Morgunblaðið - 13.04.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2021
Það verður bara að við-
urkennast að maður er orðinn
ansi þreyttur á VAR-myndbands-
dómgæslunni í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu.
Hugmyndin er ekki vitlaus,
ef hún virkar, en því miður fyrir
alla áhugamenn um knattspyrnu
þá virðist myndbands-
dómgæslan skapa fleiri vanda-
mál en hún leysir og það hefur
margsannað sig á yfirstandandi
tímabili.
Planið var að geta stuðst við
myndbandsdómgæslu til þess
að taka af allan vafa en það hef-
ur engan veginn tekist og í stað-
inn stelur VAR fyrirsögnum eftir
hverja einustu umferð ensku úr-
valsdeildarinnar sem er fyrst og
fremst sorglegt í deild sem á að
vera sú skemmtilegasta í heimi.
Myndbandsdómgæsla
hefur reynst vel í mörgum
íþróttum og þar ber eflaust
hæst að nefna bandarískar
íþróttir eins og í NFL-deildinni í
ruðningi og NBA-deildinni í
körfuknattleik.
Einnig hefur verið stuðst við
myndbandsdómgæslu í hand-
bolta og körfubolta í Evrópu
með góðum árangri en því miður
hefur dæmið ekki gengið upp í
fótboltanum, alla vega ekki á
Englandi.
Dómarar virðast einfald-
lega treysta of mikið á tæknina
og eru orðnir hræddir við að
taka eigin ákvarðanir af ótta við
að gera mistök. Af þeim sökum
virðist ríkja einhvers konar milli-
bilsástand sem hefur ekki gert
neinum gott.
Eins og maðurinn sagði,
tæknin er góð en því miður er
fólkið á bak við tæknina ekki að
valda henni sem er ekki beint
upplífgandi fyrir kröfuharða
knattspyrnuáhugamenn í dag.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
mótinu 2012 og var síðustu í um-
ferðinni,“ sagði Íris.
„Ég hljóp af stað með þá til-
finningu að þetta væri mitt síð-
asta stökk á ferlinum og ég sagði
sjálfri mér að njóta augnabliksins.
Ég gaf allt í þetta og þegar ég
lenti helltust yfir mig alls konar
tilfinningar.
Þetta var algjörlega geggjað og
augnablik sem ég mun aldrei
gleyma,“ bætti Íris við.
Áskrifendur Morgunblaðsins
geta horft á þáttinn á mbl.is/
mogginn/dagmal/ithrottir/.
„Ég vissi það áður en ég fór á
Evrópumótið 2012 að ég væri
tilbúin að hætta og ég fann það í
öllum líkamanum,“ sagði Íris
Mist Magnúsdóttir, tvöfaldur
Evrópu- og Norðurlandameistari
í hópfimleikum, í Dagmálum,
nýjum frétta- og menningarlífs-
þætti Morgunblaðsins.
Íris Mist byrjaði að æfa
áhaldafimleika þegar hún var sjö
ára gömul með Stjörnunni en
skipti yfir í hópfimleika árið
2002.
Hún gekk til liðs við Gerplu
árið 2004, varð Evrópumeistari
með liðinu árin 2010 og 2012, og
Norðurlandameistari 2007 og
2011.
„Ég stend fyrir framan trampó-
línið í síðustu greininni á Evrópu-
Æðislegt að hætta á toppnum
Morgunblaðið/Ómar
3 Íris Mist varð þriðja í kjörinu á
íþróttamanni ársins árið 2010.
Miklar umræður sköpuðust um stöðu handknatt-
leiksins hjá konunum þegar ársþing Handknatt-
leikssambands Íslands fór fram í gær. Vegna
samkomutakmarkana var þingið haldið með hjálp
fjarfundabúnaðar.
Þingið ákvað að fela stjórn HSÍ að skipa nefnd
til að móta stefnu til framtíðar fyrir kvenna-
handboltann á Íslandi eins og það er orðað í til-
kynningunni frá sambandinu. Guðmundur B.
Ólafsson, formaður HSÍ, tjáði Morgunblaðinu að
hreyfingin vilji vinna að því með markvissum
hætti að fjölga stúlkum og konum í íþróttinni.
„Eitt af stóru verkefnunum á næstu misserum
verður að taka fyrir kvennaboltann. Allt frá
yngstu iðkendum og upp í efstu
deild. Hvernig hægt sé að hlúa
að konunum í handboltanum.
