Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021 Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins! 50 ára Margrét er Reykvíkingur og býr í Hafnarfirði. Hún er hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi og er framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsu- stofnun NLFÍ. Maki: Sveinn Arngrímsson, f. 1969, tölv- unarfræðingur Börn: Unnur María, f. 1993, Hilmar Þór, f. 1998, og Steinar Þór, f. 2002, Harðar- börn. Barnabörnin eru orðin þrjú. Foreldrar: Grímur Þór Valdimarsson, f. 1949, örverufræðingur og vann hjá Mat- vælastofnun SÞ, og Kristín Jónsdóttir, f. 1948, líffræðingur. Þau eru búsett í Árbæ. Margrét Grímsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Njóttu þess að vera með vinum þínum og fjölskyldu. Settu þér skyn- samleg mörk, því annars er hætt við að allt misheppnist. 20. apríl - 20. maí + Naut Upplýsingarnar eru alls staðar. Heppnin er líka með þér, svona að hluta til. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur mikla löngum til að fegra heimili þitt. Njóttu þess eins og þú frekast getur og endurnýjaðu lífsþrótt þinn. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú hefur sæst við hlutina sem þú ræður ekkert við. Heppni nútíðarinnar tengist fortíðinni með einhverjum hætti. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Orð eru til alls fyrst og þú getur ekki ætlast til þess að aðrir hlusti á þig ef þú vilt ekki hlusta á þá. Láttu aðra um að leysa sín mál og sinntu þínum eigin. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þið ættuð ekki að láta draga ykkur til þess að gera annað en þið viljið sjálf. Gakktu ekki svo langt að þú unnir þér ekki hvíldar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það eru ýmis teikn á lofti um breyt- ingar í starfi. Tilfinningar þínar til barna þinna eru einnig sérlega hlýjar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þegar þér finnst mikið til einhvers koma, bregðst hann við með sín- um bestu mannasiðum. Reyndu að líta sem best út. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú hefur haldið þér til hlés í ákveðnu máli en nú kemstu ekki lengur hjá því að taka afstöðu og láta hana í ljós við viðkomandi. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Spilaðu rétt úr þeim spilum sem lífið hefur gefið þér. Breytingarnar bíða handan hornsins og það skiptir öllu máli að standa sig þangað. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Eftir rólega siglingu á lygnum sjó dregur allt í einu til tíðinda hjá þér. Ef þú þarft að velja á milli skaltu taka rétt- lætið fram yfir. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Tilfinningarnar sem leynast í und- irmeðvitundinni koma allar upp á yf- irborðið í dag. Spurðu beinna og umbúða- lausra spurninga og þú færð öll svörin sem þú þarfnast. lögmannsstofu 1994. „Ég hef því verið í bransanum núna samtals í 27 ár, síðustu 15 árin með Huldu Rúriksdóttur,“ en þær reka stofuna Lögmenn Laugavegi 3. Allt frá því að Lára kenndi í Versló í gamla ingurinn sem þar starfaði í áratugi. Þarna var hún svo fram til 1994, ef frá er talið árið sem hún var aðstoð- armaður Jóhönnu Sigurðardóttur þegar hún varð félagsmálaráðherra. Hún fór svo í sjálfstæðan rekstur á L ára Valgerður Júlíus- dóttir fæddist 13. apríl 1951 í Reykjavík, í fjöl- skylduhúsinu Þorfinns- götu 8, þar sem bjuggu saman þrjár kynslóðir hver á sinni hæðinni. Þar átti Lára heima þar til hún flutti að heiman rúmlega tví- tug. Hún bar út Vísi í Norðurmýr- inni frá átta ára aldri og var í sveit á sumrin frá 10 ára aldri í Flóanum. Lára var í skátunum, fyrst ljósálfur og svo skáti alveg fram að 17 ára aldri. Lára gekk í Austurbæjarskólann og eftir fyrsta bekk í gagnfræða- skóla lá leiðin í Verzlunarskóla Ís- lands. Hún var skiptinemi í Iowa 1968-1969. Lára lauk stúdentsprófi frá VÍ vorið 1972 og hóf laganám í HÍ það haust þaðan sem hún út- skrifaðist 1977. „Á þessum árum voru konur í algerum minnihluta í lögfræðinámi. Mér telst til að ég hafi verið fertugasta og fyrsta kon- an til að útskrifast hér á landi sem lögfræðingur.