Morgunblaðið - 13.04.2021, Side 16

Morgunblaðið - 13.04.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 Akrýlsteinn • Yfirborðsefni sem endist og upplitast ekki • Viðhaldsfrítt, slitsterkt og hitaþolið - endalausir möguleikar • Auðvelt að þrífa og gera við Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Ástandið í Hvíta- Rússlandi hefur verið mjög spennuþrungið í nokkra mánuði. Undanfarna daga hafa yfirvöld í Minsk beint aðgerðum sín- um að pólska minni- hlutanum – hvítrúss- neskum ríkisborgurum af pólskum uppruna. Handtökur, yfir- standandi gæsluvarðhald og hús- leit í pólskum samtökum sem og á heimilum pólskra aðgerðasinna eru liður í vaxandi kúgunarher- ferð og ofsóknum í garð Pólverja sem búsettir eru í landinu (Anna Paniszewa, skólastjóri pólska skólans í Brest, var sett í gæslu- varðhald; í síðustu viku gerði ákæruvaldið atlögu að pólskum mennta- og fræðslustofnunum með því að hefja rannsókn gegn þeim; hinn 24. mars hófst húsleit hjá Andrzej Poczobut blaða- manni). Pólskum ræðismönnum hefur verið vísað úr landi. Und- anfarnar vikur hefur staðið yfir óvægin herferð gegn Pólverjum sem snýr að sögu og rangri túlk- un á henni. Um hlutverk Samtaka Pólverja í Hvíta-Rússlandi og Andźeliku Borys formanns samtakanna (Samtök Pólverja í Hvíta- Rússlandi gegna hlutverki sam- taka pólska minnihlutans). Pólski minnihlutinn í Hvíta- Rússlandi telur um 300 þúsund manns og telst það vera töluverð- ur fjöldi (um er að ræða afkom- endur Pólverja sem urðu eftir á yfirráðasvæði Hvíta-Rússlands vegna landamærabreytinga eftir seinni heimsstyrjöldina). Til- gangur með starfsemi Samtaka Pólverja í Hvíta-Rússlandi (og annarra samtaka Pólverja erlend- is) er að rækta pólska menningu og hefðir, stuðla að pólskri menntunarstarfsemi og pólsk- ukennslu. Um er að ræða jákvæð verkefni sem snúa að verndun menningararfleifðar á þessum svæðum. Samtök Pólverja í Hvíta-Rússlandi hafa það ekki að markmiði að berjast gegn neinum eða steypa stjórninni. Það að halda menningar- viðburði telst ekki til- ræði við stjórn- málaskipan eða lög tiltekins lands. Handtaka Andźe- liku Borys telst vera skellur gegn þeim góðu samskiptum við Pólland sem og gegn þeirri hvítrússnesku hefð sem felst í um- burðarlyndi og einnig gegn hinu fjölmenningarlega eðli Hvíta-Rússlands. Um afleiðingar slíkrar ásökunar Samkvæmt Sáttmála um gott nágrenni og vinsamlegt samstarf skuldbundu Hvíta-Rússland og Pólland sig til að virða alþjóða- reglur um vernd og réttindi þjóð- ernisminnihluta. Þessar reglur njóta enn fremur verndar í milli- ríkjasamningum og sáttmálum, til að mynda í: lokasamþykkt ráð- stefnu um öryggi og samvinnu í Evrópu í Helsinki frá 1975, Sátt- mála nýrrar Evrópu frá 1990 og Samningi um hinn mannlega þátt, undirrituðum í Kaupmannahöfn árið 1990. Pólland stendur við þær skuld- bindingar er felast í ofangreindum samningum. Áframhaldandi of- sóknir í garð pólskra samtaka á yfirráðasvæði Hvíta-Rússlands brjóta í bága við þær meginreglur sem bæði ríkin hafa skuldbundið sig til að framfylgja. Um áframhaldandi aðgerðir Á fundinum í Brussel vakti Zbigniew Rau, utanríkisráðherra Lýðveldisins Póllands, máls á brotum stjórnvalda Lýðveldisins Hvíta-Rússlands gegn réttindum minnihlutahópa, rétti til að safnast saman og tjáningarfrelsi. Við er- um í viðræðum við öll samstarfs- ríki okkar um þessi mál. Árásin á pólska minnihlutann er enn eitt mannréttindabrotið í Hvíta- Rússlandi. Við lýsum von okkar og væntum þess að alþjóðasamfélagið fordæmi í heild aðgerðir hvítrússneskra yfirvalda og sameinist