Morgunblaðið - 14.04.2021, Side 17
Elsku Ásta
amma. Þrátt fyrir
háan aldur kom
kallið nokkuð
óvænt. Líkaminn
var orðinn þreyttur en amma
horfði á jákvæðu hliðarnar og
kvartaði ekki. Hún gat enn
prjónað og sá til þess að allir
ættu hlýja sokka og peysur.
Amma var sannkölluð ofurkona
í okkar huga en hún vildi nú
ekki meina að hún væri neitt
sérstaklega dugleg heldur vær-
um við unga fólkið það. Henni
fannst við oft með of marga
bolta á lofti og er það ef til vill
alveg rétt hjá henni. Amma var
hörkudugleg, hún sinnti bú-
störfum, bakaði alla daga, eld-
aði tvær heitar máltíðir á dag
fyrir utan hafragrautinn á
morgnana, hún saumaði og
prjónaði á sitt fólk, var í
kirkjukórnum og hélt kirkju-
kaffi eftir messur ásamt ým-
islegu fleiru. Þrátt fyrir þetta
gaf hún sér ávallt tíma til að
sinna barnabörnunum. Henni
fannst gaman að segja frá,
hvort sem það voru æskuminn-
ingar frá Snæfellsnesi eða sög-
ur af þeim afa. Það var gaman
að spjalla við hana því hún
hafði skoðun á öllu og fylgdist
vel með því sem var að gerast í
þjóðfélaginu. Amma var líka
góður hlustandi og gaf góð ráð
þegar á þurfti að halda en lagði
ríka áherslu á að við fylgdum
hjartanu. Það leyndi sér ekki
hversu stolt hún var af fjöl-
skyldu sinni og við vonum að
hún hafi líka vitað hversu stolt
við vorum af henni. Þrátt fyrir
stóran fjölda afkomenda var
amma merkilega minnug á
nöfn og afmælisdaga okkar
Sigurást
Indriðadóttir
✝
Sigurást Indr-
iðadóttir, Ásta
á Leirá, fæddist 29.
júní 1928. Hún lést
13. mars 2021. Út-
för Ástu fór fram
29. mars 2021.
allra. Við fundum
aldrei fyrir þess-
um fjölda því hún
veitti okkur öllum
óskipta athygli,
hvernig sem hún
fór að því. Það
voru sannkölluð
forréttindi að fá að
dvelja í sveitinni
hjá afa og ömmu á
Leirá. Amma
dekraði við okkur
með nýbökuðu bakkelsi á
hverjum degi og jafnvel gátum
við platað hana til að sauma
einhverja tískuflíkina fyrir
okkur eða baka pítsu með sín-
um sérstaka hætti, oft með
tómatsósu og bjúgum eða
hangikjöti. Í sveitinni lærðum
við á lífið, við lærðum að vinna
en jafnframt að njóta náttúr-
unnar og samskipta við dýrin í
þessum ævintýraheimi sem
Leirá var. Æskuminningarnar
eru óteljandi: þegar við stál-
umst út á á, stálum tómötum
úr gróðurhúsinu, lærðum að
keyra traktor, hentumst upp á
kerruna hjá afa, spiluðum á
falska píanóið í stofunni án
þess að nokkur kvartaði eða
bara löbbuðum um sveitina
okkar, jafnvel á eftir nokkrum
beljum, og nutum náttúrunnar.
Við erum afa og ömmu þakklát
fyrir að hafa veitt okkur alla þá
ást og hlýju sem þau áttu. Nú
er komið að leiðarlokum hjá
elsku ömmu okkar og við mun-
um sakna hennar. Amma sakn-
aði Kidda afa og Reynis sárt
og í hjarta okkar trúum við því
að nú séu þau sameinuð í sum-
arlandinu, hvar sem það nú er,
kannski Leirá í annarri vídd.
Hver minning um ömmu er
dýrmæt perla og þökkum við
fyrir þann tíma sem við feng-
um með henni. Elsku Ásta
amma hvíldu í friði og guð
geymi þig.
