Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Bretar þustu út á götur og torg í gær og fögnuðu stíft er aflétt var ýmsum þvingandi ráðstöfunum sem ríkisstjórnin greip til í ársbyrjun vegna kórónuveiruplágunnar. Meðal annars fylltust fljótt allar rakara- stofur sem lokaðar voru í rúma þrjá mánuði og fékk því margur kær- komna hársnyrtingu. Þar á meðal Boris Johnson forsætisráðherra sem lét laga ögn óstýrilátan þvegilslegan hárkoll sinn. Þá fögnuðu margir opnun kráa á ný með bjórsopa árdegis. Krárnar mega héðan í frá þjóna gestum til borðs á veröndinni en ekki innanhús enn sem komið er. Sumar þeirra biðu ekki boðanna og opnuðu fyrir gesti á slaginu miðnætti í fyrra- kvöld. Aðrar biðu lengur en opnuðu samt flestallar fyrr en venjulega, eða í tíma fyrir árbít. „Ég vinn á næturvöktum á spít- alanum,“ sagði Richard Newman, 32 ára læknir á Royal London Hospital, er hann beið vina í gærmorgun á Half Moon-pöbbnum í austurhluta London. „Vonandi er innilokunum lokið en hver veit? Hvað þýðir það? Vonandi gott sumar. Það væri gott að hleypa ögn af nýju lífi í borgina,“ sagði læknirinn. Auk hans sátu við borðin húfu- og hattaklæddir viðskiptavinir dúðaðir í hlý föt. Hlátrasköllin voru til marks um nýfengið frelsi og liðlega neyttu þeir veitinga í fljótandi formi og föstu þegar fullur enskur árbítur var borinn fram; spæld egg, beikon og pylsa. Um miðjan morgun snæddu gestir kráarinnar 100 morgunverði og innbyrtu 50 potta af bjór. „Nokkra undanfarna mánudaga höf- um við aldrei getað farið út saman að skemmta okkur en nú verður bætt úr því,“ sagði 28 ára kráargestur, Laura Bennett. „Ég skemmti mér þegar heilmikið,“ bætti hún við. Dýragarðar, ræktin og sund Í Oxford-stræti dreif fólk að frá 5:30 að morgni eða tveimur stundum fyrir opnun. Hímdu margir norpandi í röðunum, til dæmis við fataversl- unina Primark. Rakarar og hár- snyrtar gátu opnað stofur sínar og sýndi sig eftir rúmlega þriggja mán- aða lokun að spurnin eftir þjónustu þeirra var mjög lífleg. Í austurhluta London beið Adam Yours við rak- arastofuna Jimmy Slicks Barber’s er blaðamenn bar að garði. Gat hann vart beðið eftir að losna við lubbann. Boris Johnson sagði afléttinguna „meiri háttar skref á vegvísi okkar í átt til fulls frelsis“. Hann ætlaði að fagna frelsisaukningunni á ölstofu. AFP Símatími Kráarferðir voru stíft stundaðar á Englandi í gær. Þustu út á götur og torg - Þvingandi ráðstöfunum var aflétt í Bretlandi í gær - Hlátrasköllin voru til marks um nýfengið frelsi og liðlega var neytt veitinga í fljótandi formi og föstu Utanríkisráðherra Írans hótaði í gær Ísraelum hefndum fyrir árás á kjarnorkuver neðanjarðar á sunnu- dag, en þar hefur úran verið auðgað. Í fyrstu var sagt að raforkubilun hefði orðið í Natanz-verinu en síðar var skuldinni skellt á Ísraela og gjörð þeirra lýst sem „kjarnorku- hermdarverki“. Nýjar og skilvirkar þeytivindur til auðgunar úrans voru nýlega teknar í gagnið í verinu. Hermt er að þær séu ónýtar eftir aðgerð Ísraela. Ísraelar hafa reynst þögulir sem gröfin um málið en ríkisútvarpið í Ísrael hafði eftir heimildarmanni að um hefði verið að ræða netárás leyniþjónustunnar Mossad á Natanz-verið. Sögðu þeir verulegt tjón hafa orðið í verinu og mun um- fangsmeira en Íranar höfðu sagt frá. Vöruðu við auknum umsvifum Starfsmenn bandarísku leyniþjón- ustunnar tjáðu dagblaðinu New York Times að sjálfstæð orkuveita versins hefði gjöreyðilagst í mikilli sprengingu. Sérfræðingar áætla að það muni taka a.m.k. níu mánuði að koma auðgun úrans aftur af stað í verinu. Ísraelar hafa undanfarið varað við auknum umsvifum í verinu en þess er nú freistað að gangsetja að nýju samkomulag