Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 15

Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 Vorboði Um leið og hlýnar í veðri flykkist fólk út undir bert loft. Fjölmargir lögðu leið sína í ísbúðina Valdís á Granda í gær, sumir reyndar enn í vetrarúlpunum þótt hitinn væri átta gráður. Eggert Fréttir af skelfilegum aðbúnaði farandverka- fólks hafa borist reglu- lega frá Katar allt frá því að ákveðið var að halda heimsmeistara- mót karla í fótbolta þar í landi. Þrátt fyrir harða gagnrýni á stjórnvöld í Katar og á yfirstjórn Alþjóðaknattspyrnu- sambandsins (FIFA) hækkar enn tala látinna. Nýleg umfjöllun breska dagsblaðsins The Guardian leiddi í ljós að fleiri en 6.500 farandverkamenn hafa látist við uppbyggingu mannvirkja og vega- framkvæmdir vegna mótsins. Það jafngildir því að tólf einstaklingar hafi látið lífið í hverri viku síðastliðin tíu ár. Ætla má að raunverulegur fjöldi látinna sé mun hærri því ekki hafa fengist tölur um dauðsföll verkafólks frá meðal annars Filippseyjum og Ke- níu. Langir vinnudagar, ófullnægj- andi öryggisbúnaður, næringar- snauður matur og þrúgandi hiti einkenna aðbúnað farandverkafólks og algengar dánarorsakir eru slys, hjartastopp og sjálfsvíg. Á bak við töl- ur yfir látna er enn stærri hópur fjöl- skyldna sem hafa misst ástvini og oft einu fyrirvinnuna. Hversu margir mega missa lífið? Við upphaf framkvæmdanna spáði Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) því að um fjögur þúsund manns gætu misst lífið ef ekkert yrði að gert í að bæta aðbúnað farand- verkafólks. Eftir því sem leið á fram- kvæmdirnar hækkaði spáin um mögu- legan fjölda látinna, enda varð ljóst að ekki stóð til að grípa til viðeigandi að- gerða og að FIFA beitti áhrifum sín- um aðeins í orði, en ekki á borði. Þrátt fyrir mikilvægar lagabreytingar sem náðust fyrir tilstilli þrýstings Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar, ITUC, og fleiri samtaka – þar sem innleidd voru lágmarkslaun og afnumin lagaákvæði sem gerðu farand- verkafólk svo háð at- vinnurekendum að því mátti líkja við þræla- hald – er raunverulegur aðbúnaður farand- verkafólks enn til há- borinnar skammar. Aðbúnaður verka- fólks í Katar er ekki einsdæmi, það er gömul saga og ný að við upp- byggingu í aðdraganda íþróttaviðburða ríkir oft óreiða og af einhverjum ástæðum virðist þykja eðlilegt að telja fórn- arkostnaðinn í mannslífum. En hversu margir farandverkamenn mega missa lífið til þess að fórnar- kostnaðurinn sé talinn óviðunandi? Þrúgandi þögn knatt- spyrnuhreyfingarinnar Fótboltalandslið í Noregi, Hollandi og Þýskalandi hafa sýnt samstöðu með verkafólki í Katar en ekkert hef- ur heyrst frá knattspyrnuhreyfing- unni á Íslandi þrátt fyrir ítrekað ákall frá verkalýðshreyfingunni og mann- réttindasamtökum og áralanga vitn- eskju um gróf mannréttindabrot. Miðstjórn ASÍ krefst þess að KSÍ taki afdráttarlausa og löngu tíma- bæra afstöðu með réttindum verka- fólks og gagnrýni með skýrum hætti yfirvöld í Katar og yfirstjórn FIFA. Knattspyrna má aldrei verða á kostn- að mannréttinda! F.h. miðstjórnar ASÍ. Eftir Drífu Snædal » Fótboltalandslið í Noregi, Hollandi og Þýskalandi hafa sýnt samstöðu með verka- fólki í Katar en ekkert hefur heyrst frá knatt- spyrnuhreyfingunni á Íslandi. Drífa Snædal Höfundur er forseti ASÍ. Opið bréf til KSÍ vegna meðferðar á farand- verkafólki í Katar Fjórða orkupakk- anum er ýtt áfram af kvörnum kerfisins sem mala jafnt og þétt. Við sitjum uppi með pakk- ann og afsal fullveldis yfir orkuauðlindunum nema fast verði spyrnt á móti. Evrópuþingið og ráð ESB samþykkti í lok maí 2019 löggjaf- arpakka sem inniheldur fjórar reglugerðir og fjórar tilskipanir. Felst í þeim endurskoðun á helstu þáttum í orku- löggjöf ESB. Hann er þó víðtækari en hinn þriðji með því að bætt er við ákvæðum um endurnýjanlega orku, orkunýtni og fleiri slíka þætti. Höggvið í sama knérunn Þrjár gerðir sem snúa að raf- orkumarkaði sæta sérstakri athug- un. Hér ræðir um gamla kunningja því þessar gerðir eru endurskoðaðar útgáfur af gerðum sem hvað mestur styr stóð um í umræðum um þriðja orkupakkann. Ber sérstaklega að nefna reglu- gerð sem leysir af hólmi eldri reglu- gerð nr. 