Morgunblaðið - 13.04.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021
England
Brighton – Everton ................................. 0:0
- Gylfi Þór Sigurðsson lék allan tímann
með Everton.
WBA – Southampton ............................... 3:0
Staðan:
Manchester City 32 23 5 4 67:23 74
Man Utd 31 18 9 4 61:34 63
Leicester City 31 17 5 9 55:37 56
West Ham United31 16 7 8 51:39 55
Chelsea 31 15 9 7 50:31 54
Liverpool 31 15 7 9 53:37 52
Tottenham 31 14 7 10 52:35 49
Everton 30 14 6 10 41:38 48
Arsenal 31 13 6 12 43:35 45
Leeds United 31 14 3 14 49:49 45
Aston Villa 30 13 5 12 43:33 44
Wolverhampton 31 10 8 13 31:41 38
Crystal Palace 31 10 8 13 33:52 38
Southampton 31 10 6 15 39:56 36
Brighton 31 7 12 12 33:38 33
Burnley 31 8 9 14 25:42 33
Newcastle United31 8 8 15 32:51 32
Fulham 32 5 11 16 24:42 26
WBA 31 5 9 17 28:59 24
Sheffield United 31 4 2 25 17:55 14
Rússland
CSKA Moskva – Rotor Volgograd ........ 2:0
- Arnór Sigurðsson lék fyrstu 64 mínút-
urnar með CSKA og lagði upp mark. Hörð-
ur Björgvin Magnússon er frá keppni
vegna meiðsla.
_ Efstu lið: Zenit Pétursborg 54, Spartak
Moskva 47, Lokomotiv Moskva 46, CSKA
Moskva 46, Rubin Kazan 43, Dinamo
Moskva 43, Sochi 40, Khimki 38.
Grikkland
Fallkeppnin:
Giannina – Lamia .................................... 1:2
- Theódór Elmar Bjarnason lék fyrstu 76
mínúturnra hjá Lamia.
_ Lamia er í þriðja sæti af átta liðum þegar
fjórar umferðir eru eftir.
Danmörk
Fallkeppnin:
Lyngby – AaB .......................................... 2:2
- Frederik Schram var varamarkvörður
Lyngby í leiknum.
_ AaB 32, OB 29, SönderjyskE 28, Vejle
28, Lyngby 22, Horsens 16.
Spánn
Celta Vigo – Sevilla .................................. 3:4
Staða efstu liða:
Atlético Madrid 30 20 7 3 52:20 67
Real Madrid 30 20 6 4 53:24 66
Barcelona 30 20 5 5 69:26 65
Sevilla 30 19 4 7 44:24 61
Real Sociedad 30 12 11 7 47:31 47
Real Betis 30 14 5 11 40:43 47
Villarreal 30 11 13 6 43:33 46
Granada 30 11 6 13 36:50 39
Levante 30 9 11 10 37:39 38
Athletic Bilbao 30 9 10 11 39:33 37
Celta Vigo 30 9 10 11 41:48 37
Þýskaland
Hoffenheim – Leverkusen....................... 0:0
Staða efstu liða:
Bayern München 28 20 5 3 80:36 65
RB Leipzig 28 18 6 4 52:23 60
Wolfsburg 28 15 9 4 49:26 54
Eintr.Frankfurt 28 14 11 3 59:40 53
Dortmund 28 14 4 10 58:41 46
Leverkusen 28 12 8 8 45:32 44
Union Berlin 28 9 13 6 42:34 40
M’gladbach 28 10 10 8 48:43 40
Stuttgart 28 10 9 9 50:44 39
Freiburg 28 10 7 11 40:42 37
Augsburg 28 9 5 14 29:42 32
Hoffenheim 28 8 7 13 41:47 31
Ítalía
Benevento – Sassuolo .............................. 0:1
Staða efstu liða:
Inter Mílanó 30 23 5 2 69:27 74
AC Milan 30 19 6 5 57:35 63
Juventus 30 18 8 4 61:27 62
Atalanta 30 18 7 5 71:38 61
Napoli 30 19 2 9 65:34 59
Lazio 29 17 4 8 46:38 55
Roma 29 16 6 7 54:41 54
Sassuolo 30 11 10 9 49:48 43
4.$--3795.$
NBA-deildin
Cleveland – New Orleans ................ 109:116
Orlando – Milwaukee ......................... 87:124
New York – Toronto .......................... 102:96
Dallas – San Antonio ........................ 117:119
Memphis – Indiana........................... 125:132
Minnesota – Chicago........................ 121:117
LA Clippers – Detroit ...................... 131:124
Portland – Miami................................ 98:107
Staðan í Austurdeild:
Philadelphia 36/17, Brooklyn 36/17, Mil-
waukee 33/20, Atlanta 29/25, Miami 28/25,
Charlotte 27/25, Boston 28/26, New York
27/27, Indiana 25/27, Chicago 22/30, To-
ronto 21/33, Washington 19/33, Cleveland
19/34, Orlando 17/36, Detroit 16/38.