frá 2015 um kjarnorku- áætlun Írana en fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, Donald Trump, gaf það upp á bátinn. Arftaki hans Joe Biden segist vilja samkomulagið virkjað en Íran og fimm ríki sem eiga aðild að því – Kína, Frakkland, Þýskaland og Bretland – þurfa að finna leiðir fyrir Biden til að aflétta refsiaðgerðum og fyrir Írana til að koma að samninga- borðinu á forsendum sem samþykkt- ar voru fyrir kjarnorkuáætlun Ír- ana. Bandarískir og íranskir embættis- menn sitja nú andliti til andlits á fundum í Vínarborg og freista þess með milligöngu fulltrúa Evrópu- sambandsins (ESB) að brjótast út úr sjálfheldunni sem málið er í. Fulltrúi þess frábað sér allar tilraunir til að veikja þær diplómatísku tilraunir sem hafnar væru til að koma viðræð- unum um kjarnorkuáætlun Írana aftur í gang. agas@mbl.is Íranar hóta Ísrael hefndum - Íranar láta minna af tjóninu í Natanz- kjarnorkuverinu en raunin varð Breska stjórn- in hefur hrund- ið úr vör rann- sókn á meintum til- raunum Davids Camerons, fv. forsætisráð- herra, til að hafa áhrif á ráðherra í þágu fjármála- fyrirtækisins Greensill Capital. Cameron hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir að senda ráðherrum smáskilaboð fyrir hönd Greensill sem fór á hausinn í mars sl. Cameron hóf störf sem ráðgjafi hjá Greensill Capital í ágúst 2018, tveimur árum eftir að hann sagði af sér sem forsætisráðherra. Cameron segist engar siðareglur hafa brotið né reglur um áhrifa- valda. Í fyrradag kvað við aðeins annan tón er íhaldsleiðtoginn fyrr- verandi sagði að betur hefði farið á því að setja sig í samband við ráð- herra eftir „formlegum“ leiðum. Talsmaður Camerons sagði við BBC í gær að ráðherrann fv. fagn- aði rannsókninni. agas@mbl.is BRETLAND David Cameron undir smásjánni Yfirmenn fangelsismála í Rúss- landi heita því að neyða mat ofan í andófsmanninn Alexei Navalní, að sögn samverkamanna hans. Navalní hefur verið í hung- urverkfalli og lést um átta kíló frá 31. mars, eða úr 85 kílóum í 77, að því er stuðningsmenn hans sögðu á samfélagsvefnum Twitt- er. Fangelsisyfirvöld eru sögð óttaslegin og hafa haft í hótunum um að neyða mat ofan í Navalní. „Þau hafa samt harðneitað að hleypa læknum til hans,“ sagði þar. Navalní er kunnasti andstæð- ingur Vladimírs Pútíns forseta. Lögmenn sem fengu að heim- sækja hann í fangelsið í Popkrov 100 km austur af Moskvu fyrir helgi sögðu hann vera að missa tilfinningu í höndum. agas@mbl.is RÚSSLAND Hóta að neyða mat í Navalní Óþekktur maður komst undan á mótorhjóli eftir að hafa drepið karl- mann og sært konu mjög alvarlega í tilræði við spítala í París í gær. Árásarmaðurinn hleypti af sex skotum, að sögn blaðsins Le Figaro. Tilræðið átti sér stað við Henry Dun- ant-einkaspítalann í 16. hverfi, sem er eitt fínasta hverfi Parísar. Rekur Rauði krossinn spítalann, sem sér- hæfir sig í öldrunarsjúkdómum. Fórnarlömbin tvö voru í skyndingu flutt inn í sjúkrahúsið til aðhlynn- ingar en karlmaðurinn lést af sárum sínum er inn var komið. Konan starf- ar við öryggisgæslu í spítalanum sem er einnig miðstöð bólusetninga vegna kórónuveirunnar. Engar vísbendingar lágu fyrir í gær um tilgang banamannsins. Lög- reglan lokaði götunni og girti spít- alann af. agas@mbl.is Skotárás við spítala í París AFP Skotárás Lögregla lokaði götum í nágrenni Henry Dunant-spítalans í París eftir árásina um miðjan dag í gær. Mark32net skrifborðsstóll Fjölstillanlegur skrifborðsstóll með netbaki og bólstraðri setu. Fjöldi áklæða í boði. VORTILBOÐ 30% afsláttur 68.957 kr. með örmum 60.255 kr. án arma Verð m. vsk. David Cameron

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.