Morgunblaðið - 13.04.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 13.04.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 ✝ Gunnar Snorrason fæddist á Ísafirði 28. ágúst 1943 og dvaldi sitt fyrsta ár í Aðalvík, hann lést í Kópavogi á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð miðvikudaginn 31. mars. Foreldrar Gunnars voru Snorri Ragnar Jónsson frá Stakkadal í Aðalvík og Aðal- björg Vigfúsdóttir frá Tjörn- um í Skagafirði. Systkini Gunnars eru: María Guðbjörg Snorradóttir, sam- feðra, fædd 21. júní 1941, dáin 30. október 2011, Ágústa Fanney Snorradóttir, fædd 8. ágúst 1942, Páll Snorrason, fæddur 4. júní 1947, Gestur Snorrason, fæddur 27. maí 1951, Halldóra Jóna Snorra- dóttir, fædd 10. júní 1953, Ragnar Snorrason, fæddur 23. janúar 1959 og Jónína Sóley Snorradóttir, fædd 28. október 1963. Þann 27. desember árið 2008 giftist Gunnar Ólínu Ingibjörgu Kristjánsdóttur eft- ir 30 ára sambúð. Börn Gunnars eru: Aldís Guðrún Gunnars- dóttir, fædd 11. október 1967, gift Gilbert Jacobs, börn þeirra eru Pétur Jökull og Júlía Sóley. Elva Björk Gunnarsdóttir, fædd 11. febrúar 1971, börn Annelie Gunnarsdóttir og Jessica Gunnars- dóttir. Fósturdóttir Gunnars er Katrín Sylvía Símonardóttir, fædd 31. mars 1973, sonur Hinrik Snær Katrínarson. Kristján Ingi Gunnarsson, fæddur 18. júní 1980, eigin- kona Sigrún Inga Briem og börn þeirra eru Andri Dagur, Heiðbjört Diljá og Aron Gunn- ar. Adda Ósk Gunnarsdóttir, fædd 17. október 1986, eigin- maður Aron Þór Leifsson og börn þeirra eru Apríl Lilja, Benjamín Eldjárn og Maríkó Máney. Eftir útskrift starfaði Gunn- ar lengi sem matreiðslumaður á sjó og landi. Sinnti einnig fjölmörgum öðrum tilfallandi störfum eins og umönnun fatl- aðra. Síðustu árin vann Gunn- ar fyrir Breiðablik en fyrst og síðast var Gunnar hlaupari. Elsku Gunni minn. Takk fyrir ástina okkar í 43 ár. Í mínu hjarta er ást, sorg og gleði eitthvað sem við upplifð- um saman. Þú kenndir mér og börnun- um að herma eftir fuglahljóðum og bera virðingu fyrir nátt- úrunni og landinu okkar. Takk fyrir gleðina, sönginn, dansinn og umhyggjusemina sem þú sýndir okkur og öllum. Ég átti mitt nafn, fyrir þér var ég ekki Ólína eða Lína sem allir kölluðu mig, fyrir þér var ég Ingibjörg. „Ingibjörg, takk fyrir að vera eina konan sem ég hef hlaupið til, nú er ég loksins kominn heim.“ Að þú skulir vera kominn á góðan stað við fallegt fjallavatn með þína stöng og að njóta. En það er stutt að taka sprettinn í næstu stóru laxveiðiá. Þetta var þitt yndi, náttúrubarnið sem þú varst og ert. Kveð þig umvafin kossum og væntumþykju, þar til við sjáumst næst. Lipur nærir lífsins hlaup, léttur skokkar Gunni. Góðri heilsu heillakaup fylgir hamingjunni. (Arna Erlings, 28.8. 2012) Ég elska þig! Þín Ingibjörg. Æi pabbi. Hef reynt að byrja að skrifa en hreinlega get það ekki, að skrifa um þig í þátíð er ekki rétt og það verður ekki rétt í einhvern tíma en ég skal vera sterk. Þú varst sá einstaklingur sem kenndi mér alltaf að vera sterk, harka af mér og halda áfram sama hversu holóttur vegurinn er. Fyrir þér var ekk- ert erfitt eða óyfirstíganlegt, sama hvað. Allir elskuðu þig, pabbi, þú varst allra. Þú máttir ekkert aumt sjá því þú í þinni Breiðu- vík varst búinn að klára þann pakka. Ég var svo montin allt- af, pabbinn sem kunni allt, það varst þú, hvað sem var, þú varst hreinlega góður í öllu ef ekki bestur. Þú varst minn heimur. Tjaldútilegur og náttúran var mín barnæska, ferðalög um Ísland. Villi Vill var þitt