Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021
Netverslun
skornir.is
SMÁRALIND
www.skornir.is
Verð 14.995
Flex&Go
s na er nota gæ a
leður sem og náttúruleg efni,
sem gerir það að verkum að
skórnir falla vel að fætinum
og eru einstaklega þægilegir.
ær r -
Í kó ð há ð
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þrátt fyrir að Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra hafi loks látið af-
henda gögn úr heilbrigðisráðuneyt-
inu, sem legið hafi til grundvallar
hinni ólögmætu reglugerð um
skyldudvöl í sóttkvíarfrumvarpi frá
1. apríl, virðist vera sem ráðuneytið
búi yfir fleiri gögnum þar að lútandi.
Velferðarnefnd Alþingis bað um
öll þau gögn í liðinni viku og sömu-
leiðis óskaði Morgunblaðið eftir
þeim á þriðjudag í liðinni viku í sam-
ræmi við upplýsingalög, en fékk
synjun um það degi síðar. Þeirri
ákvörðun var svo snúið við á föstu-
dag og bárust þá nokkur skjöl frá
upplýsingafulltrúa ráðuneytisins.
Eftir því sem næst verður komist
fékk velferðarnefnd sömu gögn.
Þar á meðal var minnisblað úr
heilbrigðisráðuneytinu um fyrirhug-
aða reglugerð, frá 30. mars, en þar er
í engu vikið að lagastoðum hennar.
Þar var einnig minnisblað Páls Þór-
hallssonar, lögfræðings í forsætis-
ráðuneytinu, frá 29. mars, þar sem
tiltekið er að samkvæmt lögum megi
skipa fólki í sóttkví, sé það smitað
eða grunur leiki á um smit. Eins að
heimild sé í lögum um að fólk fari í
sóttkvíarhús, hafi það ekki í önnur
hús að venda þeirra erinda. Þar er
ekki sagt berum orðum að lagastoð-
ina vanti, heldur að lögin virðist ekki
gera ráð fyrir þeim möguleika.
Hins vegar lét heilbrigðisráðherra
ekki fylgja minnisblað úr dómsmála-
ráðuneytinu, sem var unnið þegar
eftir gildistöku reglugerðarinnar, en
þar var talið að vafi léki á því að
reglugerðarákvæðið um skyldudvöl-
ina ætti sér fullnægjandi lagastoð,
svo beita mætti sem refsiheimild.
Með í gagnapakka heilbrigðisráð-
herra fylgdu þrír tölvupóstar um
verklega framkvæmd skyldudvalar-
innar, sem bera með sér að vera
teknir saman og áframsendir af Ástu
Valdimarsdóttur ráðuneytisstjóra.
Með fylgja orðsendingar á borð við
„Getum sent þetta“ og „Líklega
þetta“, sem benda til þess að þeir
póstar hafi verið valdir sérstaklega
til birtingar en aðrir taldir óheppi-
legri til þess.
Heilbrigðisráðherra
naumur á gögnin
- Vísbendingar um að til séu fleiri gögn um reglugerðina
Gögn Helstu skjöl frá heilbrigðisráðuneyti um reglugerðina ólögmætu, auk
minnisblaðs dómsmálaráðuneytisins, sem ekki fékk að fylgja með.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Lækkun hámarkshraða yfir leyfi-
legt nagladekkjatímabil í Reykja-
vík, 1. nóvember til 15. apríl, gæti
dregið verulega úr tilurð svifryks
og um leið sliti gatna. Þetta kemur
fram í rannsókn Þrastar Þorsteins-
sonar, prófessors í umhverfis- og
auðlindafræði við Háskóla Íslands,
um áhrif hraða á mengun vegna
umferðar, sem kynnt var í síðustu
viku.
„Í stuttu máli þá gæti lækkun
hraða innan borgarmarkanna skap-
að allt að 40% samdrátt í magni
svifryks ef keyrt yrði á 30 km
hraða í stað 50 km. Þá leiddi rann-
sóknin í ljós að nagladekk slíta veg-
um 20-30-falt hraðar en ónegld
dekk. Þetta eru mikilvægar upplýs-
ingar og eiga að leggja grunn að
frekari hraðalækkunum innan
borgarinnar eins og aðrar borgir
sem við berum okkur saman við
eru að gera,“ segir Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri í vikulegu
fréttabréfi sínu, sem birtist sl.
föstudag.
