þess að samningar eru ekki
í gildi er þess í stað reglugerð ráð-
herra í gildi, sem kveður á um tíma-
bundna endurgreiðslu til sjúkra-
tryggðra á kostnaði vegna
heilbrigðisþjónustu. Svandís sagði í
gær að í þeirri reglugerð sé þó skýrt
tekið fram að aðeins sé um tímabund-
ið úrræði að ræða sem nota skuli í
sérstökum tilvikum. Horfast verði í
augu við það að þetta úrræði hafi nú
verið notað í á þriðja ár og því ljóst að
ekki sé um tímabundnar aðstæður að
ræða.
Birgir ítrekaði þá fyrri spurningu
sína: hvort ráðherra gæti upplýst
þingheim um hvers vegna samningar
hefðu ekki náðst til þessa og hvað
ráðherra sæi fyrir sér sem framtíð-
arfyrirkomulag.
Þeir sem rukka umfram
Svaraði Svandís þá að skortur á
fjármagni væri ástæðan, þ.e. skortur
á fjármagni sem sett er í kaup á þjón-
ustu sérgreinalækna. Þá sagði hún
einnig að veitendur þjónustunnar vilji
geta veitt hana samkvæmt eigin mati
og sent svo reikninginn á hið opin-
bera. Hún segist því áforma að setja
fram reglugerð sem kveður á um að
endurgreiðsla ríkisins verði ekki til
þeirra sem krefja sjúklinga um aukn-
ar greiðslur umfram gjaldskrá
Sjúkratrygginga.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Birgir Ármannsson spurði ráðherra um sérgreinalækningar.
Umframrukkun
ekki umbunuð
- Segir sérgreinalækna mikilvæga