“ Lára var á háskóla- árunum m.a. í ritnefnd Úlfljóts og átti sæti í Stúdentaráði í tvö ár og var m.a. gjaldkeri Stúdentaráðs. Hún var m.a. fulltrúi stúdenta í LÍN. „Öll námsárin vann ég með skóla, jafnan einhverja skrifstofu- vinnu og kom þá námið úr Versló sér vel.“ Fyrsta starfið eftir embættispróf var kennsla. „Það var í mínum gamla skóla, Versló. Ég var fengin til að kenna verslunarrétt, og kenndi ég hann næstu árin. Tók þá saman kennsluefni og gaf út Kennslubók í verslunarrétti sem ég svo endurskoðaði af og til næstu ár- in. Þetta var útgáfa sem ég ann- aðist sjálf að öllu leyti.“ Lára fékk einnig starf á lögmannsstofu fljót- lega haustið sem hún byrjaði að kenna, árið 1977. Hún vann hálfan daginn sem fulltrúi hjá Jóni E. Ragnarssyni hæstaréttarlögmanni og vann hjá honum í nokkur ár ásamt því að sinna kennslunni. „Það var bæði ógleymanleg og skemmti- leg reynsla sem nýtist mér enn í dag.“ Í nóvember 1982 var Lára ráðin lögfræðingur ASÍ, fyrsti lögfræð- daga hefur hún líka stundað kennslu í lögfræði, bæði á vettvangi ASÍ í ýmiss konar námskeiðahaldi, hjá námsflokkunum og Mími og svo varð hún stundakennari við laga- deild Háskóla Íslands 1997 og síðar lektor allt til 2018. Enn fremur var Lára dómari í félagsdómi um árabil. Jafnréttismál hafa alltaf verið Láru hugleikin. Hún tók þátt í stofnun Kvennaframboðsins 1982, og síðar tók hún sæti á lista og varð varaþingmaður fyrir Alþýðuflokk- inn 1987 í eitt kjörtímabil. Hún var formaður Kvenréttindafélags Ís- lands 1986-1989 og síðar formaður Jafnréttisráðs. „Pólitíkin og lög- mennskan fara ekkert vel saman og því dró ég mig að mestu út úr því vafstri, þótt ég fylgist alltaf með. Ég féllst þó á að taka sæti sem for- maður bankaráðs Seðlabanka Ís- lands eftir hrunið, sem var ekki sér- staklega auðvelt starf á þeim tíma.“ Störf Láru hjá ASÍ voru að sjálf- sögðu tengd öllu sem sneri að vinnurétti. Undir lok 12 ára veru hennar þar skrifaði hún tvær bæk- ur í vinnurétti, sem ASÍ gaf út, Réttindi og skyldur á vinnumark- aði, sem kom út 1993, og svo Stétt- arfélög og vinnudeilur sem kom út 1995. „Þessar bækur eru löngu upp- seldar, en hafa verið endurskoðaðar og gefnar út að hluta til í fjölritum til kennslu síðan.“ Lára hefur verið félagi í Rótarý- klúbbi Reykjavíkur Miðborg frá 1996, en sá klúbbur var stofnaður sérstaklega til að leiðrétta kynja- hallann í Rótarý hér á landi. Hún sat líka í stjórn Lögmannafélags Ís- lands 2001-2003. Hún var í stjórn og formaður AFS á Íslandi um ára- bil. „Hýstum við hjón þá allnokkra skiptinema á heimilinu, m.a. frá Taílandi, Svíþjóð og Japan.“ Áhugamál Láru eru auk fjöl- skyldunnar útivist og ferðalög, bæði innan lands og erlendis, og einnig hefur hún alltaf haft áhuga á mynd- list, skógrækt og fleiru. „Við hjónin áttum í áratugi hlut í gömlu húsi á Arnarstapa með góðum vinum okk- ar, en seinni árin dveljum við æ meira í sumarbústaðnum í Gríms- nesinu. Við höfum einnig ferðast Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður – 70 ára Á Arnarstapa Lára ásamt systradætrum og dóttur. Frá vinstri: Lára, Kristín Jónsdóttir, Gerður Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir og Helga Lára. Í lögmannabransanum í 27 ár Hjónin Þorsteinn og Lára í gönguferð á Snæfjallaströnd. 30 ára Egill fæddist í Ósló, bjó í Ulvik tvö fyrstu árin og síðan í Hafnarfirði en býr á Seltjarnarnesi. Hann er með BA-gráðu í lög- reglufræði og er lög- reglumaður á höfuð- borgarsvæðinu. Maki: Íris Ösp Traustadóttir, f. 1990, BS í ferðamálafræði. Dætur: Hildur Rut, f. 2017, og Rakel Rut, f. 2020. Foreldrar: Þórður Kristinn Jónasson, f. 1965, vélvirki, búsettur í Reykjavík, og Hjördís Pálmarsdóttir, f. 1966, kennari, búsett á Hólum í Hjaltadal. Egill Øydvin Hjördísarson Til hamingju með daginn Seltjarnarnes Rakel Rut Egilsdóttir fæddist 18. nóvember 2020 kl. 20.10 í Reykjavík. Hún vó 3.750 g og var 52 cm löng. For- eldrar hennar eru Egill Øydvin Hjördísarson og Íris Ösp Traustadóttir. Stóra systir Rakelar er Hildur Rut. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.