Morgunblaðið - 14.04.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
Ómar Ingi Magnússon átti enn og
aftur stóreik fyrir þýska liðið
Magdeburg er liðið gerði góða ferð
til Svíþjóðar og vann 34:28-sigur á
Kristianstad í fyrri leik liðanna í
átta liða úrslitum Evrópudeild-
arinnar í handbolta. Ómar Ingi
skoraði tólf mörk og lagði upp
fimm til viðbótar.
Teitur Örn Einarsson skoraði tvö
mörk fyrir Kristianstad og Ólafur
Andrés Guðmundsson gerði eitt
mark.
Seinni leikirnir í 8-liða úrslitum
fara fram á þriðjudag eftir viku.
Ómar skoraði
12 í Svíþjóð
Morgunblaðið/Eggert
Markahæstur Ómar Ingi var illvið-
ráðanlegur í Svíþjóð í gær.
Real Madrid verður án fimm lyk-
ilmanna þegar liðið heimsækir Liv-
erpool í síðari leik liðanna í átta
liða úrslitum Meistaradeildarinnar
í knattspyrnu á Anfield í Liverpool í
kvöld. Real er í vænlegri stöðu eftir
3:1 sigur í fyrri leiknum og Liver-
pool þarf því að vinna með tveggja
marka mun eða meira til að komast
áfram.
Sergio Ramos, fyrirliði Real
Madríd, Raphaël Varane, Eden
Hazard, Lucas Vázquez og Dani
Carvajal eru allir frá vegna meiðsla
eða veikinda. bjarnih@mbl.is
AFP
Fjarverandi Varane og Ramos hafa
báðir fengið kórónuveiruna.
Fimm vantar
hjá Real Madríd
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
Bjarni Helgason
sport@mbl.is
Ný reglugerð um sóttvarnir hér-
lendis mun taka gildi á morgun.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra greindi frá því að loknum
ríkisstjórnarfundi í gær að þá verði
æfingar og keppni í íþróttum heim-
ilaðar að nýju. Síðdegis í gær var
bætt við upplýsingum á vef heil-
brigðisráðuneytisins þess efnis að
áhorfendur verði þá leyfðir á
íþróttaviðburðum hérlendis. En með
þeim takmörkunum að ekki mega
fleiri en eitt hundrað áhorfendur
koma saman á hverjum viðburði.
„Við [í ríkisstjórninni] vorum
sammála um að það þyrfti að gera
ákveðnar breytingar þarna og rík-
isstjórnin hefur lagt áherslu á að
það sé samræmi í þeim aðgerðum
sem boðaðar eru. Hvort þessar
breytingar á áhorfendabanni hafi
verið gegn tillögu sóttvarnalæknis
er hins vegar eitthvað sem ég get
ekki svarað,“ sagði Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið í gær en málaflokkurinn
heyrir undir hennar ráðuneyti.
„Þetta er afar gott skref sem ég
fagna innilega. Það er auðvitað
þannig að íþróttir barna, ungmenna
og fullorðinna er fyrst og fremst
gríðarlega stórt lýðheilsumál.
Mér fannst þess vegna skipta
mjög miklu máli að geta komið
íþróttunum af stað um leið og við
værum komin í þannig aðstæður að
það sé möguleiki. Ég hef lagt ríka
áherslu á þetta í þessum faraldri,
það er að segja að ná utan um
menntakerfið og íþróttirnar, og mér
fannst mjög mikilvægt að það væri
samræmi þarna á milli,“ sagði Lilja
enn fremur.
Höfðu undirbúið sig
Mikið var um að vera hjá sér-
samböndunum eftir tíðindi gær-
dagsins. „Við höfðum undirbúið okk-
ur undanfarna daga og vorum undir
það búin að þetta yrði niðurstaðan.
Við horfum til þess að deildakeppnin
í tveimur efstu deildunum hefjist á
ný í lok næstu viku. Æfingar verða
leyfðar frá og með fimmtudeginum
og fyrstu leikir viku síðar,“ sagði
Hannes S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambandsins, við
Morgunblaðið í gær og hann segir
stefnt að því að ljúka deildakeppn-
um í efstu deildum í kringum 10.
maí. Til stóð að keppt yrði í VÍS-
bikarkeppninni í lok apríl. Ákveðið
hefur verið að bíða með bikarkeppn-
ina og verður leikið í deildinni á
þeim tíma. „Einnig er ánægjulegt að
æfingar og keppni yngri aldurshópa
fari af stað aftur. Mikilvægt er fyrir
krakkana að komast aftur í gang
auk þess sem þetta minnkar lík-
urnar á brottfalli hjá þeim. Ráð-
herra íþróttamála hefur tekið svolít-
ið af skarið í þessari vinnu síðustu
vikurnar og unnið vel með ÍSÍ og
íþróttahreyfingunni í að reyna að
leysa þessi mál,“ sagði Hannes sem
sjálfur er kominn í sóttkví eftir smit
í fjölskyldunni.