Staðan í Vesturdeild:
Utah 40/13, Phoenix 37/15, LA Clippers 37/
18, Denver 34/19, LA Lakers 33/20, Port-
land 31/22, Dallas 29/23, Memphis 26/25,
San Antonio 25/26, Golden State 25/28,
New Orleans 24/29, Sacramento 22/31,
Oklahoma City 20/33, Houston 14/39,
Minnesota 14/40.
4"5'*2)0-#
Japan sagðist Matsuyama ekki geta
svarað því. En hann væri sannarlega
sá fyrsti til að vinna Masters og því
hefði hann sett einhvers konar við-
mið.
Lék á Masters fyrir áratug
Matsuyama er 29 ára gamall en
hann fæddist í borginni Matsuyama í
febrúar 1992. Fyrir sléttum áratug
fékk hann tækifæri til að leika á
Masters sem áhugamaður. Hafði þá
orðið Asíumeistari áhugamanna og
fékk boð á Masters en nokkrir
áhugamenn leika á mótinu ár hvert.
Matsuyama lék þá mjög vel. Var ekki
einungis bestur áhugamannanna
heldur hafnaði í 27. sæti á mótinu.
Ljóst var að hann átti fullt erindi í
mótaröð þeirra bestu ef hann myndi
spila áfram vel úr sínum hæfileikum.
Matsuyama er mjög þekktur í Jap-
an. Fjölmiðlafólk hefur stundum sagt
að hann sé eins og rokkstjarna í
heimalandinu. Ekki getur grein-
arhöfundur dæmt um það en umfjöll-
unin um Matsuyama hefur í það
minnsta verið mjög mikil eftir að
hann komst í hóp bestu kylfinga
heims. Árið 2017 var hann til að
mynda kominn í annað sætið á
heimslistanum en alls hefur Matsu-
yama sigrað á átta atvinnu-
mannamótum á ferlinum. Með ár-
unum hafa væntingarnar til hans
orðið mjög miklar og oft hefur manni
fundist eins og þyngsli væru yfir
Matsuyama á risamótunum. Þegar
íþróttafólk er nánast með væntingar
heillar þjóðar á bakinu getur verið
erfitt að slaka á og njóta stund-
arinnar. Nú þegar miklum áfanga er
náð má allt eins búast við því að
Matsuyama verði oft í baráttunni um
sigur á risamótum. Hann er á fínum
aldri og ætti að vera í fremstu röð
næstu tíu árin ef hann sleppur við
meiðsli.
Matsuyama er ansi stöðugur kylf-
ingur. Hann kemst oftar en ekki í
gegnum niðurskurð keppenda á
mótaröðinni og frammistaðan er
sjaldan mjög slæm sem getur gerst
af og til hjá kylfingum í fremstu röð.
Dustin Johnson , Rory McIlroy og
Brooks Koepka náðu til dæmis ekki
að komast áfram á Masters í ár.
Matsuyama hafði ekki spilað sér-
staklega vel á þessu ári. Ekki áber-
andi illa en hafði heldur ekki barist
um sigur á neinu móti. Hann hafði
hafnað í 15. sæti á World Golf Cham-
pionships í lok febrúar.
Matsuyama sagðist á blaðamanna-
fundi á sunnudagskvöld hafa komið
til Augusta með litlar væntingar en
daginn fyrir mótið hafi honum liðið
mun betur. Eftir að hafa æft vel í vik-
unni hafi eitthvað gerst á æfinga-
hringnum á miðvikudeginum. Ein-
hver atriði smullu saman í
golfsveiflunni að sögn Matsuyama.
„Þegar slíkt gerist þá eykst sjálfs-
traustið hratt.“
Í 2. sæti á Opna bandaríska
Árangur Matsuyama á risamótum
hefur á margan hátt verið góður og
þar af leiðandi bjuggust margir við
því að honum tækist að vinna risa-
mót einn daginn. Hann væri nógu
góður til þess. Á Masters hafði
Matsuyama hafnað í 5. sæti árið 2015
og 7. sæti árið eftir. Einnig hafði
hann hafnað í 11. og 13. sæti á mótinu
og hann virtist því kunna nokkuð vel
við sig á Augusta National-vellinum.
Matsuyama hafnaði í 2. sæti á
Opna bandaríska meistaramótinu ár-
ið 2017 og hafði þá komist næst því
að vinna risamót. Hans besti árangur
á Opna breska meistaramótinu er 6.
sæti árið 2013. Á PGA-meist-
aramótinu hefur Matsuyama náð 4.
og 5. sæti.
Sigur á risamóti er því líklega rök-
rétt framhald af því að hafa kynnst
toppbaráttunni á slíkum mótum. Á
blaðamannafundinum sagðist
Matsuyama þó hafa fundið fyrir mik-
illi taugaspennu þegar hann stóð á 1.
teig í síðasta ráshópnum á síðasta
keppnisdegi á Masters.
