Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 ✝ Smári Jónsson var fæddur á Fæðingarheimilinu í Reykjavík 1. júlí 1965. Hann lést á heim- ili sínu 26. mars sl. Foreldrar hans eru Fjóla Stefáns- dóttir, f. 17 nóvem- ber 1939, og Jón Þorberg Stein- dórsson, f. 6. júlí 1939, d. 12. mars 1974. Systir Smára er Bryndís Hall- dóra Jónsdóttir, f. 4. mars 1961. Maður hennar er Birgir Blomst- erberg. Þau eiga þrjú börn og mörg barnabörn. Snorri Snorrason, sammæðra, f. 14. júlí 1977. Hann er í sambúð með Ingi- björgu Berglindi Grétarsdóttur. Snorri á fjóra syni og eitt barna- barn. Smári eignaðist þrjú börn. Þau eru: 1) Thelma Lind, f. 16. október 1991, og 2) Aron Elí, f. 24. september 1993. Móðir þeirra var Ásta Ragna Jóns- dóttir, en hún lést 9. apríl 2002. 3) Viktoría Dag- mar, f. 1. ágúst 1998. Móðir hennar er Halla Ruth Sveinbjörnsdóttir. Skólaganga Smára var ekki löng. Hann vann hin ýmsu verk um æfina, bæði við sendibílaakstur, sjoppurekstur í Bónus vídeó, rekstur sólbað- stofu, leigubílaakstur og sem rútubílstjóri um land allt með er- lenda ferðamenn. Hann titlaði sig sjálfur alltaf sem rútubílstjóra. Útförin fer fram í Fella- og Hólakirkju í dag kl. 13.00. Í ljósi aðstæðna verða ein- ungis nánustu aðstandendur við- staddir, en útförinni verður streymt: https://youtu.be/ grY3UOyAqGk Ef þú felur frelsaranum allt, þú finna munt hans kærleikur þig geymir. Þó þér finnist kannski stundum kalt, ei kvíða skalt, þú veist hann engum gleymir. Þeir sem reyna í þraut sín verk að vinna, verða stundum þreytuna að finna. (Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði) Elsku sonur minn. Ég mun aldrei gleyma þeim degi sem þú fæddist. Þér lá svo mikið á að komast í heiminn að þú tókst þetta á fjórum klukkutím- um og ég fékk enga pásu allan tímann. Þegar þú skaust í heiminn byrjaðir þú á að spræna beint út í loftið og Hulda Jens, sem tók á móti þér, sagði: Já, hann sýnir strax að hann er sannur karlmaður þessi. Þú varst svo indæll, Smári minn, alla tíð, en þú fórst nokk- uð hratt í gegnum lífið. Alltaf varstu hlýr, góður, glaður og brosandi og elskaðir allt þitt fólk af öllu þínu stóra hjarta. Þitt hjarta rúmaði marga. Þú varst orðinn svo þreyttur elsku sonur minn. Ljóðið sem ég gaf þér síð- asta afmælisdaginn þinn, þegar þú varðst 55 ára, er í einkaeign minni, ort fyrir mig fyrir tug- um ára, af dásamlegri konu, Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Melgerði. Það kemur hér sem hinsta kveðja til þín frá mér. Mamma vafði örmum um unga son- inn sinn, sagði elsku hugljúfi, hjartans vinur minn, láttu ekki vínið hér viti þínu spilla. Þú veist það eykur girndir og löngun til hins illa. Mig langar til þú vandir hér verk og orðin þín, og verðir hverja lífstundu hjartans gleðin mín en sérhver dropi víns er hér varir snertir þínar, það verkar eins og stunga á hjarta- rætur mínar. Af sjálfsdáðum þú getur ei gætt þín vinur minn, en gættu þess hann býður þér faðm- inn frelsarinn. Reyndu, treystu barn mitt, hann veikan vilja styður vit þú daga og nætur þín mamma líka biður. Ég bar þig barn á armi, þú brostir hlýtt til mín, sem bjartur geisli ennþá sú fagra minning skín. Mér veiti drottinn Jesús þær vonir fái að rætast að við megum hjá Guði, með brosi aftur mætast. Vertu Guði