Hlynur Þór, Kristín
Birna, Margrét Ásdís
og fjölskyldur.
Elsku amma
Munda, ég á erfitt
með að átta mig á því
að þú sért farin og er
ennþá að hugsa um að ég ætli að
skreppa í heimsókn til þín til að
spjalla um allt og ekkert og ná mér
í nokkrar súkkulaðirúsínur. Þú
skilur eftir þig mikið tómarúm
sem verður erfitt að fylla upp í.
En núna þegar þú ert farin þá
langar mig að rifja upp það sem
mér er minnisstætt um þig ömmu
mína sem var mér mikil fyrirmynd
í lífinu enda hef ég ekki hitt sterk-
ari eða seiglumeiri konu en þig. Þó
að lífið hafi tekið frá þér eins mikið
og það gaf þér, þá gafst þú aldrei
upp og hættir aldrei að lifa lífinu
með þeirri miklu gleði sem þú
bjóst yfir. Þú varst alltaf í Pollý-
önnuleik og dugleg að hvetja mig
til að taka þátt.
Þær eru ófáar minningarnar
mínar um þig þar sem hálf bar-
næskan mín var hjá þér á Grænó.
Að horfa á gamlar spólur, úti í
garði að hjálpa til við að slá blett-
inn, inni í eldhúsi að borða brauð
með heimagerðri kæfu meðan þú
trallaðir og söngst, fara út í
Guðnabakarí að kaupa kleinu-
hringi eða niðri í saumaherbergi
þar sem þú saumaðir flíkur á mig,
hverja annarri glæsilegri. Jóla-
kjólar, útskriftarkjólar, 17. júní
föt, búningar fyrir skólaleikrit,
gallabuxur, kápur, peysur og hvað
eina sem vantaði, þú saumaðir
þetta allt á mig með mikilli gleði og
óaðfinnanlegum stíl.
Fyrirgefðu að ég gat aldrei
staðið kyrr meðan þú varst að taka
af mér mál.
Þú skófst aldrei af neinu og
sagði hlutina alltaf eins og þeir
komu þér fyrir sjónir. Þegar þú
Ingimunda Guðrún
Þorvaldsdóttir
✝
Ingimunda
Guðrún Þor-
valdsdóttir fæddist
10. september
1929. Hún lést 29.
mars 2021.
Útförin fór fram
8. apríl 2021.
ákvaðst að gera eitt-
hvað þá var ekkert
verið að tvínóna við
eitt eða annað heldur
bara keyrt í hlutina.
Þetta þótti mér oft
fyndið þar sem heið-
arleiki þinn og hvat-
vísi var oft efni í
fyndna sögu sem var
lengi endurtekin.
En það var ekki
alltaf dans á rósum
að eiga heiðarlega og hvatvísa
ömmu. Í þeim mörgu búðarferð-
um sem við fórum saman til
Reykjavíkur þá gat oft verið erfitt
að vera unglingur að máta föt þeg-
ar þig langaði að sjá hvernig allt
liti út. Þá var búningsklefinn bara
rifinn upp og mér skipað að koma
fram og sýna þér hvernig allt leit
út. Athugasemdum og skoðunum
um hvað passaði og hvað passaði
ekki var svo frjálslega deilt út.
Eftir á að hyggja þá hafðir þú allt-
af rétt fyrir þér enda mikill tísku-
snillingur og stílisti.
Þú kenndir mér að ég ætti alltaf
að vera ég, predikaðir stíft að ég
ætti ekki að reyna að vera eins og
allir aðrir, vera öðruvísi og vera
ánægð með að vera ég sjálf. Þetta
eru orð sem hafa setið fast eftir og
mun ég alltaf minnast þess með
hlýju hvernig þú stappaðir enda-
laust stálinu í unglingsstelpuna
sem fannst hún stundum ekki vera
eins merkileg og hún var í raun og
veru.
Ég er svo þakklát að hafa flutt
heim og fengið að eiga þetta eina
og hálfa ár með þér og fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
saman þegar ég kom að heim-
sækja þig um helgar.