Hæverska
er hyggins
háttur
- Matsuyama leyfir sér að brosa
- Mikill áfangi fyrir íþróttalífið í Japan
AFP
Stór stund Hideki Matsuyama skælbrosandi í græna jakkanum.
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þegar sólin var að búa sig undir að
setjast í Georgíu í Bandaríkjunum
undir kvöld á sunnudag var hún að
koma upp á mánudagsmorgni í Jap-
an. Hideki Matsuyama var þá að
klæðast græna jakkanum á Augusta
National-golfvellinum eftir að hafa
unnið á Masters. Fyrsta risamóti árs-
ins hjá körlunum í íþróttinni. Japanir
vöknuðu því við þau tíðindi að Japani
hefði unnið risamót í golfi hjá körl-
unum í fyrsta skipti. Japanskar kon-
ur höfðu áður afrekað slíkt og mun
áhuginn á íþróttinni í Japan síst
minnka við þessi úrslit.
Hideki Matsuyama hefur sjaldan
sýnt mikil svipbrigði á golfvellinum.
Hefur tileinkað sér varfærnislega
framkomu eins og margir samlandar
hans. Þegar Masters-meistarinn í
fyrra, Dustin Johnson, hafði klætt
Matsuyama í jakkann, leyfði Jap-
aninn sér að lyfta höndunum og
fagna. Matsuyama brosti breitt og
ekki leyndi sér að þessi áfangi skipti
hann miklu máli.
Hann var þó varkár þegar fjöl-
miðlamenn hófu að kasta á hann
spurningum. Svaraði samvisku-
samlega með hjálp túlks en fór ekki á
neitt flug í sigurvímunni. Hæverska
er hyggins háttur segir máltækið.
Spurður um hvort hann væri snjall-
asti kylfingur sem komið hefði frá
Arnór Sigurðsson landsliðsmaður í
knattspyrnu lagði upp fyrra mark
CSKA Moskva í gær þegar liðið
sigraði Rotor Volgograd, 2:0, í
rússnesku úrvalsdeildinni.
Hörður Björgvin Magnússon
leikur ekki með liðinu næstu mán-
uðina eftir að hafa slitið hásin í fæti
á dögunum. Liðsfélagar hans sýndu
Herði stuðning með því að hita upp
fyrir leikinn í gær í bolum með
áletruðum batakveðjum til Harðar.
CSKA komst með sigrinum upp í
fjórða sætið og berst um sæti í for-
keppni Meistaradeildarinnar.
Barist um sæti í
Meistaradeildinni
AFP
Stoðsending Arnór Sigurðsson í
leik með íslenska landsliðinu.
Bandaríska knattspyrnukonan Tiff-
any McCarty er gengin til liðs við
Breiðablik. McCarty er þrítug og
þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa
leikið með Selfossi á síðustu leiktíð.
Hún skoraði níu mörk í sextán leikj-
um í úrvalsdeildinni með Selfyss-
ingum síðasta sumar og var marka-
hæsti leikmaður liðsins. McCarty
hefur leikið með atvinnuliðunum
Washington Spirit, Houston Dash
og Kansas City í Bandaríkjunum.
Þá hefur hún einnig leikið með
Medkila í norsku B-deildinni og
með Albirex í Japan.
Frá Selfossi til
Breiðabliks
Morgunblaðið/Eggert
Framherji Tiffany McCarty skoraði
níu mörk fyrir Selfyssinga.
Everton fékk aðeins eitt stig þegar
liðið heimsótti Brighton á suður-
ströndina í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær. Liðin gerðu
markalaust jafntefli en Gylfi Þór
Sigurðsson var á sínum stað á miðj-
unni hjá Everton.
Hjá Everton hefðu menn getað
þegið þrjú stig þar sem liðið er í
baráttu um að komast í Evr-
ópukeppni. Everton er í 8. sæti með
48 stig.
Brighton er sjö stigum fyrir ofan
fallsæti með 33 stig eins og Burn-
ley. Stigi meira en Newcastle.
Hjá West Bromwich Albion eru
menn ekki í vandræðum með að
skora mörk þessa dagnaa þótt liðið
sé í fallsæti. Liðið fylgdi í gær eftir
5:2 útisigri á Chelsea með 3:0 sigri
á Southampton á heimavelli. Hefur
liðið því skorað átta mörk í síðustu
tveimur leikjum. Matheus Pereira,
Matthew Phillips og Callum Rob-
inson skoruðu fyrir WBA en staðan
var 2:0 að loknum fyrri hálfleik.
WBA er nú með 24 stig í næst-
neðsta sæti, aðeins tveimur stigum
á eftir Fulham. Liðið er þó átta stig-
um á eftir Newcastle.
AFP
England Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum gegn Brighton í gærkvöld.
Eitt stig gerir lítið
fyrir Everton