falinn. Við sjáumst aftur í upprisunni, á efsta degi, sem við bæði trúð- um. Ég elska þig, elsku sonur minn. Þín mamma, Fjóla Stefánsdóttir. Elsku pabbi minn. Það eru ekki til orð yfir þann sársauka sem ég finn núna. Hjartað mitt er mölbrotið og það er ekkert nema pabbafang sem gæti lag- að það. Mér finnst allt svo óraunverulegt og ég þrái ekk- ert heitar en hlýjan og sterkan faðminn þinn og þýðu röddina þína segja mér að það verði allt í lagi. En ég veit að það verður aldrei allt í lagi. Ég horfi í kringum mig og sé alla halda áfram eins og ekkert hafi í skorist og ég skil ekki hvernig, því heimurinn minn er hruninn. Þú varst enginn venjulegur pabbi; þú varst mesti töffarinn, sætasti og skemmtilegasti pabbinn. Í snjáðum leður- eða gallajakka, í rifnum gallabux- um, með sólgleraugu, lokk í eyranu og tattú. Amma hefur sennilega oft rifið á þig nýtt rassgat fyrir klæðaburð og þú látið það sem vind um eyru þjóta. Það var enginn eins mik- ill töffari og þú. Þú hafðir sérstakt lag á að segja öllum í kringum þig hvað þér þætti vænt um þá. Þar vor- um við börnin þín engin und- antekning og ég verð þér ævin- lega þakklát fyrir að segja mér í hverju samtali, hverju símtali og skilaboðum hversu heitt þú elskaðir mig, uppáhalds elsta barnið þitt. Þú hafðir nefnilega líka sérstakt lag á að segja okkur hvaða sérstöðu við höfð- um hjá þér. Ég var uppáhalds elsta barnið þitt, það sem þú hafðir elskað lengst. Aron var uppáhaldsmiðjubarnið þitt, það sem þú hafðir mestar áhyggjur af og líktist þér mest og Vikt- oría uppáhalds yngsta barnið þitt, litli uppátækjasami trúð- urinn þinn. Þú lofaðir mér eitt sinn að vera okkur systkinum bæði móður- og föðurarmur og ég veit þú reyndir eins vel og þú gast. Fyrir það er ég þakklát. Það hefur sennilega ekki verið einfalt verkefni og guð má vita að mistök voru gerð en þú leystir það vel af hendi og með þeim verkfærum sem þú hafðir. Ég veit þú hafðir oft samvisku- bit yfir að gera ekki betur á tímum og það sker mig í hjart- að að hafa ekki sagt þér það nógu oft og ákveðið að það er það sem gerir gott foreldri, að gera sitt besta en vilja samt gera betur fyrir börnin sín. Það sem upp á vantaði var lagað með þéttu faðmlagi og allri þeirri ást sem barn getur nokk- urn tíma óskað sér. Ég veit ég sagði þér það allt of sjaldan og ég vona að þú hafir vitað hve þakklát ég er þér fyrir allt sem þú gafst mér, kenndir mér og innrættir mér. Þú varst alltaf svo stoltur af mér, fyrir öll mín afrek og hældir þér aldrei fyrir þann þátt sem þú áttir í þeim. Því segi ég það hér að ég er vegna þess að þú varst. Ég veit að þú hefðir aldrei samþykkt að fara úr þessum heimi nema að vita að ég verði í lagi, því gef ég þér loforð nú eins og þú gafst mér þá. Ég verð í lagi, ég veit ekki hvernig eða hvenær en ég skal vera sterk. Ég skal halda áfram að gera þig stoltan. Ég skal hugsa um, styðja og vera stolt af yngri systkinum mínum og gæta þess að gefa þeim eins vel og ég get af þeirri ást sem þau áður fengu frá þér. Sem uppá- halds elsta barnið þitt skal ég gæta þess að uppáhalds miðju- og yngsta barnið þitt verði líka í lagi. Ég elska þig endalaust, pabbi minn, og ég sakna þín strax. Alltaf stelpan þín, Thelma. Elskulegi, fallegi, fullkomni, besti pabbi minn. Guð minn góður