uppáhald. Villa-spóla í tækinu var alltaf á ferðalögum okkar sem börn og ég reifst við full- orðið fólk sem meira að segja var nákomið okkur báðum. JÚ VÍST, þetta er pabbi minn að syngja. Því þú söngst alltaf hátt og að mínu mati betur en Villi Vill. Þú varst mikið á sjó þegar ég var lítil en aldrei fjarlægur því þegar þú komst í land fórstu með okkur Krist- ján í sund, skauta, veiða og eldaðir besta matinn. Æ, ég get haldið eflaust endalaust áfram. Einu vankantarnir við það þegar þú komst í land voru að við Kristján máttum þá ekki sofa uppi í því þið vild- uð knúsast smá. 2012 þegar ég kom heim eft- ir búsetu erlendis í nokkra mánuði tók ég fyrst eftir sjúk- dómnum illa sem hrifsaði þig frá okkur. Ég plataði þig í sund en fyrst ættum við að kíkja til Stefáns heimilislæknis að tékka á heilsunni. Þú varst frábær leikari og hefðir eflaust verið æðislegur þar enda gullfallegur og með kímnigáfu upp á 10. Þú tókst próf með mér og fórst í rannsókn, þá kom það í ljós, alzheimer. Fyrir þér var lík- aminn þinn eins og musteri, borðaðir hollt, varst mjög með- vitaður um hreyfingu. Ég flutti heim þetta sumar því það vor- um alltaf bara við tvö á móti heiminum. Við vorum svo eins. Hlaup var þitt líf og líf þitt var hlaup. Þolinmæðin þín var ekki öll en þrjóskan var þar alltaf. Þú komst fljótt að því að ég hefði þá eiginleika líka. Þú kenndir mér að lita almennilega í lita- bók á Grjótnesi. Vandaðu verk- ið þitt alltaf, sama hversu lítið það er, það skilar sér sagðirðu og ég tók það með út í lífið. Þú stríddir mér mikið sem ung- lingur, enda stríðnispúki að eðli. Ég fékk þá viðurnefnið hjá þér Ruslana Draslikova, ekki að hin nöfnin sem þú gafst mér hafi ekki verið nóg, Litla frek, Baggabögg og Villta tryllta. Ég er þakklát fyrir þá stund sem við áttum saman þín síð- ustu skref. Þó þú hafir verið sofandi og reynt að stríða okk- ur nokkrum sinnum með brott- för þá vorum við mamma, Kata og Kristján alltaf hjá þér. Héldum í hönd þína og vorum með þér í ferðalokunum. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, takk fyrir alla þá ást sem þú gafst mér og börnunum mínum. Ég veit að þú munt hlaupa við hlið mér í öllum hlaupum sem eftir eru en ég vona að hlaupin séu fögur í sumarlandinu. Sjáumst þegar mitt hlaup klár- ast. Þá tekur þú við mér í enda- markinu með þitt blik í auga og hlýja fallega bros. Þín eina Ósk. Elsku pabbi! Þú gafst mér lífið, elsku pabbi, þínar hendur, þínar tær. Brúna húð og dökka hárið, skrokk sem þolir tímans klær. Þú gafst mér systkin til að elska og leiða, stóra hjartað og næma sál. En enga feimni við að sýna hið innra bjarta mikla bál. Við elskum söng, við elskum dansa, á góðum stundum gleðitár. Mikið hef ég þér að þakka, sakna mun ég þín í ár. Aldís Guðrún Gunnarsdóttir. Reyni að skrifa en kem ekki út því sem ég hugsa, söknuður- inn og sorgin stöðva mig. Sorg- in er bara ást, orðin eru lítil og ómerkileg en mig langar samt að reyna að útskýra og segja frá þér, hvað þú varst yndis- legur. Orðið pabbi er breytt, mein- ing mín breytist þegar pabbi minn er farinn. Bið börnin mín um eitt þegar ég segi þeim að afi sé dáinn, aldrei hætta að kalla mig pabba þó við verðum öll eldgömul saman. Þrátt fyrir að vera á sjónum þá man ég þig ekki þannig, man þig ekki í burtu. Góðir pabbar elska, kenna, eru til staðar. Elska þetta orð, pabbi. Það kallar fram minn- ingar sem birtast mér ljóslif- andi. Lykt, birta, tilfinningar sem ég áttaði mig ekki á hversu dýmætar eru. Blátt BMX-hjól á stofugólfi, kaldar