Hvort sem þú varst að smyrja
handa mér brauð með kæfu, telja
bílana á leiðinni heim á Selfoss,
spila kana eða að fagna með mér
þeim áföngum sem voru mikilvæg-
ir í lífinu þá gerðir þú það allt með
gleði og ást.
I love you inn að beini.
Þín dótturdóttir,
Karen.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
✝
Sævar Hólm
Pétursson
fæddist 13. nóv-
ember 1954 í
Reykjavík. Hann
lést á Landspít-
alanum 12. mars
2021.
Foreldrar Sæv-
ars voru hjónin
Pétur Hólm Karls-
son bifreiðarstjóri,
f. 30. desember
1920 í Reykjavík, d. 4. október
2017, og Kristólína Guðmunds-
dóttir húsmóðir, f. 26. ágúst
1924 í Nýjubúð í Grundarfirði,
d. 21. apríl 1991.
Systkini Sævars eru Guðlaug
Erla, f. 8. júlí 1947, d. 18. júlí
2019, og Alda og Bára, f. 10. jan-
úar 1950.
Sævar ólst upp á Baldursgötu
26 í Reykjavík og gekk í Miðbæj-
arskólann. Hann nam prent-
myndasmíði í Iðnskólanum í
Reykjavík og lauk
sveinsprófi í þeirri
grein 1976 og starf-
aði lengst af í
prentiðnaðinum.
Sævar var í sam-
búð með Hönnu
Margréti Geirs-
dóttur, þau slitu
samvistir. Börn
þeirra eru: Pétur
Fannar verkfræð-
ingur, f. 14. júlí
1976 í Reykjavík, og Harpa Júlía
hjúkrunarfræðingur, f. 9. júlí
1979 í Reykjavík. Eiginkona
Péturs er Margrét Jónasdóttir,
f. 6. apríl 1976, og börn þeirra
eru Freyja Ísold, f. 7. ágúst
2003, Fanndís Sunna, f. 20.
ágúst 2007, og Theódór Jónas, f.
21. febrúar 2012. Barn Hörpu er
Sölvi Freyr, f. 19. september
2006.
Útför hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hins látna.
Það kemur manni alltaf dá-
lítið á óvart þegar maður les
dánarauglýsingarnar í Morgun-
blaðinu og rekst þá, eins og af
einhverri tilviljun, á dauðsfall
góðs vinar, sem maður hefur
haft samskipti við fyrr á lífs-
leiðinni og jafnvel fram á þenn-
an dag. Það koma ósjálfrátt
upp í hugann ýmsar minningar
frá fyrri tíð og þannig var það
nú á dögunum þegar ég las
dánarfregn míns ágæta félaga
Sævars Hólm Péturssonar
prentmyndasmiðs.
Sævar Hólm var fæddur 13.
nóvember 1954 og lést 12. mars
2021. Hann féll því frá fyrir
aldur fram, aðeins 66 ára gam-
all. Sævar nam prentmynda-
smíði í Iðnskólanum í Reykja-
vík og lauk sveinsprófi í þeirri
grein 19. febrúar 1976. Hann
starfaði fyrst hjá Myndamótum
(Morgunblaðinu) 1973-1984 og
á þeim árum bætti hann við sig
námi í offsetskeytingu og plötu-
gerð vegna tæknibreytinga í
iðninni og tók sveinspróf í
þeirri grein. Seinna vann hann
m.a. hjá Eddu, Ísafold, Korpus
og Prentþjónustunni.
Það hefur verið á þeim árum
eftir að Félag bókagerðar-
manna var stofnað, sem fund-
um okkar bar fyrst saman eða
þegar ég vann á skrifstofu fé-
lagsins eftir 1980. Þá kom hann
oft við hjá mér á Hverfisgötu
21 og settist við borðið hjá mér
og við spjölluðum saman um líf-
ið og tilveruna. Sævar var dag-
farsprúður maður að eðlisfari
og var þess vegna oft valinn til
ábyrgðarstarfa á meðal sinna
starfsfélaga. Hann var t.d. í or-
lofsheimilanefnd Grafíska
sveinafélagsins þegar hann
starfaði í því félagi og trún-
aðarmaður á sínum vinnustöð-
um 1979-1984 og aftur 1990-
1992.