í beiðnum um að sleppa úr haldi öllum þeim sem hafa verið handteknir og í að binda enda á ofsóknir á hendur pólska minnihlutanum í Hvíta- Rússlandi. Pólsk yfirvöld munu einnig grípa til aðgerða fyrir tilstilli við- eigandi alþjóðastofnana, þar á meðal Mannréttindaráðs SÞ (Unit- ed Nations Human Rights Coun- cil) og Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu (Organization for Security and Co-operation in Eu- rope, OSCE). Yfirlýsing um ofsóknir í garð Pólverja var einnig gefin út af Jo- sep Borrell erindreka ESB. Fram- kvæmdastjórn ESB hefur skorað á hvítrússnesk yfirvöld að sleppa úr haldi tafarlaust Andźeliku Bo- rys og Andrzej Poczobut. Að morgni 25. mars sendi Sendiráð Lýðveldisins Póllands í Minsk bréf með brýnu erindi til utanríkisráðherra Lýðveldisins Hvíta-Rússlands með beiðni um staðfestingu og skýringar á frétt- um sem birtar hafa verið í fjöl- miðlum og fjalla um þvingandi að- gerðir í garð hvers aðgerðasinna í pólska minnihlutanum á fætur öðrum. Í bréfinu var farið fram á að gerð skyldi grein fyrir ástæðu og lagastoð fyrir slíkum aðgerð- um. Handtökur og ofsóknir Eftir Gerard Pokruszyñski Gerard Pokruszyński » Við lýsum von okk- ar og væntum þess að alþjóðasamfélagið fordæmi í heild aðgerð- ir hvítrússneskra yf- irvalda og sameinist í beiðnum um að sleppa úr haldi öllum þeim sem hafa verið hand- teknir og í að binda enda á ofsóknir á hend- ur pólska minnihlut- anum í Hvíta-Rúss- landi. Höfundur er sendiherra. Jóna skilur ekki tilgang Trygg- ingastofnunar, að gera gamla fólkið jafn ósátt við kjör sín og raun ber vitni. Gunnar eiginmaður Jónu er smið- ur. Þegar hann varð 67 ára ákvað hann að taka út eftirlaun hjá lífeyrissjóðnum. Þetta var góð búbót um 300 þús. á mánuði. Hann var hættur að vinna á bygging- arsvæðum. Var á verkstæð- inu, sá um viðhald og um- hirðu handverkfæranna hjá smiðunum, um kaffi á könnunni og alltaf var verk- stæðissmíði, sem féll til. Fór um leið í 75% starfs- hlutfall. Jóna hefur stund- um á orði hvað það eigi að þýða að fá vinnulaun greidd til þrjú, en vinna flesta daga til fimm. Þá svarar Gunnar að lífið snúist ekki allt um peninga. Skondið var þegar Jóna sagði honum frá 100 þúsund króna frí- tekjumarkinu og 45% skerðingunni á ellilaunum vegna lífeyrissjóðs- tekna, þá sagði hann að Bjarna veitti ekkert af að halda þessum peningum eftir í hítinni. „Hann heldur nú alltaf um þriðj- ungi eftir,“ sagði Jóna. „Það ætti að duga honum. Ég gæti sett mismun- inn í fiðlusjóð fyrir hana nöfnu mína.“ Jóna, litla ömmustelpan, er að læra á fiðlu í tónlistarskólanum. Fiðlan hennar er ágæt, en fjölda- framleidd og enginn kjörgripur. „Ég væri til í að leggja þessa aura til og aðstoða Jónu litlu við að láta draum- inn rætast, um að eignast sérsmíðaða fiðlu frá Jóni Marínó. Hann er meðal bestu fiðlusmiða í heim- inum.“ Jóna reiknaði í huganum. 2/3 af 45 þúsund eru tæp 30 þúsund. „Ef þessi 30 þús- und fara til Jóns Marínós fær Bjarni vsk. af þeirri upphæð. Svo fær hann tekjuskatt, þannig að líkast til fer í það minnsta helm- ingur upphæðarinnar til ríkissjóðs óskert hvort eð er, auk þriðjungsins sem ellilaunin skila. Eftir sitja um 15 þúsund krónur, sem Jón Marínó mun hafa til brauðstritsins og til að reka verkstæðið sitt. Ég er ekki hagfræðingur, en ætla að betra sé fyrir þjóðarhag að þessir fjármunir fari um hagkerfið áður en þeir lenda í hítinni hans Bjarna. Auk þess verða tugþúsundir ellilífeyrisþega sáttari við sín kjör.“ Gunnar átti ekkert svar við þess- ari hagfræðikenningu. Tómas Láruson, hliðarsjálf ellilaunaþega. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Tugþúsundir ellilífeyrisþega verða sáttari við sín kjör Tómas Láruson Núverandi og fyrr- verandi formenn Við- reisnar skrifa greinar í Morgunblaðið 12. apríl sl. þar sem þau lýsa sýn sinni á alþjóða- málin og stöðu Ís- lands, auk þess að vísa bæði beint og óbeint til fyrri skrifa minna. Svo er að sjá sem þau vilji bæði vera málsvarar „frjálslyndis“ og „alþjóðasamvinnu“ og bæði vilja að Ísland gerist full- gildur aðili að ESB. Bæði hafa viljað gefa sig út fyrir að vera „nútímaleg“, væntanlega andstætt þeim sem eru „íhaldssamir“. Lausn þeirra á lýð- ræðisvanda Íslendinga gagnvart ESB er sú að Ísland gerist þar aðild- arríki. Formaður Viðreisnar og fyrr- verandi varaformaður Sjálfstæð- isflokksins gerir talsmönnum fullveldis Íslands upp „öfgaviðhorf“. Þegar horft er á þróun mála sl. áratugi á vettvangi ESB og sívax- andi þunga regluverks þess í ís- lenskum rétti blasir alls ekki við að ofangreindur málflutningur standist mælikvarða um „nútímaleg“ viðhorf, né heldur efnisleg viðmið frjáls- lyndis, lýðræðis eða alþjóða- samvinnu. Þétt regluverk, sérfræð- ingastjórn og skortur á lýðræði eru ekki einkenni frjálslynds stjórn- arfars. Þungur straumur erlendra reglna, sem samdar eru af fulltrúum annarra þjóða án viðunandi tempr- unar af Íslands hálfu, er ekki merki um alþjóðlega „samvinnu“. Áskor- anir nútímans hafa vakið milljónir manna til vitundar um það að bóluefnaklúður, höft á samnings- frelsi þjóða og ólýðræðislegir stjórn- arhættir verða ekki réttlætt með innantómum tilvísunum til þess að við þurfum að vera „nútímaleg“. Getur verið að eftir bráðum 30 ár af þessu fyrirkomulagi hafi „úrelding- arstimpillinn“ mögulega snúist í höndum þeirra sem vilja kalla stjórnarhætti ESB „nútímalega“ og fullveldið „gamaldags“. Getur verið að talsmenn ESB séu þá orðnir fulltrúar gamaldags íhalds en að málsvarar sjálfstjórnar, lýðræðis og valddreifingar séu orðnir „nútímalegri“ og „framsæknari“ en fulltrúar „gamla stjórn- skipulagsins“ (fr. an- cien régime)? Í stað ásýndar, hé- góma og skrums um gervifrjálslyndi, gervi- lýðræði og gervi- samvinnu væri óskandi að umræða um stjórn- mál, lagasetningu og lagafram- kvæmd færðist inn á svið raunveru- leikans. Tillaga um aðild að ESB verður að byggjast á raunsæi og staðreyndum, ekki skrúðmælgi og ímyndunum. Í því samhengi er nær- tækt að kynna sér umræðu um hugs- anlega aðild sjálfstæðs Skotlands að ESB (þ.e. ef Skotar myndu segja skilið við breska ríkið). Skotar eru um 5,5 milljónir, rúmlega 1% heild- aríbúafjölda aðildarríkja ESB (477,7 milljónir manna). Skotum er morg- unljóst að þeir yrðu í flokki smáríkja innan ESB og fengju færri en 1% þingmanna á Evrópuþinginu. Regl- ur ESB gera ekki ráð fyrir að aðild- arríki hafi eitt atkvæði hvert, heldur fer atkvæðafjöldinn eftir íbúafjölda hvers ríkis fyrir sig. Af þessu leiðir að Þýskaland (83 milljónir íbúa) og Frakkland (67 milljónir) taka í fram- kvæmd flestar ákvarðanir sem máli skipta. Áhrif þessara tveggja ríkja eru í reynd miklu meiri þar sem þau fjármagna ESB að stærstum hluta. Ef fyrir liggur að Skotland með sín- ar 5,5 milljónir manna yrði í far- þegahlutverki í ESB, hvert yrði þá hlutverk örríkisins Íslands við há- borð ákvarðanatöku í Brussel? Sjálfstæði jafngild- ir ekki einangrun Eftir Arnar Þór Jónsson Arnar Þór Jónsson » Óskandi væri að um- ræða um stjórnmál, lagasetningu og laga- framkvæmd færðist inn á svið raunveruleikans. Höfundur er héraðsdómari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.