tær settar á magann, svartfuglsegg, lúða á stærð við 8 ára mig sem við veiddum saman, hlaup á ströndinni, app- elsínugulur baðsloppur, Gunna litla. Sléttir frosna tjörnina með heitri tunnu, heitasti pott- urinn í lauginni, mættur til að hitta okkur og barnabörnin, AB og múslí, Aðalvík, Breið- holt, Raufarhöfn, Akureyri, Kópavogur, Breiðablik. Elsku pabbi! Nota söknuðinn og sorgina til að verða sterkari. New York-maraþon. Fórum það ró- lega að þú sagðir mér allt sem þér lá á hjarta og þú hreins- aðir. Það var ekki þér að kenna að við fórum hægt þó þú værir að verða sjötugur. Sagðir mér hvernig heimilið í Kópavogin- um var, vondi kallinn á Kjal- arnesinu, fólkið í Breiðuvík, hvað margt var vont en svo sagðir þú: „Kristján minn, þú hefur val um að verða fórn- arlamb eða láta mótlætið styrkja þig en til að ná því þá þarf manneskjur sem taka okk- ur upp á næstu hæð.“ Mamma var þín næsta hæð, þitt heimili, Sigrún er mitt og við værum báðir týndir án þeirra sagðir þú. Þú ert ekki týndur. Veit að ég þarf bara að fara út að hlaupa til að fá tíma með þér. Er afprýðisamur, veit þú ert að hlaupa annars staðar. Langar að hlaupa með þér, finna pabbalyktina, heyra þig segja hæ við alla, biðja mig um að vera útskeifur. Sakna þín, fer út að hlaupa. Dýr, börn og heilbrigðis- starfsmenn segja hlutina eins og þeir eru. Engan þekki ég betri með börnum eða næmari með dýrum. Fólkið á Sunnuhlíð hugsaði svo vel um þig, vænt- umþykja mín er til þeirra allra. Kominn með pláss fyrir mig og mömmu. Langar að segja takk fyrir að velja að vera góður, takk fyrir að gefa svona mikið af þér. Takk fyrir að hugsa svona vel um liðið þitt. Núna hef ég tækifæri með mínum börnum, mínu liði, gefa af mér og búa til minningar. Allar klisjurnar um að lífið sé núna, tíminn líður trúðu mér o.s.frv. eru sannar. Ég passa mömmu! Skál fyrir guðsgrænni æsku og öllu sem glitrar og grær. Farðu varlega í Aðalvíkinni, veit þú tekur á móti mér þar, í Breiðabliki, á Kanarí, hvar sem ég er. Þú ert ekki farinn þó ég þurfi að kveðja þig, finn fyrir þér á morgnana þegar ég set á mig Nivea-kremið. Já ég stal stóru bláu dollunni þinni eftir að þú sofnaðir, góða nótt og guð geymi þig sagðir þú alltaf. Nú segi ég það við þig. Ég lifi í draumi og finn þig þar þangað til við mætumst á ný. Elska þig, pabbi! Kristján Ingi. Ó elsku Gunni pabbi, þín er sárt saknað en mikill léttir þó um leið að þú sért loksins orð- inn frjáls. Ég veit að þér líður mikið betur núna og er hand- viss um að það fyrsta sem þú gerðir þegar þú fórst yfir var að hlaupa um sumarlandið í sól og blíðu og skemmta þínu fólki með harmónikuna um hönd og syngja þín frægu lög sem við eigum svo margar góðar minn- ingar um með þér. Elsku Gunni pabbi, þú hefur ávallt verið mér góður og hug- að vel að mér og barninu mínu. Ég verð þér ævinlega þakklát fyrir allt sem þú kenndir mér um lífið og hvað það skiptir miklu máli að vera maður sjálf- ur og gefa af sér, eins og þú sagðir svo oft „karma sér um sína“. Takk fyrir að hafa komið inn í líf mitt og okkar. Elska þig og sé þig seinna með þitt stríðn- isaugnaglott og bros á vör. Loks beygði þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð; sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. (Jóhannes úr Kötlum) Katrín Sylvía Símonardóttir. Elsku vinur sem varst okkur svo kær, nú ert þú alveg far- inn. Þó svo við kæmum ekki oft að hitta þig, þar sem ástandið í samfélaginu hefur ekki boðið upp á það, þá varstu og verður alltaf í hjarta okkar. Ferðalög- in