hvað það er erfitt að skrifa kveðjuorð til þín hér. Hvað lífið getur verið erf- itt og ósanngjarnt. Hjartað mitt er í molum og ég veit ekki alveg hvað skal segja. Tárin flæða niður vanga mína í takt við skrifin. Allt er svo tómlegt án þín og ég veit hreinlega ekki hvernig ég held áfram án þín, elsku pabbi minn. Þú varst svo indæll, góður og blíður maður, sá besti af þeim öllum. Þú reiddist mér aldrei og við rifumst aldrei. Ef við þrættum þá endaði það snöggv- ast með hlátri og sáttum. Þú lést mig aldrei efast um hvort þú elskaðir mig, þú sagðir mér það í hverju einasta samtali og hverju einasta símtali. Það fór aldrei fram hjá mér hversu mikið þú elskaðir mig. Að kveðja þig er varla hægt. Efst mér þó í huga er þakklæti, þakklæti fyrir þig og allt sem þú hefur fyrir mig gert, allar okkar fallegu minningar og stundir, þakklæti fyrir alla þína óendanlegu ást, þakklæti fyrir vin minn sem ég átti í þér og gat ávallt leitað til. Ef ég ætti eina ósk, þá værir þú hér hjá mér, en ég veit þú munt standa við hlið mér í anda og styðja mig við hvert einasta skref sem ég tek. Þú fylgir mér í gegnum lífið og hjálpar mér, það veit ég vel. Þú hefur alltaf verið svo stoltur af litlu skottunni þinni og ég skal passa það að halda áfram að gera þig endalaust stoltan. Það er svo sárt að sakna, elsku pabbi minn, ég mun sakna þín alla daga, alltaf, svo lengi sem ég lifi. Ég veit þú munt taka fagn- andi á móti mér þegar minn tími kemur og ég get ekki beð- ið eftir þeirri stundu. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér í gegnum lífið elsku pabbi minn. Ég kveð þig nú í bili með trega, elsku besti vinur minn. Guð geymi þig og fallegu sál þína. Þar til við hittumst aftur, elsku fallegasti engillinn minn. Ég elska þig endalaust, allt- af. Þín, ávallt þín, Viktoría. Afi Steini vitjaði mín í draumi, tvær nætur í röð. Eng- in orð, í hvorugt skiptið. Horfði bara á mig. Ég hringdi í Smára, sem ég hafði alltaf kvíða yfir sl. ár, og fékk svarið: „Í augnablikinu er slökkt…“ Eitthvað var að. Sím- inn hans var aldrei rafmagns- laus. Ég var fjögurra ára þegar hann fæddist. Ég elskaði hann strax. Fyrstu árin hans bjugg- um við í Eskihlíðinni. Við vor- um líka svo heppin að afi Steini bjó hjá okkur. Afi var bestur! Afi var leigubílstjóri og hestamaður og undi sér best að hafa okkur barnabörnin hjá sér, hvort sem var á ferðalög- um, í næturgistingu eða í hest- húsinu hans. Smári var mikill afastrákur og fékk ómældan hestaáhuga og undi sér með afa í kringum þá. Það var ótrúlegt að sjá bróður minn hvernig hann nálgaðist hestana, óhræddur og vann sér traust þeirra. Svona liðu árin í leik og gleði með hestunum hans afa við Ell- iðaárdalinn. Þetta voru góðir tímar. Oft rifjaði hann upp þegar hann var að læðast í kökudunk- ana hennar mömmu og reyndi að stela úr þeim þegar það mátti ekki. Hann grét úr hlátri þegar hann minntist þess er vargurinn systir hans greip hann eitt sinn með rassinn út úr skápnum, skellti honum á hæl í gólfið og dró hann eftir gólfinu á hettupeysunni svo hann hvarf ofan í peysuna og honum hent fram á gang og læstur úti. Kökulöggan var mætt! Svona eru systkini. Ást og bardagi. Vá, hvað ég elska þennan bróður minn. Hvernig á ég að geta vaknað hvern dag og hann ekki hér? Aldrei að fá