Hvernig hægt sé að fjölga iðk-
endum og minnka brotfall hjá
iðkendum. Meira er um brott-
fall hjá stelpunum en strákun-
um. Með því að fjölga iðk-
endum hjá stúlkunum myndi
brottfallið ekki hafa eins af-
drifarík áhrif,“ sagði Guð-
mundur sem var einn í fram-
boði til formanns. Guðmundur hefur setið í stjórn
HSÍ frá árinu 2009 og gegnt formennsku frá 2013.
Tillögu um breytingu á Íslandsmóti kvenna og
að fjölga liðum í efstu deild var vísað frá. Að sögn
Guðmundar voru margir þeirrar skoðunar að leik-
irnir í efstu deild kvenna hafi verið spennandi og
minna um ójafna leiki en oft áður. Því hafi ekki
verið nægilega mikill vilji til að breyta fyr-
irkomulaginu.
Ein breyting varð á stjórn HSÍ. Kosið var á
milli þeirra Ingu Lilju Lárusdóttur og Daða Haf-
þórssonar til að gegna formennsku fræðslu- og út-
breiðslunefndar sem jafnframt er stjórnarsæti.
Var Inga Lilja kjörin. kris@mbl.is
- Fleiri fréttir frá þinginu er að finna á
www.mbl.is/sport/handbolti.
Vilja fá fleiri stúlkur í íþróttina
- Ársþingið fól stjórn HSÍ að skipa nefnd til að móta stefnu til framtíðar
Guðmundur B.
Ólafsson.
LANDSLIÐIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari ís-
lenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, ætlar að gera fjórar til fimm
breytingar á byrjunarliði sínu þegar
Ísland mætir Ítalíu í vináttulands-
leik síðar í dag í Flórens á Ítalíu.
Þetta er annar leikur liðanna á
fjórum dögum en íslenska liðið tap-
aði 1:0 fyrir Ítölum í Flórens í vin-
áttulandsleik 10. apríl þar sem Ari-
anna Caruso skoraði sigurmarkið á
72. mínútu.
Þetta var jafnframt fyrsti leikur
liðsins undir stjórns Þorsteins sem
tók við liðinu af Jóni Þór Haukssyni
í lok janúar á þessu ári.
Þorsteinn stillti upp afar ungu liði
í sínum fyrsta landsleik en meðal-
aldur liðsins var rúmlega 23 ár. Þá
var einungis einn leikmaður í byrj-
unarliðinu yfir þrítugu, Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir, sem verður 33 ára
gömul síðar á árinu.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Ás-
laug Munda Gunnlaugsdóttir fengu
báðar tækifæri í byrjunarliðinu en
Cecilía er 17 ára og Áslaug Munda
19 ára.
Meðalaldur íslenska liðsins í síð-
asta keppnisleik gegn Ungverja-
landi í undankeppni EM í Búdapest
var tæplega 26 ár en þær Sandra
Sigurðardóttir, Hallbera Guðný
Gísladóttir og Sara Björk Gunn-
arsdóttir léku allar þann leik.
Sandra er 35 ára gömul, Hallbera
er 34 ára gömul og Sara Björk þrí-
tug og því ljóst að fjarvera þeirra í
leiknum gegn Ítalíu um síðustu
helgi hafði mikil áhrif á meðalaldur
íslenska liðsins.
Það má fastlega gera ráð fyrir því
að Sandra og Hallbera komi báðar
inn í íslenska liðið í dag en þær voru
báðar fastakonur í byrjunarliði Ís-
lands í undankeppni EM 2022 undir
stjórn Jóns Þórs.
Anna Björk Kristjánsdóttir gæti
einnig fengið tækifæri í byrjunarlið-
inu og þá verður að teljast afar lík-
legt að Sveindís Jane byrji leikinn
en hún kom inn á sem varamaður á
62. mínútu fyrir Hlín Eiríksdóttur í
fyrri leiknum.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
gæti svo leyst Elínu Mettu Jensen
af hólmi í fremstu víglínu en Berg-
lind kom inn á fyrir Elínu á 72. mín-
útu um síðustu helgi.
Sáttur við fyrri leikinn
„Allir leikmenn eru heilir heilsu
og ég á von á þó nokkrum breyt-
ingum á byrjunarliðinu,“ sagði Þor-
steinn á teams-fjarfundi með blaða-
mönnum í gær.
„Það var margt jákvætt í síðasta
leik og við héldum boltanum vel sem
dæmi. Það voru ákveðnar leiðir sem
við hefðum getað farið sóknarlega
en okkur tókst ekki að nýta okkur
þær nægilega vel.