Landsleikjahlé hjá konunum
Handknattleikssambandið stefnir
einnig að því að Íslandsmót karla
fari aftur af stað þegar líður á næstu
viku. Þar sem kvennalandsliðið leik-
ur tvo leiki á næstunni í und-
ankeppni EM verður ekki leikið í
efstu deild kvenna á næstunni.
„Við reiknum með að reyna að
hefja leik í næstu viku. Á morgun [í
dag] verður formannafundur þar
sem farið verður yfir áætlanir okk-
ar. Við þyrftum að ná að spila ein-
hverja leiki í efstu deild karla áður
en hlé verður gert á þeirri deild
vegna A-landsliðs karla,“ sagði Ró-
bert þegar Morgunblaðið spjallaði
við hann. „Smitin í samfélaginu eru
sem betur fer á niðurleið og við vor-
um því farnir að vonast eftir þessari
niðurstöðu. Það er virkilega
ánægjulegt að þetta skref hafi verið
tekið,“ sagði Róbert.
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ,
taldi í gær að Íslandsmót kvenna
hæfist 4. maí eins og stefnt var að.
„Fyrirséð er að Pepsí Max-deild
karla muni seinka um einhverja
daga, kannski viku. Liðin þurfa
hæfilegan tíma til undirbúnings fyr-
ir fyrsta leik. Við stefnum að því að
forkeppni bikarkeppninnar hefjist
nánast eins fljótt og hægt er en þó
verður það ekki um næstu helgi,“
sagði Birkir en Íslandsmót karla átti
að hefjast 22. apríl.
Farið beint í úrslitakeppnina
Stjórn Íshokkísambands Íslands
tók í gær ákvörðun um að hætta við
síðustu leikina í deildakeppninni hjá
meistaraflokkum. Þar verður því
farið beint í úrslitakeppnina. 20.
apríl hefst úrslitakeppni kvenna og
úrslitakepnpi karla hefst 24. apríl.
Er það gert með þeim fyrirvara að
skautahallirnar úthluti þeim tímum
sem stefnt er að. Í báðum tilfellum
munu Skautafélag Akureyrar og
Fjölnir berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn.
Keppt verður
í næstu viku
að óbreyttu
Morgunblaðið/Eggert
Á Hlíðarenda Útlit er fyrir að keppt verði í handboltanum í næstu viku.
- Íþróttafólk fær grænt ljós frá
yfirvöldum á æfingar og keppni
Undankeppni EM kvenna
Umspil, seinni leikir:
Rússland – Portúgal................................. 0:0
_ Rússland vann 1:0 samanlagt og fer í
lokakeppni EM 2022.
Sviss – Tékkland....................................... 1:1
_ Sviss komst áfram eftir vítaspyrnu-
keppni og fer í lokakeppni EM 2022.
N-Írland – Úkraína .................................. 2:0
_ N-Írland vann 4:1 samanlagt fer í loka-
keppni EM 2022.
Vináttulandsleikir kvenna
Ítalía – Ísland............................................ 1:1
Slóvenía – Slóvakía................................... 5:0
Ungverjaland – Bosnía ............................ 0:0
Þýskaland – Noregur............................... 3:1
Holland – Ástralía .................................... 5:0
Pólland – Svíþjóð ...................................... 2:4
Spánn – Mexíkó ........................................ 3:0
England – Kanada.................................... 0:2
Wales – Danmörk..................................... 1:1
Frakkland – Bandaríkin ...........................0:2
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit, seinni leikir:
París St. Germain – Bayern München ... 0:1
_ 3:3 samanlagt og París kemst áfram með
fleiri skoruð mörk á útivelli.
Chelsea – Porto ........................................ 0:1
_ Chelsea kemst áfram 2:1 samanlagt.