símtal: Hæ, Systa mín, hvað segir þú gott? Það var rætt um allt og ekkert, þráttað, huggað, nýj- asta skúbbið og mikið hlegið. Svona eru systkini. Ást og bar- dagi. Lífið leikur ekki við alla og það fór ekki mjúkum höndum um Smára minn. Hann glímdi við ótal þrautir á sinni ævi. Alltaf var hann samt æðrulaus. Viðurkenndi alla sína vankanta. Hann faldi þá aldrei. Hann bað Guð að taka þá frá sér, en allt kom fyrir ekki. Að lokum var hann sigraður. Mesta gleði hans í lífinu var að eignast börnin sín sem hann elskaði út yfir allt, Thelmu, Ar- on Elí og Viktoríu. Smári kvaddi aldrei öðruvísi en að segja að hann elskaði mann. Og hann vissi að hann var elskaður á móti. Afi Steini birtist mér nóttina sem bróðir minn dó. Hann birt- ist mér aftur nóttina áður en hann fannst. Ég trúi á tákn drauma, að verið sé að benda manni á eitthvað. „Í augnablikinu er slökkt á farsímanum…“ Ég vissi það þá að hann var farinn. Líkami hans var búinn. Líkami hans var svo þreyttur og hann vissi það sjálfur að hann yrði ekki langlífur. Hann talaði um það. Ég á ótal minningar um bróður minn sem ég geymi bara í hug og hjarta. Bæði góð- ar og slæmar. Okkur var aldrei lofað að lífið yrði hnökralaust á þessari jörð. Hann fékk svo sannarlega að smakka þann bikar. Ég efast ekki eina mínútu að Guð taki hans góðu sál í sinn náðarfaðm og gefi honum frið. Og hjálpaðu okkur Guð að lifa áfram án hans. En mikið fjandi verður það erfitt. Ég elskaði þig frá upphafi lífs þíns, elsku brósinn minn, alla tíð og allt til enda lífs míns. Þú vissir það. Vertu Guði geymdur, ljúfur- inn minn. Þín Systa. Bryndís Halldóra Jónsdóttir. Það er ekki auðvelt að skrifa minningargrein um frænda, hann var svo margbrotinn per- sónuleiki og einna helst hægt að líkja honum við stórbrotin norðurljósin með öllu litrófinu og í allri sinni dýrð með sína fallegu dansandi liti. Smári hafi fallega sál og var tilfinningamaður, listrænn og samdi ljóð. Líf hans var ekki alltaf létt en hann tók því sem að honum var rétt og vann úr því sem hann hafði. Hann var ekki ríkur af veraldlegum auði en þeim mun ríkari af ást og kærleik. Hann var næmur á líð- an fólks og ef einhver átti bágt sá hann það fljótt og vissi hvar skórinn kreppti. Eitt nærtækt dæmi var þegar hann skipti öllu á milli sín og Sigfúsar son- ar míns. Það var jafnt á hjá þeim komið í það skiptið og hann vildi ekki að litli frændi færi frá honum, heim til sín, öðruvísi en leysa hann út með smurðri flatköku með kæfu og tóbaki til jafns við hann sjálfan. Þetta var Smári í hnotskurn; skipta því litla sem hann átti til og gefa frá sér. Ég verð að minnast á hvað hann var mikill tímamaður og stríðnispúki. Dagurinn byrjaði oft á að heyrast og hann spurði mig hvenær ég væri laus og um allt sem ég væri að fara að gera, og allt tímasett, klukkan hvað hitt og þetta væri búið, og svo kæmi ég til hans. Hann beið rólegur þangað til ég stóðst ekki áætlun og átti að vera komin, þá byrjaði ballið. Hann hringdi í mig stanslaust til að spyrja af hverju ég væri ekki komin, hann gat gert mig brjálaða! Þetta fannst honum fyndið, en um leið og ég hitti hann og sá brosið hans vegna þess að ég væri loksins komin hvarf allur pirringur, en brosið hans gerði mig alltaf glaða. Brosið hans var fallegt, faðmlagið hans hlýtt