Þröstur Þorsteinsson kynnti nið-
urstöður skýrslunnar í skipulags-
og samgönguráði Reykjavíkur hinn
7. apríl en hún var unnin fyrir Vega-
gerðina. Í frétt á vef Reykjavík-
urborgar segir að mengun vegna
umferðar sé þekkt vandamál og á
Íslandi sé það svifryk sem oftast
veldur því að loftgæði minnka og
fara yfir heilsuverndarmörk. Magn
mengandi efna er meðal annars háð
hraða ökutækis, en það samband fer
eftir tegund mengunar og ökutækis.
„Fyrir bíl á ónegldum dekkjum
er samdrátturinn í magni svifryks
(PM10) við að draga úr hraða úr 90
í 70 km/klst, 70 í 50 km/klst og 50 í
30 km/klst 22%, 24% og 27%. Fyrir
bíl á nagladekkjum er samdráttur-
inn 31%, 37% og 47%, fyrir sam-
bærileg stökk úr 90 km/klst í 30 km/
klst. Því mætti búast við um 40%
samdrætti í magni svifryks ef helm-
ingur bílaflotans er á nagladekkjum
og hraðinn færður úr 50 í 30 km/
klst.,“ segir á reykjavik.is.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umferðin Lækkun hámarkshraða gæti dregið stórlega úr svifryksmengun.
Borgarstjóri boðar
lækkanir á hraða
- Allt að 40% samdráttur svifryks ef
keyrt yrði á 30 km hraða í stað 50 km
Grjótkrabbi fannst fyrst hér við land
í Hvalfirði árið 2006. Útbreiðsla hans
um grunnsævi Íslands hefur verið
með eindæmum hröð og spannar
hún nú yfir 70% af strandlengjunni
og ná staðfestir fundarstaðir nú frá
Faxaflóa réttsælis umhverfis landið
allt austur í Stöðvarfjörð.
Frá árinu 2006 hafa rannsóknir og
vöktun á grjótkrabba við Ísland ver-
ið stundaðar og er verkefnið sam-
starfsverkefni Náttúrustofu Suð-
vesturlands og Rannsóknaseturs
Háskóla Íslands á Suðurnesjum.
Fjallað er um grjótkrabba í árs-
skýrslu Náttúrustofunnar fyrir síð-
asta ár og segir þar að vöktun
krabbans á föstum sniðum í Faxa-
flóa hafi sýnt stöðuga aukningu hans
í aflahlutdeild, á kostnað bogkrabba
og trjónukrabba.
Þar kemur jafnframt fram að
skelsýking í grjótkrabba hafi verið
sögulega há í afla á síðasta ári. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Sindra
Gíslasyni, forstöðumanni Náttúru-
stofu Suðvesturlands, eru orsakir
skelsýkingarinnar nú í rannsókn og
sé niðurstaðna að vænta í haust.
aij@mbl.is
Grjótkrabbi á hraðferð
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Grjótkrabbi Fannst fyrst í Hvalfirði 2006 en kominn austur í Stöðvarfjörð.
- Rannsaka „sögulega háa“ skelsýkingu
Alþingi hefur kjörið níu menn og
jafnmarga varamenn í stjórn Ríkis-
útvarpsins ohf., til eins árs, sam-
kvæmt lögum um Ríkisútvarpið. Þar
sem ekki voru fleiri tilnefndir en
kjósa átti lýsti forseti Alþingis,
Steingrímur J. Sigfússon, þá rétt
kjörna.
Stjórn Rúv. skiptir sjálf með sér
verkum, en gert er ráð fyrir því að
Jóhanna Hreiðarsdóttir verði áfram
formaður hennar.
Aðalmenn voru kjörnir þau Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, Jón Ólafs-
son, Brynjólfur Stefánsson, Marta
Guðrún Jóhannesdóttir, Jóhanna
Hreiðarsdóttir, Guðlaugur G. Sverr-
isson, Mörður Árnason, Mörður Ás-
laugarson og Björn Gunnar Ólafs-
son.
Þær breytingar urðu á stjórninni
að Ragnheiður Elín kom inn í stað
Ragnheiðar Ríkharðsdóttur fyrir
Sjálfstæðisflokk, Marta Guðrún í
stað Elísabetar Indru Ragnarsdótt-
ur fyrir vinstri græn og Mörður Ás-
laugarson í stað Láru Hönnu Ein-
arsdóttur fyrir Pírata. Þá tilnefna
starfsmannasamtök Rúv. einn mann
í stjórn án atkvæðisréttar.
Ný stjórn Ríkisútvarpsins
- Ragnheiður Elín kemur í stað Ragnheiðar Ríkharðsdóttur