voru mörg, veiðiferðir sem þú hafðir yndi af, t.d. þegar þú varðst 70 ára vorum við vin- irnir saman á bát á Hestvatni þann daginn. Útlandaferðir í sólina sem þú dýrkaðir. Kokk- ur mikill og bjóst til bestu béarnaise-sósu sem ég hef smakkað, pönnukökurnar voru ekki síðri. Þetta vísukorn kom þegar við vorum stödd í veiði: Stubbur upp við stíflu stóð, með stöng og orm á öngli, hættið þessu vinir góð ávallt miklu töngli. Við eigum þér mikið að þakka. Einu sinni spurðir þú mig hvort við værum ekki bestu vinir, ég svaraði: „Ójú, bestu.“ „Má ég þá kyssa þig á kinn?“ Þú kysstir mína og ég þína, svo dönsuðum við hæla- dansinn. Þú hafðir dálæti á fuglum og gast hermt eftir þeim, lést þig oft hverfa út í náttúruna, svo mikið náttúrubarn varstu. Þökkum fyrir góða vináttu í gegnum tíðina. Við sendum aðstandendum samúðarkveðjur. Svanfríður (Dandý) og Sigurjón. Gunnar Snorrason Ástkær móðir okkar, systir og mágkona, MARÍA SIGRÍÐUR INGIBJARTSDÓTTIR, lést 25. mars á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Jarðarförin fór fram 8. apríl. Í ljósi aðstæðna voru aðeins nánustu viðstaddir. Kristján Haukur Magnússon Ingibjört Eva Magnúsdóttir Barði Ingibjartsson, Oddný Elínborg Bergsdóttir Guðrún Björg Ingibjartsdóttir Björn Ingibjartsson og aðrir ástvinir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR, Vöglum, Fnjóskadal, síðar Miðleiti 7, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 27. mars. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 15. apríl klukkan 13. Vegna aðstæðna verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd, en athöfninni verður streymt á promynd.is/sigurlaug Sigríður Ísleifsdóttir Jón Ísleifsson Jóhann Ísleifsson Sumarliði Ísleifsson Sigurður Ísleifsson Rúnar Ísleifsson tengdabörn, barnabörn og langömmubörn Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi, langafi, bróðir og mágur, ÁRNI KR. AÐALSTEINSSON vélvirkjameistari, Kaldaseli 8, Reykjavík, lést á Hrafnistu Skógarbæ fimmtudaginn 18. mars. Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 15. apríl klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis fjölskyldan og nánir vinir viðstödd athöfnina. Útförinni verður streymt á vefsíðunni www.seljakirkja.is. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Skógarbæ fyrir einstakt viðmót og hlýju. Aðalsteinn Árnason Guðrún Friðjónsdóttir Rannveig Björg Árnadóttir Ingvi Rúnar Guðmundsson afabörn og langafabörn Viðar Aðalsteinsson Gyða Arnmundsdóttir Okkar elskaði eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og tengdasonur, HAUKUR OTTESEN íþróttakennari, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 8. apríl. Að ósk hins látna verður jarðað í kyrrþey. Guðlaug Þorgeirsdóttir Ester Ottesen Birgir Ólafsson Haukur og Andrea Hildur Ottesen Emma og Leó Erla Ottesen Guðni Kjartansson Örn Ottesen Þórunn Oddsdóttir Þórhildur Sæmundsdóttir Útför okkar ástkæru KETILRÍÐAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Efra-Núpi, Miðfirði, V-Hún., fer fram í Bústaðakirkju föstudaginn 16. apríl klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstendendur og vinir viðstaddir. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat undir liðnum: Beinar útsendingar frá útförum. Sigbjörn Hamar Pálsson Hjörtur Líndal Jóhannsson Benedikt Líndal Jóhannsson Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir Ingunn Sara Sigbjörnsdóttir Sólrún Sigríður Sigbjörnsd. Brian S. Campbell barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.