og þegar hann brosti náði brosið yfir allt andlitið og augun ljómuðu líka, ég get sagt að þau voru spegill sálar hans, falleg. Ég sakna Smára sárt, við vorum meira en bara frændsystkin, við vorum bestu vinir og ég gat sagt hon- um allt, viss um að það færi með honum í gröfina. Mér finnst lýsandi fyrir frænda og hans elsku í minn garð þegar hann hringdi í mig í síðasta sinn fárveikur og sagði mér að hann elskaði mig og ég ætti ekki að hafa áhyggjur af sér, ég ætti að hugsa betur um mig sjálfa. Ég þakka fyrir samfylgd frænda, hann hefur gert líf mitt auðugra en að sama skapi snauðara við fráfall hans, það er sárt að geta ekki séð né heyrt hann. Mig langar til að enda þessa grein á þá leið að minnast þess þegar ég kvaddi Smára minn í síðasta sinn og á minn hátt. Ég kvaddi hann sér- staklega vel, ég fann að það var ekki langt eftir, en ég strauk honum um vangann, tók um hendurnar hans og sagði hon- um hversu ég elskaði hann og hann væri ljúfurinn minn og að ég kæmi til hans á morgun, en það varð aldrei dagurinn eftir hjá okkur frænda, og það er sárt. Ég er þakklát fyrir fallegu minningarnar sem ég á um elsku Smára og ég trúi því að við eigum eftir að hittast hinum megin. Þegar það verður kem- ur minn maður og faðmar litlu frænku sína. Ég votta hans nánustu mína dýpstu samúð og þá sérstak- lega börnunum hans og megi Guð styrkja ykkur. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir. Elsku Smári minn, mér finnst svo stutt síðan ég sá þig í fangi móður þinnar á fæðing- arheimilinu, þú varst svo fal- legur lítill drengur. Árin liðu og það var oft gaman þegar þú komst í Karfavoginn til að leika við frændsystkinin, en þú og Steindór gátuð verið erfiðir, en fallegir og glaðir frændur. Ég verð að minnast á það þegar þú komst með pabba þín- um úr vinnunni í strætó, þá baðstu pabba alltaf um að koma við hjá Sollu. Ekki hefði mér dottið í hug þá að þú yrðir ekki eldri, en svona er Bakkus, Smári, þú reyndir svo mikið að breyta lífi þínu en það tókst ekki. Þrátt fyrir þín veikindi, Smári minn, þá gerðir þú ekkert nema gott í kringum þig. Síðast þegar ég heimsótti þig í hornið, þá kom fallega brosið þitt og þú sagðir: ertu komin, elsku Solla mín, og ljómaðir. Þú áttir yndislega móður sem stóð alltaf við hlið þér og þú elskaðir mömmu, þú varst mömmudrengur. Guð geymi þig, elsku Smári minn. Elsku Fjóla mín, Guð gefi þér styrk til að ganga í gegnum þessa miklu sorg og börnunum hans Smára, þeim Thelmu Lind, Aroni Elí og Viktoríu Dagmar og öllum þeim sem að Smára standa. Þín elskandi Solla. Smári Jónsson Elskuleg sambýliskona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS HALBLAUB ODDSDÓTTIR, lést á heimili sínu í Svíðþjóð laugardaginn 3. apríl. Bo Strangert Helga Oddrún Guðmundsd. Pierre-Luc Denuit Bjargey Guðmundsdóttir Jón Trausti Bjarnason Gunnlaugur Guðmundsson Natasza Kurek-Guðmundsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG KRISTINSDÓTTIR frá Brautarholti, Fallandastöðum, Hrútafirði, lést á sjúkrahúsinu Akranesi 9. apríl. Útför hennar verður auglýst síðar. Björn Ingi Sverrisson Margrét K. Guðmundsdóttir Kristín Anna Sverrisdóttir Ásgeir Sverrisson Kathrin Schmitt Alda Berglind Sverrisdóttir Lárus Jón Lárusson ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.