Morgunblaðið - 13.04.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021
„ÞAÐ AÐ HANN DOTTI Í MIÐRI
SETNINGU GÆTI LÍKA BENT TIL ÞESS
AÐ HANN ÞURFI AÐ FINNA EITTHVAÐ
ÁHUGAVERÐARA AÐ TALA UM.“
„MAGINN ER ENN AÐ VENJAST ÞVÍ AÐ FÁ
VEL ELDAÐAN MAT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að geyma alla ástina
fyrir hina einu réttu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ÁT OF MIKIÐ
AF KÖKU …
ÞAÐ ER BARA EITT
EFTIR Í STÖÐUNNI…
AÐ DREKKA OF
MIKIÐ AF MJÓLK
VÍKINGAHÖFÐINGI Á BORÐ VIÐ
ÞIG HLÝTUR AÐ EIGA ÓGRYNNI
FJÁR Í BANKA!
ÞÚ ÆTTIR AÐ KANNA ÞAÐ AÐ
FINNA ÞÉR BANKA!
ENGINN BANKI! ÉG
GREF ÞAÐ ALLT!
NEI, TAKK. HELGA HEFUR
HÓTAÐ ÞVÍ NÓGU OFT AÐ
BANKA Í MIG EF ÉG LÆT
HANA EKKI FÁ AURA!
mikið til framandi landa, bæði með
Jóhönnu Kristjónsdóttur heitinni og
einnig með hópum lögfræðinga.“
Fjölskylda
Eiginmaður Láru er Þorsteinn
Haraldsson, f. 2.12. 1949, endur-
skoðandi. Þau eru búsett í Reykja-
vík. Foreldrar Þorsteins voru hjón-
in Aðalheiður Sigurðardóttir, f.
21.12. 1925, d. 9.5. 2010, hár-
greiðslukona og saumakona, og
Haraldur Þorsteinsson, f. 23.5.
1923, d. 5.10. 2010, húsasmiður.
Börn Láru og Þorsteins eru: 1)
Helga Lára, f. 23.3. 1977, safna-
fræðingur, safnstjóri RÚV, maki
Pétur Örn Friðriksson myndlistar-
maður. 2) Haraldur, f. 31.8. 1979,
taugasálfræðingur hjá 3Z, maki
Kristjana Erna Pálsdóttir verk-
fræðingur; 3) Halldór Kr., f. 1.3.
1989, lögmaður hjá Lögmönnum
Laugavegi 3, maki: Linda Karls-
dóttir heilsuhagfræðingur. Barna-
börnin eru sex.
Alsystkini Láru eru Ingibjörg
Júlíusdóttir, f. 1945, kennari, Hall-
dór Kr. Júlíusson, f. 1948, sálfræð-
ingur og Sigurður Júlíusson, f.
1956, læknir. Hálfsystkini eru Anna
Júlíusdóttir, f. 1960, kaupkona, Þór-
unn Júlíusdóttir, f. 1962, hjúkrunar-
fræðingur og Pétur B. Júlíusson, f.
1964, læknir.
Foreldrar Láru voru Kristín Sím-
onardóttir, f. 14.7. 1926, d. 26.9.
2006, húsmóðir, og Júlíus Halldórs-
son, f. 26.2. 1924, d. 4.10. 1998, vél-
fræðingur Þau skildu 1956.
Lára V.
Júlíusdóttir
Júlíus Halldórsson
héraðslæknir í V-Húnavatnssýslu,
bjó á Klömbrum, síðar á Blönduósi
Ingibjörg Magnúsdóttir
húsmóðir á Klömbrum í
Vestur-Hópi, síðar á Blönduósi
Halldór Kr. Júlíusson
sýslumaður Strandasýslu, bjó
á Borðeyri, síðar í Reykjavík
Lára Valgerður Helgadóttir
húsmóðir á Borðeyri, síðar í
Reykjavík
Júlíus Halldórsson
vélfræðingur í Reykjavík
Helgi Arason
bóndi á Öskubrekku
Þuríður Kristjánsdóttir
húsmóðir á Öskubrekku
í Arnarfirði
Símon Símonarson
bóndi á Bjarnastöðum
Ingiríður Eiríksdóttir
húsmóðir á Bjarna-
stöðum í Ölfusi
Símon Símonarson
bifreiðarstjóri í Reykjavík
Ingibjörg Gissurardóttir
húsmóðir í Reykjavík
Gissur Guðmundsson
bóndi í Gljúfurárholti
Margrét Jónína Hinriksdóttir
húsmóðir í Gljúfurárholti í Ölfusi
Úr frændgarði Láru V. Júlíusdóttur
Kristín Símonardóttir
verkakona í Reykjavík
Þórður Tómasson í Skógum sendimér gott bréf til birtingar í
Vísnahorni, sem mér er ljúft að
verða við:
„Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins
14. mars vék að vísnasamkeppni 27.
janúar 1937, þar sem leitað var eftir
botnum við vísuhelming:
Simpson kemur víða við
og veldur breyttum högum.
1.250 botnar bárust frá 400 höf-
undum. Einn hitti öðrum betur í
mark og fékk önnur verðlaun:
Krúnuraka kvenfólkið
karlmenn nú á dögum.
Höfundur var uppgjafabóndi,
Magnús Knútur Sigurðsson frá
Seljalandsseli undir Eyjafjöllum, af
Barkarstaðaætt úr Fljótshlíð. Stök-
ur Magnúsar fóru víða, flestum
gleymdar í dag. Enginn gaf betra
inntak kirkjuræðu en hann. Sr. Jak-
ob Ó. Lárusson í Holti ræddi í messu
um 1928 um blessun rafvæðingar í
búi bóndans og taldi að samfara
henni þyrfti að vera auður andans
og ást til náungans. Kirkjugestur
Magnús Knútur batt efnið í rímað
mál:
Þó hafir þú raf í hús og fjós
hefur það lítið gildi
ef þig skortir andans ljós,
ást og kærleiksmildi.
Félítill bóndi úr Fjallasveit flutti
til Vestmannaeyja, réð sig svo í
kaupavinnu upp á land og kvartaði
yfir matarveitingum, súpugutl
meira en góðu hófi gegndi. „Hvað
var mest til matar hjá þér um slátt-
inn?“ var spurt. „Það var nú mest
hangikjöt og harðfiskur,“ svaraði
kaupamaður. Frétt fór til Magnúsar
Knúts og hann batt efnið í stöku:
Súpugutl á grunnum disk
grennir fjör og máttinn.
Hangikjöt og harðan fisk
hafði ég um sláttinn.
Bóndi í sveitinni missti tengda-
móður sína úr sótt og brá sér á
næstu símstöð til að hringja út til
Vestmannaeyja og tilkynna andlát-
ið. „Tók hún mikið út í legunni?“ var
spurt. „Ó, nei! Hún borðaði skyrspón
stuttu áður en hún skildi við.“ Magn-
úsi Knúti varð þetta nóg tilefni vísu:
Hefur sofnað hinsta dúr,
himnadýrð mun kanna.
Mötuð var á mjólk og súr
milli andvarpanna.
Á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
var maður, sem áður hafði verið orð-
aður við áfengi, settur til að hafa
hemil á háttsemi gesta. Magnús
Knútur orti:
Í Eyjunum fæst afbragðs vín,
öl og bruggið mæta.
Þeir fengu gömul fyllisvín
fyllisvína að gæta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bréf frá Þórði í Skógum