England
B-deild:
Huddersfield – Bournemouth ................. 1:2
Sheffield Wednesday – Swansea ............ 0:2
Rotherham – QPR.................................... 3:1
Staðan:
Norwich 41 27 9 5 65:28 90
Watford 41 24 10 7 59:27 82
Swansea 41 22 9 10 50:31 75
Brentford 40 20 13 7 71:40 73
Bournemouth 41 20 11 10 66:40 71
Barnsley 41 21 8 12 54:44 71
Reading 41 19 9 13 56:45 66
Cardiff 41 16 11 14 57:45 59
Millwall 41 14 16 11 41:40 58
Middlesbrough 41 16 9 16 48:45 57
QPR 41 15 11 15 48:50 56
Stoke 41 14 13 14 45:46 55
Luton 40 15 8 17 35:46 53
Bristol City 41 15 5 21 40:55 50
Nottingham F. 41 12 13 16 34:39 49
Preston 41 14 6 21 41:55 48
Blackburn 41 12 11 18 52:47 47
Birmingham 41 11 12 18 31:50 45
Huddersfield 41 11 11 19 43:62 44
Derby 41 11 10 20 30:46 43
Coventry 40 10 12 18 36:56 42
Rotherham 38 11 6 21 41:52 39
Sheffield Wed. 41 11 8 22 34:54 35
Wycombe 41 8 9 24 30:64 33
C-deild:
Blackpool – Accrington Stanley............ 0:0
- Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Blackpool sem er komið upp f́immta
sæti deildarinnar.
D-deild:
Barrow – Exeter...................................... 2:1
- Jökull Andrésson varði mark Exeter
sem er í áttunda sæti, tveimur stigum frá
umspilssæti þegar sex leikir eru eftir.
Svíþjóð
B-deild:
Sundsvall – Helsingborg......................... 2:2
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
4.$--3795.$
Þýskaland
B-deild:
Ferndorf – Gummersbach.................. 27:25
- Elliði Snær Viðarsson lék ekki með
Gummersbach vegna meiðsla. Guðjón Val-
ur Sigurðsson þjálfar liðið.
Spánn
Barcelona – Bidasoa ........................... 35:27
- Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Barcelona.
Evrópudeild karla
8-liða úrslit, fyrri leikir:
Kristianstad – Magdeburg ................. 28:34
- Teitur Örn Einarsson skoraði 2 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð-
mundsson 1 mark.
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 12 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson er meiddur.
GOG – Wisla Plock .............................. 30:27
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 13/2 skot
í marki GOG.
Medvedi – RN Löwen.......................... 33:32
- Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö-
wen.
Montpellier – Füchse Berlín ............... 32:29
%$.62)0-#
Paris SG og Chelsea tryggðu sér í
gær sæti í undanúrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í fótbolta, þrátt
fyrir 0:1-töp.
Chelsea vann fyrri leik sinn gegn
Porto 2:0 og fer því áfram með sam-
anlögðum 2:1-sigri. Báðir leikir ein-
vígisins fóru fram í Sevilla vegna
ástandsins sem ríkir í Portúgal
vegna kórónuveirunnar. Chelsea
hafði meiri áhuga á að verja for-
skotið en að skora og skapaði liðið
sér nánast engin færi. Hinum megin
reyndi Porto hvað það gat að brjóta
niður sterkt lið Chelsea. Það tókst
loks í uppbótartíma þegar varamað-
urinn Mehdi Taremi skoraði með
stórkostlegri hjólhestaspyrnu. Nær
komst Porto ekki og Chelsea mætir
annaðhvort Real Madrid eða Liver-
pool í undanúrslitum.
Öllu meira fjör var í leik PSG og
Bayern München, þrátt fyrir að
lokatölurnar hafi verið þær sömu.
Eric Maxim Choupo-Moting, fyrr-
verandi leikmaður PSG, skoraði eina
mark leiksins á 40. mínútu. Þar sem
PSG vann fyrri leikinn 3:2 fer liðið
áfram á mörkum skoruðum á úti-
velli. PSG mætir annaðhvort Man-
chester City eða Dortmund í undan-
úrslitum.
Evrópumeistararnir
féllu úr leik í París
AFP
París Leikmenn PSG fagna vel en Jamal Musiala gengur svekktur af velli.
NBA-deildin
Orlando – San Antonio........................97:120
Memphis – Chicago.............................101:90
New Orleans – Sacramento............. 117:110
Utah – Washington .......................... 121:125
Golden State – Denver..................... 116:107
Phoenix – Houston ........................... 126:120
4"5'*2)0-#