Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 10

Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 10
Efni í þætti kvöldsins: Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu ræðir um aksturs í höfuð- borginni og á vegum landsins þegar lítill ferðamannastraumur hefur verið til landsins. Halldór S.Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar segir frá og sýnir aðbúnað íbúa í Lögmannshlíð sem er eitt nýtískulegasta hjúkrunarheimili landsins. Aníta Elefsen safnstjóri Síldarminjasafnsins á Siglufirði segir frá starfseminni sem senn opnar og hvað þar er að sjá og upplifa. Jakob Jakobsson veitingamaður segir frá stofnun Jómfrúarinnar árið 1996 og síðar opnun Matkráarinnar í Hveragerði fyrir skömmu. Umsjónarmaður er Sigurður K.Kolbeinsson Dagskráin á Hringbraut Lífið er lag Fréttir, fólk og menning á Hringbraut og hringbraut.is kl. 21.00 á Hringbraut í kvöld Halldór S.Guðmundsson Þórhildur Elín Elínardóttir Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landsmenn hafa getað fylgst með eldgosinu í Fagradalsfjalli í gegnum beinar útsendingar Ríkissjónvarpsins og mbl.is og hafa margir notið útsend- inganna. Eldgosið í Heimaey 1973, fyrir 48 árum, var fyrsta eldgosið sem sýnt var frá í beinni útsendingu hér á landi og líklega í heiminum. „Þetta var fyrsta maraþon- útsending Sjónvarpsins. Það höfðu ef til vill verið einhverjar langar og bein- ar útsendingar einhvers staðar ann- ars staðar en ólíklega svona langar. Svo var það ekki fyrr en NRK byrjaði með Hurtigruten-útsendingarnar löngu seinna að til varð þetta hugtak „hægvarp“ (slow TV). Ég tel að gos- útsendingin hafi verið eitt fyrsta hæg- varpið í heiminum,“ segir Karl Sig- tryggsson, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV. Askan máði linsuglerið Upphafsmaður að útsendingunni var Fylkir heitinn Þórisson, tækni- fræðingur og deildarstjóri hjá Sjón- varpinu. Í greinargerð hans um út- sendinguna kemur fram að hann hafði átt heima í Vestmannaeyjum sem unglingur og þekkti því að- stæður. Hann vissi að hægt var að ná merki frá örbylgjusendi á Klifinu í Vestmannaeyjum á Vatnsenda þar sem aðalsendir Sjónvarpsins fyrir Reykjavíkursvæðið var og tenging við dreifikerfið. Hugmynd Fylkis var að nota myndavél sem Sjónvarpið eignaðist í tengslum við skákeinvígi Fischers og Spasskís 1972. Hann fór til Vest- mannaeyja á þriðja degi eldgossins ásamt samstarfsmönnum sínum, Sverri Ólafssyni, sem þá var útsend- ingarstjóri Sjónvarpsins, og Þórarni Guðnasyni kvikmyndatökumanni. Úti í Vestmannaeyjum hittu þeir Árna Vilmundarson frá Landsímanum sem sá um að tengja sjónvarpsmerkið við dreifikerfið. Þeir fóru allir upp á Klif. Myndavélin var sett inn í eins metra langt Reykjalundarrör sem var lokað í annan endann. Það tók allan daginn að festa myndavélina upp í stauramastur á Klifinu og tengja hana við stjórntæki í sendahúsinu. Þegar þessu lauk var dagskrá Sjón- varpsins hafin og því ekki hægt að stilla vélina og prófa útsendinguna. Fylkir skrifar að útsendingarnar af eldgosinu í Vestmannaeyjum hefðu mælst vel fyrir, sérstaklega hjá heimamönnum sem gátu nú fylgst með framvindu gossins. Útsendingin stóð í um þrjá mánuði þegar ekki var önnur dagskrá í Sjónvarpinu. Fylkir tók eftir því að myndgæðin dofnuðu eftir því sem á leið. Þegar hann sótti búnaðinn kom í ljós að fremsta gler linsunnar var orðið sand- blásið af ösku og mjólkurhvítt, þrátt fyrir að um 60 sentimetrar hafi verið frá opi rörsins og að linsunni. „Askan er beitt og vindurinn sterkur á Klif- inu,“ skrifaði Fylkir. Klifrið upp á Klif reyndi á „Mér er þetta alltaf minnisstætt. Við fórum upp með búnaðinn á bak- inu og þetta var heilmikið átak,“ segir Sverrir Ólafsson um gönguna upp á Klif. Hann segir þá hafa flogið með fraktvél til Vestmannaeyja. Svo tók sinn tíma að komast upp á Klif með allt dótið. Ekki tókst að ljúka verkinu þennan dag. „Þá stöndum við frammi fyrir því að þurfa að dvelja þarna uppi. Það var úr vöndu að ráða því þarna var engin gistiaðstaða og við matarlausir. Við fundum pappakassa sem við lögðum á gólfið í sendistöðinni til að leggja okk- ur. En það var varla hægt að sofa vegna hávaðans í eldgosinu, það voru svo miklar drunur,“ segir Sverrir. Þeir luku við uppsetningu og stillingu búnaðarins snemma næsta dag. Mjög góð sýn var af Klifinu yfir eldgosið. Merkið úr myndavélinni fór beint inn á dreifikerfi Landsímans en ekki í gegnum útsendingarver Sjónvarpsins sem slíkt. „Á þessum árum voru ekki fyrir hendi góð netsambönd eins og eru til í dag. Þannig áttum við í Sjón- varpinu ekki beinan aðgang að sjón- varpsmerkinu. Ef við hefðum ætlað að taka þetta upp þá hefðum við þurft að gera það af dreifikerfinu,“ segir Sverrir en þetta er ástæða þess að lít- ið hefur varðveist af þessum beinu út- sendingum. Skjáskot/RÚV/Þórarinn Guðnason Fjallgangan Sverrir Ólafsson (t.v.) og Fylkir Þórisson á leiðinni upp á Klif með þungan búnaðinn í bakpokum. Eitt fyrsta hægvarp í heimi var frá Heimaey - Beinar útsendingar frá eldgosinu í Heimaey 1973 vöktu mikla athygli - Burðuðust með búnaðinn upp á Klif Skjáskot/RÚV/Grétar Guðni Guðmundsson Hægvarp Útsendingin frá Eyjum fór beint út á dreifikerfið og var ekki varðveitt. Grétar G. Guðmundsson tók þessa mynd á litla kvikmyndavél. Skjáskot/RÚV/Þórarinn Guðnason Heimaey 1973 Eldgosið var tilkomumikið að sjá ofan af Klifi. Brottflúnir Vestmannaeyingar og aðrir fylgdust vel með útsendingunum frá eldgosinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.