Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 8

Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. Í gær minntist Ómar fyrsta geimfar-ans: - - - Fyrsta geimferðmanns fyrir 60 árum var liður í kapp- hlaupi þáverandi risa- velda, þar sem fyrsti áfanginn hafði verið ferð Sputniks með hund þremur árum áður, annar áfanginn ferð Gagaríns og lokaáfanginn lending Bandaríkjamanna á tunglinu 1969. - - - Sovétmenn höfðuforskot í fyrstu og fyrsta geimferð Bandaríkjamanns var hálfgert djók miðað við ferð Gag- aríns. - - - En John F. Kennedy gaf út yfirlýs-ingu um að öflugasta efnahags- veldi heims myndi beita öllu sínu afli í að ná forystu á næstu árum, og við það var staðið með tunglferðinni 1969. - - - Á þessum merka áratug var lagðurgrunnur að því ógnar kraðaki af gervitunglum, sem skotið var á braut um jörðu og eru grunnur að einhverri mestu hátækni vorra tíma á ótal svið- um. - - - Með svokallaðri Stjörnustríðs-áætlun, sem Ronald Reagan kynnti á níunda áratugnum og varð eitt mesta bitbeinið í samninga- viðræðum hans og Gorbatsjof í Reykjavík 1986, komust yfirráð í geimnum á dagskrá, og Donald Trump orðaði (síðar) stofnun sérstaks geimhers Bandaríkjamanna.“ - - - Legðu menn saman flugmílur„Frúarinnar“ og bílaflota Ómars væri hann kominn til Mars og til baka? Ómar Ragnarsson Spútnik-geimfar þá, nú bóluefni STAKSTEINAR Júrí Gagarín Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Alþýðusambandið hefur gert alvar- legar athugasemdir við framkomið lífeyrisfrumvarp og það er ekki rétt sem sagt er í greinargerð að það hafi verið unnið í samráði við okkur,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, í samtali við mbl.is í gær. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær ber talsvert á gagnrýni á frumvarp fjármálaráðherra um líf- eyrismál. Þeir Ragnar Þór Ingólfs- son, formaður VR, og Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verka- lýðsfélags Akra- ness, eru ósáttir við hve einhliða málið er unnið – og boða málaferli gagnvart ASÍ og Samtökum at- vinnulífsins. Drífa Snædal segir samráðsleysið hins vegar skrifast á stjórnvöld og hún vilji að svo stöddu ekki tjá sig um hugsanleg málaferli. „Í raun er brotið blað í sögu lífeyr- ismála með samráðsleysinu og ég gagnrýndi það harkalega á þjóð- hagsráðsfundi sl. miðvikudag. Líf- eyrisnefnd ASÍ fundar senn og í kjölfarið vil ég fundi með forsætis- og fjármálaráðherra,“ segir Drífa. Athugasemdir verkalýðshreyfing- arinnar segir forseti ASÍ lúta aðal- lega að þremur atriðum í frumvarp- inu. Það eru hækkun lífeyris- greiðslualdurs úr 16 í 18 ár. Það er nýtt ákvæði og órætt. Annað er breyting á verðtryggingu lífeyris úr því að hann er verðbættur mán- aðarlega yfir í árlega. Loks má nefna undanþágu frá 15,5% lífeyris- greiðslu fyrir þá sem eru með öðru- vísi kjarasamninga. Það atriði snert- ir aðallega sjómenn sem bera þar skarðan hlut frá borði. sbs@mbl.is Athugasemdir við lífeyrisfrumvarp - ASÍ vill ráðherrafund - Ekki unnið í samráði - Hærri greiðslualdur Drífa Snædal Hreinsun gatna eftir veturinn er að hefjast í höfuðborginni. Þetta fékkst staðfest hjá Reykjavíkurborg í gær. Vegna frosts varð töf á því að verkið hæfist fyrr en samkvæmt veðurspá var talið mögulegt að hefjast handa í gær eða í síðasta lagi í dag. Á næstu dögum munu vegfarendur sjá átta gula götusópa og átta gangstéttar- sópa á ferðinni. Á heimasíðu Reykjavíkuborgar kemur fram að borgin sjái um hreins- un á götum og gönguleiðum. Vor- hreinsun hefst í apríl og fer fram í öll- um hverfum Reykjavíkur þegar svæði koma skítug undan snjó. Byrj- að er að sópa helstu stíga sem og stofnbrautir og safngötur. Í framhaldi eru húsagötur sópaðar og þvegnar. Tilkynningar um hreinsun eru sendar út á samfélagsmiðlum og á hverfasíðum, ásamt því að settar eru upp merkingar í hverfunum. Að hausti er svo farin ein umferð af sópun á götum og gönguleiðum til að viðhalda góðu ástandi eftir að laufblöð eru byrjuð að falla. Gert er ráð fyrir að hausthreinsun hefjist í október. Fjölförnustu leiðirnar verði hreins- aðar fyrst. Á það við um helstu göngu- og hjólastíga, sem og stofn- brautir og tengigötur. Að lokinni hreinsun þeirra verður farið hverfa- skipt í húsagötur og gangstéttir. Á verkáætlun vorsins 2021 má sjá að verkið, sópun og þvottur, mun taka allt að 11 vikur. Því lýkur með lagfær- ingum eftir úttekt eftirlits. sisi@mbl.is Hreinsun gatna að hefjast í borginni Morgunblaðið/Árni Sæberg Hreinsun Átta gulir götusópar verða að störfum í borginni næstu vikur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.