713/2009. Með henni var sett á laggirnar samstarfsstofnun eft- irlitsaðila á orkumarkaði, ACER. Þar er að finna ákvæði um lagalega stöðu stofnunarinnar, samsetningu og ákvarðanir hennar, m.a. gagnvart landsbundnum stjórnvöldum. Við afgreiðslu þriðja orkupakkans aflaði ríkisstjórnin sér álits ýmissa lögspekinga. Mesta athygli vakti lög- fræðileg álitsgerð þeirra Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst, verkefn- isstjóra hjá Lagastofnun HÍ, og Stef- áns Más Stefánssonar prófessors. Er viðfangsefni þeirra ekki síst greining á valdheimildum eftirlitsstofnunar- innar ESA og hinnar evrópsku stofn- unar ACER sem nú á að fela aukin verkefni án þess að minnst sé á að neinar heimildir hennar falli niður. Er því álitsgerð þeirra í fullu gildi. Þungvæg gagnrýni Í álitsgerð sinni lýsa Friðrik Árni og Stefán Már hættu á árekstr- um við stjórnarskrá. Segja þeir niðurstöðu sína „að verulegur vafi leiki á því hvort fram- sal ákvörðunarvalds samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713/ 2009 […] rúmist innan ákvæða stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944“. Friðrik Árni og Stefán Már segja enga heimild til þess „að taka í lög ákvæði sem ekki fá staðist ís- lenska stjórnarskrá þó að svo standi á að ekki reyni á umrædd laga- ákvæði í svipinn“. Í fyrra mánuði staðfesti Hæstiréttur Noregs að spurninguna um hvort þriðji orku- pakkinn standist stjórnarskrá Norð- manna megi bera undir dómstóla. Þá lýsa þeir Friðrik Árni og Stef- án Már hvernig erlendum aðilum eru falin a.m.k. óbein áhrif á skipu- lag, ráðstöfun og nýtingu mik- ilvægra orkuauðlinda þjóðarinnar verði lagður sæstrengur undir Evr- ópureglum að ströndum landsins. Segja þeir slíkt valdframsal ekki geta talist minni háttar og bæta við að þessu megi „með einhverri ein- földun líkja við að ESA væri falið vald til að ákveða leyfilegan há- marksafla ríkja á sviði sjávar- útvegs“. Lögfræðilegir ráðunautar rík- isstjórnarinnar vara einnig við hættu á samningsbrotamálum. Segja þeir að „hafni Orkustofnun beiðni um [að raforkutengingum sé komið á eða þær stækkaðar] gæti fyrirtækið snúið sér til ESA með kæru sem gæti endað með samn- ingsbrotamáli gegn Íslandi. Slík staða gæti reynst Íslandi erfið.“ Sést að við þessar aðstæður yrði fátt um varnir. Reynslan sýnir að aðilar sem vinna samningsbrotamál fylgja þeim eftir með skaðabótamálum. Er skemmst að minnast ófrysta kjötsins og hafa þau mál kostað ríkissjóð háar fjár- hæðir. Í ljósi hagsmuna yrðu þær fjárhæðir þó eins og skiptimynt í samanburði við skaðabætur sem gætu fallið á ríkissjóð vegna kröfu fyrirtækis sem bæri fyrir sig samn- ingsbrot vegna raforkustrengs. Í umræðum á Alþingi um þriðja orkupakkann voru þingmenn Mið- flokksins einir um að halda á lofti þeim lögfræðilegu sjónarmiðum sem sett eru fram í álitsgerð Friðriks Árna og Stefáns Más. Fyrirvarar Alþingis skipta engu Þegar ríkisstjórnin og stuðnings- flokkar hennar töldu að sér þrengt í málinu vegna málflutnings þing- manna Miðflokksins og þungrar und- iröldu í samfélaginu, m.a. á vettvangi samtakanna Orkunnar okkar, var sagt að orkupakkinn yrði sam- þykktur með lagalegum fyrirvara til að vega upp á móti hugsanlegum árekstri við stjórnarskrána. Reynd- ist fyrirvarinn vera viðbótargrein í reglugerð iðnaðarráðherra um inn- leiðingu orkupakkans en ekki var haft fyrir því að innleiða pakkann með lögum. Prófessor Davíð Þór Björg- vinsson, höfundur bókar um Evrópu- rétt, sagði á fundi utanríkismála- nefndar að þjóðréttarlegt gildi fyrirvarans væri ekkert, hann væri bara til heimabrúks. Í fjórða orkupakkanum reynir á öll sömu álitaefnin og hér hafa verið rakin um þriðja pakkann. Nýr pakki með auknum valdheimildum kallar á örugga gæslu íslenskra hagsmuna og varðstöðu um fullveldið. Ekki kemur til greina að gefa eftir fullveldi og yf- irráð yfir mikilvægum orkuauðlind- um íslensku þjóðarinnar. Eftir Ólaf Ísleifsson »Ekki kemur til greina að gefa eftir full- veldi og yfirráð yfir mikilvæg- um orkuauð- lindum íslensku þjóðarinnar. Ólafur Ísleifsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins. olafurisl@althingi.is Fjórði orkupakkinn og fullveldið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.