Seinna á lífsleiðinni, eftir að
ég var hættur að vinna, bar
fundum okkar Sævars sjaldnar
saman og nær aldrei eftir að ég
flutti austur í Hveragerði. En
þá kom til skjalanna þetta lífs-
nauðsynlega tækniundur, Face-
bókin, sem við báðir tileink-
uðum okkur síðustu árin. Enn
fremur gekk hann nýlega í fé-
lagið okkar Prentsögusetur,
sem hefur það að markmiði að
varðveita gamla muni og menn-
ingu okkar bókagerðarmanna.
Á því sviði höfum við haft
nokkur samskipti undanfarin
ár. Ég vil nú að lokum þakka
honum fyrir góða viðkynningu
og votta aðstandendum hans
innilega samúð.
Svanur
Jóhannesson.
Sævar Hólm
Pétursson
Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu
hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði.
Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur
um birtingu á minningargreinum.
Minningargreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim
sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð
og samhug.
Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum
hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að
birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er
gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í
kyrrþey.
Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið
að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningar-
greina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins.
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Birting minningargreina
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HANS GEORG BÆRINGSSON
málarameistari frá Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Lindakirkju
föstudaginn 16. apríl klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni: https://www.lindakirkja.is/utfarir/.
Fjölskyldan sendir sérstakar þakkir til starfsfólks á deild B6
Landspítala Fossvogi.
Hildigunnur Lóa Högnadóttir
Hilmar Þór Georgsson
Íris Georgsdóttir Júlíus G. Gunnlaugsson
Halldór Högni Georgsson
barnabörn og barnabarnabarn
Elsku eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir,
tengdasonur og barnabarn,
BRYNJAR GUNNARSSON,
andaðist fimmtudaginn 1. apríl. Útförin fer
fram mánudaginn 19. apríl kl. 13. Í ljósi
aðstæðna verða aðeins nánasta
fjölskylda og vinir viðstödd athöfnina en streymt verður frá henni
á eftirfarandi slóð: https://youtu.be/FaHv84a0PGg.
Þeim sem vilja styrkja litlu fjölskylduna er bent á
söfnunarreikning: 0370-22-017567 –
kt. 240586-6229.
Stefanía Rafnsdóttir Máni Brynjarsson
Ína Salóme Hallgrímsdóttir Gunnar Bogi Borgarsson
Kristín Gunnarsdóttir Bjarki Páll Eysteinsson
Elísabet Katrín Jósefsdóttir Rafn Þorsteinsson
Bryndís Gunnarsdóttir Sigurður Jónsson
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
SVEINS SIGURBJARNARSONAR
bílstjóra, Eskifirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri
og Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað
fyrir góða umönnun.
Margrét Óskarsdóttir
Halldóra Ósk Sveinsdóttir Einar Örn Jónsson
Díana Mjöll Sveinsdóttir Sigurbjörn Jónsson
Sveinn Pálmar
Jón Kristinn
Margrét Ósk
Jökull Logi
Svanhildur Sól
Sveinn
Elskulegur eiginmaður minn,
JÓN OTTO RÖGNVALDSSON,
lést á Gran Canaria fimmtudaginn
8. apríl.
Andrea Baldursdóttir
og aðrir ástvinir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
MAREN KRISTÍN ÞORSTEINSSON,
Miklubraut 56, fædd á Sandi,
Sandey í Færeyjum,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 11. apríl.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir fær starfsfólk Grundar fyrir góða umönnun.
Gréta Kjartansdóttir Matthías Hannes Guðmunds.
Kjartan Hrafn Matthíasson Sigurbjörg Eyjólfsdóttir
Kristín Ásta Matthíasdóttir Jón Þorgrímur Stefánsson
og barnabarnabörn