Ég er heilt yfir sáttur enda var
þetta fyrsti leikur liðsins undir
minni stjórn og erfitt að troða öllu
inn sem maður vill sjá liðið gera.
Við vorum óhrædd við að vera
með boltann og stýra leiknum. Við
vorum þétt þegar við töpuðum bolt-
anum og gáfum fá færi á okkur,“
bætti Þorsteinn við.
Þorsteinn hafði stýrt Íslands-
meisturum Breiðabliks frá því í
október 2014 áður en hann tók við
kvennalandsliðinu en í Kópavog-
inum var lögð rík áhersla á að halda
boltanum innan liðsins.
„Við viljum spila fótbolta þar sem
við höldum boltanum vel innan liðs-
ins og stýrum þannig leikjum. Það
krefst þolinmæði og við þurfum að
bíða eftir tækifærunum með hreyf-
ingu án bolta og ákveðnum hlaup-
um.
Þannig vil ég að liðið spili en ég
geri mér líka grein fyrir því að þetta
fer eftir andstæðingnum hverju
sinni. Það er viðbúið að við verðum
minna með boltann í ákveðnum
leikjum. Þegar allt kemur til alls
snýst þetta um að nýta þau tækifæri
sem þú færð þegar þú ert með bolt-
ann.“
Íslenska liðið er án fyrirliða síns
Söru Bjarkar Gunnarsdóttur sem er
að glíma við meiðsli.
„Sara Björk er frábær leikmaður
og mikilvæg fyrir íslenska liðið. Það
er hluti af leiknum að leikmenn
meiðist og þegar það gerist þurfum
við leikmenn sem eru tilbúnir að
stíga upp og axla ábyrgð inni á vell-
inum.
Liðið þarf að vera þannig í stakk
búið að það geti virkað þó svo að
ákveðnir leikmenn detti út og því
verða allir að vera tilbúnir axla
ábyrgð, vera leiðtogar og takast á
við það að vera stórir persónuleikar
innan liðsins,“ bætti þjálfarinn við.
Líklegt byrjunarlið Íslands:
Sandra Sigurðardóttir – Elísa
Viðarsdóttir, Glódís Perla Viggós-
dóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir,
Hallbera Guðný Gísladóttir – Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra
Jóhannsdóttir, Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir – Sveindís Jane Jóns-
dóttir, Berglind Björg Þorvalds-
dóttir, Agla María Albertsdóttir.
Allir þurfa að axla ábyrgð
- Ísland mætir Ítalíu í öðrum vináttulandsleik þjóðanna á fjórum dögum í dag
- Þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson ætlar að gera nokkrar breytingar á liðinu
Morgunblaðið/Eggert
Reyndust Hallbera Guðný Gísladóttir er leikjahæst í íslenska landsliðinu
sem er á Ítalíu og spilar væntanlega sinn 118. landsleik í kvöld.
_ Knattspyrnumaðurinn Guðjón
Pétur Lýðsson er genginn til liðs við
ÍBV og leikur með liðinu í 1. deild
karla, næstefstu deild, á næsta
keppnistímabili. ÍBV greindi frá
þessu á vefsíðu sinni í gær en Guð-
jón gerði tveggja ára samning við
ÍBV. Guðjón Pétur kemur til ÍBV frá
Breiðabliki. Guðjón er uppalinn í
Haukum og á Álftanesi en hefur
einnig verið hjá Val, Stjörnunni og KA
hérlendis, sem og Helsingborg í Sví-
þjóð, og á 260 deildaleiki að baki á
ferlinum.
_ Kvennalið Keflavíkur í knatt-
spyrnu hefur fengið liðsauka fyrir
keppnistímabilið en tveir erlendir
leikmenn hafa bæst í hópinn. Banda-
ríski miðjumaðurinn Abby Carchio er
komin en hún er 23 ára og lék síðast
með litháísku meisturunum Gintras.
Tiffany Sornpao, 22 ára markvörður,
kemur úr bandaríska háskólabolt-
anum en hún er jafnframt landsliðs-
markvörður Taílands.
_ Kórdrengir, sem leika í fyrsta
skipti í 1. deild karla í fótbolta í sum-
ar, hafa fengið þrjá enska leikmenn í
sínar raðir, Nathan Dale, Conner
Rennison og Connor Simpson. Þeir
eru á aldrinum 18 til 21 árs og koma
allir frá norðausturhluta Englands
þar sem þeir hafa alist upp hjá
Middlesbrough og Hartlepool.
Eitt
ogannað